Morgunblaðið - 04.01.2005, Qupperneq 26
26 F ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
HÉRLENDIS hafa í tvö og hálft ár
verið í gildi tvö sett þolhönnunar-
staðla. Annað settið byggist á dönsk-
um stöðlum og er með íslenskum
sérákvæðum. Hitt settið saman-
stendur af evrópskum forstöðlum
(ENV, Eurocodes) með íslenskum
þjóðarskjölum (NAD, National
Application Documents) sem skil-
greina sérstakar kröfur vegna notk-
unar hérlendis. Hönnuðir og/eða
framkvæmdaað-
ilar hafa frjálst
val um hvort
staðlasettið er
notað við hönnun
mannvirkja en
verða að halda
sig við annað
settið.
Danir hafa
endurskoðað sinn
staðal um þol-
hönnun timburvirkja fyrir nokkru
(DS 413 Norm for trækon-
struktioner). Nýr íslenskur staðall
ÍST DS 413 Hönnun timburvirkja,
hefur nú tekið gildi frá og með 15.
desember 2004. Ekki er um nein ís-
lensk sérákvæði að ræða við þennan
nýja staðal frekar en fyrri útgáfu
hans.
Með hliðsjón af þessum nýja
danska staðli og jafnframt með hlið-
sjón af breytingum sem gerðar hafa
verið á t.d. finnska þjóðarskjalinu
með evrópska forstaðlinum um þol-
hönnun timburvirkja (FS ENV
1995-1-1) var ákveðið að endurskoða
íslenska þjóðarskjalið við forstaðal-
inn um hönnun timburvirkja. Vanda-
mál hafa verið erlendis vegna
ákvæða í staðlinum um tengingar.
Greinarbetri lýsingum á þessum
þætti hefur verið bætt inn í nýja
þjóðarskjalið sem staðfest hefur ver-
ið sem íslenskur staðall og tók hann
gildi þann 15. desember 2004.
Nýju staðlarnir eru fáanlegir hjá
Staðlaráði Íslands sem hefur aðsetur
að Laugavegi 178. Hagsmunaaðilar
eru hvattir til þess að hefja þegar
notkun þessara nýju staðla þar sem
eldri útgáfur þeirra eru fallnar úr
gildi. Nánari upplýsingar veitir Haf-
steinn Pálsson framkvæmdastjóri
Byggingarstaðlaráðs.
Hver þjóð semji
nýja viðauka
Innan Evrópsku staðlasamtak-
anna (CEN) er unnið að því að end-
urskoða evrópsku forstaðlana um
þolhönnun og gefa þá út sem full-
gilda staðla (EN). Sú vinna gengur
samkvæmt áætlun og verða nýju
þolhönnunarstaðlarnir alls 58. Hver
þjóð þarf síðan að semja sérstakan
þjóðarviðauka (National Annex) með
hverjum staðli til þess að skilgreina
frekar gildi sem nota ber við hönnun
mannvirkja. Ekki er heimilt að
blanda saman notkun gömlu for-
staðlanna (ENV) og nýju staðlanna
(EN). Jafnframt er ekki heimilt að
hefja notkun nýju staðlanna fyrr en
þjóðarviðaukarnir liggja fyrir og vís-
að hefur verið til þeirra í bygging-
arreglugerðinni.
Staðlar fyrir
þolhönnun
timburvirkja
Höfundur er verkfræðingur á Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins
og framkvæmdastjóri BSTR.
Hafsteinn Pálsson
Brýnt er að allir hagsmunaaðilar taki höndum sam-
an um vinnu við viðhald og endurskoðun slíkra
gagna, segir dr. Hafsteinn Pálsson, og að ný þekk-
ing og upplýsingar eigi greiða leið inn í staðla og
ýmsar handbækur.
Seltjarnarnes — Hjá fasteignasölunni Miðborg er nú til
sölu fallegt 240,5 ferm. íbúðarhús við Lambastaðabraut
13 á Seltjarnarnesi. Húsið er á tveimur hæðum og með
25,9 ferm. innbyggðum bílskúr.
Húsð skiptist þannig að á neðri hæð er forstofa,
þvottahús, geymsla, svefnherbergi og bílskúr auk 2ja
herb. íbúðar með sérinngangi. Á efri hæð er hol, gangur,
eldhús, baðherbergi, stofa, borðstofa og þrjú svefnher-
bergi.
Komið er inn í flísalagða forstofu á neðri hæð með góð-
um fataskápum og þar er ennfremur flísalögð geymsla
með hillum, teppalagt svefnherbergi og þvottahús með
sturtu og glugga.
Stigi upp á efri hæð er teppalagður, en þar er komið
inn í flísalagt hol. Þar er ennfremur rúmgóð og björt,
teppalögð stofa en úr henni er útgengt út á suðvestur-
svalir. Borðstofa er flísalögð. Eldhúsið er flísalagt og
með kirsuberjainnréttingu og borðkrók. Baðherbergi er
flísalagt með baðkari og skápar eru undir vaski og á
veggjum. Panill er á veggjum.
Svefnherbergisgangur er flísalagður, en í enda gangs
er tölvurými. Af gangi eru tvö parketlögð barnaherbergi
með fataskápum. Hjónaherbergi er parketlagt og með
fataskáp. Á jarðhæð er 2ja herb. íbúð með sérinngangi.
Þar er komið inn í flísalagða stofu, en eldhúsið er flísalagt
og með kirsuberja- og hvítri eldhúsinnréttingu. Halogen-
lýsing er í stofu og eldhúsi. Herbergi er parketlagt og inn
af því er fataherbergi. Baðherbergi er flísalagt með
sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél á baði.
