Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.2005, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.2005, Side 5
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 24. desember 2005 | 5 sníður mér kufl úr snjó snýr strengi blárra geisla á boga barnsins sem fæðist í kvöld – allt er nú hreint: íslandið ég og ástin mín.25 Ljóðið boðar frið vegna þess sístæða jóla- undurs að Jesús fæðist um hver jól og end- urnýjar þannig mann og heim, skapar for- sendur friðar og réttlætis. Þá leiðir hinn hvíti jólasnjór til hreinsunar – kaþarsis – í huga skáldsins. Áleitinnar tómhyggju gætir hins vegar í aðventuljóðinu Jólaföstu (Ný og nið 1970): Hægt silast skammdegið áfram með grýlukerti sín hangandi í ufsum myrkursins. Þegar búið er að kveikja vitrast mér tvennskonar stórmerki: gestaspjót kattarins og hringsól gestaflugunnar. Ég hlusta og bíð í ofvæni en það kemur enginn 26 Hátíð fer að höndum ein Í jólakveðskap Jóhannesar fléttast saman gaman og alvara, trú og tómhyggja, þjóð- félagsádeila og draumkennd íhugun. Sums staðar er tónninn hvass en sums staðar ang- urblíður og á hið síðarnefnda ekki síst við um elstu ljóðin og æskuminninguna í Mater dolorosa. Hinn lágstemmdi tónn íhugunarinnar kem- ur þó e.t.v. hvergi betur fram en í fjórum erind- um sem Jóhannes orti við fornt viðlag úr fórum Grunnavíkur-Jóns (1705–1779), Hátíð fer að höndum ein:27 Gerast mun nú brautin bein, bjart í geiminum víðum, ljómandi kerti á lágri grein, líður að tíðum, líður að helgum tíðum. Sæl mun dilla silkirein syninum undurfríðum, leið ei verður þá lundin nein, líður að tíðum, líður að helgum tíðum. Stjarnan á sinn augastein, anda mun geislum blíðum, loga fyrir hinn litla svein, líður að tíðum, líður að helgum tíðum. Heimsins þagna harmakvein, hörðum er linnir stríðum, læknast og þá hin leyndu mein, líður að tíðum, líður að helgum tíðum.28 Er fyrsta og síðasta erindið að finna í sálma- bók þjóðkirkjunnar.29 Í fyrsta erindi Jóhannesar í þessum „sálmi“ gætir hugrenningatengsla við þau orð sem sótt eru til Spádómsbókar Jesaja (40: 3) og heim- færð upp á Jóhannes skírara m.a. í Matteus- arguðspjalli (3:3): Jóhannes er sá sem svo er um mælt hjá Jes- aja spámanni: Rödd hrópanda í eyðimörk: Greiðið veg Drottins, gjörið beinar brautir hans. Eru þessi orð Jesaja þekktur aðventutexti sem lesinn er á 3. sunnudegi í jólaföstu.30 Loka- erindið verður aðeins skilið í ljósi þeirrar fram- tíðarvonar sem víða kemur fram í kveðskap Jó- hannsear og felur í sér hugsjón um endurnýjun gjörvalls mannlegs samfélags og er saman- tvinnuð úr róttækri byltingarhugsjón og kristnum hugmyndum um guðsríkið.31 Lokaorð Jólakveðskapur Jóhannesar úr Kötlum er at- hyglisverður aldarspegill og sýnir hver opin kvika tilfinningalíf skáldsins var fyrir að- stæðum heimsmála á hverjum tíma. Hinn stríði tónn sem fram kemur á kreppu- og stríðsárunum sýnir það best. Þá takast á gaman og alvara í þessum kveð- skap sem og trú og tómhyggja. Andstæðurnar sem fram koma eru miklar, allt frá góli útburð- arins á Miðnesheiði til fölskvalausrar framtíð- arsýnar um að hulin mein muni læknast við komu Krists. Víðast má segja að róttæknin og trúarhugs- unin í jólaljóðunum skerpi hvor aðra fremur en að önnur brjóti brodd af hinni.  Heimildir og hjálpargögn Biblían, 1981. Handbók íslensku kirkjunnar, 1981. Hjalti Hugason, 2004: „Kristur og framtíðarlandið.“ And- vari. 129. ár. Hjalti Hugason, án árt.: „Á mótum dulhyggju og fé- lagshyggju.“ (ób. ritg.). Hörður Ágústsson, 2000: Íslensk byggingararfleifð 1. b. Jakob Benediktsson, 1989. Hugtök og heiti í bókmenntafræði. Ljóðasafn, 1972–1984: Jóhannes úr Kötlum: Ljóðasafn. 1.–5. og 7–9. b. Sálmabók íslensku kirkjunnar, 1997. Silja Aðalsteinsdóttir, 1984: „Eftirmáli.“ Í Jóhannes úr Kötl- um: Ljóðasafn 9. b. 1 Jakob Benediktsson 1989: 158–159. 2 Ljóðasafn 1984(9): 27. 3 Ljóðasafn 1984(9): 27. 4 Ljóðasafn 1972(1): 124–125. 5 Ljóðasafn 1972(1): 127. 6 Ljóðasafn 1972(1): 259. 7 Ljóðasafn 1973(4): 59. 8 Hjalti Hugason 2004: 78. 9 Hjalti Hugason án árt.: 12. 10 Ljóðasafn 1972(2): 32. 11 Ljóðasafn 1972(2): 30. 12 Ljóðasafn 1973(3): 170. 13 Ljóðasafn 1973(3): 171. 14 Ljóðasafn 1974(5): 84. 15 Ljóðasafn 1974(5): 84. 16 Ljóðasafn 1974(5): 81. 17 Ljóðasafn 1973(4): 15 18 Ljóðasafn 1973(3): 161. 19 Ljóðasafn 1973(3): 162. 20 Ljóðasafn 1973(4): 128. 21 Ljóðasafn 1974(5): 156–157. 22 Ljóðasafn 1974(5): 150–151. 23 Ljóðasafn 1976(7): 67–68. 24 Hörður Ágústsson 2000: 261–266. 25 Ljóðasafn 1976(8): 31. 26 Ljóðasafn 1976(8): 153. 27 Silja Aðalsteinsdóttir 1984: 156. 28 Ljóðasafn 1984(9): 138–139. 29 Sálmabók 1997 sálmur 722. 30 Handbók 1981: 64. 31Hjalti Hugason 2004: 86–90. ein Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Hjarðarholtskirkja, Laxárdal, Dalasýslu „Sumum kann að finnast lýsing Jóhannesar á íslenskri sveitakirkju yfirdrifin þar sem hann ræðir um mikið hús með hvelfingu. Þó kunna hér að vera gildar forsendur fyr- ir hrifningunni. Sóknarkirkja fjölskyldunnar var í Hjarðarholti en þar stóð fyrsta krosskirkja Rögnvaldar Ólafssonar (1874–1917) húsagerðarmeistara í rómantískum, nýgotneskum stíl.“ Höfundur er prófessor í guðfræði við Háskóla Íslands. ’Jól 1936 (Hart er í heimi) er ljóð sem sýnir hvernig Jó-hannes brást við samtíma sínum. Þar lýsir hann því er sprengju var varpað á hóp barna sem dönsuðu kringum jólatré. Sögusviðið er Madríd á dögum borgarastyrjald- arinnar. Um afdrif barnanna segir: „Og öll þau hurfu úr lífsins leik:/þau leystust upp – þau urðu að reyk.“18 Í kjölfarið fylgir svo vægðarlaus spurn skáldsins um sam- band réttlætisins og vilja Guðs …‘

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.