Vikublaðið - 30.09.1994, Qupperneq 1
Eðlisþyngd
Magnúsar
Hver er mælieining manns?
Hver segir að ekki megi gera
afsteypu af loftí? Olafur
Gíslason skrifar um merka
myndlistarsýningu á bls. 9
Pressan öll
Utgefendur hins nýja Morgun-
pósts ætla að taka það besta frá
Pressunni og Eintaki en henda
hinu. En hvað var gott og hvað
slæmt? „Gula pressan" og hefðir
hennar í skoðun á bls. 5
Konurnarí
Alþýðubandalaginu
Það hefur ekki farið hátt, en Al-
þýðubandalagið hefur samþykkt
nýjar reglur um tilnefningar í
ráð og nefndir til að auka hlut
kvenna. Sjá Sjónarhorn á bls. 2
38. tbl. 3. árg.
30. september 1994
Ritstjóm og
afgreiðsla:
sími 17500
250 kr.
Kratar boða brandara
Guðmundur Árni skellir skuldinni á undirmenn og boðar siðvæðingu í félagi með Jóni Baldvin. Mágur ráðherra
skilar bitlingi. Sannleikanum hagrætt. Starfsemi félagsmálaráðuneytisins í lamasessi. Heiðarlegir Alþýðuflokks-
menn þvo hendur sínar af Guðmundi Árna.
Guðmundur Ami Stefónsson
félagsmálaráðherra reynir
að koma sök á undirmenn
sína í umræðunni um spillingu og
óráðsíu ráðherrans. I dag ætlar
Guðmundur Ami í félagi með Jóni
Baldvin Hannibalssyni formanni
Alþýðuflokksins að leggja ffam
hugmyndir um siðvæðingu í
stjómmálum. I þeim hugmyndum
er ekki gert ráð fyrir að félagsmála-
ráðherra segi af sér.
I fylgibréfi rneð greinargerð sem fé-
lagsmálaráðherra lagði ffain á mánu-
dag segir að fjármálaóreiða Listahá-
tíðar Hafnafjarðar 1993 sé eingöngu
fjármálastjóranum Arnóri Benónýs-
syni að kenna en ekki minnst á þá
staðreynd að Arnór vann náið með
þáverandi bæjarstjóra, Guðmundi
Árna Stefánssyni. í starfssamningi
Arnórs er kveðið á um að hann starfi
„í nánu samráði við bæjarritara og
bæjarstjóra." Mikill rekstrarhalli varð
á Listahátíð Hafnarfjarðar.
A blaðamannafundi sem félags-
málaráðherra hélt á mánudag sagði
ráðherra að rnágur sinn og aðstoðar-
maður, Jón H. Karlsson, hefði sagt af
sér formennsku í stjórnarnefnd Ríkis-
Sófasett frá Skeljungi tíl þing-
manns SjáJfstæðisflokksins
Sendiferðabíll frá almenningshlutafé-
laginu Skeljungi hf. hefur síðustu
daga flutt skrifstofuhúsgöng fyrir
þingmaxm Sjálfstæðisflokksins sem er
giftur forstjóra fyrirtækisins.
Sólveig Pétursdóttir þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík er í óða önn að undir-
búa prófkjörsþátttöku sína í haust þegar
flokkurinn velur frambjóðendur sína í höfuð-
borginni.
Undanfarna daga hefur verið unnið að því
að innrétta kosningaskrifstofii fyrir Sólveigu
að Vegmúla 2. Meðal annars hafa sendiferða-
bílar frá oh'ufélaginu Skeljungi flutt á skrif-
stofuna leðursóffasett sem var pakkað í plast
og merkt Skeljungi í bak og fyrir.
Eiginmaður Sólveigar er Kristinn Björns-
son forstjóri Skeljungs og bróðursonur Geirs heitins Hallgrímssonar forsætisráðhcrra og formanns Sjálfstæðis-
flokksins. Kosningaskrifstofa Sólveigar er komin með fjóra síma sem skráðir eru á nafh Péturs Hannessonar deild-
arstjóra hjá Reykjavíkurborg. Pétur er faðir Sólveigar.
