Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.2005, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.2005, Side 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 31. desember 2005 | 3 H ugsanlegt er að árið 2005 hafi verið ár von- arinnar í huga margra tónlistarunnenda. Óp- eruunnendur eign- uðust a.m.k. von í kjöl- far umræðu um aðstöðuleysi Íslensku óperunnar, sem var áberandi á fyrri hluta árs- ins og átti sér aðallega stað á síðum Morg- unblaðsins. Nú lítur út fyrir að óperuhús muni rísa í Kópavoginum. Umræðan um húsnæðismál Íslensku óp- erunnar var vissulega ekki ný af nálinni, en hún hafði legið niðri um nokkurt skeið. Þegar ég skrifaði grein í Lesbókina í febrúar undir yf- irskriftinni Er Íslenska óper- an dauðadæmd tók hún sig upp á nýjan leik, og það svo um munaði. Greinin var nokkurs konar framhald pistils sem ég hafði ritað um upp- færslu Íslensku óperunnar á Toscu eftir Pucc- ini nokkrum dögum áður þar sem ég gagnrýndi sýninguna í alþjóðlegu ljósi. Óneitanlega var sýningin á ýmsan hátt góð, söngurinn var t.d. að mörgu leyti áhrifaríkur, en B-myndastíll leikstjórans Jamies Hayes orkaði tvímælis og voldugt hlutverk hljómsveitarinnar, sem er eitt aðalsmerki óperunnar, skilaði sér engan veginn úr lítilli gryfjunni. Auk þess hentaði þröngt sviðið ekki svo stórri óperuuppfærslu, þótt leik- myndin væri hugvitssamleg. Greinin í Lesbókinni var tilraun til að skoða mál Íslensku óperunnar í stærra samhengi og var fyrst og fremst gagnrýni á listræna stefnu hennar, sem ég taldi gallaða miðað við tak- markaða möguleika Gamla bíós. Barátta fyrir óperuhúsi Nokkrir lykilaðilar innan Íslensku óperunnar mótmæltu ýmsum staðhæfingum mínum, og í kjölfarið hófst áðurnefnd umræða sem fljótlega varð að sameiginlegri baráttu ólíkra ein- staklinga fyrir bættri óperuaðstöðu á Íslandi. Baráttan virðist hafa skilað árangri, því snemma sumars tilkynnti Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, að hann vildi byggja óp- eruhús hjá Salnum við Gerðarsafn og hét fjár- stuðningi við verkið. Að vísu hefur hann ekki skuldbundið sig til neins fyrir hönd bæjarins, en viljinn er a.m.k. til staðar og tölvugerðar myndirnar af óperuhúsinu, sem birtar voru á heimasíðu Kópavogsbæjar í sumar, lofa góðu. Það er því loksins von til þess að Íslenska óper- an eignist fullnægjandi aðstöðu fyrir sýningar sínar og við getum séð alvöru uppfærslur á stórum óperum eftir Puccini, Verdi og jafnvel Wagner. Útrás og innrás En þótt stórar óperusýningar henti ekki í Gamla bíói geta litlar kammeróperur notið sín prýðilega þar, og kammeróperan The Turn of the Screw eftir Benjamin Britten, sem sett var upp í haust, þótti takast með afbrigðum vel. Ríkarður Örn Pálsson, einn tónlistargagnrýn- enda Morgunblaðsins, sagði m.a. um hana: „Í heild gat hér að líta það magnaða óperusýningu að mætti jafnvel þykja ástæða til að kanna hvort hún gæti ekki blandað sér í eftirtekt- arverða útrás íslenzkra leiklistarhópa nýverið með sambærilegum árangri.