Morgunblaðið - 03.04.2005, Page 26

Morgunblaðið - 03.04.2005, Page 26
26 | 3.4.2005 Hefurðu verið í fimleikum frá unga aldri? Mamma setti mig í fimleika þegar ég var fjögurra og hálfs árs vegna þess að ég var alltaf uppi á öllu; á húsgögnum, úti í trjám og uppi á þaki. Henni fannst betra að finna þessu príli einhvern farveg. Þannig að ég var eiginlega byrjaður að æfa fim- leika áður en ég fór í fimleika. Strax þá byrjaði ég í Gerplu og hef verið þar síðan. Fannst vinum þínum þetta ekkert stelpuleg íþrótt? Nei, eiginlega ekki. Auðvitað var stundum einhver stríðni en það var lítið. Mér var a.m.k. al- veg nákvæmlega sama um hana. Er þetta í genunum, eru einhverjir aðrir í fjöl- skyldunni sem eru svona fimir? Pabbi og mamma voru bæði í fimleikum, reyndar ekkert mikið og þau náðu ekki svona langt. Svo á ég 17 ára bróður sem er virkilega góður og tvo enn yngri bræður sem eru líka í fimleikum. Er þetta sumsé fjölskyldusport? Það má kannski segja það. Strákarnir sjá þarna elsta bróðurinn í þessu og vilja gera það sama. Hvað þarf góður fimleikamaður að hafa til brunns að bera? Hann þarf að vera liðugur og duglegur að mæta á æfingar. Það er eiginlega aðal- atriðið. Maður getur orðið virkilega góður ef mað- ur bara heldur áfram og hefur áhuga á þessu. Reyndar hefur þetta kannski verið auðveldara fyr- ir mig en marga aðra því ég er búinn að vera svo lengi í þessu og kominn með góða tækni og und- irstöðu. Hversu oft í viku æfirðu? Akkúrat núna æfi ég tvisvar á dag alla virka daga og einu sinni á laugar- dögum. Á sunnudögum tek ég mér hins vegar frí. Reyndar reyni ég alltaf að æfa mikið því þannig nær maður betri árangri. Hvað gerirðu þegar þú ert ekki á æfingum, er tími til að gera eitthvað annað? Eiginlega ekki, það fer allur dagurinn í að æfa fimleika. Þetta eru í kringum 5–6 tímar daglega og stundum meira. Svo þegar ég kem heim er ég alveg búinn á því en ég reyni samt að kíkja til félaga minna eða gera eitthvað annað. Ertu þá ekki í vinnu eða skóla með þessu? Ekki í augnablikinu. Ég er í Iðnskólanum en ákvað að taka frí þessa önn til að komast út til Lettlands þar sem ég var að æfa með Rúnari Alexanderssyni og lettneska landsliðinu. Ég bætti mig mjög mikið þarna úti. Eftir að ég kom heim hef ég líka verið að æfa mikið og það sést bara strax á árangrinum. Ég stefni samt á að byrja aftur í skólanum í haust. Hvenær er svo næsta mót hjá þér? Það er Evrópumót 5. júní og núna er ég að æfa stíft fyrir það. Áttu kærustu? Nei, ég hef ekki haft neinn tíma fyrir svoleiðis. En fyrir utan fimleikana, áttu þér einhver áhuga- mál? Já, snjóbretti og ég reyni að fara eins oft og ég kemst þegar opið er í Bláfjöllum. Á sumrin hef ég mjög gaman af því að veiða. Áttu þér einhverja fyrirmynd í fimleikum? Já, það er Alexei Nemov sem er eiginlega fyrirmynd allra fimleikamanna. Hann er margfaldur ólympíu- meistari og búinn að vera í rússneska landsliðinu í fjölmörg ár. Hver er svo stóri draumurinn, er það verðlauna- sæti á Ólympíuleikunum eða heimsmeistaratign? Stóri draumurinn er að komast á Ólympíuleikana – það er markmiðið núna í augnablikinu. Sömu- leiðis stefni ég á að komast í einhver úrslit á öðr- um mótum, eins og Evrópumótinu, og það væri frábært ef ég næði því. Er ekkert spennufall hjá þér eftir að hafa sópað að þér verðlaunum eins og þú gerðir á Íslands- meistaramótinu á dögunum? Er ekkert erfitt að byrja að æfa á ný? Jú, aðeins, en það gefur líka aukaorku að ganga svona vel. Þá langar mann að fara aftur á æfingu og bæta sig enn meira. Hvað sérðu svo fyrir þér í framtíðinni? Þegar ég hætti keppni langar mig að fara út í að þjálfa og er aðeins byrjaður á því. Ég er t.d. búinn að taka bróður minn að mér og hjálpa líka aðeins hinum strákunum í hópnum. Svo er ég líka í húsasmíði í Iðnskólanum og á kannski eftir að vinna við hana. Ertu strangur þjálfari? Já, ég held það. Þjálfarar verða að vera bæði skemmtilegir og strangir ef menn eiga að bæta sig eitthvað. | ben@mbl.is Elstur fjögurra fimleikabræðra MAÐUR EINS OG ÉG | VIKTOR KRISTMANNSSON, SEXFALDUR ÍSLANDSMEISTARI L jó sm yn d: K ri st in n In gv ar ss on Þjálfarar verða að vera bæði skemmtilegir og strangir …

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.