Morgunblaðið - 04.01.2005, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 F 25
FURUVELLIR 42 - HF. - EINB.
Vorum að fá í sölu glæsilegt einbýli á
einni hæð með innbyggðum bílskúr á
góðum stað á Völlum í Hafnarfirði. Hús-
ið er 179,8 fm og bílskúrinn 54,8 fm,
samtals 234,6 fm. Möguleiki á fimm
svefnherbergjum. Húsið skilast fullbúið
að utan (klætt með Steni) og rúmlega
fokhelt að innan, þ.e. búið að einangra
og plasta. Þetta er skemmtilegt hús á
jaðarlóð. Verð 23,9 millj.
ASPARHVARF - SÉRHÆÐIR - VATNSENDA
Nýkomnar í einkasölu glæsilegar efri og neðri
hæðir 134,3 fermetrar ásamt stæði í bílageymslu
á frábærum útsýnisstað í austurhlíðum Vatns-
endahvarfs. Íbúðirnar skiptast í samkvæmt teikn-
ingu: Anddyri, gang, gestasnyrtingu, hol, eldhús,
stofu, borðstofu, hjónaherbergi, tvö barnaher-
bergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
FURUVELLIR 12 - HF. - EINB.
Nýkomið í einkasölu á þessum frábæra
stað innst í botnlanga glæsilegt einbýli á
einni hæð ásamt millilofti og tvöföldum
bílskúr, samtals um 250 fm. Húsið skiptist
samkvæmt teikningu í forstofu, gesta-
snyrtingu, þvottahús, geymslur, sjón-
varpshol, baðherbergi, eldhús, stofu,
borðstofu, hjónaherbergi, þrjú svefnher-
bergi, milliloft þar sem hægt er að útbúa
tvö herbergi og tvöfaldan bílskúr. Eignin
afhendist fullbúin að utan en fokheld að innan eða lengra komin. Upplýsingar og
teikningar á skrifstofu Hraunhamars.
FÍFUVELLIR 5 - 11 RAÐHÚS - HF.
Nýkomin 4 glæsileg 210 fm raðhús á
tveimur hæðum í byggingu. Húsin af-
hendast fokheld og fullbúin að utan.
Glæsileg hönnun. Frábær staðsetning.
Verð frá 19,2-19,9 millj.
LINDARHVAMMUR 10 - HF. - EINB.
Vorum að fá í sölu þetta skemmtilega
hús. Húsið er 212 fm auk 55,5 fm bílskúrs,
vel staðsett í suðurhlíðum Hafnarfjarðar
með mjög góðu útsýni yfir bæinn og til
hafnarinnar. Húsið er mjög vel skipulagt
á tveimur hæðum og gert er ráð fyrir að
hægt sé að hafa aukaíbúð á 1. hæð ef
þess er óskað. Húsið stendur fyrir ofan
bersvæði og því engar byggingar beint
fyrir neðan. Húsið skilast fullbúið að utan
og tilbúið til innréttinga með grófjafnaðri lóð. Hægt er að fá það afhent fyrr ef þess er
óskað.
KIRKJUBRAUT
Nýkomið í einkasölu 152 fm einbýli með
innbyggðum bílskúr. Húsið afhendist fullbúið að
utan. viðhaldslétt. Vandaður frágangur. Húsið er
tilbúið til afhendingar strax. Verð 11 millj. 105562
LYNGHOLT - EFRI SÉRHÆÐ
Vorum að fá í sölu þessa skemmtilegu hæð í
Keflavík, íbúðin er um 100 fm og nýtist öll mjög vel,
2 svefnherb. rúmgóð stofa og þaðan er utangengt út
á svalir. Baðherbergi með sturtu og baði, Eldhús
með snyrtilegri innréttingu. Nýlegt þak og gluggar,
nýbúið að klæða húsið með steni. Stutt í alla
þjónustu. Góð eign sem vert er að skoða. Verð 9,8
millj. 105846
HEIMSENDI 1 - KÓPAVOGI
Nýkomið sérlega gott 14 hesta hús með
haughúsi, samtals 180 fm. Sérgerði, hita-
túba, endabil. Laust strax. Myndir á mbl.is
og hraunhamar.is.
SÖRLASKEIÐ 21 - HAFNARFIRÐI
Nýtt glæsilegt 12 hesta hús, endi. Afhend-
ing strax, fullbúið að utan með sérgerði.
Nær tilbúið undir tréverk að innan. Vélmok-
að hús. Hitaveita. Frábær staðsetning. Hins
vegar er til sölu nýtt 6 hesta hús, miðjubil í
sama húsi, afhending strax.
HEIMSENDI 8 - KÓPAVOGI
12 básar í nýlegu hesthúsi með gerði, kaffi-
stofu, salerni og drenmottum að hluta. Frá-
bær staðsetning og aðkoma sérlega góð.