“ Í þessu samhengi mætti einnig tala um INN- RÁS íslenskra ópera, en fyrir utan barna- óperur hafa þær átt erfitt uppdráttar hér á landi. Þetta var einmitt eitt af því sem ég fann að listrænni stefnu Íslensku óperunnar; ég taldi hana ekki sinna íslensku tónskáldunum nægilega vel. Menn hafa fullyrt að það sé engin gróska í ritun ópera sem ná vinsældum, en hvernig má það vera þegar nýjar óperur eru yf- ir höfuð ekki settar á svið? Bergþóra Jónsdóttir tónlistargagnrýnandi spurði: „Hvar eiga [nýjar óperur] að ná hylli al- mennings? Í útlöndum er sennilega skásta svarið sem ég hef upp á að bjóða, því íslenskar óperur virðast frekar eiga upp á pallborðið þar en hér heima … við eigum nú tvær óperur sem hafa vakið athygli erlendis, Fjórða söng Guð- rúnar, eftir Hauk Tómasson, en fyrir verkið fékk Haukur Tónlistarverðlaun Norð- urlandaráðs fyrir skömmu; og óperu Hafliða Hallgrímssonar byggða á ævi rússneska skáldsins Daniils Kharms, en frumgerð þeirrar óperu var flutt í Salnum fyrir nokkrum árum við rífandi ánægju þeirra sem á horfðu.“ Vonandi fáum við að sjá þessar óperur hér á landi áður en langt um líður. Magnaðir söngvarar Fyrst ég vitnaði í Ríkarð Örn og útrás og inn- rás íslenskra tónlistarmanna verð ég að nefna konu sem nú gerir það gott erlendis, en Íslend- ingar hljóta að eiga töluvert í henni. Þetta er hin færeyska Eivör Pálsdóttir, en hún var upp- götvuð af Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur þegar hún hélt námskeið í Færeyjum fyrir nokkrum árum. Í framhaldinu kom Eivör til Íslands og hóf að læra hjá Ólöfu Kolbrúnu og afraksturinn hefur heyrst á tónleikasviðinu og í útvarpinu síðustu tvö árin eða svo. Sjálfur heyrði ég Eivöru á tónleikum sem hún hélt í Salnum í febrúar og það er einhver magnaðasta tónlistarupplifun ævi minnar. Hún hefur einstaka rödd, hljómmikla og tæra, og raddbeiting hennar var svo litrík að maður naut hvers tóns. Túlkun hennar var þannig að sérhvert blæbrigði sagði heila sögu, og í heild var söngur hennar óvenju tilfinningaþrunginn og einlægur. Tónleikarnir voru frábærir; lögin kannski misjafnlega merkileg en flest afar seið- andi og Eivør söng þau öll með þvílíkum til- þrifum að unaður var á að hlýða. Og annar söngvari kvaddi sér hljóðs á árinu, Garðar Thór Cortes, en hann hélt útgáfu- tónleika í Grafarvogskirkju núna í desember. Tónleikarnir voru eftirminnilegir og persónu- lega finnst mér geisladiskurinn hans frábær; rómantískur og hugljúfur. Ég er viss um að Garðar á eftir að ná árangri á erlendri grund. Bryn Terfel og Sinfónían Koma þriðja söngvarans, Bryns Terfels, vakti einnig mikla athygli, en því miður ekki mjög já- kvæða eins og flestir muna. Söngurinn með Sinfóníuhljómsveit Íslands var vissulega aðdá- unarverður en engu að síður voru lokaðir tón- leikar þar sem eingöngu boðsgestir fengu að njóta lifandi söngsins ekki aðeins tímaskekkja, heldur líka smekkleysa. Þeir voru tímaskekkja vegna þess að mörk há- og lágmenningar hafa orðið æ óljósari á undanförnum árum og klass- ísk tónlist er fyrir löngu hætt að vera einkaeign aðalsins. Og þeir voru smekkleysa vegna þess að Sinfónían, sem er að hluta til styrkt fyrir op- inbert fé, gaf almenningi langt nef með því að bjóða bara sumum á tónleikana, en ekki öðrum. Aðkoma forsetans að þessu máli var líka óheppileg. Carreras og Domingo Sem betur fer sóttu aðrir stórsöngvarar okkur heim, og þar áttu allir þess kost að hlusta, þótt sjálfsagt hafi margir hugsað sig tvisvar um áð- ur en þeir borguðu þrjátíu þúsund krónur, eða hvað það nú var sem bestu sætin kostuðu. Þeir Jose Carreras og Placido Domingo sungu hér með viku millibili í mars, sá fyrr- nefndi í Háskólabíói en hinn síðarnefndi í Eg- ilshöllinni. Tónleikarnir í Háskólabíói voru fyr- irsjáanlegir; hljómburðurinn var auðvitað