Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.2005, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.2005, Side 4
4 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 24. september 2005 E ndurreisnartíminn í Flórens er eitthvert þverstæðufyllsta umbrotatímabil í menning- arsögu Evrópu. Um leið og það gat af sér ódauðleg lista- verk, sem enn varpa ljóma á listasögu Vesturlanda, voru hafin til vegs í Flórens vísindi og fræði er byggðust ekki á framþróun heldur afturhvarfi til fornald- arinnar, en einkum þó þess nýplatónska heim- spekiskóla er varð til á frumkristnum tíma í Grikklandi og blandaði saman eingyðis- og fjölgyðistrú um leið og hann hugsaði í hlið- stæðum frekar en út frá rökgreiningu. Sam- kvæmt því voru líkami og sál mannsins túlkuð sem hliðstæða Alheimsins og þeirrar Alheimssálar er gegnumsýrði efnisheiminn og gaf honum merkingu. Þessi heimsmynd fól jafnframt í sér endurvakningu hinnar grísk- rómversku fjölgyðistrúar innan ramma kristn- innar og nýrrar goðmögnunar á náttúrunni og líkama mannsins, sem var ekki lengur sú rót syndar sem tilkoma erfðasyndarinnar hafði eignað honum, heldur í senn endurspeglun og kóróna sköpunarverksins í heild sinni. Leið nýplatónistanna í Flórens til sannleik- ans lá nú í gegnum stjörnuspeki, alkemíu, vessalækningar og önnur fræði þar sem innsæi, ímyndunarafl og táknmyndir hins grísk-rómverska guðaheims gegndu lykilhlut- verki. Það er hyldýpisgjá sem skilur á milli þessa fræðaheims og þeirra vísinda mæl- anleikans sem tæknimenning nútímans bygg- ist á. Engu að síður er þetta talið eitt mesta framfaraskeið í sögu vestrænnar menningar. Hvernig má það vera? Couliano, Bruno og ímyndunaraflið Þetta er ein af þeim erfiðu spurningum sem rúmenski trúarbragðafræðingurinn Ioan P. Couliano glímir við í fræðiriti sínu Eros og galdrar á endurreisnartímanum. Rannsókn Couliano er merkileg vegna þess að hún bygg- ist ekki á mælikvarða framþróunar eða fram- fara, heldur skoðar hann bæði endurreisn- artímann og samtíma okkar í ljósi ímyndunaraflsins og þróunarsögu þess. Við það breytast öll viðmið og sagan verður önnur. Hér verður fjallað um þetta rit Couliano og þá mynd sem hann dregur upp af heimspek- ingnum Giordano Bruno sem síðasta fulltrúa þeirrar náttúruheimspeki endurreisnarinnar er byggðist á ímyndunarafli mannsins og mætti Erosar. Fyrir þær hugsjónir galt hann með lífi sínu á bálkesti Rannsóknarréttarins í Róm aldamótaárið 1600. Eros og galdur Endurvakning hugmynda um gildi Erosar og ímyndunaraflsins má rekja til heimspekings- ins Marsilio Ficino (1433–99), sem starfaði í akademíu Medici-ættarinnar á mesta blóma- skeiði Flórensborgar. Hann þýddi verk Plat- ons á latínu og gaf út með skýringum sínum um leið og hann þýddi rit grískra dulhyggju- manna frá frumkristnum tíma, þar sem blönd- uðust saman eingyðis- og fjölgyðistrú. Þar fann Ficino grundvöll hinnar nýplatónsku heimsmyndar endurreisnarinnar er skil- greindi Alheimssálina, anima mundi, sem hið eina, ódeilanlega og óbreytanlega upphaf og endi alls sannleika. Orka hennar, sem á rætur sínar í Guði, streymir í gegnum pláneturnar og gegnsýrir gjörvallan efnisheiminn og tengir þannig saman hin margbreytilegu og hverfulu form náttúrunnar og mannsins. Þetta er sú frumorka Erosar, sem við köllum líka ást, og er frumforsenda sífelldrar endursköpunar heimsins, hvort sem hún birtist í gagnkvæmu aðdráttarafli kynjanna, þeirri orku er tengir manninn við Guð, náttúruna í heild sinni eða einstaklinginn við dulvitund sína og sinn innri mann. Í skýringum við þýðingu sína á Sam- drykkju Platons segir Ficino: „Einstakir hlut- ar heimsins, eins og limirnir eða líffærin í sama dýrinu, eiga allt sitt undir Erosi, sem er einn. Þeir samsvara hver öðrum vegna sameiginlegs eðlis … Eros verður til úr þessu gagnvirka sambandi og þar býr líka hinn mikli galdur.