Morgunblaðið - 05.04.2005, Side 1

Morgunblaðið - 05.04.2005, Side 1
Vorbækur í vændum Forvitnilegar bækur koma ekki bara út á jólunum | Menning Auðlind Austfirðinga Eru hreindýrin fyrir austan vannýtt auðlind? | Austurland Ramallah. AP. | Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínumanna, ætlar að neyða um 1.000 öryggissveitarmenn á eftirlaun og ná tökum á herskáum hópum, sem ráða nú mörgum bæjum á Vesturbakkanum. Um helgina neyddi Abbas Ismail Jaber til að segja af sér sem yfirmað- ur öryggismála á Vestur- bakkanum og skipaði Nadal Asoli hershöfð- ingja í hans stað. Er haft eftir háttsettum, palest- ínskum embættismanni, að Abbas muni reka burt alla þá, sem gerst hafi sekir um spillingu. Hefur hann skipað sérstaka nefnd til að kanna spillingu innan Palestínustjórnar en hún hefur verið mikil og átt þátt í, að Fatah-hreyfingin hefur víða farið halloka fyrir hinum herskáu Hamas- samtökum. Sker upp herör gegn spillingu Mahmoud Abbas RÍKISSTJÓRNIN ákvað í gær, í samræmi við tillögur framkvæmda- nefndar um einkavæðingu, að selja Símann í einu lagi til hóps kjölfestu- fjárfesta. Talsmenn greiningar- deilda Landsbankans og Íslands- banka segja erfitt að segja til um hversu hátt verð ríkissjóður fái fyr- ir Símann en nefna þó bæði töluna 60 milljarðar. Þau telja ekki að kaup fjárfesta í Símanum muni hafa mikil áhrif á eftirspurn eftir hlutum í öðrum hlutafélögum. Í söluskilyrðunum er m.a. kveðið á um að enginn einn einstakur aðili, beint eða óbeint, eignist stærri hlut en 45% í félaginu. Þessi skilyrði gilda fram til þess tíma sem félagið er skráð á Aðallista Kauphallar Ís- lands, í síðasta lagi fyrir árslok 2007. Þá er stefnt að því að almenn- ingi og öðrum fjárfestum verði boð- ið að kaupa a.m.k. 30% hlutafjár. Jón Sveinsson, formaður fram- kvæmdanefndar um einkavæðingu, sagði á blaðamannafundi í gær að ekki væri æskilegt að félagið yrði á „hendi eins aðila, einnar fjölskyldu, einnar samstæðu“ og að vilji rík- skilyrði líkt og þau sem sett eru fyr- ir sölu Símans hefðu almennt þau áhrif að lækka verðið en lækkunin yrði þó væntanlega ekki mikil. Edda Rós sagði að sér kæmi á óvart hversu stór hlutur yrði seldur kjölfestufjárfestum og að Síminn skyldi ekki strax skráður á Aðal- lista Kauphallarinnar. Þá hefði hún búist við að almenningi yrði boðið að kaupa hlut í Símanum milliliða- laust en með þessu móti væri líklegt að almenningur fengi ekki að njóta hugsanlegs hagnaðar af hagræð- ingu. Þá væri sölutilhögunin að ýmsu leyti ógegnsæ sem gæti vald- ið því að menn fengju á tilfinn- inguna að hægt væri að handvelja fjárfesta og slíkt gæti orðið til þess að lækka verðið. isins stæði til dreifðrar eignaraðild- ar. Hann sagðist ekki geta gefið upp það verðmat sem nefndin mið- aði við. Við mat á tilboðum verður m.a. horft til verðs, reynslu af rekstri fyrirtækja, hugmynda og framtíð- arsýnar og þjónustu í þéttbýli og dreifbýli næstu árin. Stefnt er að því að sölunni verði lokið í júlí. Atli B. Guðmundsson hjá grein- ingu Íslandsbanka taldi líklegt að verðið yrði á bilinu 40–60 milljarð- ar, væntanlega nær efri mörkun- um. Edda Rós Karlsdóttir, for- stöðumaður greiningardeildar Landsbankans, nefndi 60 milljarða með um 15 milljarða skekkjumörk- um. Þórður Pálsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings banka, vildi ekki nefna söluverð. Þórður og Atli sögðu báðir að Síminn verður seldur í einu lagi til eins hóps kjölfestufjárfesta 60 milljarðar gætu fengist fyrir Símann Skilyrði einka- væðingarnefnd- ar talin til þess fallin að lækka söluverðið Morgunblaðið/Árni Torfason Jón Sveinsson (t.h.) kynnti sölutilhögun Símans á blaðamannafundi. Fjær sitja Stefán Jón Friðriksson og Sævar Þór Sigurgeirsson. Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is  Sala Símans/10/26 instrætinu, sem liggur að því. Þar voru um 100.000 manns en búist er við, að allt að tvær milljónir manna verði við útförina á föstudag. Af Péturstorginu voru líkbörurnar bornar inn um aðalhlið Péturskirkjunnar og var þá mikið klappað eins og siðvenja er á Ítalíu. Inni í kirkjunni voru börurnar lagðar á pall fyrir meginaltarinu. „Mig langar til að segja honum hvað mér þykir vænt um hann,“ sagði Lorenzo Cardone, níu ára gamall drengur, sem beið með foreldr- um sínum eftir að komast inn í kirkjuna. „Ég grét mikið er páfi lést en nú þegar ég hef séð andlit hans, þá er sál mín full af gleði. Að sjá allt þetta fólk, það er kirkjan,“ sagði Michaela Wiemann, ung kona frá Þýskalandi. Páfagarði. AP, AFP. | Lík Jóhannesar Páls páfa II var í gær flutt með mikilli viðhöfn úr Post- ulahöllinni í Péturskirkjuna. Þar mun það hvíla fram á föstudag en þá verður páfi lagður til hinstu hvíldar í hvelfingu undir kirkjunni við hlið annarra páfa. Tólf menn báru líkbörurnar út um brons- hliðið og út á Péturstorgið. Við hlið þeim gengu svissnesku varðliðarnir í sínum skrautlegu búningum og lá reykelsisilmurinn yfir öllu. Áð- ur en athöfnin hófst, fór Eduardo Martinez Somalo kardináli, sem nú fer með innri málefni kirkjunnar, með bæn og blessaði lík páfa með vígðu vatni. Voru allir kardinálarnir viðstaddir og einnig fjöldi biskupa og annarra ábyrgð- armanna í kaþólsku kirkjunni. Var þessi athöfn sýnd á risastórum sjón- varpsskjám á Péturstorginu sjálfu og á meg- Reuters Péturstorgið og nágrenni var yfirfullt af fólki er lík Jóhannesar Páls II páfa var borið inn í Péturskirkjuna. Þar mun fólk votta honum virðingu sína en útförin verður á föstudag. Þúsundir votta páfa virðingu  200 leiðtogar/14 RÁÐGERT er að ráðstafa hluta af söluandvirði Landssíma Íslands til uppbyggingar á fjarskipta- þjónustu, ekki síst á landsbyggð- inni. „Í drögum að fjarskiptaáætl- un, sem stýrihópur undir forystu samgönguráðherra hefur unnið að [...] eru sett fram markmið um margvíslega uppbyggingu í þessu tilliti,“ segir í minnisblaði, sem forsætisráðherra og utanrík- isráðherra lögðu fram á rík- isstjórnarfundi í gær. „Meðal helstu markmiða í fjar- skiptaáætlun eru farsamband á helstu stofnvegum og ferða- mannastöðum og áframhaldandi háhraðavæðing landsbyggð- arinnar.“ Talið er að kostnaður við uppbyggingu GSM-kerfisins geti numið tæplega 900 milljónum króna. Fleiri markmið eru tilgreind í drögum að fjarskiptaáætluninni, m.a. aðgengi sjómanna og íbúa strjálbýlla svæða að stafrænu sjónvarpi um gervihnött. Talið er að kostnaður við það geti numið um 150 milljónum króna. „Það er mikilvægt að halda því til haga að sala Símans er for- senda þess að ná þeim mark- miðum sem fram verða sett í fjar- skiptaáætlun,“ sagði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra á Alþingi í gær. 900 milljónir til að byggja upp GSM-kerfi KVENNALISTI hefur verið stofnaður í Svíþjóð og var hann kynntur á blaða- mannafundi í Stokkhólmi í gær. Hafði Gudrun Schyman, fyrrverandi formaður Vinstriflokksins, orð fyrir konunum. Á fundinum í gær var engin ákveðin stefnuskrá kynnt og kom það fram hjá Schyman, að stefnan yrði mótuð smám saman af því fólki, sem gengi til liðs við flokkinn, sem hefur, í svipinn að minnsta kosti, fengið nafnið „Kvenlegt frum- kvæði“. Þá verður heldur ekki um að ræða neinn eiginlegan leiðtoga að því er fram kom í Dagens Nyheter. Auk þess að berjast fyrir hefðbundnum hagsmunamálum kvenna ætlar flokkurinn að höfða til ýmissa minnihlutahópa eins og samkynhneigðs fólks, kynskiptinga og innflytjenda. Þá var á fundinum í gær sér- stakur fulltrúi „útbrunninna kvenna“. Kvennalisti í Svíþjóð ♦♦♦ Íþróttir í dag Bjarki Sigurðsson leggur skóna á hilluna  Ótrúlegur leikur á Nesinu  Snæfell jafnaði metin STOFNAÐ 1913 90 . TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.