Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.2005, Side 12
12 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 24. desember 2005
Reykingar eru frá mínum bæjardyrumséð eini tilgangur þess að vera fullorð-inn,“ sagði bandaríski húmoristinnFran Lebowitz einhvern tímann. „Ein-
hvern tímann“ hlýtur í þessu tilfelli að vera fyrir
löngu. Löngu fyrir tíma pólitískrar rétthugsunar
í heilbrigðum lífsháttum. Löngu fyrir tíma for-
sjárhyggjunnar sem inn-
leiðir boð og bönn eins og
sjálfsagða skerðingu á
einkalífi fólks. Löngu fyrir
tíma þeirra sanninda að reykingar eru hættu-
legar. Því það eru þær auðvitað.
Þegar fram undan er tími heitstrenginga um
að verða betri manneskja með betra líf – trúlega
kallast það núna „hámörkun lífsgæða“ – tók
breska dagblaðið The Guardian upp á því að
fjalla um kvikmyndir sem athvarf þeirra sem í æ
færri hús eiga að venda, þ.e. reykingafólks. Stað-
reyndin mun sumsé sú, að sjaldan hefur verið
meira reykt í Hollywoodmyndum en þessa dag-
ana. Á meðan gestum vínbara og veitingahúsa er
umsvifalaust vísað á dyr ef þeir fá sér sígó svæla
menn sem aldrei fyrr í kvikmyndaverunum við
hliðina. Eða svo nákvæmni sé gætt: Reykingar í
Hollywoodmyndum hafa ekki verið meiri síðan á
6. áratugnum. Rannsókn hefur leitt í ljós að í úr-
taki vinsælustu mynda síðustu 50 ára drógust
reykingar saman frá 10,7 „atburðum“ á klukku-
stund árið 1950 í 4,9 árið 1982 en höfðu rokið
uppá ný í 10,9 árið 2002. Á vönduðu fræðimanna-
máli merkir „atburður“ allt frá því að persóna á
tjaldinu kveiki sér í til þess að fyrir augu beri
tóbaksauglýsingu. Það fylgir sögunni að í næst-
um 80% kvikmynda sem ætlaðar eru eða leyfðar
ungum áhorfendum eru þessir skelfilegu „at-
burðir.“ Og samkvæmt rannsókninni byrjar um
helmingur reykjandi unglinga að fikta við það
vegna áhrifa frá svælingum á tjaldinu. Þá blasir
næsta skref við: Höfundar rannsóknarskýrsl-
unnar leggja auðvitað til að bíómyndir sem birta
reykjandi fólk verði bannaðar fyrir börn og ung-
linga.
Þetta er athyglisvert og á ýmsan hátt lýsandi
fyrir samtímann. Ég ætla bara rétt að vona að
meðan beðið er eftir þessu banni fái bandarískir
unglingar áfallahjálp að loknum þeim hryllingi að
hafa orðið vitni að reykjandi fólki í Holly-
woodmynd. En eftir stendur spurningin: Hvers
vegna er æ meira tendrað uppí tóbaki í banda-
rískum bíómyndum þegar æ minna er reykt í
raunveruleikanum sem þær eiga að gerast í? Því
hefur verið haldið fram að tóbaksfyrirtækin leggi
háar fjárhæðir, sem flokkaðar eru undir kynning-
arkostnað, til Hollywoodframleiðenda svo varn-
ingur þeirra sjáist á tjaldinu. Fyrirtækin hafa
neitað þessu æ ofaní æ, en grunsemdir eru engu
að síður um að þetta sé gert með laumulegum
hætti til að halda neytendum við þetta umdeilda
eiturefni sem hvarvetna er verið að úthýsa.
Um þetta er erfitt að fullyrða. En frá gamalli
tíð eru aðrar ástæður fyrir reykingum í leiknu
efni, í hvaða miðli sem er. Í fyrsta lagi er þægi-
legt að koma hreyfingu á kyrrstæð samtalsatriði
með því að persónur fái sér reyk eða kveiki í hver
hjá annarri, rétt einsog þær hella í kaffibolla eða
vínglas. Í sviðsetningum mannlegra samskipta
skapast þannig ákveðin nánd milli persóna. Sama
gildir um raunveruleikann, eða hvaða „pikköppl-
ína“ er algengari en: Áttu eld? Eða: Áttu sígar-
ettu? Í öðru lagi hafa reykingar lengi haft yf-
irbragð þess að vera „kúl“, þótt sífellt saxist nú á
þá ímynd. Eða væri Humphrey Bogart jafn sval-
ur jórtrandi á nikótíntyggjói og hann er með síg-
arettu í munnvikinu? Clint Eastwood með smá-
vindilinn jafn töff í spaghettívestrunum ef hann
biti í nikótínlaust munnstykki? Væru elskendur í
rúmi eftir velheppnaðar samfarir jafn sexí ef þau
í staðinn fyrir að reykja strykju hvort öðru um
plástrana á bakinu?