“ Lífeðlisfræði vinds og draugamynda Hugmynd Ficinos um að Eros sé ekki bara efnið sem bindur saman tvo einstaklinga, held- ur líka hinar andstæðu verur efnis og anda, sálar og líkama, er sótt til Platons, einkum Samdrykkjunnar. Í augum Platons er hinn fullkomni elskhugi ekki sá sem hefur náð besta valdi á leyndardómum kynlífsins, heldur sá elskhugi viskunnar sem merking orðsins philo- sophus felur bókstaflega í sér. Þetta afhjúpar hina tvíræðu og flóknu mynd Erosar, sem er rannsóknarefnið í Samdrykkju Platons. Couliano bendir á að eðlislæg forvitni Arist- ótelesar á leyndardóma náttúrunnar hafi knú- ið hann til að leita áþreifanlegrar skýringar á efnislegri gerð þess skilrúms er Platon hafði staðfest á milli anda og efnis, líkama og sálar. Ef um aðskilin fyrirbæri er að ræða þá hlýtur eitthvað áþreifanlegt að vera á milli þeirra. Í stuttu máli kemst Aristoteles að því að þetta bil sé í eðli sínu „pneuma“, en það merkir loft eða vindur. Þessi vindur er einmitt athafna- svæði Erosar, og Aristoteles finnur honum stað í hjarta mannsins, sem þannig dælir loft- kenndum myndum (phantasma) Erosar frá skynfærum líkamans um loftæðakerfið til sál- arinnar, er býr í höfðinu. Í latneskri þýðingu á Aristotelesi er þetta orðað þannig að „Sálin skilur ekkert sem ekki hefur tekið á sig loft- kennda mynd svipsins eða draugsins (phant- asma).“ Kerfisbundin notkun Couliano á þessum hugtökum Aristotelsar (pneuma og phant- asma) kann að virka tilgerðarleg og vekja þá spurningu hvort ekki sé eðlilegra að notast við hugtök sem okkur eru tamari eins og „andi“ og „hugmynd“. Á íslensku merkir „andi“ ann- aðhvort loftið í vitum okkar eða efnislaus svip- ur eða draugur. Guðfræðin hefur kennt okkur að sjá Guð í þessu orði sem „heilagan anda“, en á enskri tungu eru hugtökin „Holy Spirit“ og „Holy Ghost“ notuð jöfnum höndum um al- mættið. Trúlega er sá siður að kenna Guð við vind eða draug tilkominn af þeirri einföldu ástæðu að Guð er óhöndlanleg stærð og því eru allar vísanir tungumálsins í hann dæmdar til að verða með nokkrum ólíkindum. Orðin pneuma og phantasma hjálpa okkur í raun til þess að sneiða hjá hugsunarlausri notkun á orðunum andi og hugmynd, sem falla alls ekki að þeirri lífeðlisfræði Forn-Grikkja sem tekin var sem gildur sannleikur allt fram að upp- götvun rafmagnsins, að taugaboð skynfær- anna til heilans væri vindgangur í æðakerfinu er flytti loftkenndar draugamyndir Erosar í gegnum dælumiðstöð hjartans til þriggja hólfa sálarinnar í höfði manns. Svipir Erosar og svarta gallið Samkvæmt þessum fræðum eru þær svip- myndir Erosar er birtast á sálarglugga mannsins ekki allar af guðdómlegum uppruna. Miðaldakirkjan rakti þær reyndar flestar til djöfulsins. Gamalt læknisfræðirit frá 13. öld, Lilium medicinale, eftir Bernard frá Gordon (1258–1318), segir frá því hvernig sjúkdóm- urinn „hereos“ (hetjusótt) getur orsakast af skynvillu sem á sér stað þegar maður missir dómgreind sína gagnvart konu sem hann verð- ur ástfanginn af. „Hann ímyndar sér að hún sé það fegursta, æruverðugasta, fagurlimaðasta og best gerða til sálar og líkama sem hugsast getur … hann þráir hana af ástríðu sem er án alls eðlilegs viðmiðs og fyrir utan alla heil- brigða skynsemi.“ Gordon segir þá karlmenn er þjást af þessum sjúkdómi fyllast lamandi svartagallsangist og tapa öllu raunveru- leikaskyni. Það athyglisverða við þessa sjúk- dómsgreiningu er að það er ekki konan sem orsakar hetjusóttina, heldur sú mynd hennar sem Eros birtir elskhuga hennar í sálinni eftir loftpípum hjartans og er af sama efni og draugar eða vakningar. Í rauninni er konan ekki lengur hún sjálf, heldur hefur hún breyst í „phantasma“ eða draug sem heltekur sálina. Frásögn þessi birtir okkur hið tvíræða eðli Erosar sem kannski var dýpsti heimspekilegi vandinn sem Giordano Bruno glímdi við, og víkjum nú að honum. Giordano Bruno Í riti Couliano er dregin upp mynd af Giordano Bruno sem síðasta fulltrúa þeirrar nátt- úruheimspeki er byggðist á galdramætti Eros- ar. Hann fæddist í bænum Nola skammt frá Napólí árið 1548 og gerðist ungur munkur í reglu domenicana. Hann gleypti í sig nýplat- ónsk fræði Ficino og Mirandola og kynnti sér jafnt dulspekirit Hermesar Trismegistosar sem sólmiðjukenningu Kópernikusar, sem hann studdi á sínum trúarlegu/erótísku for- sendum en ekki á forsendum hins