Morgunblaðið - 24.01.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.01.2005, Blaðsíða 4
HM Í HANDKNATTLEIK 4 B MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ „ÞETTA var alveg magnað, eitt það magnaðasta sem ég hef lent í lengi. Að mínu mati var það Birkir Ívar sem vann þetta stig fyrir okkur. Hann átti frábæra innkomu, varði vel og við feng- um hraðaupphlaup í kjölfarið. Það gerði gæfumuninn,“ sagði Dagur Sigurðsson, fyrirliði ís- lenska liðsins, nokkuð kátur en aðallega létt í leikslok. „Vörnin hjá okkur í fyrri hálf- leik og framan af þeim síðari var alveg hræðileg. Það var sama hvaða vörn við reyndum, og við reyndum mest allt, það gekk ekkert. Þetta var alveg hræðilegt. Við fengum tuttugu mörk á okkur í fyrri hálfleik og svo tíu fyrsta korterið í þeim síðari og þetta var skelfilegt.“ Er þetta það sem koma skal? „Nei, ég ætla rétt að vona ekki. Ég ætla rétt að vona að við getum tekið það góða með okk- ur úr þessum leik og byrjað fyrr að spila eins og menn. Ég veit ekki hvort það var eitthvert stress í strákunum, en við þessir leikreyndu hefðum altént átt að geta leikið eins og menn framan af leiknum. En þegar vörnin er jafn hræðileg og í kvöld þá ger- ist ekkert, engin hraðaupphlaup og á móti gera þeir auðveld mörk á okkur og við dröbbumst niður í ekki neitt.“ Mér fannst hægri vængurinn sækja mikið inn á miðjuna í sókninni, en það gekk ekki nægilega vel. „Já, þeir spila 4-2 vörn og voru frammi á miðjuna og Óla og þá lendir skyttan vinstra megin dálítið í því að vera einn og geta lítið sent boltann. Í lok leiksins kom meiri hreyfing hjá mönnum án bolta og Arnór átti fínan leik, var virkilega ógn- andi,“ sagði Dagur. „Alveg magnað“ Morgunblaðið/RAX Vignir Svavarsson og Ólafur Stefánsson voru þreyttir í leikslok. VÖRNIN var alveg ferleg í 45 mínútur en um leið og við fórum að ganga út í skytturnar og stöðva línusendingarnar frá þeim þá gekk þetta upp hjá okk- ur. Við fengum hraðaupp- hlaupin og gátum keyrt á þá af fullum krafti,“ sagði Vignir Svavarsson, línumaður og varn- arjaxl, eftir leikinn. „Það var einhver hræðileg deyfð yfir þessu hjá okkur fram- an af en við gáfumst ekki upp þrátt fyrir þessi ósköp. Síðan kom frábær kafli hjá okkur þar sem við náðum að spila eins og við gerum best og nú verðum við að læra af þessu og byrja að- eins fyrr í næsta leik! Það var langt frá því að vera bjart yfir þessu í hálfleik og í raun versn- aði það í upphafi þess síðari, en við sýndum mikinn styrk að ná að snúa þessu upp í jafntefli og það er betra að fá eitt stig en ekkert. Það er mun þægilegra að sætta sig við þetta en tap,“ sagði Vignir. „Eitt betra en ekki neitt“ Síðan breyttum við um varnar-aðferð, að ég held í fjórða sinn í leiknum, þá fór Birkir [Ívar Guð- mundsson] að verja um leið og þessi varnaraðferð gekk vel. Þegar þetta gerðist þá gekk hvert hraðaupphlaupið á fætur öðru upp hjá okkur enda eru þau alveg rosalega góð, síðan höfðu Tékkarnir ekki vit á því að klippa mig út úr hraðupphlaupunum í síð- ari hálfleik eins og þeir gerðu í þeim fyrri, það er nú þeirra vanda- mál. Þannig að ég náði oft að gefa á Gauja [Guðjón Val Sigurðsson] og við skoruðum hvert markið á fætur öðru, þá gerðust hlutirnir hratt. Það er ekki slæmt að vita til þess að við eigum svona leikkafla í okk- ur,“ sagði Ólafur sem oft átti hreint stórkostlegar sendingar yfir völl- inn þveran og endilangan, hárfínar og beint í hendur samherja sinna. „Já, þetta er þarna ennþá og er gamalt og gott. Ég reikna með að bjóða upp á þær áfram í mótinu ef ég hef tækifæri til þess,“ sagði Ólafur og brosti þegar hann var spurður út í æfingarnar á bak við þessar löngu og hnitmiðuðu send- ingar sem fengu alltof fáa áhorf- endur leiksins til að rísa úr sætum og klappa honum lof í lofa fyrir, hvað eftir annað. „Við megum hins vegar alls ekki gleyma þessum langa slæma kafla í leiknum, af honum verðum við að læra. Þá klikkaði allt í vörninni illi- lega um leið og við vorum í vand- ræðum í sókninni, segja má að við höfum verið í „massavandræðum“ í sókninni allan leikinn gegn 4/2 vörn Tékka. Þetta stig sem við unnum vannst fyrst og fremst á hraðaupp- hlaupum. Svo má segja að menn hafi hreyft sig aðeins meira í sókn- inni, fjórir gegn fjórum varnar- mönnum, þá batnaði sóknarleikur- inn aðeins, en fjórir sóknarmenn gegn fjórum varnarmönnum á að vera veisla fyrir sóknarmennina, en því miður þá var það ekki raunin hjá okkur og en verður það vonandi næst þegar þessi staða kemur upp. Ég reikna samt ekki með að önn- ur lið leiki svona vörn eins og Tékk- ar því hún er þeirra sérgrein, það ráða ekki aðrir við að leika hana,“ sagði Ólafur sem lauk lofsorði á frammistöðu ungu mannanna í lið- inu. „Strákarnir voru góðir og ég var ánægður með Birki, hann varði vel eftir að hann kom inn á,“ sagði Ólafur Stefánsson, sem rauf 1000 marka múrinn í landsleik, nokkuð sem Kristján Arason hefur einn af- rekað áður. Ólafur Stefánsson tryggði Íslandi jafntefli gegn Tékkum og hann hefur skorað yfir 1.000 mörk í landsleikjum                                                                                  !!""# $ %  $% "  %%  " &    '" %$   (  )                         !"#  $  %&##  $# %# %# %# &#$ # '# &#& '%#'" '$#' '%#'%   ' %  & $  "                                    ! "! #$! #"! # ! #%! #$! %! ##! #%! #"! ! ! & ! ! ! !    !                    !   "   *  )      #  $%  &! ' ('%  ) !  *   (  ) (+  ,-! ,.  /   ,.0   1$ (   2 ! &  0  !' * !  * 3 !!    "   "' $' &% &'& $ &$ % ' 4  "  3+   %     56% !!  !  !  "      Höfðu ekki vit á að klippa mig út „VIÐ vorum bara í skítnum lengst af, það er ekkert flóknara en það,“ sagði Ólafur Stefánsson eftir jafntefli við Tékka í gær þegar leitað var skýringa hjá honum á þeim gríðarlega mun sem var á leik íslenska liðsins fyrstu 45 mínúturnar annarsvegar og hins vegar síðasta stundarfjórðunginn. Ívar Benediktsson skrifar frá Túnis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.