Morgunblaðið - 24.01.2005, Qupperneq 13
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2005 B 13
ÍSLANDSMÓTIÐ í knattspyrnu
hefst mánudaginn 16. maí, annan í
hvítasunnu, samkvæmt drögum að
niðurröðun mótsins sem KSÍ hefur
gefið út. Þann dag verða leiknar
fyrstu umferðirnar í efstu deild,
Landsbankadeildinni, 1. deild og
2. deild karla en keppni í efstu
deild kvenna hefst þremur dögum
síðar, fimmtudaginn 19. maí.
Þrír leikir í efstu deild karla
eru settir á klukkan 14 hinn 16.
maí en það eru Valur – Grindavík
að Hlíðarenda, ÍA – Þróttur á
Akranesi og Fram – ÍBV á Laug-
ardalsvelli. Um kvöldið, kl. 19.15,
leika síðan Keflavík og FH í
Keflavík en lokaleikur umferð-
arinnar, milli Fylkis og KR, er
settur á daginn eftir, þriðjudags-
kvöldið 17. maí.
Fjórar umferðir verða leiknar í
efstu deild á fyrstu fimmtán dög-
um Íslandsmótsins en síðan er
gert ellefu daga hlé vegna lands-
leikja við Möltu og Ungverjaland.
Lokaumferðinverður leikin
laugardaginn 17. september en
aðeins tvær umferðir verða leikn-
ar í deildinni á síðustu 18 dögum
Íslandsmótsins, samkvæmt þessari
niðurröðun.
Keppni í 1. deild karla lýkur
föstudaginn 16. september, loka-
umferð 2. deildar karla verður
laugardaginn 10. september og
lokaumferðin í úrvalsdeild kvenna
verður sunnudaginn 4. september.
FÓLK
ÓLAFUR Páll Johnson, knatt-
spyrnumaður úr KR, hefur verið lán-
aður til 1. deildarliðs Fjölnis. Ólafur
Páll er tvítugur miðjumaður sem
hefur leikið einn leik með KR í úr-
valsdeildinni og 14 leiki með yngri
landsliðum Íslands. Hann skoraði
fyrir KR gegn Víkingi í fyrsta leik
Reykjavíkurmótsins í síðustu viku.
EYÞÓR Guðnason, knattspyrnu-
maður úr Njarðvík, er genginn til
liðs við 1. deildarlið HK. Eyþór, sem
er 29 ára sóknarmaður, hefur verið
markahæsti leikmaður Njarðvíkinga
undanfarin þrjú ár og skorað fyrir þá
38 mörk í 60 deildaleikjum.
ÞÓRARINN Kristjánsson lék síð-
ustu 25 mínúturnar fyrir Aberdeen
sem tapaði á heimvelli fyrir Rangers
í skosku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gær.
ÓLAFUR Gottskálksson lék í
marki Torquay sem gerði 2:2 jafn-
tefli við Bradford í ensku 2. deildinni
í knattspyrnu.
VEIGAR Páll Gunnarsson var í
byrjunarliði Stabæk sem gerði 2:2
jafntefli við Ham-Kam í æfingaleik
um helgina. Á heimasíðu Stabæk var
Veigar Páll sagður hafa spilað best
fyrir Stabæk en hann eins og kunn-
ugt reynt að komast í burtu frá fé-
laginu sem féll úr úrvalsdeildinni á
síðustu leiktíð.
ÁRNI Gautur Arason og félagar
hans í Vålerenga höfðu betur í
grannaslagnum gegn Lyn, 2:0, í æf-
ingaleik sem háður var í Valhöll í
Osló á laugardaginn. 3,500 áhorfend-
ur mættu til að sjá slag Oslóarlið-
anna og rann allur ágóði af leiknum
til fórnalamba flóðbylgjanna í Asíu.
KRISTJÁN Uni Óskarsson, Ólafs-
firði, lenti í 2. sæti og Sindri Már
Pálsson, Breiðablik, í 31. sæti á FIS
móti í Ruhpolding í Þýskalandi um
helgina. Guðrún Jóna Arinbjarnar-
dóttir, Víkingi, lenti í 16. sæti á FIS
móti í bruni á móti sem fram fór um
helgina í Hafjell í Noregi.
KRISTJÁN keppti í svigi í gær á
heimsbikarmóti í Kitzbühel í Aust-
urríki. Kristján féll í fyrri ferð sem
og 20 aðrir skíðamenn.
BIKARMÓTARÖÐ SKÍ hófst á
laugardag en keppt var í stórsvigi
karla og kvenna í Bláfjöllum. Að-
stæður voru eins og best verður á
kostið en 57 keppendur voru skráðir
til leiks. Í karlaflokki sigraði Steinn
Sigurðsson, Ármanni, og hóf þar
með titilvörn sína en hann er bik-
armeistari síðasta vetrar. Hrefna
Dagbjartsdóttir, Skíðafélagi Akur-
eyrar, sigraði í kvennaflokki.
FORRÁÐAMENN Phoenix Suns
hafa fengið til liðsins Jim Jackson
frá New Orleans Hornets en Jack-
son hefur þá verið hjá 12 liðum á 13
ára ferli sínum í NBA-deildinni.
Suns lét þrjá unga leikmenn fara frá
sér í skiptum fyrir Jackson, Casey
Jacobsen, 23 ára, Maciej Lampe, 19
ára og Jackson Vroman, 23 ára.
