Morgunblaðið - 24.01.2005, Síða 11
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2005 B 11
FRAMTÍÐ Craig Bellamy hjá
enska úrvalsdeildarliðinu er óljós
en hann hefur enn og aftur lent í
útistöðum við knattspyrnustjórann
Graeme Souness. Á föstudaginn
funduðu þeir með stjórnarfor-
manni félagsins eftir að Bellamy
og Souness höfðu rifist á æfingu
félagsins fyrr um daginn.
Welski landsliðsmaðurinn var
ekki í leikmannahóp Newcastle í
gær er liðið tapaði 1:0 gegn Arsen-
al á útivelli. En hann var ekki
meiddur og segir Souness að
ágreiningur hafi komið upp á milli
þeirra tveggja.
„Málið verður leyst hjá félaginu
en Bellamy er ekki sáttur við þá
stöðu sem hann þarf stundum að
leika í liðinu. En hann hefur sýnt
vanþóknun sína með þeim hætti að
félagið varð að grípa inní og var
því ekki með í leiknum gegn Ars-
enal. Á föstudaginn gekk hann af
æfingu og sagðist vera meiddur, á
laugardag var hann frískur á ný
og sagðist geta leikið. Við erum að
reyna að búa til lið sem vinnur vel
saman og ég hef ekki áhuga á
leikmönnum sem leggja sig ekki
fram í þeim verkefnum sem við
förum saman í,“ sagði Souness í
gær.
Bellamy hefur iðulega verið til
vandræða hjá Newcastle og for-
veri Souness, Bobby Robson, sagði
að Bellamy gæti tekið upp á því að
rífast við sjálfan sig.
Allt upp í háaloft á ný
hjá Souness og Bellamy
FÓLK
BARCELONA komst á sigurbraut
að nýju í spænsku 1. deildinni þegar
liðið hafði betur gegn Racing Sant-
ander, 3:1, á heimavelli. Samuel Eto
skoraði fyrsta marki, sitt 15. á leiktíð-
inni, brasilíski snillingurinn Ronald-
inho kom Börsungum í 2:0 með glæsi-
marki og Deco skoraði þriðja markið.
BRASILÍUMAÐURINN Ailton,
framherji Schalke, fór illa með gömlu
félaga sína í Werder Bremen þegar
liðið áttust við í toppslag þýsku 1.
deildarinnar um helgina. Ailton skor-
aði sigurmarkið á 67. mínútu. Með
sigrinum komst Schalke upp að hlið
Bayern í efsta sæti deildarinnar. Lið-
in hafa 37 stig en Werder Bremen,
meistarar síðasta árs, er nánast úr
leik í baráttunni um titilinn en Brim-
arbúar hafa 28 stig.
BAYER Leverkusen telur sig enn
eiga von um að komast í Evrópu-
keppnina á næstu leiktíð en liðið sigr-
aði Hannover 3:0 í gær. Leverkusen
er nú í 6. sæti deildarinnar og á enn
von um að komast í Meistaradeild-
arsæti. Paul Freier skoraði tvívegis í
gær og búlgarski landsliðsmaðurinn
Dimitar Berbatov bætti við einu
marki.
HERTHA Berlín missti af tækifæri
til þess að komast í fjórða sæti deild-
arinnar, en liðið gerði 2:2 jafntefli
gegn Bochum. Þórður Guðjónsson
var ekki í leikmannahóp Bochum sem
er í þriðja neðsta sæti deildarinnar,
fimm stigum á eftir þeim liðum sem
eru ekki í fallsæti. Þórður hefur
ítrekað óskað eftir því að komast frá
Bochum en forsvarsmenn félagsins
hafa ekki tekið ákvörðun um hvort ís-
lenski landsliðsmaðurinn fái að semja
við annað félag áður en leikmanna-
markaðurinn lokar í Evrópu í lok jan-
úar.
INTER gerði enn eitt jafnteflið í
ítölsku 1. deildinni þegar liðið gerði
1:1 jafntefli við Verona á San Síró í
Mílanó. Það stefndi í fyrsta ósigur
Inter manna á leiktíðinni en sjö mín-
útum fyrir leikslok tókst Obafemi
Martins að jafna metin og hann
tryggði þar með Inter 14. jafnteflið í
20 leikjum.
VALENCIA er alls ekki líklegt til
þess að verja titilinn í spænsku knatt-
spyrnunni eftir 3:1 tap gegn Villa-
real. Juan Roman Riquelme skoraði
þrennu fyrir Villareal en þetta var
fyrsta tap Valencia í s.l. 11 leikjum.
Liðið er nú 12 stigum á eftir Barce-
lona sem vann Racing Santander á
laugardag.
PATRICK Vieira leikmaður Ars-
enal segir við Sunday Times að hann
hafi hug á því að enda feril sinn hjá
Arsenal. „Ég er 28 ára og eins og
staðan er í dag þá sé ég ekkert annað
en að ég endi feril minn hjá Arsenal,“
sagði Viera. En s.l. sumar fékk hann
tilboð frá Real Madrid sem hann
íhugaði alvarlega að taka. En hann á
þrjú ár eftir af núgildandi samningi
sínum við Arsenal.
