Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.2005, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.2005, Blaðsíða 6
6 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 31. desember 2005 N ýr þjóðleikhússtjóri er tekinn til starfa. Þýskra áhrifa gæt- ir nú í æ ríkari mæli innan ís- lensks leikhúss. Enn hefur dregið úr umsvifum Borgar- leikhússins. Algengara hefur orðið að leikhópar og jafnvel leikarar starfi er- lendis. Þetta er það sem kemur upp í hugann þegar horft er til baka yfir árið 2005 fremur en einstakar sýningar, einstök afrek. Stefán Baldursson kvaddi loks í upphafi árs. Hans verður minnst fyrir það að hafa tekið þátt í því ásamt fyrrverandi menntamálaráð- herra í andstöðu við félög leikhúsfólks að breyta leiklistarlögum til hins verra fyrir leiklistina í landinu. Versti kaflinn í þeim lögum er að þjóðleikhússtjóri sem áður var ráðinn í hæsta lagi til átta ára getur nú setið til eilífðarnóns. Það eru margir sem eiga enn erfitt með að fyr- irgefa Stefáni þetta. Ástæðan kannski fyrst og fremst sú að þegar hann tók við stjórn leik- hússins, sagði hann upp fjölda starfsmanna, einkum konum; flest leikhúsfólk studdi þá vondu aðgerð hans með þeim rökum að leik- hússtjóri ætti auðvitað að geta starfað með því fólki er hann helst kýs og starfaði sá hinn sami aðeins í fjögur eða átta ár ætti það að tryggja í okkar litla samfélagi að hæfileikafólki sem ekki félli að smekk þessa eina manns væri vart haldið lengur utangarðs en í átta ár. Þessu stuðningsfólki sínu brást Stefán þegar hann ákvað að sitja í þrettán ár. Og eins og allir sem sitja of lengi var hans ekki sárt saknað þegar hann fór, því löng valdaseta spillir bestu mönn- um. Margt gott gerði hann samt á fyrri hluta starfstíma síns, styrkti leikarahópinn og sjálfs- mynd hans, fékk til liðs við leikhúsið áhrifa- mikla erlenda leikstjóra, hélt vel utan um leik- stjóra hússins, stóð sem klettur með leiksýn- ingum og stuðlaði að því að þær væru unnar sem skýr listræn heild í anda þeirrar kynslóð- ar sem hann er af og menntuð var á Norður- löndum eða meginlandi Evrópu. Það voru hins vegar mörg erfið verkefni sem blöstu við nýjum þjóðleikhússtjóra Tinnu Gunnlaugsdóttur þegar hún tók við störfum. Það eitt og sér hlýtur að hafa verið harkalegt að vera kastað inn í þjóðleikhússtjórastarfið án þess að fá nokkurn undirbúningstíma (enn einn vondur lagabókstafur í núverandi leiklist- arlögum!) en í leikhúsum af stærð og gerð Þjóðleikhússins má ætla að minnst tveggja ára undirbúningstími sé nauðsynlegur til að setja saman verkefnaskrá og undirbúa hvert ein- stakt verkefni svo allir þættir þess séu vel úr garði gerðir og ná megi í bestu listamennina. En við henni blasti einnig að allur tæknibún- aður hússins var í molum, litla svið Þjóðleik- hússins óvistlegt og erfitt að reka það nema með tapi, rekstur Þjóðleikhúskjallarans var í döpru ástandi og sjálft húsið, þjóðareignin, í al- gjörri niðurníðslu. Á þessu eina ári sem þjóð- leikhússtjóri hefur setið hefur hún tekið á öll- um þessum vandamálum, tæknibúnaður hefur verið endurnýjaður, Þjóðleikhúskjallarinn færður til upprunalegs horfs og viðmótið gert betra, nýtt leiksvið „Kassinn“ hefur verið inn- réttað og opnað í gamla Jóns Þorsteinssonar húsinu, gamla hæstaréttarhúsið fengið að láni fyrir fræðsludeild og fræðsluuppákomur og er- lendir fagaðilar eru nú að gera nákvæma út- tekt á húsinu sjálfu og kostnaði við viðgerð á því. Um hvernig þjóðleikhússtjóri hefur tekið á innri málum Þjóðleikhússins er færra vitað, en Ýmislegt er ánægjulegt Morgunblaðið/Sverrir Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri „Í verkefnavalinu og samstarfinu við Vesturport blasa við nýjar áherslur hjá þjóðleikhússtjóra.