Morgunblaðið - 24.01.2005, Blaðsíða 6
HM Í HANDKNATTLEIK
6 B MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
GRÍÐARLEG öryggisgæsla er á
hótelum allra keppnisliðanna og
hafa menn aldrei kynnst öðru eins
á heimsmeistaramóti í handknatt-
leik. Öryggisverðir eru í tugavís á
vakt á hverju hóteli og fylgjast
með hverju skrefi fólks. Alllur
farangur og yfirhafnir verða að
fara í gegnum tæki þar sem leitað
er að vopnum auk þess sem hver
sá sem kemur inn á hótel verður
að fara í gegnum vopnaleitarhlið.
Gildir þá einu hvort um kepp-
endur eða gesti er að ræða. Eng-
inn leikmaður má fara út af hót-
elinu, einn eða í hópi með öðrum,
ef farið er út af hóteli þá verður
allir hópurinn að fara saman og
þá undir eftirliti vopnaðra varða.
Á laugardag fór íslenska lands-
liðið í gönguferð á strönd nærri
hótelinu. Vopnaður vörður gekk á
undan hópnum með talstöð og síð-
an voru hópar varða hvor til sinn-
ar handar leikmönnum sem gengu
í röð á ströndinni. „Það var alveg
hreint ótrúlegt að sjá þetta,“
sagði Viggó Sigurðsson, landsliðs-
þjálfari um gæsluna sem hefur
komið íslenska liðinu í opna
skjöldu.
Ekki þarf að taka fram að í
hvert sinn sem landsliðið fer á æf-
ingu eða keppni þá fylgja fimm til
sex vopnaðir lögreglumenn hópn-
um á vélhjólum.
Fyllsta öryggi
alls staðar
HEIMSMEISTARARNIR frá Kró-
atíu eru eftir á blaði hjá veðbönk-
um í Þýskalandi yfir líklegustu
sigurvegara á heimsmeist-
aramótinu í Túnis. Frakkar eru í
öðru sæti og Spánverjar í því
þriðja. Íslendingum er spáð 11.
sæti á mótinu. Hér er listinn hjá
veðbönkunum:
Króatía.................................. 3,75
Frakkland ............................ 4,00
Spánn .................................... 6,00
Rússland ............................... 7,00
Danmörk .............................. 8,00
Svíþjóð .................................. 8,00
Þýskaland............................. 9,00
Slóvenía .............................. 12,00
Serbía/Svartfjallaland ..... 17,00
Noregur.............................. 31,00
Ísland .................................. 34,00
Egyptaland ........................ 51,00
Túnis ................................... 67,00
Tékkland ............................ 75,00
Grikkland ........................... 75,00
Argentína......................... 101,00
Brasilía ............................. 201,00
Japan ................................ 301,00
Alsír .................................. 501,00
Angóla .............................. 751,00
Ástralía........................... 1001,00
Kanada ........................... 1001,00
Kúveit ............................. 1001,00
Katar............................... 1001,00
Flestir
veðja á
Króata
SÉRFRÆÐINGAR og blaðamenn
sænska dagblaðsins Aftonbladet
spá því að íslenska landsliðið eigi
70% möguleika á að komast í
milliriðla á heimsmeistaramótinu
í Túnis. En að mati þeirra eru að-
eins 10% líkur á því að íslenska
liðið vinni til verðlauna á mótinu.
Svíarnir segja að handknatt-
leikur sé þjóðaríþrótt Íslendinga
og eitt af sex efstu sætum keppn-
innar sé markmiðið. Liðið sé skip-
að mörgum ungum leikmönnum
sem leika sem atvinnumenn í
Þýskalandi og framtíðin sé björt
hjá þessu liði. Ólafur Stefánsson
er sagður vera ein besta örvhenta
skytta veraldar. Svíarnir telja að
markverðir íslenska liðsins séu
veikasti hlekkur liðsins. Fjarvera
Sigfúss Sigurðssonar mun veikja
liðið verulega að mati sænsku sér-
fræðinganna og að auki megi lið-
ið vart við því að missa leikmann
á borð við Jaliesky Garcia.