Steve Clarke aðstoðarmaður JoseMourhino knattspyrnustjóra
Chelsea segir hinsvegar að margt
geti farið úrskeiðis á lokakafla móts-
ins og hálfrar aldar bið stuðnings-
manna félagsins sé ekki enn lokið –
meistaratitillinn sé ekki í þeirra hönd-
um enn sem komið er.
Sigurinn gegn Portsmouth var sjö-
undi leikurinn sem Chelsea leikur án
þess að fá á sig mark
„Við eigum að sjálfsögðu skilið að
vera í efsta sæti deildarinnar en við
gerum okkur grein fyrir því að það
eru margar hindranir framundann.
Við munum ekki alltaf ná að skora 3
mörk og halda hreinu eins og í þess-
um leik.
En eitt er víst, að náum við að vinna
11 leiki til viðbótar getum við farið að
fagna meistaratitlinum – á meðan við
gerum það geta önnur lið lítið gert til
þess að saxa á forskotið sem við höf-
um.
Það má segja að úrslitin í leik
Chelsea gegn Portsmouth hafi verið
ráðin að loknum fyrri hálfleik og síð-
ari hálfleikur var aðeins formsatriði.
Jose Mourinho knattspyrnustjóri
liðsins leyfði sér að skipta út öllum
þremur framherjum liðsins og hefur
hann eflaust verið með hugann við
leikinn gegn Manchester United á
miðvikudaginn. Eiður Smári Guð-
johnsen kom inná sem varamaður á
65. mínútu fyrir Didier Drogba.
Hollenski landsliðsmaðurinn Arjen
Robben fór á kostum í leiknum og var
maðurinn á bak við flestar sóknir
Chelsea en hann lagði upp fyrsta
markið og skoraði sjálfur annað mark
liðsins.
„Arjen Robben var rafmagnaður í
fyrri hálfleik. Það eru til fljótir leik-
menn og það eru til tæknilega góðir
leikmenn en það er náðargáfa að hafa
þessa tvo kosti sameinaða í einum
leikmanni. Það er erfitt að stöðva leik-
mann sem getur farið framhjá varn-
armönnum á þessum hraða, en hann
er enn ungur og á enn margt ólært.“
Reuters
Arjen Robben fagnar marki sínu gegn Portsmouth, en hann átti einnig stóran þátt í hinum tveimur
mörkum Chelsea í sigurleiknum á Stamford Bridge, 3:0. Robben er hollenskur landsliðsmaður.
„Robben
er ein-
stakur“
ÞAÐ virðist fátt geta komið í veg
fyrir að Chelsea hampi enska
meistaratitlinum en liðið lagði
Portsmouth að velli á laug-
ardag, 3:0, þar sem Dider
Drogba skoraði tvívegis og Arj-
en Robben eitt mark. Leikur
Chelsea virtist ganga sem vel
smurð vél þar sem vörn liðsins
gaf ekki færi á sér og skæðir
framherjar liðsins sáu um að
skora mörkin þrjú sem skildu á
milli að þessu sinni.
Rafael Benítez knattspyrnustjóriLiverpool trúði vart sínum eig-
in augum er staðan var 2:0 eftir að-
eins 22 mínútur en David Prutton
og Peter Crouch skoruðu mörkin.
Redknapp lék með 5 leikmenn á
miðjunni, tók enga áhættu, og leik-
menn Liverpool höfðu engin svör
gegn spræku liði Southampton. Að-
eins fimm dögum eftir að hafa fallið
úr keppni í ensku bikarkeppninni
gegn Burnley.
„Við þurfum að laga okkur að
þeim aðstæðum sem við búum við.
Kevin Phillips er meiddur og ég
valdi þann kostinn að leika með einn
framherja og Crouch leikur mun
betur en margur heldur. Hann er
vanmetinn leikmaður að mínu mati.
Að auki erum við í vandræðum
með meiðsli, Nigel Quashie samdi
við okkur á sunnudegi, en hann var
meiddur á fimmtudegi vegna áverka
á hné. Það er góður andi í liðinu,
strákurinn minn Jamie sá að mestu
um það sem þurfti að segja í bún-
ingsherberginu. Hann sá síðan um
að dekka Steven Gerrard í leiknum
og ég tel að Gerrard sé einn af
bestu leikmönnum deildarinnar. En
hann sást lítið í þessum leik.“
Benítez viðurkenndi að hann
hefði tekið áhættu með því að velja
Gerrard í liðið sem var lítillega
meiddur og æfði ekkert fyrir leik-
inn. „Það er alltaf erfitt að fá á sig
tvö mörk í upphafi leiks eins og við
gerðum í þessum leik. Þeir lögðust í
vörn eftir það og tíminn vann með
þeim. En ég tel að við getum unnið
næsta leik okkar, það eru 15 leikir
eftir og við eigum enn möguleika á
að þoka okkur upp töfluna. Sem
betur fer er stutt í næsta leik og við
höfum ekki tíma til þess að vera
velta okkur mikið upp úr því sem
gerðist í þessum leik,“ sagði Ben-
ítez.
„STRÁKARNIR börðust fyrir lífi sínu í þessum leik,“ sagði Harry
Redknapp knattspyrnustjóri Southampton eftir að lið hans hafði
lagt Liverpool að velli, 2:0, en þetta var fyrsti sigur liðsins frá því
hann tók við sem knattspyrnustjóri – en Southampton hafði ekki
sigrað í síðustu 10 leikjum í deildinni.
Hrakfarir „Rauða
hersins“ halda áfram