“ Leiklist Eftir Maríu Kristjánsdóttur majak@simnet.is Þ etta er tvímælalaust ár krimm- ans í íslenskum bókmenntum. Á annan tug reyfara kom út á árinu, ég hef lesið sjö þeirra og naut misvel, mestum von- brigðum olli Vetrarborg eftir Arnald Indriðason, sem lullar í gegnum alla bókina, en Tími nornarinnar eftir Árna Þór- arinsson er best. Bækurnar eru mjög líkar og gera litla tilraun til þess að takast á við formið sem þær eru skrifaðar inn í með frumlegum hætti – en það er reyndar smekksatriði hvort það teljist galli eða kostur. Reyfaravæðing íslenskra bókmennta hefur væntanlega náð hámarki í ár, að minnsta kosti er ólíklegt að á ann- an tug glæpasagna verði á markaði aft- ur að ári liðnu. Skýr- ingin á uppgangi þessarar bókmenntagreinar er að einhverju leyti sú hversu vilhallt henni hið markaðslega umhverfi er. Hið sama hefur gerst í nágranna- löndunum þar sem krimmar eru orðnir að harðri bisnessvöru sem agentarnir í bóka- bransanum berjast um. Bókmenntakerfið er líka hliðhollt reyfurunum um þessar mundir, ekki bara vegna þess að hátt og lágt hefur runnið saman, eins og oft hefur verið bent á, heldur og vegna þess að frásögnin – söguþráð- urinn sem módernisminn hafnaði að vissu leyti – á upp á pallborðið. Þessi innrás krimmanna í íslenskt bók- menntalíf er mjög spennandi og verður for- vitnilegt að fylgjast með því hvaða áhrif hún hefur á fyrrnefnt bókmenntakerfi og þar með bókmenntamat. En krimmarnir eru líka í útrás og hafa þeg- ar haft mikil áhrif á þeim vettvangi. Eins og kom fram í grein í Viðskiptablaði Morg- unblaðsins skömmu fyrir jól hefur reyfarinn rutt íslenskum bókmenntum braut erlendis en þar á ótrúleg velgengni Arnalds Indriðasonar stóran hlut að máli. Bókaútgefendur segja það tvennt ólíkt að kynna íslenskar bókmenntir er- lendis nú eða fyrir fimmtán árum. Eins og tón- listin og myndlistin eru bókmenntirnar orðnar hluti af alþjóðamarkaði. Hver bjóst við því? Hver bjóst til dæmis við því að hægt væri að selja áður óbirtan glæpasagnahöfund eins og Yrsu Sigurðardóttur til útlanda með öðrum eins látum og gerðist í haust þegar samningar voru gerðir um sölu á Þriðja tákninu og næstu bók Yrsu til hundrað landa. Milljónir í fyr- irframgreiðslu fyrir íslenska bók á erlendum markaði, eins og Árni Þórarinsson fékk fyrir þýska þýðingu á Tíma nornarinnar, eru líka fá- heyrðar. Og hver hefði trúað því bara í fyrra að Íslendingur ætti eftir að hljóta helstu reyf- araverðlaun Breta, Gullna rýtinginn, sem Arn- aldur gerði sér lítið fyrir og halaði inn í októ- ber? Þetta var örugglega einn af athyglisverðustu viðburðum í íslensku bók- menntalífi þessa árs. Við hljótum að taka ofan fyrir Arnaldi. Sjón hlaut einnig verðuga viðurkenningu á þessu ári þegar hann tók við Bókmenntaverð- launum Norðurlandaráðs í haust fyrir Skugga-Baldur. Sama dag gaf Sjón út nýja skáldsögu, Argóarflísina, en sú bók sýnir að hann er án vafa einn af okkar albestu höf- undum nú um stundir. Annars var þetta ekki mjög spennandi skáldsagnaár. Steinunn Sigurðardóttir er með athyglisverða nóvellu, Sólskinshest, sem er þó við það að detta í sundur á köflum eftir grimmilega tálgun á textanum. Hermann Stef- ánsson skrifar fyrstu skáldsögu sína og formið hreinlega leikur í höndunum á honum. Jón Kalman Stefánsson skrifar bráðfallega bók um kunnuglegt sögusvið, smáþorp á Vest- urlandi. Stíll Jóns Kalmans er sérstakt rann- sóknarefni, hann hefur einkennilegt aðdrátt- arafl, flæðandi og seiðandi, mjög töff, alveg við það að vera of svalur en í senn er hann fullur af rómantísku myndmáli sem er stundum alveg á mörkum þess að vera væmið en verður það samt aldrei, þetta er eiginlega svolítið daðurs- legur stíll en á sama tíma er rödd höfundar mjög afgerandi og algerlega einstök í íslensk- Ár krimmans Morgunblaðið/Einar Falur Arnaldur Indriðason „Og hver hefði trúað því bara í fyrra að Íslendingur ætti eftir að hljóta helstu reyfaraverðlaun Breta, Gullna rýtinginn, sem Arnaldur gerði sér lítið fyrir og halaði inn í október? Þetta var örugglega einn af athyglisverðustu viðburðum í íslensku bókmenntalífi þessa árs.“ Arnaldur áritar Mýrina fyrir áhugasama lesendur í útgáfuhófi St. Martin’s Press-forlagsins í New York í nóvember stuttu eftir að hann hlaut Gullna rýtinginn. Bókmenntir Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.