Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.2005, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.2005, Blaðsíða 7
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 24. desember 2005 | 7 ur sterkt fram og maður sér einnig ákveðin tengsl við samtímann á Íslandi, þá aðallega viðskiptaumhverfið. ,,Jú, ég er dálítið hrædd- ur um að þetta komi þannig út. Þetta er náttúrlega ekki bein lýsing við raunveruleik- ann, en er samt oft dálítið líkt íslenskum við- skiptaveruleika. Ég hef alltaf haft áhuga á efnahagslífi og svona mónópól eins og fyr- irfinnast á Íslandi væri ekki hægt að ímynda sér í Þýskalandi. Ísland er að vissu leyti mjög góð líking á hnattvæðingu, þar sem stórfyrirtæki eru að kaupa hvert annað og í Mýrum er komið fjölskyldufyrirtæki sem hefur ítök á mörgum sviðum samfélagsins. Ég var samt dálítið hræddur við að vera rit- höfundur sem er alltaf að vara við og krít- ísera og gagnrýna allt. Mér fannst bara áhugavert að sýna þetta og hafa sögumann eins og Lárus sem vill helst ekki vinna að neinu og vill helst ekki hafa neitt sérstaklega mikið með fjölskylduna að gera en hafa svo þessa andstæðu í Kjartani sem man allt sem hefur gerst í þúsund ár og byggir allt sitt á því að vera afkomandi Egils Skallagríms- sonar. Þetta pólitíska kemur bara svona sem aukaatriði dálítið en það sem er að gerast á persónulega sviðinu er númer eitt.“ Nú hefur þér verið líkt við Nick Hornby og stíllinn er vissulega svolítið svipaður. En geturðu nefnt einhverja íslenska áhrifavalda til sögunnar? ,,Ég hef alltaf lesið talsvert af íslenskum bókmenntum, Laxness og allt það. Mér fannst gaman að lesa Laxness, enda vel skrifaðar bækur, en samt náði ég þessu ekki alveg, fannst þetta ekki hafa mikið að gera með mitt líf. Það var fyrst þegar ég fór að lesa Einar Kárason og fann stíl sem byrjaði að segja mér eitthvað að íslenskar bók- menntir snertu mig. Efnin sem Einar skrifar um eru áhugaverð og ég finn tengsl við bæk- ur hans þótt hann skrifi ekki um kynslóðina mína. Það er samt mikið í þessu sem nær til mín, hann er af rokk og ról og Bítlakynslóð- inni en ég kannski meira svona Belle and Sebastian og Sigurrós. Svo má segja að 101 Reykjavík eftir Hallgrím Helgason hafi markað nokkurs konar þáttaskil, enda mjög áhrifamikil bók. Mig langaði að skrifa eitt- hvað í þeim stíl, svona borgarsögu, bara meiri sögu og minna klám. En stíllinn sem ég er að skrifa er kannski ekki mjög íslensk- ur, frekar breskur eða jafnvel bandarískur, Nick Hornby og Michael Chabon eru t.d. áhrifavaldar.“ Er eitthvað sem hefur komið þér sér- staklega á óvart í viðbrögðum Þjóðverja? ,,Fyrir utan þetta með þunglyndið og alkó- hólismann þá má kannski segja að ég hafi verið hálfhræddur við að lesa upp því alltaf þegar ég fór á upplestra með Einari Má eða Einari Kárasyni þá voru einhverjar þýskar konur í salnum sem stóðu upp og sögðu frá hestaferðum um Ísland og höfðu ekkert fram að færa um skáldsögur þeirra eða upplest- urinn. Þetta gerist ekki hjá mér og það er kannski eitthvað sem kom á óvart.