Morgunblaðið - 24.01.2005, Page 12

Morgunblaðið - 24.01.2005, Page 12
ÍÞRÓTTIR 12 B MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ ÍVAR Ingimarsson bjargaði stigi fyrir Reading þegar liðið gerði 1:1 jafntefli á heimavelli gegn Ipswich, toppliðinu í ensku 1. deildinni í knattspyrnu, þegar liðin áttust við á heimavelli Reading. Ívar jafnaði metin með einni af síðustu spyrnum leiksins því nokkrum and- artökum eftir markið var leikurinn flautaður af. Mínútu áður hafði Ips- wich komist yfir svo segja má að mikil dramatík hafi átt sér stað á lokakafla leiksins. Ívar lék að vanda allan leikinn í vörn Reading og fékk mjög góða dóma fyrir frammistöðu sína. Þetta var fjórða mark hans á skömmum tíma fyrir Reading en Ívar var hetja liðsins á dögunum þegar hann jafnaði metin með glæsilegu marki í bikarleik gegn Reading og tryggði þar með liðinu annan leik sem vannst.  Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan og Brynjar Björn Gunnarsson lék að- eins síðustu 25 mínútur leiksins. Ray Lewington, stjóri Watford, lék sama leikinn og hann gerði í bikarleiknum gegn Fulham í síðustu viku. Hann ákvað að spara lykilmenn sína og láta þá safna kröftum fyrir leikinn á móti Liverpool á morgun en það er síðari undanúrslitaleikur liðanna í deildabik- arkeppninni. Watford á ágæta mögu- leika á að komast í úrslit því Liverpool marði 1:0 sigur á Anfield og er langt frá því að vera sannfærandi þessa dag- ana.  Bjarni Guðjónsson lék allan leikinn fyrir Plymouth sem varð að sætta sig við tap á heimavelli gegn Preston.  Gylfi Einarsson sat á vara- mannabekk Leeds United sem lagði Stoke á Britannia, 1:0. Sigurmarkið var sjálfsmark frá varnarmanninum Wayne Thomas. leikinn fyrir Leicester sem vann góðan 2:0 sigur á Gillingham á heimavelli. Jó- hannes átti góðan leik á miðjunni og hrósaði Craig Levein, knattspyrnu- stjóri Leicester, honum sérstaklega.  Heiðar Helguson fékk að hvíla í liði Watford sem gerði 2:2 jafntefli gegn Wigan. Heiðar tók ekki þátt í leiknum Ívar Ingimarsson aftur hetja Reading Ívar Ingimarsson LENNY Wilkens sagði upp störfum sem þjálfari NBA-liðsins New York Knicks á laugardag en Wilkens er 67 ára gamall og einn sigursælasti þjálfari NBA frá upphafi. Hann hóf að þjálfa í deildinni árið 1969 er hann var leikmaður og þjálfari Seattle Supersonics en undir hans stjórn vann liðið NBA-deildina. „Þetta var erfið ákvörðun enda vildi ég taka þátt í því að koma liðinu í hóp þeirra bestu á ný. En þetta þetta er rétti tím- inn fyrir mig að hætta með liðið,“ sagði Wilkens en liðið hefur tapað 9 leikjum af síðustu 10 í deildinni. Herb Williams aðstoð- arþjálfari liðsins mun taka við liðinu út leiktíðina en Isiah Thomas forseti félagsins segir að Wilkens hafi ekki verið rek- inn frá félaginu. En Wilkens hefur þjálfað í 32 ár, sigrað í 1.332 leikjum og tapað 1.155 leikjum sem þjálfari Seattle, Portland, Cleveland, Atlanta, Toronto og New York. Hann vann NBA- titilinn árið 1979 með Supersonics og var þjálfari bandaríska landsliðsins árið 1996 er liðið varð Ólympíumeistari. Hann mun fá um 620 millj. kr. frá New York á næstu tveimur árum en Thomas vonast til