Morgunblaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 F 13 Metár  Nýliðið ár var metár hvað varðar veltu á fasteignamarkaði, en hún jókst um 11% miðað við árið á und- an. Fjárfest var fyrir hátt í 180 millj- arða á fasteignamarkaði á höf- uðborgarsvæðinu og á Akureyri , en veltan á árinu 2003 var um 160 millj- arðar kr. Lægri hámarkslán  Landsbanki Íslands hefur hætt veitingu 100% íbúðalána og lækkað hámark lána í 90% af markaðs- verðmæti íbúða. Vaxtakjör og skilyrði fyrir lánveitingu eru óbreytt en bank- inn vill með þessu hvetja ein- staklinga til varfærni í lántökum. Öldrunarþorp  Öldrunarþorp hefur verið skipu- lagt í Vatnsendalandi í Kópavogi. Á reit, sem kallast Heimsendi, ætlar Hrafnista að reisa þjónustumiðstöð fyrir aldraða auk fjölda íbúða, sem munu tengjast miðstöðinni. Alls munu 4,5 hektarar fara undir þetta öldrunarþorp. Verðbólguþrýstingur  Verðbólguþrýstingur er mikill sem stendur segir Greining Íslands- banka. Útlit er fyrir mikla hækkun á húsnæðisverði og annað vegna hús- næðis í vísitölu neyzluverðs mun einnig hækka umtalsvert í kjölfar nýs og hærra fasteignamats. Fleiri hyggjast kaupa  Fleiri hyggja nú á húsnæðiskaup en áður samkvæmt Væntinga- vísitölu Gallup fyrir desember. Þetta bendir til þess að umsvif á íbúða- markaði verði áfram mikil á næstu mánuðum. Færri hyggja hins vegar á bifreiðakaup og utanlandsferðir. Óreiða vestra  Forstjóri og fjármálastjóri fast- eignalánarisans Fannie Mae í Bandaríkjunum voru reknir rétt fyrir jól. Í septembermánuði var þetta fyr- irtæki, sem er stærsti veð- lánaveitandi Bandaríkjanna, sakað um brot á uppgjörsreglum. Í grein í New York Times nýlega sagði, að þó að Fannie Mae njóti ekki beinnar ábyrgðar alríkisins sé ábyrgðin óbein og misgjörðirnar geti haft í för með sér mikinn kostnað, sem lendi á al- menningi. Nýtt sorphirðukerfi  Nýtt sorphirðukerfi var tekið í notkun í Reykjavík um áramótin. Nú býðst íbúum í sérbýli (rað-, par- og einbýlishúsum) að fá grænar ösku- tunnur, sem losaðar eru á tveggja vikna fresti í stað vikulega eins og áður hefur verið. Soprhirðugjöld fyrir grænar tunnur eru helmingi lægri, 4.850. kr. á ári en voru 9.700 kr. fyr- ir hefðbundnar/svartar tunnur, sem áfram verða í notkun í fjölbýlishúsum og í sérbýlum sem ekki óska eftir nýju tunnunum. Starfsmenn borgarinnar sjá einnig um að fækka tunnum hjá þeim, sem þess óska, bæði í sérbýli og fjölbýli. Þannig geta íbúar í fjölbýli einnig lagt sitt af mörkum og sparað í sorphirðu- gjöldum með því að flokka úrgang og skila til endurvinnslu. Breytt orkuverð  Öll orkufyrirtækin breyttu gjald- skrám fyrir raforku um þessi áramót og voru breytingarnar bæði til hækk- unar og lækkunar. Hækkun á rafhit- un hjá RARIK nemur 15–20% en heimilisnotkun í þéttbýli hjá RARIK lækkar um 8% og meira hjá stórnot- endum. ÞETTA HELST... FASTEIGNIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.