Morgunblaðið - 03.04.2005, Síða 4
4 | 3.4.2005
F
lugan var oggulítill fýlupúki um páskana þar sem hátíðin ein-
kenndist fyrst og fremst af fermingum og hefðbundinni helgi-
slepju, að vanda. Fjörugir flugufætur fengu lítið tækifæri til
þess að dansa þar sem rólegt var á djamminu en í sárabætur fékk hún
frábæra flugu í höfuðið; nefnilega að svala forvitni sinni um fólk með
því að rölta á milli kaffihúsa í miðbænum.
Laugardag fyrir páska var veðrið dásamlegt og meira að segja speg-
ilsléttur sjór niðri við höfn, en slíkt er mjög fágætt. Það bar strax vel í
veiði þegar spásserað var upp Laugaveginn og Flugan rakst á Bobby
Fischer við kassann í Máli & menningu og fylgdi skákmeistaranum
skelegga eftir um sinn. Meistarinn var í félagi við japanska unnustu
sína en þau voru greinilega á bæjarrölti, daginn eftir heimkomuna
miklu. Ástarfuglarnir fengu sér sæti á bekk andspænis versluninni Ill-
gresi. Reffilegi ríkisborgarinn var sportlegur útlits, í gallabuxum og
sandölum og að sjálfsögðu með derhúfuna, sem er að verða aðalsmerki
hans. Þar sem þessi nýi Íslendingur, eða Nýslendingur, er þekktur fyrir
að vera á varðbergi gagnvart persónunjósnum, lét forvitna flugan
þessa stuttu eftirför duga og brá sér aftur inn í bókabúð M&M. Sú ein-
staka skemmtun að grúska og gramsa í bókum og tímaritum bregst
aldrei og er sígild eftirmiðdagsafþreying um helgar. Þá er tilheyrandi
að setjast niður á Súfistanum og fá sér gott kaffi eða spennandi smá-
rétti og gæða sér á nýjustu tímaritunum. Gaui litli hafði auðsjáanlega
fengið sömu hugmynd þennan dag en hann sat þar drjúgur með sig,
umvafinn kvenfólki.
Á göngu um Þingholtin rak Flugan augun í Þorstein Guðmunds-
son, leikara og grínista, þar sem hann rólaði sér af einlægri gleði ásamt
nokkrum krökkum. Sumum á sama aldri. Það sást líka til Elísabetar
Jökulsdóttur, rithöfundar, þar sem hún gekk hnarreist eftir Austur-
stræti og Össurar Skarphéðinssonar, alþingismanns, sem stikaði glað-
beittur yfir Austurvöll.
Flugan brá sér meira að segja út yfir landamæri 101 og leit inn í
Kringluna þar sem ótrúlegur mannfjöldi var saman kominn og varð
vinkonan að þola þá niðurlægingu að láta berast með fjöldanum með
kramda vængi. Náði hún þó að ,„spotta“ Jón Sigurðsson, ballöðu-
meistara og Idolstjörnu frá síðasta ári.
Um páskana var töfraleiksýningin Houdini snýr aftur sýnd í Borgar-
leikhúsinu en það var óvenjulegt „show“ sem státaði af brellum og
sjónhverfingum. Mikill fjöldi erlendra og innlendra listamanna tók
þátt í uppsetningunni. Stóri salurinn var pakkfullur af fjölskyldum
sem komu saman til að njóta töfranna. Helgi Björns, leikari og stór-
söngvari, var á vappi í hléinu en hann var einn af aðstandendum sýn-
ingarinnar.
Annan dag páska voru kaffihús borgarinnar aftur stappfull og ekki
einu sinni möguleiki fyrir litla Flugu að tylla sér en þegar hún var
snúðug á leiðinni heim, mætti hún Kára Stefánssyni, forstjóra Ís-
lenskrar erfðagreiningar, sem kom stormandi eftir Póst-
hússtræti, brúnaþungur í brúnni leðurkápu og íþrótta-
skóm.
Til allrar hamingju spilaði Jet Black Joe á Gauknum
um páskana. Þeir tóku meðal annars gamla slagara og
voru svo sannarlega í essinu sínu. Svakalegt fjör var þar
sem aðdáendur hljómsveitarinnar fylltu húsið í miklu
stuði. Davíð Smári, Idolstjarnan ógurlega, var einn
þeirra. Rokkaður og flottur. Sannaðist þá loks gamall
málsháttur úr fjölskyldu Flugunnar: Oft rætist úr pásk-
unum … | flugan@mbl.is
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t
Róbert
Þórhallsson og
Margrét Eir
Hjartardóttir.
Eyjólfur R. Þráinsson og
Berglind Aðalsteinsdóttir.
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t
Gylfi Blöndal og Kjartan Bragi Bjarnason
Kimono-meðlimir.
Flugufýla, Fischer
og fágæt blíða …
… Kári Stefánsson, brúnaþungur og stormandi í brúnni leðurkápu …
FLUGAN
ROKKHÁTÍÐIN Aldrei fór ég
suður var haldin á Ísafirði.
BLÚSHÁTÍÐ í Reykjavík
stóð í fjóra daga.
MARGRÉT
EIR hélt
tónleika á
Pravda-bar.
L
jó
sm
yn
di
r:
K
ri
st
já
n
Haukur Magnússon og Guðmundur
Kristjánsson (Muggi).
L
jó
sm
yn
di
r:
H
al
ld
ór
S
ve
in
bj
ör
ns
so
n
Jón Þórarinn Þor-
valdsson og Gunn-
laug Þorvaldsdóttir.
Björn Emilsson og
Ragna Fossberg.
Axel McNeal,
Hrafnkell Flóki
Einarsson og Einar
Örn Benediktsson.
Lára Rúnarsdóttir,
Guðni Valberg og
Harpa Dögg
Kjartansdóttir.
Tom Hobbs, Maren Ásta Sæmunds-
dóttir og Stefanía Sigurðardóttir.
Vernharður Linnet
og Birgir Þórisson.
Dagný Sif
Einarsdóttir
og Sigvaldi
Torfason.
Laufey Pálsdóttir
með Kolfinnu Ýri
Birgisdóttur, Hulda
Lilja Ármannsdóttir
og Sveina Pálsdóttir.
MENNINGARSMIÐJA POPULUS TREMULA
var opnuð í Gilinu á Akureyri.