þess að Wilkens muni starfa hjá fé- laginu áfram sem ráðgjafi. Wilkens hættur með Knicks Á þessu ári er það í fyrsta sinnsem við spilum í efstu deild og í fyrsta sinn sem við komumst í bikarúrslit. Við vor- um fyrir tveimur árum í annarri deild, þannig það er allt fyrst og nýtt fyrir okkur núna. Fyrir Fjölnis- menn er þetta ótrúlega gaman og góð tilfinning. Ég hef einu sinni áður tekið þátt í bikarúrslitum og það á eftir að vera gaman að fylgja strákunum í gegnum þetta aftur,“ sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari Fjölnis, við Morgunblaðið eftir leikinn. ,,Þetta verður dýr- mæt lífsreynsla fyrir þessa ungu stráka að taka þátt í þessum leik sem er einn stærsti einstaki leik- urinn í körfuboltanum á hverju ári en það er ekkert víst að menn komist þetta langt aftur og því um að gera að njóta þess. Í sjálfu sér er það ákveðinn sigur að komast í úrslitin og menn hér í Hveragerði þekkja þessa tilfinningu að taka þátt í svona leik á sínu fyrsta ári. En fyrst við erum komnir í leikinn, ætlum við líka alla leið,“ sagði Benedikt. Ekki spurning um hæfileika Benedikt sagði leikinn hafa ver- ið nákvæmlega eins og hann átti von á. „Hamar/Selfoss spilaði vel en við vorum seigari í lokin. Þeir eru með góðar skyttur og svo Marvin sem er þannig leikmaður, sem flest lið vilja hafa innan sinna raða. Hamar/Selfoss hefur flest þau vopn sem gott lið þarf að hafa og ég er mjög ánægður með að hafa unnið þá hér í Hveragerði. Þeir eru oft vanmetnir en það bara má ekki, annars lenda menn í vandræðum á móti þeim. Hvað okkur varðar er ég ánægðastur með að vera með svona reynslu- laust lið í höndunum en við klár- uðum samt leikinn á móti eins reynslumiklu liði og Hamarsliðið er. Þetta er oft ekki spurning um hæfileika, heldur að geta klárað leikina. Sovic var mjög góður í fyrri hálfleik hjá okkur og þegar Baily lenti í villuvandræðum hjá heimamönnum, komst Flake meira inn í leikinn og Ivey kláraði hann síðan fyrir okkur. Þá var Flake að taka fráköstin fyrir okkur í vörn- inni og þeir sem komu inn á af bekknum skiluðu sínu hlutverki vel.“ Rosalega svekkjandi Marvin Valdimarsson, einn besti maður Hamars/Selfoss í leiknum, var að vonum vonsvikinn með úr- slitin. „Þetta er rosalega svekkj- andi en við áttum von á jöfnum leik og heimavöllurinn átti að vera okkar styrkur. Ivey og Flake sáu til þess að við kæmumst ekki lengra og þá sérstaklega Ivey sem var mjög góður í leiknum, við náð- um bara ekki að stoppa þá tvo. Þá hittu Fjölnismenn úr mikilvægum og oft á tíðum erfiðum skotum og það skildi liðin að. Við komumst þó þetta langt og það er viss árangur að ná inn í fjögurra liða úrslit. Fjölnir er með hörku lið og það sýnir staðan í deildinni okkur,“ sagði Marvin eftir leikinn. Hamar/Selfoss byrjaði betur í leiknum og það virtist sem nokk- urs stress gætti hjá gestunum. Sovic sá þó til þess að Fjölnir væri yfir í lok fyrsta leikhluta, 25:26, en hann gerði 20 stig á þessum kafla, þar af þrjár þriggja stiga kröfur. Fjölnismenn náðu mest um 10 stiga forskoti í leiknum en Hamar var þó aldrei langt undan og minnkaði muninn óðum niður í 2 til 6 stig. Í þriðja leikhluta