Morgunblaðið - 01.02.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2005 29
MINNINGAR
jákvæð og notaleg og hún var áhuga-
samur og góður hlustandi. Hún hafði
góða kímnigáfu og átti það til að vera
mjög hnyttin og orðheppin í sam-
ræðum og koma skemmtilega á
óvart.
Anna veiktist alvarlega fyrir um
fjórum árum og síðan aftur fyrir um
þremur árum en fór í erfiða meðferð
sem veitti henni nokkurn bata. Hún
ræddi ekki sjúkdóm sinn að fyrra
bragði og kvartaði aldrei en leitaði
sér upplýsinga og var vakandi og
áhugasöm um stöðu mála. Hún sýndi
mikla hugprýði og æðruleysi, vann
meðan hún gat og sinnti hlutverki
sínu af alúð og ábyrgð.
Anna var góður vinnufélagi og
urðu nánustu samstarfskonur henn-
ar jafnframt góðar vinkonur hennar.
Hennar er nú sárt saknað af sam-
starfsfólki við ótímabæran dauða
hennar sem bar svo brátt að. Um
leið og ég votta Þorvarði og ástvin-
um hennar öllum innilega samúð flyt
ég henni þakkir fyrir traust og góð
störf og góð kynni.
Blessuð sé minning Önnu Garð-
arsdóttur.
Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri
Krabbameinsfélags Íslands.
Stundum er lífið umhleypinga-
samt eins og veðrið á Íslandi, en allt-
af er von á björtum og fallegum dög-
um inn á milli.
Þannig voru veikindi Önnu, það
voru stundir milli stríða, og vonin
var alltaf til staðar, en að lokum varð
hún að játa sig sigraða, eftir erfiða
baráttu síðustu dagana.
En dýrmætar minningar um frá-
bæra samstarfskonu ylja okkur í
vetrardrunganum; upp kemur í hug-
ann garðveisla í Þingholtunum á fal-
legu sumarkvöldi 2003, eitt af þess-
um tindrandi björtu kvöldum þegar
veröldin virðist vammlaus og aðeins
gleði og glens við völd, Anna kom
færandi hendi með yndisleg blóm úr
garðinum sínum og lék á als oddi
með nýja krullaða hárið sitt, þá hafði
meinið hopað um stund; gönguferð í
Grasagarðinum sl. sumar þegar hún
var nýkomin úr velheppnaðri Spán-
arferð með sinni kæru fjölskyldu,
þar sem hún hélt upp á sextugsaf-
mæli sitt, endurnærð og bjartsýn.
Á öðru fögru sumarkvöldi lögðum
við leið okkar í Elliðaárdalinn, með
viðkomu hjá Önnu og Þorvarði og
um leið og við skoðuðum fallega
garðinn þeirra, tíndum við rifsber
með fyrirheitum um gómsæta sultu-
gerð, og síðan var sest við notalegt
kaffispjall í léttum dúr fram eftir
kvöldi.
Í desember sl. áttum við saman
góða stund í jólaveislu hjá Ásu, þar
sem Anna var glæsileg og létt í lund,
með sína góðu nærveru, og í skötu-
veislu starfsmannafélagsins, viku
fyrir Þorláksmessu, tóku þau bæði
þátt, Anna og Þorvarður, og nutu
lostætisins eins og flestir sem á ann-
að borð þola lyktina, enda stemmn-
ingin ávallt góð.
Hún mætti til vinnu þar til nokkr-
um dögum fyrir jól, að þrekið þraut
og hún lagði upp í lokaáfangann.
Anna var hlý og gefandi, og einnig
skapandi kona, því hannyrðir af öllu
tagi léku í höndum hennar og nutu
barnabörnin þess í fallegum flíkum
sem hún hafði nostrað við af alúð og
hugvitssemi.
Nú er skarð fyrir skildi á Stykk-
inu og fremur dauft á „litlu kaffistof-
unni“, þar sem oft hefur verið glatt á
hjalla við misjafnlega gáfulega
speki. Viðkunnanlegi hláturinn
hennar Önnu er hljóðnaður, en óm-
urinn verður ávallt í hugum okkar.
Kveðja.
Samstarfsfólkið á 1. hæð
í Skógarhlíð 8.
,,Þótt ég sé látinn, harmið mig
ekki með tárum. Hugsið ekki um
dauðann með harmi og ótta. Ég er
svo nærri að hvert eitt ykkar tár
snertir mig og kvelur.“
Upphaf þessa ljóðs eftir ókunnan
höfund kom upp í huga okkar við
fregnina af fráfalli Önnu Garðars-
dóttur, samstarfskonu okkar til
margra ára. Það má með sanni segja
að Anna hafi verið andlit Krabba-
meinsfélags Íslands því hún starfaði
lengstum í móttöku félagsins og tók
á móti gestum með auðmýkt og
hlýju sem var henni svo tamt. Anna
barst ekki mikið á í vinnunni en
sinnti sínu starfi af kostgæfni og
leysti þau mál af fagmennsku sem
henni var treyst fyrir. Það var eft-
irtektarvert hvernig það lifnaði yfir
henni þegar börn birtust í Krabba-
meinsfélaginu, augun sindruðu og
hún náði að heilla þau á augabragði
með einlægni sinni og notalegri nær-
veru.