Næg bílastæði. Fullbúin eign í sérflokki.
Verð 7,5 millj. 106558
RAUÐHELLA - HF. - ATVH.
Nýkomið sérlega gott ca 100 fm atvinnuhúsnæði auk ca 35 fm millilofts. Góð lofthæð og innkeyrsludyr.
Sérlega góð eign. Afhending strax. Verð 8,9 millj. 67512
FORNUBÚÐIR - VIÐ FISKMARKAÐINN
Nýkomið í einkasölu sérlega gott vandað nýlegt atvinnuhúsnæði, 240 fm, auk efri hæðar, ca 140 fm. Inn-
keyrsludyr, góð lofthæð, frábær staðsetning við fiskmarkaðinn og smábátahöfninna. Verð 26,8 millj.
HVALEYRARBRAUT - HF.
Nýkomið gott 187 fermetra atvinnuhúsnæði með innkeyrsludyrum. Húsnæðið var innréttað fyrir fisk-
vinnslu. Fullbúin eign. Góð staðsetning. Hagstætt verð og kjör. 82972
VESTURVÖR - KÓP. Nýkomið sérlega gott 360 fm atvinnuhúsnæði, auk þess 60 fm gott
milliloft (kaffistofa o.fl.). Í húsnæðinu var áður trésmíðaverkstæði. Tvennar innkeyrsludyr, möguleiki á
fleirum. Sérlóð. Verð 34,0 millj. 102858
KAPLAHRAUN - HF. Nýkomið í einkasölu verslunar-, skrifstofu- og þjónustuhúsnæði á
tveimur hæðum, samtals ca 500 fm. Jarðhæð með verslunargluggum og tveimur innkeyrsludyrum baka
til. Flísar á gólfum og góð lýsing. Á efri hæð er gert ráð fyrir skrifstofu- og þjónusturými (er í dag innrétt-
að sem nokkur herbergi og eldhús). Hæðin er nýlega innréttuð (ónotuð). Vandað parket á gólfum og nýj-
ar hurðir. Hentar vel undir skrifstofur og margvíslega þjónustu.
BÆJARHRAUN - HF. - TIL LEIGU/SÖLU
Nýkomið sérlega gott ca 800 fm atvinnuhúsnæði,
sem skiptist þannig: 550 fm lagerpláss með inn-
keyrsludyrum og ca 250 fm verslunar/skrifstofupláss.
Afhending nk. áramót. Frábær staðsetning og gott
auglýsingagildi.
SKÚTUVOGUR - ATVH. TIL LEIGU/SÖLU
Nýkomið í einkasölu glæsilegt atvinnuhúsnæði,
skrifstofu/verslunarhúsnæði, samtals ca 1.000 fm, á
þessum vinsæla stað. Eignin er fullinnréttuð á vand-
aðan máta. Eign í sérflokki. Möguleiki að selja eign-
ina í þremur einingum. Verðtilboð.
KAPLAHRAUN - HF.
Nýkomið gott 350 fm atvinnuhúsnæði m. innkeyrsludyrum (bakhús). Góð staðsetning. Leigusamningur
getur fylgt. Hagstætt verð 19,0 millj. 60457
FJARÐARBÆR - V. FH-TORG - HF.
Fjarðarbær við FH-torg, þ.e. Bæjarhraun 2 í Hafnar-
firði, 2. hæð til hægri. Glæsilegt skrifstofuhúsnæði
til sölu í hornhúsi við Kaplakrika. Sérlega gott og
bjart húsn. 168 fm m. rúmgóðum skrifstofum með
fjórum sérherbergjum, biðstofu, móttöku, geymslu,
snyrtingu, kaffistofu og svölum. Skemmtil. og vand-
að lyftuhús vel staðsett með mikið auglýsingagildi
og næg bílastæði. Laust strax. Hentar vel sérfræð-
ingum sem vilja samnýta aðsöðu. Uppl. gefur Helgi
á Hraunhamri, s. 520 7500 eða Árni, s. 567 7521.
RAUÐHELLA - HF.
Nýkomið í einkasölu mjög gott 105,9 fermetra enda-
bil ásamt ca 30 fermetra millilofti vel staðsett við
Rauðhellu í Hafnarfirði. Góðar innkeyrsludyr, 4 metr-
ar. Góð lofthæð 6,50 í mæni. Góð lóð. Laust strax.
Verð 9,0 millj. 87728
◆ Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólf-
efna, þær fyrstu í júlí 2005.
◆ Vandaðar innréttingar og tæki.
◆ Sér inngangur, suðursvalir, séreignar
flötur neðri hæða. Stæði í bílageymslu.
◆ Glæsilegt útsýni yfir Elliðavatn, Heið-
mörk, að Hengilsvæðinu, Vífilsfelli og
Bláfjöllum.