Fyrir framan hús er góður sólpallur. Bílskúrinn er inn-
byggður samkv. framansögðu og er með hita, rafmagni
og heitu og köldu vatni. Ásett verð er 39,8 millj. kr.
Þetta er fallegt hús á tveimur hæðum, 240,5 ferm. að
stærð og með 25,9 ferm. innbyggðum bílskúr. Tveggja
herb. íbúð með sérinngangi er á neðri hæð. Ásett verð er
39,8 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Miðborg.
Lambastaðabraut 13
Fréttir á SMS
ÁLFASKEIÐ
Nýkomin í einkasölu mjög falleg og
rúmgóð 93 fm, 3ja herb. íbúð á
fyrstu hæð í góðu fjölbýli. Íbúð í
góðu standi að innan, m.a. endur-
nýjað baðherbergi. LAUS FLJÓT-
LEGA. Verð kr. 15,4 millj.
SLÉTTAHRAUN
Nýkomin í einkasölu rúmgóð 91 fm
íbúð á fyrstu hæð í fjölbýli. Rúmgóð
herbergi, góð stofa og eldhús með
þvottaherbergi í íbúð. Öll sameign
ný endurnýjuð. Verð kr. 14,5 millj.
HÁHOLT
Nýkomin í einkasölu mjög falleg og
rúmgóð íbúð á annarri hæð í góðu
fjölbýli. Parket á gólfum, góðar inn-
réttingar. Mjög rúmgóð stofa, sjón-
varpshol, þvottaherbergi í íbúð og
þrjú rúmgóð herbergi. Verð kr. 17,8
millj. ARNARHRAUN
Í sölu mjög falleg 54 fm 2ja herb.
íbúð í litlu fjölbýli miðsvæðis í Hafn-
arfirði. Mjög vel skipulögð íbúð, nýtt
parket á gólfum. Getur losnað
fljótlega. Verð kr. 10,3 millj.
ARNARHRAUN 21
Vorum að fá í sölu nýjar íbúðir á
jarðhæð, miðsvæðis í Hafnarfirði.
Glæsilegar íbúðir sem skilast full-
búnar með gólfefnum skv. skilalýs-
ingu. Mjög góð staðsetning og
gott aðgengi. Mikil lofthæð og vel
skipulagðar íbúðir. Verð frá 13,7 -
17,5 millj. Sjón er sögu ríkari! DALSHRAUN
Nýtt og stórglæsilegt 5 hæða hús á
afar sýnilegum stað í Hafnarfirði.
Húsið er alls 5.200 fm með upphit-
aðri bílgeymslu. Hver hæð er ca
2.700 fm Allar nánari uppl. eru veitt-
ar á skrifstofu Fasteignastofunnar.
HRINGBRAUT, HF. - RISÍBÚÐ
Nýkomin í einkasölu mjög fín ris-
íbúð miðsvæðis í Hafnarf. Góðir
kvistir og gott útsýni yfir fjörðinn.
Parket og flísar á íbúð. Verð 11,5
millj.
EINBÝLI Í SANDGERÐI
Höfum fengið í sölu fallegt einbýli á
einni hæð í grónu hverfi í Sandgerði.
Skilast fullbúið að utan og steinað
en fokhelt að innan og frágengin
lóð. Plan frágengið með hitalögn-
um. Á teikn. er gert ráð fyrir 3 her-
bergjum og rúmgóðri stofu. Tilvalið fyrir þá sem vilja búa í kyrrlátu um-
hverfi fjarri borgarskarkalanum. Nánari uppl. og teikningar á skrifstofu
okkar og á mbl.is
HRINGBRAUT
Í sölu mjög góð 84 fm íbúð á fystu
hæð í fjórbýli á góðum stað í suður-
bænum. Íbúð sem býður upp á
mikla möguleika. Verð kr. 13,5
millj. KLETTAGATA-AUKAÍBÚÐ
Glæsilegt, tvílyft einbýli á frábærum
stað, innarlega í lokaðri götu í Vest-
urbæ Hafnarfj. Sérlega barnvænt og
rólegt umhverfi í hraunjaðrinum.
Mjög góð séríbúð á jarðhæð með
sérinngangi. Vandaður frágangur.
Þetta er hús sem vert er að skoða.
Nánari uppl. á skrifstofu okkar.
BJARKARGATA,
PATREKSFIRÐI
Við höfum fengið í sölu rúmgóða neðri sérhæð í tvíbýli á þessum fallega
stað á Vestfjörðum. Íbúðin er í góðu standi. Tilvalið til dæmis sem sum-
arathvarf í þessari náttúruperlu okkar Íslendinga. Nánari upplýsingar á
skrifstofu okkar Óskað er eftir tilboðum í eignina.
KRÓKAHRAUN
Nýkomin í einkasölu glæsileg 94 fm
íbúð á jarðhæð í tvílyftu fjölbýli með
sérstæðum 32 fm bílskúr á þess-
um vinsæla stað í Hafnarfrði. Nýleg
eldhúsinnrétting og góð gólfefni.
Allar nánari uppl. veittar á skrifstofu.
S t a r f s f ó l k F a s t e i g n a s t o f u n n a r
ó s k a r v i ð s k i p t a v i n u m s í n u m
o g l a n d s m ö n n u m ö l l u m f a r s æ l d a r
á n ý j u á r i u m l e i ð o g v i ð þ ö k k u m f y r i r
v i ð s k i p t i n á þ v í l i ð n a .