Með baráttukveðju frá Skeljungi hf.: Leðursóffasett á kosningaskrif-
stofu Sólveigar Pétursdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Mynd: ói.p.
Guðmundur Árni Stefánsson félags-
málaráðherra fórnar samstarfsmönnum
og leggur fram tillögu um almenna sið-
bót til að ná betri stöðu í refskákinni um
pólitíska framtíð sína. Mynd: ói.þ.
spítala í kjölfar ráðherraskipta í sum-
ar. Guðmundur Arni var harðlega
gagnrýndur þegar hann sem heil-
brigðisráðherra skipaði mág sinn í
þessa nefnd rétt áður en ný stjórn-
sýslulög tóku gildi sem gerðu skipun-
ina ólöglega. Jón virðist hafa ákveðið
að segja af sér til að freista þess að slá
á gagnrýni á félagsmálaráðherra enda
er uppsagnarbréfið skrifað 21. sept-
ember en ráðherraskiptin fóru ffarn í
júní.
Guðmundur Arni hagræddi sann-
leikanum á blaðamannafundinum
þegar hann sagðist ekki hafa tekið þátt
í því að gera starfslokasamning við
Björn Önundarson tryggingalækni
sem hefur verið ákærður fyrir skatt-
svik og er faðir náins vinar Guðmund-
ar Arna. I ijós hefur kornið að Guð-
rnundur Arni lét reikna út réttindi
Bjöms og hafði þannig ffumkvæði að
starfslokum hans sem fólu meðal ann-
ars í sér að Björn fékk háar peninga-
upphæðir fyrir tvær stuttar skýrslur.
Starfsemi félagsmálaráðuneytisins
er í lamasessi á meðan umræðan um
spillingu ráðherra geisar. I næstu viku
hafði verið ráðgert að opna nýja deild
í ráðuneytinu sem sér um málefhi
barna og unglinga. Þessi deild á með-
al annars að bera ábyrgð á nýrri mót-
töku og meðferðarstöð unglinga. Til1
stóð að ráða Braga Guðbrandsson,
aðstoðarmann Jóhönnu Sigurðardótt-
ur fyrrverandi félagsmálaráðherra,
sem yfirmann deildarinnar en vegna
þess að Guðmundur Árni er rúinn
trausti og tiltrú leggur hann ekki í að
tilkynna um ráðningu Braga.
Heiðarlegir Alþýðuflokksmenn þvo
hendur sínar af Guðmundi Ama. Þor-
kell Helgason fyrrverandi aðstoðar-
maður Sighvats Björgvinssonar bird
athugasemd í Morgunblaðinu á mið-
vikudag þar sem hann vísar á bug
staðhæfingum Guðmundar Árna um
að bitlingar á borð við stjórnarfor-
mennska í Ríldsspítölum gangi í
„erfðir." Athugasemd Þorkels eyði-
leggur endanlega þann málflutning
Guðmundar Árna að bitlingar sem
hann hefur veitt mági sínum séu eði-
legir vegna þess að mágurinn er að-
stoðarmaður ráðherra.
Persónunjósnír hjá borgmni?
Vesturlands-
kratar þegja um
Guðmund Arna
✓
Iítarlegri stjómmálaályktun
sem samþykkt var á aðalfundi
kjördæmisráðs Alþýðuflokksins
á Vesturlandi um síðustu helgi
er úrsögn Jóhönnu Sigurðar-
dóttur úr Alþýðuflokknum
hörmuð, en ekki vikið einu ein-
asta orði að spillingarmálum
Guðmundar Ama Stefánssonar
félagsmálaráðherra.
Kjördæmisráðið fer unt víðan
völl í stjórnmálaályktuninni, en sér
ekki ástæðu til að taka afstöðu dl
þess hvort það styður Guðmund
Árna eða telji að hann eigi að segja
af sér ráðherrastörfum og öðmm
trúnaðarstörfhm fyrir flokkinn.