◆ Upplýsingar og teikningar á mbl.is og á
skrifstofu Hraunhamars.
Óskum
öllum
farsældar
á nýju ári
Seljendur
Sölusamningur – Áður en fast-
eignasala er heimilt að bjóða eign til
sölu, ber honum að ganga frá sölu-
samningi við eiganda hennar um
þjónustu fasteignasala á þar til gerðu
samningseyðublaði. Eigandi eignar
og fasteignasali staðfesta ákvæði
sölusamningsins með undirritun
sinni. Allar breytingar á sölusamningi
skulu vera skriflegar. Í sölusamningi
skal eftirfarandi koma fram:
Tilhögun sölu – Koma skal fram,
hvort eignin er í einkasölu eða al-
mennri sölu, svo og hver söluþóknun
er. Sé eign sett í einkasölu, skuldbind-
ur eigandi eignarinnar sig til þess að
bjóða eignina aðeins til sölu hjá ein-
um fasteignasala og á hann rétt til
umsaminnar söluþóknunar úr hendi
seljanda, jafnvel þótt eignin sé seld
annars staðar. Einkasala á einnig við,
þegar eignin er boðin fram í maka-
skiptum. – Sé eign í almennri sölu má
bjóða hana til sölu hjá fleiri fasteigna-
sölum en einum. Söluþóknun greiðist
þeim fasteignasala, sem selur eign-
ina.
Auglýsingar – Aðilar skulu semja
um, hvort og hvernig eign sé auglýst,
þ. e. á venjulegan hátt í eindálki eða
með sérauglýsingu. Auglýsinga-
kostnaður skal síðan greiddur mán-
aðarlega samkv. gjaldskrá dagblaðs.
Öll þjónusta fasteignasala þ. m. t.
auglýsingar er virðisaukaskattskyld.
Gildistími – Sölusamningurinn er
uppsegjanlegur af beggja hálfu með
fyrirvara (hámark 30 dagar) og gera
þarf það skriflega. Ef einkasölusamn-
ingi er breytt í almennan sölusamn-
ing þarf einnig að gera það með skrif-
legum hætti. Sömu reglur gilda þar
um uppsögn.
Öflun gagna/söluyfirlit – Áður en
eignin er boðin til sölu, verður að út-
búa söluyfirlit yfir hana. Seljandi skal
leggja fram upplýsingar um eignina,
en í mörgum tilvikum getur fast-
eignasali veitt aðstoð við útvegun
þeirra skjala sem nauðsynleg eru.
Fyrir þá þjónustu þarf að greiða, auk
beins útlagðs kostnaðar fasteignasal-
ans við útvegun skjalanna. Í þessum
tilgangi þarf eftirfarandi skjöl:
Veðbókarvottorð – Þau kosta nú
900 kr. og fást hjá sýslumannsemb-
ættum. Opnunartíminn er yfirleitt
milli kl. 10.00 og 15.00. Á veðbókar-
vottorði sést hvaða skuldir (veðbönd)
hvíla á eigninni og hvaða þinglýstar
kvaðir eru á henni.
Greiðslur – Hér er átt við kvittanir
allra áhvílandi lána, jafnt þeirra sem
eiga að fylgja eigninni og þeirra, sem
á að aflýsa.
Fasteignamat – Hér er um að
ræða matsseðil, sem Fasteignamat
ríkisins sendir öllum fasteignaeig-
endum í upphafi árs og menn nota
m.a. við gerð skattframtals. Fast-
eignamat ríkisins er til húsa að Borg-
artúni 21, Reykjavík sími 5155300.
Fasteignagjöld – Sveitarfélög eða
gjaldheimtur senda seðil með álagn-
ingu fasteignagjalda í upphafi árs og
er hann yfirleitt jafnframt greiðslu-
seðill fyrir fyrsta gjalddaga fast-
eignagjalda ár hvert. Kvittanir þarf
vegna greiðslu fasteignagjaldanna.
Brunabótamatsvottorð – Vottorð-
in fást hjá því tryggingafélagi, sem
eignin er brunatryggð hjá. Vottorðin
eru ókeypis. Einnig þarf kvittanir um
greiðslu brunaiðgjalda. Ef fá þarf nýtt
brunabótamat á fasteign, þarf að
snúa sér til Fasteignamats ríkisins og
biðja um nýtt brunabótamat.
Eignaskiptasamningur – Eigna-
skiptasamningur er nauðsynlegur, því
að í honum eiga að koma fram eign-
arhlutdeild í húsi og lóð og hvernig
afnotum af sameign og lóð er háttað.
Umboð – Ef eigandi annast ekki
sjálfur sölu eignarinnar, þarf umboðs-
maður að leggja fram umboð, þar
sem eigandi veitir honum umboð til
þess fyrir sína hönd að undirrita öll
skjöl vegna sölu eignarinnar.
Minnisblað