Á meðan beðið er eftir svörum og undirbún-
ingur stendur yfir fyrir næstu heitstrengingu
geta menn þó huggað sig við þær óbeinu reyk-
ingar sem fást í bíóum gegnum Hollywoodmynd-
ir. Þær eru skaðlausari en aðrar slíkar.
Ég óska Fran Lebowitz gleðilegra jóla og far-
sældar á komandi ári.
Áttu eld?
’Hvers vegna er æ meira tendrað uppí tóbaki í bandarísk-um bíómyndum þegar æ minna er reykt í raunveruleik-
anum sem þær eiga að gerast í?‘
Sjónarhorn
Eftir Árna Þórarinsson
ath@mbl.is
Á
síðasta ári skók heimildarmyndin
Super Size Me, fitumettaðan ham-
borgaraheiminn, ekki síst veldi
McDonalds. Hún lýsti á létt-
hrollvekjandi hátt hversu grátt
viðstöðulaust, einhliða hamborg-
araát getur leikið mannslíkamann. Flestir tóku
myndina sem svarta kómedíu en ádeilubroddurinn
varð engu að síður til þess að
skyndibitaveldið fór að endurskoða
matseðlana og hyggja betur að
samsetningi innihaldsins. Fyrir
nokkrum árum las ég metsölubók-
ina Fast Food Nation eftir blaðamanninn Eric
Schlosser (Penguin Press 2001), sem veitti stór-
fróðlegar upplýsingar um skyndibitaiðnaðinn, og
framleiðsluaðferðir ruslfæðis og bar bókin und-
irtitilinn „Hvað er hin alameríska máltíð að gera
heiminum?“ Þetta er ósvikin hrollvekja þar sem
höfundur leiðir lesendur í allan sannleikann um
hvað gerist á bak við tjöldin í þessari grundvallar
viðskiptagrein. Yfirhöfuð miður geðsleg lesning.
Nú má reikna með því að jarðskjálftamælarnir hjá
McDonalds, Kentucky Fried. Burger King og öll-
um þeim félögum, taki hressilegan kipp því tökum
er að ljúka á þessari lærdómsríku lesningu.
Spurningin er sú, hversu langt kvikmynda-
framleiðendurnir ganga í að tíunda innihald bók-
arinnar.
Ástæðan? Super Size Me er eins og snjóbolti við
hliðina á fallbyssukúlu í samanburði við Fast Food
Nation. Í bókinni er fjallað um rannsóknir höf-
undsins á innihaldi skyndibitanna á vísindalegan,
þó sposkan hátt. Heimsóttar efnaverksmiðjur í
New Jersey sem framleiða hvaða bragð og lykt
sem óskað er og fyrifinnst á jarðríki; Kart-
öflugarðar í Idaho, stærri en Suðurlandsund-
irlendið þar sem öll framleiðslan fer í franskar,
sérhannaðar fyrir djúpsteikingarpottana;
Nautgripabú McDonalds, sem fær óblíða umfjöll-
un. Hver gripur fær agnarlítið pláss í fjósum á
stærð við fótboltavelli og næringu er meira og
minna dælt beint í æð. Til að sjá, líta því skepn-
urnar út eins og sjúklingar í gjörgæslu. Svo mætti
lengi telja.
Tökurnar hófust í október í Texas, síðan er þeim
haldið áfram í Colorado, New Jersey og Mexíkó,
en myndin verður frumaýnd að ári. Leikstjóri er
Richard Linklater, en hann á að baki smellina Bad
News Bears, The School of Rock, ofl. Algjör leynd
hvílir yfir vinnu kvikmyndagerðarmannanna sem
földu viðfangsefnið lengi vel undir dulnefninu „Co-
yote“. Um síðustu mánaðamót var hulunni aðeins
létt af Coyote og var þar að verki dálkahöfundur
frá dagblaði í Austin, Texas. Það upplýsti einnig
að dulnefnið hefði komið að góðu gagni þegar
kvikmyndagerðarmennirnir voru að leita upplýs-
inga á matsölustöðum, ekki síst hjá sérleyfishöfum
þekktra skyndibitamerkja, sem þeir hefðu ekki
nálgast öðruvísi.