Aðeins
10% líkur
á íslensk-
um verð-
launum
Þetta gengur bara upp með vinnuog áræðni, gefast aldrei upp,
saxa smátt og smátt niður forskotið
og brjóta Tékkana
niður, svona gerist
þetta. Við sýndum
alveg gríðarlegan
„karakter“ en hvað
gerist nákvæmlega
þegar svona viðsnúningur verður á
leik veit ég ekki fyrir víst, ekkert
frekar en hvað er að gerast þegar
allt gengur í mót eins og gerði lengst
af leiknum,“ sagði Róbert þegar
hann var spurður hvaða skýringu
hann hefði á þeim viðsnúningi sem
varð á leiknum. „Það bara smellur
allt skyndilega saman. Menn leggja
hart að sér, æfa mikið og leggja sig
fram. Stundum gengur ekkert upp
en síðan er bara eins og eitthvað ger-
ist og hlutirnir smella saman. Nú
fengum við að sjá báðar útgáfur og
með smáheppni í lokin þá hefðum við
unnið leikinn, það mátti engu muna,“
sagði Róbert. „Það verður mun auð-
veldara að fara í háttinn í kvöld eftir
að hafa náð jafntefli heldur en það
hefði verið ef við hefðum verið rass-
skelltir. Síðan tekur undirbúningur-
inn við vegna leiksins við Slóvena
strax í fyrramálið þegar við vöknum.
En lokakaflinn lýsir því vonandi
hvernig við erum sem hópur, innan
vallar sem utan.“ Róbert fékk ekki
úr miklu að moða á línunni lengst af
leiknum og skoraði t.d. aðeins eitt
mark í fyrri hálfleik sem ekki þykir
mikið á hans mælikvarða, en síðari
hálfleik var hann mun meira í spilinu
eftir að Tékkar drógu sig aðeins afar
á völlinn í vörninni. „Á 45 mínútum
náðum við aldrei að leika eins og við
ætluðum, lentum í því að boltinn
fékk ekki að ganga sem skyldi, létum
brjóta alltof mikið á okkur, en þegar
öllu er á botninn hvolft þá gerðum
við 34 mörk og það er alveg viðun-
andi,“ sagði Róbert og bætti við. „Þó
ég skori ekki tíu mörk í hverjum leik
þá skiptir það ekki máli, svo fremi
sem aðrir skora í staðinn,“ sagði Ró-
bert Gunnarsson.
Róbert Gunnarsson sagði að landsliðið hefði sýnt mikinn „karakter“ gegn Tékkum
Stundum smellur allt
skyndilega saman
„VIÐ misstum sem betur fer
aldrei móðinn, en þetta var
hreint ótrúlegt,“ sagði glottandi
línumaður íslenska landsliðs-
ins,“ Róbert Gunnarsson, þegar
hann gekk af leikvelli eftir hinn
magnaða lokakafla þar sem
hann og samherjarnir tryggðu
sér annað stigið gegn Tékkum,
34:34, í fyrsta leik Íslands á
heimsmeistaramótinu.
Morgunblaðið/RAX
Róbert Gunnarsson, línumaðurinn sterki, sækir að marki Tékka á heimsmeistaramótinu í gær.
(
' "(
./0123045/637
7+"' !!!
!888
! ! +
!9
"
!-
!!
!!9
'
%
9 !
18
':
-
9 -
!;
8< 88
8< 88
7- :
(
!!!-
!9
=!!
':
-
;
1 9
':
-
;
8< 88
8< 88
7- :
1 " 9
':
-
;
8< 88
8< 88
>:!
.720
310-/ 1:;-3
+313
-31-3
(!?%) "(
*+
%
(
""
!==
0
.
0 !9
$ ! ':
3
7-
/2<134=66727
>
"?"
"
@
?/0 #""
"
(
"
; 3 > ? 7- :
@- !
7A!
(!.+
B !
!
#-+
C
!
D"
7-
*
!
.!
#
(+6$.
(=%
#
.
,=
4
!
2E !
(
:F(+ '$
>
G?=!
1
!
H
7- :
!('I !(
+2112/2<13/
=
%A
"
", ! "
B
"
7- :
+ $-
;
< < < ':
-
;
1< 1< 1< ':
-
;
< < < >:!
+ 22
$-
;
J< J< J< ':
-
;
D< D< D< ':
-
;
J< J< J<
,#-
Ívar
Benediktsson
skrifar frá
Túnis