vondur en tónlistarflutningurinn a.m.k. ómagn- aður og eftir því eðlilegur. Útkoman var í heild verulega skemmtileg. Öðru máli gegndi um Domingo og leik Sin- fóníunnar ásamt söng Óperukórsins í því mikla gímaldi sem Egilshöllin er. Ótölulegur fjöldi míkrófóna var á sviðinu, en þeir voru ekki nægilega vel staðsettir; styrkleikajafnvægið á milli mismunandi raddhópa í kórnum var und- arlegt, t.d. heyrðist nánast ekkert í tenórunum en nokkrir bassar voru alltof háværir og var heildarhljómurinn einkennilega loðinn. Hljóðkerfið bjagaði líka hljóminn í Sinfóní- unni; óþægilega mikið heyrðist í einstaka strengjaleikara, blásararnir voru of veikir en dynkirnir í slagverkinu svo ægilegir að það var eins og risaeðla gengi öskrandi um salinn. Söngurinn kom hins vegar prýðilega út, en við hliðina á öskrinu í risaeðlunni dugði hann eng- an veginn til. Tónlistarhöllin mun rísa! Á slíkum hátíðarstundum er neyðarlegt að við skulum ekki eiga almennilegt tónlistarhús. Vonir standa til að úr muni rætast; fyrirhugað tónlistarhús var kynnt með pomp og prakt í haust og hafði Bergþóra, kollegi minn á Morg- unblaðinu, eftirfarandi um það að segja: „Það er varla hægt að ímynda sér annað – eftir að hafa skoðað tillögur að nýja Tónlistar- húsinu – en að um það muni ríkja sátt. Tónlist- arfólk mun sjá, að þörfum þess um tónleika- aðstöðu verður fullnægt. Tónleikasalirnir tveir, fyrir 1.800 manns og 450 manns, verða glæsi- legir. Það sem deilt hefur verið um, minni sal- ur, sem tæki um 200 manns í sæti, verður til staðar í húsinu. Þau salarkynni eru kynnt sem fundaraðstaða, en fram kom á kynningarfundi um húsið í síðustu viku, að þar verður hljóm- burður fyrsta flokks, og sniðinn að þörfum tón- listarinnar. Þetta er grundvallaratriði sem eng- in ástæða er til að draga í efa að verði framfylgt. Að auki eru til hér sérhönnuð tón- listarhús og tónleikasalir sem henta tónleikum af þessari stærðargráðu, Ýmir í Skógarhlíð, Salurinn í Kópavogi og Hásalir í Hafnarfirði, allt miklu meira en boðleg húsakynni til tónlist- arflutnings, þótt tónlistarmenn hafi stundum hneigst til þess að gera lítið úr gildi þeirra í við- leitni sinni við að þrýsta á um byggingu Tón- listarhússins.“ Ég tek undir þessi orð Bergþóru; fyrirhuguð tónlistarhöll lofar svo sannarlega góðu. Framtíðin lofar góðu Og af hverju ættum við ekki að eiga allt gott skilið? Tónlistarárið var svo sannarlega prýði- legt – auðvitað með undantekningum, en þann- ig er það alltaf. Myrkir músíkdagar voru t.d. með blómlegasta móti, Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari hélt stórfenglega tónleika í Salnum og í Ými, og annar fiðlu- og víóluleikari, Maxim Vengerov, vakti mikla athygli fyrir snilli sína og líka fyrir að dansa tangó í nýstárlegum konsert eftir Benjamín Júsúpov. Píanó- tónleikar Kristínar Jónínu Taylor voru meiri- háttar, söngur Kiri Te Kanawa guðdómlegur, tónlistin á Listahátíð ágætlega heppnuð, Reyk- holtshátíðin snilld og Tónlistarsmiðja barnanna í Skálholti með afbrigðum skemmtileg. Enn betra verður það þegar tónlistarhöllin og óp- eruhúsið rís. Ég hlakka til. Ár vonarinnar í tónlistarlífinu Forsalur tónlistarhússins „Vonir standa til að úr muni rætast; fyrirhugað tónlistarhús var kynnt með pomp og prakt í haust.“ Höfundur er tónlistargagnrýnandi á Morgunblaðinu. Tónlist Eftir Jónas Sen sen@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.