Morgunblaðið - 24.01.2005, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.01.2005, Blaðsíða 9
HM Í HANDKNATTLEIK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2005 B 9  DAGBLAÐIÐ La Presse, sem kemur út í Túnis, sagði frá mótinu síðustu dagana og í gær var grein um leik Íslands og Tékklands og taldi blaðamaðurinn sem greinina skrifaði að það væri stærsti leikur dagsins. Sagði hann Íslendinga sigurstrang- legri og byggði þá skoðun sína á því að Tékkar hefðu ekki verið á eins mörgum stórmótum og Íslendingar hin síðari ár.  ATHYGLISVERT er að þá tvo daga sem Morgunblaðið hefur verið á staðnum hafa myndir af forseta Túnis, hinum 69 ára gamla Zine el Abidine Ben Ali verið á forsíðu blaðsins. Raunar eru myndir af hon- um út um allt í Túnis og oftar en ekki sama myndin sem greinilega er send víða, enda forsetinn í viðhafnarbún- ingi. Í blaðinu í gær voru þrjár af sex forsíðufréttum blaðsins um forset- ann.  EINARI Erni Jónssyni og Birki Ívari Guðmundssyni var vel fagnað þegar þeir komu inn í íþróttasalinn í gær. Leikur Tékka og Íslendinga var fyrsti leikur dagsins og voru þeir fyrstir inn í salinn og fögnuðu áhorf- endur, sem reyndar voru ekki mjög margir, vel.  ÓLAFUR Stefánsson kom hins vegar síðastur úr búningsherberg- inu fyrir leikinn í gær. Hann kom raunar ekki út fyrr en í annarri til- raun ef svo má segja. Allir leikmenn liðsins hituðu létt upp um klukku- stund fyrir leik, en Ólafur kom ekki út á gólfið. Hann gerði það hins veg- ar þegar liðið kom inn í sal þremur stundarfjórðungum fyrir leik – og þá síðastur.  HASSAN Musapha, forseti IHF, alþjóðahandknattleikssambandsins, segir að vel hafi gengið að selja miða á HM að þessu sinni og að 7.000 mið- ar hafi verið seldir fyrirfram á Int- ernetinu. Hann sagði á blaðamanna- fundi í gær að nýtt met hefði verið slegið við sölu á HM til sjónvarps- stöðva því 47 stöðvar hefðu keypt efni frá mótinu.  EFTIRLITSMAÐUR á leiknum í gær var Ahl frá Bandaríkjunum, sá hinn sami og steypti Kjartani Stein- bach af stóli formanns dómaranefnd- ar IHF.  ÍSLENSKA landsliðið sneri öfugt, eða altént öðru vísi en það tékkneska undir þjóðsöngvum landanna. Sjón- varpið var ekki með nægilega langar snúrur til að fara fram fyrir íslensku leikmennina og mynda þá undir þjóðsöngnum.  EINAR Örn Jónsson, hornamaður hjá Wallau-Massenheim, var eini ís- lenski leikmaðurinn sem ekki kom við sögu í leiknum í gær, sat á bekkn- um allan tímann. ÞJÓÐVERJAR lögðu Egypta í D- riðli heimsmeistarakeppninnar í handknattleik en leikurinn var mjög harður og léku bæði lið fast í vörn. Þjóðverjar sigruðu í leiknum, 28:25, en staðan var 24:24 er sjö mínútur voru eftir af leiknum. Þjóðverjar mæta til leiks með mikið breytt lið frá því í und- anförnum stórmótum en hið unga lið Þjóðverja stóð í ströngu er Egyptar komust inní leikinn með því að jafna 19:19, en staðan var 19:15 um tíma í síðari hálfleik. Torsten Jansen var markahæstur í liði Þjóðverja með 6 mörk og Frank von Behren skoraði 4 mörk. Þjóðverjar lögðu Egypta mjög gott og keyrði liðið af fullum krafti alveg þar til flautað var til leiksloka en Tékkar virtust inn- stæðulausir í lokin – þreyttir. Markverðirnir íslensku voru góðir í leiknum, Roland framan af fyrri hálfleik og Birkir Ívar á lokakafl- anum. Ólafur átti fínan leik, Markús Máni var mjög ógnandi og Arnór kom mjög ferskur til leiks, ógnaði vel í sókninni og stóð vörnina vel sem fremsti maður. Guðjón Valur var misjafn, en þakkaði fyrir tæki- færið í lokin því Viggó Sigurðsson þjálfari var búinn að kalla á Loga Geirsson til að setja hann í stöðu Guðjóns Vals. Til þess kom ekki því Guðjón Valur svaraði með stórleik síðustu mínúturnar auk þess sem baráttugleði hans og jákvæðni smit- aði út frá sér. Vonandi læra íslensku leikmenn- irnir af þessum leik. Á móti sem þessu gengur auðvitað ekki til lengdar að leika vel í korter en illa í þrjá stundarfjórðunga. Það dugði til eins stigs í gær en ósennilegt er að önnur lið gefi færi á slíku. Fram- undan er mikilvægur leikur við Slóveníu, leikur sem verður helst að vinna þar sem baráttan í riðlinum stendur á milli Slóvena, Rússa, Tékka og Íslendinga en þrjú lið komast áfram í milliriðla. Til að leggja Slóvena og Rússa verður íslenska vörnin að hefja leik fyrr en í gær. Það var ekki fyrr en fjórða afbrigði hennar var reynt að hlutirnir fóru að ganga. Það var bú- ið að reyna allt og snjallt hjá Viggó að gera stöðugt breytingar þegar illa gekk. Morgunblaðið/RAX Ólafur Stefánsson sýndi geysilegt öryggi þegar hann stóð á vítalínunni fyrir framan markvörð Tékka og stutt var til leiksloka. Ólafur er hér búinn að vippa knettinum yfir markvörð Tékka og skora jöfnunarmarkið, 34:34. r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.