Anna var smekkvís fagurkeri, bjó
fjölskyldu sinni hlýlegt heimili og
ræktaði garðinn sinn, bæði í eigin-
legri og óeiginlegri merkingu.
Hjónaband hennar og Þorvarðar
Örnólfssonar var til fyrirmyndar og
hún hafði hin mjúku gildi í öndvegi.
Hjónin vógu hvort annað svo
skemmtilega upp með margvísleg-
um hætti. Þorvarður er mikill ná-
kvæmnismaður, réttlætissinni fram í
fingurgóma og brautryðjandi í tób-
aksvörnum á Íslandi. Missir hans er
mikill, sem og barna þeirra hjóna.
Því má þó ekki gleyma að missir
Önnu er ennfremur mikill því hún
fær ekki að upplifa uppvöxt barna
sinna og afkomenda þótt hún hefði
óskað þess af öllu hjarta. Vill nokkur
yfirgefa börnin sín í þann mund sem
þau eru að blómstra? Lögmál lífsins
munu þó sjá til þess að Anna geti
fylgst með því sem fram vindur á
okkar tilverustigi.
Við vottum Þorvarði, börnum og
barnabörnum, sem og ættingjum og
vinum dýpstu samúð okkar.
Minningin um einstaka konu mun
lifa.
„En þegar þið hlæið og syngið
með glöðum hug lyftist sál mín upp í
mót til ljóssins. Verið glöð og þakk-
lát fyrir allt sem lífið gefur og ég tek
þátt í gleði ykkar.“ (Ók. höf.)
Þorgrímur Þráinsson,
Viðar Jensson.
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.250 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is
MOSAIK
af legsteinum
gegn staðgreiðslu
í janúar og febrúar
Sendum myndalista
15% afsláttur
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
LILJA KOLBRÚN STEINDÓRSDÓTTIR,
Varmalandi,
Laugarbakka,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 27. janúar.
Útförin fer fram frá Melstaðarkirkju fimmtudag-
inn 3. febrúar kl. 14.
Trausti Björnsson,
Dóra Kristín Traustadóttir,
Björn Líndal Traustason, Guðrún Elín Benónýsdóttir,
Björn Líndal Traustason,
Ásdís Írena Sigurðardóttir, Gestur Benediktsson,
Steinar Trausti Jónsson,
Steinar Hrafn Björnsson,
Benóný Þór Björnsson,
Kolbrún Arna Björnsdóttir.
Ástkær eiginkona mín,
STEINVÖR JÓNSDÓTTIR,
lést á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar aðfaranótt
föstudagsins 28. janúar.
Útför hennar verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju
laugardaginn 5. febrúar klukkan 14:00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Guðmundur Þórðarson.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓNA JÚLÍA VALSTEINSDÓTTIR,
lést á Sólvangi, Hafnarfirði, að morgni laugar-
dagsins 29. janúar.
Útför hennar verður auglýst síðar.
Henning Þorvaldsson, Steinunn Alfreðsdóttir,
Birna Þorvaldsdóttir, Jón Ragnar Jónsson,
Valdís Ólöf Þorvaldsdóttir, Steinar Harðarson,
Sigurbjartur Á. Þorvaldsson, Sveinsína Björg Jónsdóttir,
Guðmundur Páll Þorvaldsson, Helga Aðalbjörg Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samhug, hlýju og styrk við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Lyngholti 22,
Keflavík.
Helga Margrét Guðmundsdóttir, Theodór Magnússon,
Inga Lóa Guðmundsdóttir, Skúli Þ. Skúlason,
Bryndís Björg Guðmundsdóttir, Arnar Þór Sigurjónsson,
Guðrún Birna Guðmundsdóttir, Sveinn Ævarsson,
Guðbjörg Fríða Guðmundsdóttir, Einar M. Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
MUNDU PÁLÍN ENOKSDÓTTUR,
Sogni,
Ölfusi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristján V. Halldórsson, Elísabet Egilsdóttir,
Kári Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
MAGNÚS STEFÁNSSON
frá Kalastöðum,
Dalbraut 55,
Akranesi,
sem lést föstudaginn 28 janúar, verður jarðsung-
inn frá Akraneskirkju föstudaginn 4. febrúar
kl. 11.00 árdegis.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarstofnanir.
Sigríður Jensdóttir,
Ásgerður Ásta Magnúsdóttir, Ólafur Magnússon,
Þorbjörg Unnur Magnúsdóttir, Karl Sigurðsson,
Þorvaldur Ingi Magnússon, Brynja Þorbjörnsdóttir,
Soffía Sóley Magnúsdóttir, Gísli Runólfsson,
Ásta Jenný Magnúsdóttir, Jón Haukur Hauksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi,
tengdasonur og tengdafaðir,
REYNIR J. GUÐMUNDSSON
fyrrverandi flugstjóri,
Laugarnesvegi 87,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
þriðjudaginn 25. janúar.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 3. febrúar kl. 15:00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans,
er bent á líknarstofnanir.
Sjöfn Jóhannesdóttir,
Inga, Íris og Jóhannes Reynisbörn,
Malena og Elísa Þórisdætur,
Inga Jónsdóttir og Marína Lytvyn.
Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, fósturfaðir
og afi,
FINNUR GÍSLASON
yfirvélfræðingur,
varð bráðkvaddur fimmtudaginn 27. janúar.
Útför hans verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðlaug Pétursdóttir og börn hins látna.