Morgunblaðið - 04.01.2005, Side 32

Morgunblaðið - 04.01.2005, Side 32
32 F ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Það er með ólíkindum hvaðýmislegt, sem við tökumokkur fyrir hendur, verðursvo sjálfsagt að tæpast er tekið eftir því. Á þessum köldu vetr- ardögum í upphafi ársins 2005 finnst öllum sjálfsagt að snjóbræðslukerfi sé við hvert hús og nánast í öllum gangstéttum í gömlu Reykjavík, jafn- vel í heilum göt- um í nýrri hverf- um. En fyrir þrjá- tíu árum rúmum var þetta ekki svona, menn glenntu upp aug- un þegar fyrstu snjóbræðslukerf- in voru lögð hér- lendis og því er ekki úr vegi að rýna svolítið í söguna, hvernig byrj- aði þetta allt saman? Það er orðin hálf öld síðan gerðar voru fyrstu tilraunir með lögn snjó- bræðslukerfa hérlendis, þar voru á ferðinni framtakssamir pípu- lagningamenn og verkfræðingar. Þá voru lögð snjóbræðslukerfi í gang- stíginn frá Lækjargötu upp að Menntaskólahúsinu og einnig í tröpp- ur við Austurbæjarskólann á Skóla- vörðuholti, en þetta var aðeins frum- raun sem ekki varð til neinnar framþróunar. Það er því fróðlegt að kíkja í sænskt tæknirit því þar er fjallað um snjóbræðslu í því landi sem fram- sýnir menn fóru að leggja um 1965 eða fyrir um fjörutíu árum. Og það er enginn vafi hvar vagga snjóbræðslunnar í Svíþjóð er, það er í borginni Västerås, sem er ein af stærri borgum þar í landi og er inni í miðju örlítið norðar en höfuðborgin Stokkhólmur. Í nefndri grein er ekki aðeins rifjað upp hvernig þetta hófst heldur einnig hver þróun snjó- bræðslu hefur orðið í þessari vöggu og landinu í heild. Orkuverið og kælivatnið Árið 1963 gangsettu þeir í Väster- ås fyrsta orkuverið þar sem þeir framleiddu gufu með olíukyndingu og framleiddu síðan rafmagn í gufutúrb- ínum. Í slíkum orkuverum er nauð- synlegt að kælivatnið kólni sem mest og þá fékk gatnamálastjórinn þar í bæ þá hugmynd að kæla það með því að láta það renna um plaströr undir yfirborði gatna og gangstíga. Pólitík- usar voru til í tuskið því á þessum ár- um voru Svíar sem ölvaðir af sinni velgengni og sínu ríkidæmi. Þetta var á þeim áratug sem fjöl- margir Íslendingar þyrptust til Sví- þjóðar í atvinnuleit. Fjölmargir höfn- uðu í skipasmíðastöðinni stóru í Malmö, einkum járniðnaðarmenn, sumir komu aldrei aftur og þar hefur því orðið til ættbogi Austur-Íslend- inga svona sem andstæða við þá sem fóru vestur fyrir meira en öld. En þeir í Västerås hófust handa, hálærðir verkfræðingar fóru að reikna og í Upplands Väsby, einni af útborgum Stokkhólms, var sett upp plaströraverksmiðja sem framleiddi rör í snjóbræðslukerfi og fengu þau plaströr nafnið Meltaway og var val- inn appelsínugulur litur. Pólitíkusar í Västarås voru bjartsýnin uppmáluð, samþykktu að þar í borg yrðu lögð snjóbræðslukerfi í öll torg, göngu- götur og gangstéttir í miðbænum og það var svo sannarlega hafist handa. Þegar þetta hafði staðið í rúman áratug og talsvert verið lagt af