Reyndar hafa komið stuðningsyf-
irlýsingar við Guðmund Árna frá
krötum í aðeins tveimur kjördæm-
um, kjördæmi ráðherrans sjálfs og
kjördæmi Gunnlaugs Stefánssonar
bróður hans.
Hátt settir embættismenn
Reykjavíkurborgar hafa
krafið undirmenn sína
skýringa á símtölum sem þeir hafa
átt við aðila útí bæ. Embættis-
mennimir hafa vísað til tölvuút-
skrifta á símtölum en tölvunefnd
hefur bannað slíka upplýsingasöfn-
un.
Vikublaðið hefur heimildir fyrir því
að tveir starfsmenn borgarverkfræð-
ings hafi verið kallaðir inná teppið hjá
yfirmönnum embættisins og krafhir
skýringa á símtölum sínum. Fyrra at-
vikið átti sér stað vorið 1992 og mað-
urinn sem kallaður var fyrir hafði tal-
að í síma við einstaklinga í minnihluta
borgarstjórnar. Undirmaðurinn var
beðinn að útskýra hvaða erindi hann
átti við minnihlutann. Scinna atvikið
gerðist síðastliðinn vetur og þá var
starfsmaður krafinn skýringa á samtali
sem hann átti við sjónvarpsfrétta-
mann. I báðum tilvikum gerðu yfir-
menn borgarverkfræðings starfs-
mönnunum ljóst að fylgst væri með
því hvert þeir hringdu.
Símkerfið í húsnæði borgarverkfræð-
ings gerir yfirmönnum embættisins kleift
að safna upplýsingum um símnotkun
starfsmanna og tvö tilvik benda til þess
að það hafi verið gert í trássi við lög og
ægiur. Mynd: ÓI.Þ.
Tölvunefnd hefur úrskurðað að
óheimilt sé að skrá símtöl þannig að
hægt sé að rekja hvert hringt er og
hvaðan.
Heimilistæki hf. setti upp nýtt sím-
kerfi fyrir Reykjavíkurborg þegar
Ráðhúsið var tekið í notkun. Að sögn
Guðmundar Olafssonar yfirmanns
Fjarskiptaeftirlitsins, sem sá urn út-
boðslýsingu á símkerfinu, var gert ráð
fyrir því að hægt væri að skrá inn- og
úthringingar í símkerfi borgarinnar
en til þess þyrfti-sérstakan hugbúnað.
Símkerfi Reykjavíkurborgar er með
tvær miðstöðvar, önnur er í Ráðhús-
inu en hin í húsakynnum borgarverk-
fræðings í Skúlatúni.
Halldór Lárusson hjá Símtækni hf.
er ráðgjafi borgarinnar í símamálum
og hann staðfestir að með reglulegu
millibili eru inn- og úthringingar ein-
stakra borgarstofnana athugaðar.
Halldór finnst samt ótrúlegt að ein-
stakir embættismenn hafi aðgang að
upplýsingum um símanotkun ein-
stakra starfsmanna.
- Það er nánast útilokað að slíkt
geti gerst en ég mun í ffamhaldi af
þessum upplýsingum athuga þetta
mál, segir Halldór.
Magnús Böðvar Eyþórsson yfir-
rnaður tæknideildar Heimilistækja
sagðist elcki vita til þess að skipulega
væri safhað upplýsingum um sím-
notkun í borgarkerfinu. Hann útilok-
aði þó ekld að yfirmenn einstakra
stofnana gerðu slíkar ráðstafanir upp á
eigin spýtur.
Fyrir nokkrum misserum keypti
Kópavogsbær hugbúnað til að fylgjast
með inn- og úthringingum og að sögn
Ólafs Briem bæjarritara kostaði bún-
aðurinn ekki nema 20 - 30 þúsund
krónur og þurfti ekki mikla þekkingu
til að setja búnaðinn upp og nota
hann. Þessari upplýsingasöfhun
Kópavogsbæjar var hætt þegar starfs-
menn bæjarins mótmæltu.