fóru villuvandræði að herja á heima- menn, en Baily var þá t.d. kominn með 4 villur þegar 8 mínútur voru eftir af leikhlutanum. Þá komst Flake í gang hjá gestunum og fór að raða niður stigunum. Þegar 6 mínútur voru eftir af fjórða leik- hluta komst Hamar/Selfoss yfir í leiknum, 94:93. Jeb Ivey tók þá til sinna ráða og skaut sínum mönn- um leið inn í úrslitin. Hjá Hamri/Selfossi var Damon Baily stigahæstur með 32 stig, hann tók 7 fráköst og stal bolt- anum 8 sinnum. Marvin Valdi- marsson var með 28 stig, tók 4 frá- köst og var með 3 stoðsendingar. Chris Woods skoraði 19 stig, tók 3 fráköst og var með 5 stoðsend- ingar. Hjá Fjölni var Jeb Ivey með 32 stig, tók 3 fráköst og var með 11 stoðsendingar, Darrel Flake skor- aði 30 stig og tók 12 fráköst. Nem- enja Sovic var með 30 stig og tók 5 fráköst. Fjölnismenn leika í bikarúrslitum í körfuknattleik í fyrsta sinn „Dýrmæt lífsreynsla fyrir þessa ungu stráka“ FJÖLNIR tryggði sér sæti í úr- slitaleik bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í fyrsta sinn í sögu félagsins, er liðið lagði Ham- ar/Selfoss í Hveragerði á laugardaginn, 110:100. Fjölnir hafði undirtökin mestan part leiksins, en heimamenn voru þó aldrei langt undan. Í hálf- leik var staðan 49:52. Jeb Ivey fór á kostum í liði gestanna ásamt Darrel Flake og hjá heimamönnum voru það Mar- vin Valdimarsson og Damon Baily sem fóru fyrir sínum mönnum. Morgunblaðið/Árni Torfason Darrel Flake fór á kostum með Fjölnismönnum þegar þeir tryggðu sér sigur á Hamri/Selfossi. Helgi Valberg skrifar GRINDAVÍK leikur til úrslita í bikarkeppni kvenna í körfuknatt- leik en Suðurnesjaliðið sótti Laugdæli heim á Laugarvatn í undan- úrslitum á laugardag. Leikurinn endaði með stórsigri Grindavíkur sem er í næst efsta sæti 1. deildar en Laugdælir eru í 2. deild. Alls skoruðu Grindvík- ingar 82 stig í leiknum en heimaliðið skoraði 23 stig, 59 stiga munur. Grindavík hefur ekki leikið til úrslita í bikarkeppni kvenna í 11 ár en árið 1994 komst liðið í fyrsta sinn í úrslit. Þar lék Grindavík gegn Keflavík en Keflavík hafði betur, 56:53. Grindavík mætir sigurliðinu úr viðureign Hauka og Keflavíkur sem átti að fara fram í gær. Leiknum var frestað vegna veik- inda leikmanna, en slík frestun hefur ekki átt sér stað frá árinu 1998 er leik KFÍ og Keflavíkur var frestað í úrvalsdeild karla vegna veikinda leikmanna KFÍ. Grindavík með yfir- burði á Laugarvatni Erla Reynis- dóttir, lands- liðskona úr Grindavík. MÓTANEFND KKÍ ákvað að fresta undanúrslitaleik Keflavíkur og Hauka í bikarkeppni KKÍ þar sem margir leikmenn úr liði Ís- landsmeistara Keflavíkur eru veikir af flensunni skæðu sem herjar grimmt á landsmenn þessa dagana. Sex fastamenn úr Keflavíkurlið- inu voru rúmfastir á laugardaginn vegna flensunnar og sóttu forráða- menn Suðurnesjaliðsins um frestun af þeim sökum. Mótanefndin varð við þessari beiðni enda er í reglu- gerð KKÍ um mót að hægt sé að sækja um frestun í tilfellum sem þessum. Nýr leiktími hefur ekki verið ákveðinn en mótanefndin mun væntalega taka ákvörðun um það í dag. Frestað vegna flens- unnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.