snjó- bræðslukerfum í „vöggu snjóbræðsl- unnar“ komu ótíðindi hin mestu úr arabaheimi. Margskonar átök í heim- inum urðu til þess að olíuverð rauk upp úr öllu valdi einmitt þegar kæli- vatn, sem kólna þurfti enn þá meira, var ekki lengur að fá. Þá voru menn reyndar farnir að leggja snjóbræðslukerfi sem fengu orku sína frá olíukyndingum, en við þessar gífurlegu verðhækkanir var grundvellinum kippt undan frekari snjóbræðslulögnum í Svíþjóð, eða næstum því. Í nefndri upprifjun kem- ur fram að það voru hinir gunnreifu pólitíkusar sem fyrstir kipptu að sér fjárveitingahendinni. Ekki aðeins tóku þeir fyrir öll peningaframlög heldur vildu þeir að snjóbræðslukerf- um, sem kynt voru með olíu, yrði lok- að á stundinni og var svo gert víða. Síðan hafa snjóbræðslukerfi verið í skötulíki í Svíþjóð þó enn séu þau víð- feðmust í vöggunni Västerås. Enn eru þau þó lögð við sjúkrahús, eink- um slysamóttökur og á öðrum stöð- um þar sem slík kerfi eru nauðsyn af öryggisástæðum. En var þá öll þróun þeirra á snjó- bræðslu unnin fyrir gýg? Nei, íslenskir jólasveinar fara víða. Einn þeirra, segjum Giljagaur, var kominn inn á gafl hjá þeim sænsku og segja má að hann hafi stolið barninu úr vöggunni. Hins vegar var þar ekki um neinn raunverulegan þjófnað að ræða, allt var þar gert í góðu sam- komulagi með samningum og undir- skriftum. Og þar með hófst snjóbræðsluöldin á Íslandi sem ekki sér fyrir endann á og öllum þykir sjálfsögð. En síðan hefur mikið þróunarstarf verið unnið hérlendis því aðlaga þurfti snjó- bræðslukerfin íslenskum aðstæðum, sem voru fyrst og fremst þær að nýta frárennslisvatnið af hitakerfum landsmanna, sem hvort sem er rann út í skólpleiðslur, til að hita upp bíla- stæði og gangstéttir. Það er skemmtilegt að líta í fyrstu tæknibókina um snjóbræðslu sem nefndur Giljagaur samdi 1985. Þar er ótrúlega margt í fullu gildi, en að sjálfsögðu þurftu margir að finna upp sitt eigið hjól og svo er enn. Giljagaur stal barninu úr vöggunni Lagnafréttir eftir Sigurð Grétar Guðmundsson pípulagningameistara/ sigg@simnet.is Snjór á hjólum en ekki á torgi, snjóbræðslan slapp við niðurskurðarhnífinn. Sigurður Grétar Guðmundsson MOSFELLSBÆR Sími 588 5530 - Fax 588 5540 Grétar J. Stephensen sölufulltrúi Pétur Pétursson lögg. fasteignasali Sigrún Stella Einarsdóttir lögg. fasteignasali Netfang: berg@berg.is •Heimasíða: berg.is Opið virka daga frá kl. 9-18 Sími 588 5530 Fax 588 5540 Berg fasteignasala, Háaleitisbraut 58, www.berg.is Mjög vel staðsett, 180 fm atvinnuhús- næði með stórum innkeyrsludyrum. Mikil lofthæð ca 6,8 m í mæni. Snyrting með sturtuklefa. Rekstur fyrirtækisins auk fasteignin selst saman. Hillur, raf- magnslyftari o.fl. fylgir með. Tjaldvagna- og fellihýsageymsala auk búslóða- geymslu. Gott tækifæri fyrir þá sem vilja aukabúgrein. V. 15 m. 5583 ESJUMELAR - ATVINNUHÚSNÆÐI Sjarmerandi 123 fm efri-sérhæð við Álafosskvos í Mosó. Sérinngangur. Fjögur svefnh. Stór