stærð- fræðilega líkans. Þetta var einfaldlega mynd sem hentaði vel þeirri hugmynd hans að Guð og Alheimurinn væri einn og sami hluturinn og ætti sér einn og sama ódeilanlega upprunann. Í þeirri mynd gegndi Eros og lögmál hans lyk- ilhlutverki. Bruno sneri baki við munklífi og lagðist í ferðalög um Evrópu, þar sem hann vann fyrir sér með ritstörfum og fyrirlestrum er snerust einkum um tvennt: galdur Erosar og List minnisins. Á 16. öld var það mikilsmet- inn hæfileiki að hafa gott minni. Ýmsir fræði- menn gerðu minnislist að fræðigrein á þessum tíma og bjuggu til flókin kerfi táknmynda er áttu að hjálpa minninu. Bruno varð einn fræg- asti minnislistamaður álfunnar á 16. öld og naut mikillar virðingar, ekki síst í Bretlandi, fyrir þessi fræði. Í augum nútímamanna eru þetta fáránleg galdrafræði sem gera ekki ann- að en að flækja myndina af veruleikanum í það óendanlega, en þess ber að geta að Minn- islistin var kerfishugsun sem gegndi sama hlutverki á dögum Bruno og megabætin í tölvukubbunum á okkar dögum, sem eru ómissandi hluti þeirrar gervigreindar er knýr tæknivél samtímans. Eins og fyrr segir endaði Bruno líf sitt á galdrabrennu Rannsóknarrétt- arins á Campo dei Fiori í Róm árið 1600. Diana og Akteon Sú aðferð að skrifa á táknmáli launsögunnar féll vel að minnislist Bruno, þar sem myndir launsagnarinnar voru táknmyndir sem oft stóðu fyrir annan ósegjanlegan sannleika um leið og þær sveipuðu fræði hans dulúð. Það á til dæmis við um túlkun hans á grísku goðsögunni um Díönu og Akteon, sem er meginviðfansefni bókarinnar Degli Eroici Furori (Um hin hetju- legu æðisköst) frá 1585. Goðsagan segir frá því þegar veiðimaðurinn Akteon villist með hunda sína í skóginum og kemur óvart að lindinni þar sem veiðigyðjan Díana er að baða sig nakin ásamt hirðmeyjum sínum. Díana var jafnframt gyðja næturinnar og tunglsins sem endurvarpar birtunni frá bróður hennar, Apollon, sem er hinn sanni frumglæðir ljóssins. Hún var verndari hinna hreinu meyja og gyðja hinnar villtu náttúru þar sem hún ferðaðist um skóginn með dísum sínum vopnuð boga og örvum. Þær lifðu í ströngu skírlífi og við því lá blátt bann að karl- menn fengju að líta gyðjuna augum, hvað þá sjá hana nakta. Því bregst Díana illa við er Ak- teon birtist í rjóðri hennar og hún umbreytir honum tafarlaust í veiðibráð. Akteon fær höf- uð og hnegg hjartarins og þegar hundar hans sjá hann og heyra halda þeir að hann sé villi- bráð og drepa húsbónda sinn. Fyrir Bruno verður Díana táknmynd í kerfi minnislistarinnar. Hún stendur fyrir náttúr- una í heild sinni, hún stendur fyrir endurskin tunglsins og í augum Bruno stendur hún einn- ig fyrir Elísabetu I. Englandsdrottningu, en Bruno var einlægur konungssinni og vissi fátt göfugra en þessa drottningu rísandi heims- veldis er lifði í einlífi hinnar hreinu meyjar. Sem svipmynd Náttúrunnar stóð Díana í aug- um Bruno einnig fyrir gyðjuna Amphitrite, sem hann taldi „uppruna allra talna, allra teg- unda og allra orsaka“, það er að segja frum- forsendu hins ósegjanlega, ódeilanlega og ósýnilega platónska sannleika handanver- unnar: „Díana er hið eina...einingin sem er sannleikurinn sjálfur, sannleikur sem er af toga skilningsins þar sem sól og dýrð æðri veru ljómar samkvæmt greiningunni á milli skaparans og sköpunarverksins eða framleið- andans og framleiðslu hans.“ Sem skuggamynd Alheimssálarinnar (Amp- hitrite) er Díana uppfull af efnislegum verum sem engu að síður er hægt að skynja sem eina ódeilanlega heild. Á því augnabliki sem Akteon lítur Díönu augum uppgötvar hann að hann er Eros og galdur ím Eftir Ólaf Gíslason olg@simnet.is Sú goðmögnun náttúrunnar og líkamans sem einkenndi vísindi endurreisnartímans og gat af sér ómetanleg listaverk byggðist á kosm- ískri orku Erosar er tengir manninn við nátt- úruna, sjálfan sig og Guð í gegnum ímynd- unaraflið. Með tilkomu vísindahyggju nútímans var náttúran afhelguð, ímyndunar- aflið gert ómerkt og máttur Erosar talinn til syndar. Galdrabrenna Giordano Bruno var táknræn fyrir þessi umskipti.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.