„VIÐ spiluðum frábæran
fyrri hálfleik og menn komu
vel tilbúnir til leiks og
spiluðu ansi skemmtilega á
köflum. Róðurinn þyngdist
hins vegar í síðari hálf-
leiknum og breiddin sem
Njarðvík hefur og kraft-
urinn í þeim fór að segja til
sín, við fórum að gera alltof
mikið af mistökum og höfð-
um ekki bolmagn til að
leysa bæði pressuna og
halda áfram að skora körf-
ur – þannig að við náðum
ekki að klára leikinn af
krafti,“ sagði Jón Arnar
Ingvarsson, þjálfari Breiða-
bliks.
„En í heildina litið er ég
þokkalega ánægður með
leikinn og það er engin
skömm að því að tapa fyrir
Njarðvík, þeir eru með frá-
bært lið,“ bætti Jón við að
lokum.
Greinilegt var á fyrstu mínútun-um að Blikar, sem leika í
fyrstu deild, voru staðráðnir í að
gefa allt sem þeir
áttu í leikinn og
veita Njarðvíking-
um verðugu keppni.
Framan af leik tókst þeim vel upp,
þeir hittu vel fyrir utan og náðu að
gera gestunum lífið leitt. Um miðj-
an annan leikhluta vöknuðu Njarð-
víkingar hins vegar loks til leiks og
náðu ágætum leikkafla, komust níu
stigum yfir en misstu forskotið nið-
ur í fimm áður en flautað var til
leikhlés. Í þriðja leikhluta breyttu
gestirnir um varnartaktík og hófu
að pressa á Blikana um allan völl.
Gaf það svo góða raun að á fyrstu
fimm mínútunum eftir leikhlé skor-
uðu gestirnir tuttugu stig á móti
fjórum Breiðbliks – sem aðeins
gerðu þrettán stig í leikhlutanum.
Eftir það var aðeins formsatriði að
klára leikinn og virtust Blikar orðn-
ir ansi þreyttir þegar komið var í
fjórða leikhluta. Hin mikla breidd í
leikmannahópi Njarðvíkinga kom
sér vel og fengu lykilmenn þeirra
að hvíla mestan hluta síðari hálf-
leiks. Þeir leikmenn sem inn komu
stóðu sig með prýði og juku for-
skotið jafnt og þétt þar til yfir lauk,
í lokin var munurinn kominn í 37
stig en lokastaðan var 76:113.
Brenton Birmingham var stiga-
hæstur Njarðvíkinga með 22 stig en
næstur kom Páll Kristinsson með
17 stig. Egill Jónasson átti einnig
góða spretti í síðari hálfleik og
skemmti áhorfendum með troðslum
af betri gerð og gerði 13 stig.
„Blikarnir voru fyrst og fremst
að berjast vel í fyrri hálfleik og
varnarleikurinn hjá okkur var ekki
nægilega góður. Við bættum hann
til muna í seinni hálfleik og upp-
skárum eftir því. Það er ekkert gef-
ið í þessu og menn verða að spila á
fullu í fjörutíu mínútur, það er það
sem skiptir máli. Vissulega stóðu
Blikar sig vel í fyrri hálfleik en ég
hafði ekki miklar áhyggjur af
þessu, þeir hittu vel fyrir utan og
gerðu vel. Það verður ekki af þeim
tekið. En ég vissi að mínir menn
myndu bæta í áður en yfir lyki,“
sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálf-
ari Njarðvíkur.
Njarðvík mætir Fjölni í úrslita-
leiknum en liðin hafa mæst einu
sinni í vetur, í hörkuleik þar sem
Njarðvík sigraði með einu stigi.
Fjölnismenn hafa einnig verið á
mikilli siglingu að undanförnu og
komið mest á óvart í Intersport-
deildinni. „Það verður verðugt
verkefni. Við hreinlega rændum
sigrinum af þeim í deildinni í erf-
iðum leik þannig að það verður
stórleikur. Við erum vissulega
ósáttir við gengi okkar í deildinni
undanfarið en erum að vinna í okk-
ar málum. Það eru vissir þættir
sem þarf að laga en við höfum fulla
trú á að það horfi til betri vegar
þar.
Það er einnig gott við að mæta
Fjölni að það er ljóst að það verður
ekkert vanmat í gangi. Þetta eru
liðin sem eru í þriðja og fjórða sæti
í deildinni þannig að þetta verður
blóðug barátta,“ sagði Einar Árni í
leikslok.
Íslandsmótið í knatt-
spyrnu hefst 16. maí
Engin
skömm
að tapa
fyrir
Njarðvík
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Páll Kristinsson, leikmaður Njarðvíkinga, brýst í gegnum þétta vörn Blika í Kópavogi í gær.
Njarðvíkingar áttu
ekki í erfiðleikum
Njarðvíkingar unnu öruggan sigur, 113:76, á Breiðablik í undan-
úrslitum bikarkeppni KKÍ og Lýsingar – þegar liðin mættust í Smár-
anum í gærkvöldi. Blikar gáfu úrvalsdeildarliði Njarðvíkur ekkert
eftir framan af og nokkurt jafnræði var með liðunum, staðan í hálf-
leik var 48:53. Gestirnir sýndu svo klærnar loks í þriðja leikhluta og
stungu af með auðveldan sigur og mæta Fjölni í Laugardalshöll í úr-
slitum 13. febrúar næstkomandi.
Andri Karl
skrifar