Ekki náðist í Linklater en aðstoðarframleiðand-
inn, Ann Carli, reyndi að draga úr því að myndinni
væri ætlað að fletta ofan af ruslfæðuiðnaðinum og
tjáði blaðamanninum að þessi tiltekni heimur
nýttist þeim eingöngu sem umhverfi hinna fjöl-
mörgu sögupersóna. „Í myndinni er kafað ofan í
sálarlíf einstaklinga sem vinna við skyndibitaiðn-
aðinn. Hún fjallar um hvernig fólk þroskast og
lærir að taka eigin ákvarðanir.“ Mönnum er til efs
að þessi loðna lýsing komi heim og saman við inni-
hald myndar Linklaters, það kemur í ljós.
Fast Food Nation var fyrst kynnt til sögunnar
af Participant Production, rétthafa bókarinnar, á
Cannes kvikmyndahátíðinni í maí sl. Aðaleigandi
þess er Jeff Skoll, annar stofnandi eBay. „Mark-
mið okkar er að bjóða krefjandi afþreyingu sem
tengir áhorfandann við málefni sem kemur ökkur
öllum við.“
Participant er ungt fyrirtæki sem er ákveðið í
að hasla sér völl á afmörkuðu og ágengu sviði.
Fyrsta myndin sem frá þeim kom er Good Night,
Good Luck, hún var frumsýnd í haust og hlaut frá-
bæra dóma. Hún gerist á sjötta áratugnum og
fjallar um harðvítuga baráttu blaðamannanna
Edwards R. Murrow og Freds Friendly, sem buðu
nornaveiðaranum Joseph McCarthy birginn á við-
sjárverðum tímum ofsóknaræðisins. George Cloo-
ney leikstýrir við góðan orðstír. Önnur mynd fyr-
irtækisins nefnist North Country, og tekur ekki á
síður róttækum málum í þjóðfélaginu, eða kyn-
ferðislegu áreiti á vinnustað og heimilisofbeldi.
Hún var frumsýnd í síðasta mánuði og fékk frá-
bærar móttökur gagnrýnenda. Ekki síst leikstjór-
inn, Niki Caro, en þetta er fyrsta mynd hennar
eftir að Whale Rider fór sigurför um heiminn fyrir
þremur árum, og aðalleikkonan og Óskars-
verðlaunahafinn Charlize Theron (Monster). Nýj-
asta mynd Participant er Syriana, gerð af Steven
Gaghan (handritshöfundur Trafic), með Clooney í
aðalhlutverki og í brennidepli eru brennheit mál,
olíuviðskipti Bandaríkjamanna í arabalöndum.
Þar höfum við stefnuna sem Participant hefur
mótað og þó svo að talsmenn þess hafi lýst því yfir
að sem minnst verði látið uppi hvað snertir inni-
hald Fast Food Nation fyrr en tökum er lokið, má
telja víst að litlu verði skotið undan af viðkvæmu
efni bókarinnar. Forkólfar skyndibitakeðjanna
hafa rembst eins og rjúpan við staurinn að fá ein-
hvern botn í hvað er að gerast frammi fyrir töku-
véum Linklaters, en lítið haft upp úr krafsinu.
Það er nýjast að frétta af kvikmyndagerðinni að
um miðjan desember yfirtók hið sigursæla Fox
Searchlight (Sideways, Kinsey, 28 Days), gerð
myndarinnar og þar með dreifingarréttinn. Það
upplýsti í leiðinni að kvikmyndatökum væri að
ljúka, nokkurn veginn áfallalaust. Með helstu hlut-
verkin fer forvitnilegur hópur skapgerðarleikara,
þ.á m. Patricia Arquette, Luis Guzman, Catalina
Sandino Moreno (Maria Full of Grace), Ethan
Hawke, Greg Kinnear og Kris Kristofferson, svo
einhverjir séu nefndir. Reiknað er með að bomban
falli í kvikmyndahúsin að vori komanda.
Syndaregistur skyndi-
bitaþjóðarinnar
Líður að jólum með tilheyrandi veislukosti, á
sama tíma er tökum að ljúka á mynd sem af-
hjúpar leyndarmál ruslfæðu.