“ Er það kannski einmitt út af því að bókin þín höfðar til ungs fólks sem hefur meiri áhuga á Björk og Sigur Rós en álfum og heitum hverum? ,,Já, það getur verið en svo hefur fólk líka komið til mín sem var með samviskubit yfir því að hafa hugsað svona klisjukennt um Ísland en þá fæ ég aftur á móti samviskubit að vera að skemma þetta fyrir fólki því mér finnst allt í lagi að hugsa svona. Það eru svo mörg lönd í heiminum og þú getur ekki haft flókna og fjölbreytta þekkingu um hvert einasta land í heiminum. Mér finnst ég oft þurfa að segja, að það sé allt í lagi að vera með svona klisjukenndir. Ég er í þessari sérkennilegu stöðu að þurfa alltaf að vera að verja Ísland í Þýskalandi og öfugt. Ég sjálfur bölva endalaust öllu þýsku en verð fúll þegar Íslendingum finnst brauð- ið vont í Þýskalandi og svo eru Þjóðverjar víst allir með yfirvararskegg og sítt að aftan en ég hef mjög gaman af klisjum almennt og þetta er áhugaverð staða, að vera fulltrúi beggja landanna og að vera á sama tíma út- lendingur og átoritet um bæði löndin.“ Nú leiðast samræður okkar út í umræður um stereótýpur og þessa sérkennilegu stöðu að vera heima hjá sér á mörgum stöðum í mörgum löndum. Það er alveg ljóst að Krist- of hefur nýtt sér reynslu sína af bæði Þýska- landi og Íslandi á góðan hátt í Zuhause, bók- in höfðaði alla vega til þessa Íslendings í útlegð og það heldur áfram að kitla þjóð- arstoltið að sjá hvað bókinni er vel tekið af Þjóðverjum, hvort sem þeir eru hrifnir af álfum eða ekki. álfa Höfundur er sagnfræðingur. Kvikmyndir Borgarbíó, Akureyri The Family Stone  (HJ) The Ice Harvest  (SV) The Descent  (SV) Smárabíó The Family Stone  (HJ) The Ice Harvest  (SV) Saw II  (HJ) The Exorcism of Emily Rose  (SV) In Her Shoes  (HJ) The Legend of Zorro  (SV) Regnboginn The Family Stone  (HJ) The Ice Harvest  (SV) Saw II  (HJ) The Exorcism of Emily Rose  (SV) Laugarásbíó King Kong  (SV) Saw II  (HJ) Háskólabíó King Kong  (SV) Green Street Hooligans  (SV) Harry Potter og eldbikarinn  (HJ) Lord of War  (SV) La Marche de L’Empereur  (HJ) Noel  (HJ) Sambíóin Reykjavík, Keflavík, Akureyri King Kong  (SV) Green Street Hooligans  (SV) Harry Potter og eldbikarinn  (HJ) Litli kjúllinn  (SV) Just Like Heaven  (HJ) Myndlist Artótek, Grófarhúsi: Björg Þor- steinsdóttir til desemberloka. Aurum: Lóa Hjálmtýsdóttir. Café Babalu: Claudia Mrugowski til desemberloka. Gallerí 101: Jólasýning til 6. jan. Gallerí Húnoghún: Soffía Sæ- mundsdóttir til 5. jan. Gallerí Sævars Karls: Hrund Jó- hannesdóttir, Hlaðgerður Íris Björnsdóttir, Kolbrá Bragadótt- ir, Kristín Helga Káradóttir, Margrét M. Norðdahl og Ólöf Björg Björnsdóttir sýna í desem- ber. Gerðuberg: Eggert Magnússon til 9. janúar. Grafíksafn Íslands: Samsýning 17 félagsmanna í íslenskri grafík. GUK+: Hartmut Stockter til 16. janúar. Hafnarborg: Jón Laxdal til 31. desember. Hallgrímskirkja: Kristín Gunn- laugsdóttir og Margrét Jóns- dóttir til febrúarloka. Hitt húsið: Nemendur af list- námsbraut í FB sýna verk sín til 5. jan. Hrafnista, Hafnarfirði: Ellen Bjarnadóttir sýnir í Menning- arsal til 7. febrúar. Iða: Þóra Guðrún Benedikts- dóttir sýnir til loka janúar Kaffi Mílanó: Ingvar Þorvaldsson sýnir Vatnslitamyndir til ára- móta. Kaffi Sólon: Dóra Emils – Heyr himna smiður – til 14. jan. Karólína Restaurant: Óli G. til aprílloka 2006. Listasafn Einars Jónssonar: Fastasýning. Listasafn Íslands: Sýning á verk- um 13 íslenskra samtímalista- manna. Til 12. febrúar. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn: Bernd Koberling til 22. janúar. Listasafn Reykjavíkur, Hafn- arhús: Guðrún Vera Hjartar- dóttir til 30. desember. Erró til 23. apríl. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvals- staðir: Jóhannes Sveinsson Kjar- val. Til 19. mars. Listasmiðjan Þórsmörk, Nesk.: 10 listakonur, fram í janúar 2006. Listhús Ófeigs: Dýrfinna Torfa- dóttir, Rósa Helgadóttir, Þor- björg Valdimarsdóttir til 31. des- ember. Ráðhús Reykjavíkur: Helga Birgisdóttir (Gegga) til áramóta. Safn: Guðrún Hrönn Ragn- arsdóttir, Kristinn E. Hrafnsson – Stöðug óvissa. Jón Laxdal – Tilraun um mann. Út desem- bermánuð. Skaftfell: Rúna Þorkelsdóttir til desemberloka. Smekkleysa plötubúð – Humar eða frægð: Jólasýning Lóu og Hulla. Sundlaugin í Laugardal: Árni Björn Guðjónsson fram yfir jól. Yggdrasill: Tolli til 25. jan. Þjóðarbókhlaðan: Brynjólfur Sveinsson til áramóta. Þjóðmenningarhúsið: Hjörtur Hjartarson. Íslenskt bókband. Þjóðminjasafn Íslands: Huldu- konur í íslenskri myndlist, í Bogasal til 28. maí. Ljósmyndir Marco Paoluzzo í Myndasal og ljósmyndir Péturs Thomsen í Myndasal. Til 20. febrúar. Leiklist Borgarleikhúsið: Salka Valka, mið. Woyzeck, fim., fös. Kalli á þakinu, mán. Carmen, fors. 12. jan. Manntafl, mið. Alveg brillj- ant skilnaður, fim., fös. Belgíska Kongó, 7. janúar. Hafnarfjarðarleikhúsið: Himna- ríki, fim. Iðnó: Ég er mín eigin kona, þri., mið., fim. Leikfélag Akureyrar: Fullkomið brúðkaup, mið., fim., fös. Nasa við Austurvöll: Typpatal með Audda, mán., fim., fös. Sýn- ingin verður einnig á Kaffi Króki, Sauðárkróki, þri. og mið. Þjóðleikhúsið: Túskild- ingsóperan, mán., þri., mið., fim., fös. Klaufar og kóngsdætur, 15. jan. Eldhús eftir máli, fim., fös. Leitin að jólunum þri., mið. NÝLEGA heyrði ég það sagt að meginvið- fangsefni bókmenntafræðinnar væru ekki bókmenntirnar heldur bókmenntafræðin sjálf. Eflaust má líta á slíka alhæfingu og yf- irlýsingu sem málskrúð en því er ekki að neita þessi hugsun gerðist æ ásæknari við lestur nýlegs fræðirits sem fjallar um ljóðlist og nefnist Heimur ljóðsins. Í þeirri bók er að finna 26 greinar sem byggðar eru á erindum sem flutt voru á ráðstefnunni ,,Heimur ljóðs- ins“ sem Bókmenntafræðistofnun Háskóla Ís- lands hélt í apríl í vor. Helsta einkenni þessarar bókar er þó fjöl- breytileiki erindanna. Margar greinarnar eru skrifaðar af þvílíkum lærdómi að gagnrýn- andi út í bæ beygir höfuð sitt í lotningu. Fjallað er um ljóðlist frá Hórasi til Hallgríms Helgasonar. Hér er með öðrum orðum fjallað um innlenda ljóðagerð sem erlenda og koma þar nærri bæði innlendir og erlendir höf- undar. Viðfangsefnin eru af mörgum gerðum. Margir höfundanna hafa þann háttinn á að spinna utan um eitt eða tvö kvæði mikinn lær- dóm og margvíslegar skilgreiningar hugtaka. Sömuleiðis gætir tilhneigingar til að flétta saman slíkum hugtökum, hvernig þau eru notuð af þekktum erlendum höfundum og hvernig aðferð þeirra síðan speglast í íslensk- um ljóðum. Einna besta skrifaða dæmið um þessa nálgun viðfangsefnis er ritgerð Dagnýj- ar Kristjánsdóttur um Kyndilmessu Vilborg- ar Dagbjartsdóttur. En þó finnst mér einhvern veginn víða sem ljóðið verði ofurlítið utangarðs í öllum fræð- unum. Sumar greinarnar fjalla nefnilega miklu fremur um hugtök fræðanna og kenn- ingar fræðimanna um ljóðlist en ljóðin sjálf. Þannig gegnir þýðingarfræði mikilvægu hlut- verki í nokkrum erindanna. Hugtök á borð við staðsetningu í ljóði, staðarljóð, verður t.d Ást- ráði Eysteinssyni að umræðuefni og kemur Heidegger