stofa og sjónvarps- hol. Eldhús er stórt og bjart með góðri innréttingu, góðum tækjum og fallegum flísum. Gott pláss fyrir stóra fjölskyldu. Hagstætt verð. V. 16,4 m. 5448 BREKKULAND - MOSFELLSBÆ Á bökkum Rangár Til sölu 31 fm sum- arbústaður í landi Ægissíðu við Ytri-Ran- gá. Bústaðurinn stendur á eignarlandi í mjög fögru umhverfi. Allur húsbúnaður fylgir með í kaupum. Stutt í alla þjónustu. V. 4,4 m. 5526 SUMARHÚS Landið Egilsbraut - Þorláksbraut Nýkomin í sölu 86 fm, efri sérhæð auk 30 fm bílskúrs við Egilsbraut í Þorlákshöfn. Nýir gluggar og gler. Nýtt þak. Eignin er laus strax. Stór garður. Rólegt og fallegt umhverfi. 5600 Raðhús Jakasel - Reykjavík Afar fallegt 201,1 fm parhús auk 22,8 fm bílskúrs á vinsæl- um stað í Seljahverfinu. Eignin skiptist í miðhæð og ris með 3 svefnh. auk kjallara- íbúðar með 3 svefnh. og sérinngangi. Þetta er einstaklega falleg eign með mikla möguleika. V. 32,5 m. 5594 2ja herbergja Grettisgata - 101 Reykjavík Falleg og nýuppgerð, 42 fm íbúð með sérinngangi í reisulegu og fallegu húsi í hjarta borgar- innar. Parket er á stofu og eldhúsi. Ný eld- húsinnrétting. Baðherbergi með flísum á gólfi og sturtuklefa. Búið er að endurnýja glugga, tæki, innréttingar og lagnir í íbúð. Þetta er hlýleg og falleg íbúð miðbæ borg- arinnar. V. 8,7 m. 5598 Laugarnesvegur - Reykjavík Mjög fal- leg 50,7 fm íbúð á jarðhæð í litlu og fal- legu fjölbýli með stórum sameiginlegum garði í góðri rækt. Rúmgott svefnherbergi með nýjum skápum. Baðherbergi er nýtil- tekið með sturtuklefa. Eldhús með nýrri innréttingu og eldavél. Björt og góð stofa með stórum glugga sem hleypir góðri birtu inn í íbúðina. Tilvalin fyrsta íbúð. V. 9,1 m. 5587 Laufásvegur - 101 Reykjavík Vorum að fá í sölu nýuppgerða og glæsilega, 86,6 fm, 2ja herb. íbúð á jarðhæð með sérinngang. Eign í hjarta borgarinnar. Flí- salagt anddyri. Eikarhurð með frönsku gleri. Gegnheilt eikarparket í stofu, eld- húsi, herbergi og geymslu. Ný eldhúsinn- rétting og góð borðaðstaða. Björt og rúm- góð stofa. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Baðkar og sturtuklefi. Þetta er topp- íbúð á fallegum stað rétt ofan við tjörnina. 5584 Sérhæð Skógarsel Nýkomin í sölu glæsileg, 145,2 fm íbúð auk bílskýlis á jarðhæð með sérinngangi og sérgarði í þessu fal- lega húsi við Skógarsel. Íbúðin skilast til afhendingar mjög fljótlega. Allar innrétt- ingar komnar nema gólfefni. Vandaður og smekklegur frágangur að utan sem innan. Mjög fallegt umhverfi. Gróið hverfi. 5581 Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegs árs og friðar. Þökkum liðið ár. Pétur, Stella og Grétar. Hjá Berg fasteignasölu eru það löggiltir fasteignasalar sem koma að öllu söluferlinu samkvæmt lagaboði. Kynnið ykkur vel ný lög um fasteignasala og leitið ráðgjafar þar um. Tryggið ykkur lögboðna þjónustu og að hagsmunir ykkar séu tryggðir. S E L D S E L D

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.