Fast Food Nation kvikmynduð „Nú má reikna með því að jarðskjálftamælarnir hjá McDonald’s, Kentucky
Fried, Burger King og öllum þeim félögum, taki hressilegan kipp því tökum er að ljúka á þessari lærdóms-
ríku lesningu.“ Úr kvikmyndinni Super Size Me eftir Morgan Spurlock.
Eftir Sæbjörn
Valdimarsson
saebjorn@
heimsnet.is
Önnur kvikmynd leikarans góð-kunna Georges Clooneys er
væntanleg í kvikmyndahús í
Bandaríkjunum í febrúar næst-
komandi, en hún
ber titilinn Good
Night, and Good
Luck (Góða nótt,
og gangi þér
vel). Í myndinni
er fjallað um það
andrúmsloft
kommúnistaótta
og hugmynda-
kúgunar sem
einkenndi
McCarthy-tímabilið á 6. áratugn-
um í Bandaríkjunum. Í myndinni
er fjallað um útvarpsmenn frétta-
skýring-
arþáttarins
CBS Report,
fréttamann-
inn Edward R. Murrow og fram-
leiðandann Fred Friendly. Þeir
Murrow og Friendly tóku afstöðu í
nokkrum þáttum gegn ofsóknum
McCarthys öldungadeildarþing-
manns á hendur bandarískum
borgurum sem bendlaðir voru við
kommúnisma. Good Night, and Go-
od Luck fetar í fótspor fyrri mynd-
ar Clooneys, Confessions of a Dan-
gerous Mind, hvað afgerandi stíl
varðar. Myndin er í svart-hvítu og
skartar m.a. leikurunum Robert
Downey Jr., David Strathairn, Pat-
ricia Clarkson og sjálfum leikstjór-
anum, George Clooney.
Danska leikstýran Lone Scher-fig hefur hlotið styrk upp á
7,5 milljónir danskra króna til þess
að gera sína næstu mynd sem ber
titilinn Erik
Nietzche – de
unge år (Erik
Nietzsche – ung-
dómsárin). Um
er að ræða grá-
glettna gam-
anmynd sem
fjallar um ungan
og upprennandi
snilling í Danska
kvikmyndaskól-
anum. Þykir aðalsögupersónan,
Erik Nietzche, minna mjög á Lars
von Trier, umdeildasta og áhrifa-
mesta leikstjóra samtímans í
danskri kvikmyndagerð. Myndin
lýsir því er hinn ungi og óöruggi
Nietzsche fær inngöngu í Danska
kvikmyndaskólann og hefur háar
hugmyndir um sjálfan sig.
Nietzsche þarf þó að takast á við
óhjálplega lærimeistara, furðulega
samnemendur og ýmsar óskrifaðar
reglur. Hinn ungi Nietzsche fellur
fyrir vikið í þunglyndi og þarf að
glíma við tíðar og ótímabærar sal-
ernisferðir. Handritshöfundur
myndarinnar er að sögn Lone
Scherfig bráðfyndinn og mikill
snillingur en hann heitir Erik
Nietzsche/Lars von Trier.
Með hlutverk Eriks Nietzsches
fer danski uppistandarinn Jonat-
han Spang, en áætlað er að frum-
sýna myndina í ársbyrjun 2007.
Bandaríski kvikmyndagerð-armaðurinn Morgan Spurlock
er með nýja mynd í smíðum sem
fjalla mun um andstöðu hægri-
manna við ýmsar
vísindarann-
sóknir og
raunvísinda-
kenningar en
hún er byggð á
metsölubókinni
The Republican
War on Scienece
(Stríð repúblik-
ana gegn vís-
indum) eftir
Chris Mooney. Spurlock vakti
mikla athygli fyrir sitt fyrsta verk
á sviði heimildarmyndagerðar, Su-
per Size Me, en þar gerði Spurlock
úttekt á næringargildi skyndibita-
fæðis í Bandaríkjunum með því að
borða eingöngu af matseðli
McDonalds-hamborgarakeðjunnar
um mánaðarskeið.
Skemmst er frá því að segja að
Spurlock var nær dauða en lífi eftir
tilraunina og olli myndin almennri
vitundarvakningu um óhollustu
skyndibita.
Erlendar
kvikmyndir
Morgan Spurlock
Lone Scherfig
George Clooney