þar nokkuð við sögu í stiklu- kenndri og allt að því heimspekilegri grein. Þá er tekið upp gamalt hugtak úr nýrýninni blessuðu um listræna heild ljóðabóka í grein eftir Svein Yngva Egilsson, umræða sem ég sannast sagna hélt að tilheyrði fortíðinni en virðist nú öðlast nýtt líf. Þó að póstmódernísk viðhorf séu algengust í greinum þessa rits veltir maður fyrir sér út frá þessari grein og öðrum hvort dagar hins sundrandi póstmód- ernisma séu senn taldir og við getum horft að nýju til bókmenntafræði sem leitar eftir upp- byggingu listaverks í stað þess að vinna að af- byggingu þess. Kannski rómantíkin sé ekki dauð úr öllum æðum og hin lífræna heild og heildarhyggjan fái að nýju sess í bókmennta- fræðiumræðunni. Eins víst þó að hér sé á ferðinni stakt misgengi. Forvitnileg þótti mér grein eftir Helgu Kress um kvenrödd í ljóðum Halldórs Lax- ness og sú niðurstaða hennar að kvenröddin lifði sem ,,vísvitandi antíregla“, uppspretta og undirtexti í ljóðum Halldórs ,,og væru þau ekki til án hennar“. Raunar finnst mér allra síðasta fullyrðingin um hugsanlegt til- veruleysi ljóða Halldórs án þessarar raddar hæpin og óþörf í ljósi þess að rödd hans var sannanlega karlrödd og flest það sem hann skrifaði bundið karllegum sjónarmiðum. Ljóð hans væru hugsanlega til án kvenraddar þó að umræða um tilvist einhvers annars en þess veruleika sem við höfum í höndunum sé vissu- lega undarleg þáskildagatíðarsagnfræði. Ég lít nefnilega svo á að karlrödd geti verið höll undir kvenréttindi, að karlmenni geti sett sig í spor kvenna og að þeir karlmenn finnist sem vilji gera konum hátt undir höfði án þess að raddir þeirra breytist í kvenraddir. Hin kven- lega sýn í texta Halldórs Laxness er óhjá- kvæmilega tilbúningur, listræn blekking karl- manns sem sannarlega hefur kunnað að hrífa konur. Það er þess vegna sem hún var ,,vísvit- andi antíregla“ eins og Helga raunar bendir á. Áhugaverðust í ritinu þótti mér raunar fjörlega skrifuð grein eftir Anette Lassen, sem hún nefnir Völu-rapp H.C. Andersens, tilhlýðileg grein á þessu mikla „jubileum“ ári þessa indæla skálds. Og kemur í ljós sem mig grunaði að hann hefur sinn bókmenntalega vísdóm að nokkru frá Íslendingum. Hann skrifaði leikrit, raunar eitt sitt fyrsta verk og þess vegna ekki merkilegasta verk sitt og byggði á íslenskum fornritum. Því fylgir svo mikil kátína að Lassen kemst að þeirri nið- urstöðu að það hafi orðið Andersen og þá kannski heiminum til happs að hann sneri baki við ,,forníslenskum bókmenntum og not- aði í staðinn t.d. fjónskar alþýðusögur, sér- staklega í ævintýrum sínum“. Heimur ljóðsins er fjölbreytileg bók, full með fræði um ljóð og fræði um fræði um ljóð en kannski ekki svo mikið um innihald ljóð- heimsins sjálfs. Greinarnar í bókinni standa þó margar fyrir sínu og sumar þeirra vekja vonandi upp umræðu um ljóðið. Af ljóðum og bókmenntafræðum Skafti Þ. Halldórsson BÆKUR Fræðirit Ritstjórar: Ástráður Eysteinsson, Dagný Kristjáns- dóttir og Sveinn Yngvi Egilsson. 350 bls. Bók- menntafræðistofnun Háskóla Íslands, 2005. HEIMUR LJÓÐSINS Morgunblaðið/Þorkell Ritstjórarnir Sveinn Yngvi, Dagný og Ástráður „Heimur ljóðsins er fjölbreytileg bók, full með fræði um ljóð og fræði um fræði um ljóð en kannski ekki svo mikið um innihald ljóðheimsins sjálfs,“ segir í dómnum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.