Morgunblaðið - 05.04.2005, Síða 2

Morgunblaðið - 05.04.2005, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SÍMINN SELDUR Ríkisstjórnin hefur ákveðið að selja Símann í einu lagi til hóps kjöl- festufjárfesta. Enginn einn ein- stakur aðili, beint eða óbeint, má eignast stærri hlut en 45% í fyr- irtækinu. Alls er talið að um 60 millj- arðar gætu fengist fyrir símann. 85 milljarðar í samgöngur Alls verður varið um 85 millj- örðum króna til samgöngumála á næstu fjórum árum samkvæmt til- lögu samgöngumálaráðherra að samgönguáætlun. Vegafram- kvæmdir verða mun meiri síðari tvö árin en hin fyrri. Votta páfa virðingu Lík Jóhannesar Páls II páfa var flutt í gær úr Postulahöllinni og bor- ið á börum eftir Péturstorginu og inn í Péturskirkjuna. Að minnsta kosti 100.000 manns voru á torginu og nágrenni og ætluðu tugir eða hundruð þúsunda manna að votta páfa sína hinstu virðingu þar sem hann liggur frammi fyrir meginalt- ari kirkjunnar. Útför hans verður gerð á föstudag og þá er búist við, að allt að tvær milljónir manna verði viðstaddar. Abbas gegn spillingu Mahmoud Abbas, leiðtogi Palest- ínumanna, hefur skorið upp herör gegn spillingu og ætlar að neyða allt að 1.000 öryggissveitarmenn til að fara á eftirlaun. Hefur hann rekið yf- irmann öryggissveitanna á Vest- urbakkanum og skipað annan mann í hans stað. Abbas hefur einnig sett á fót sérstaka nefnd til að kanna spill- ingu innan Palestínustjórnar en hún hefur verið mikil í gegnum tíðina og átt sinn þátt í, að Fatah-hreyfingin hans og Yassers heitins Arafats hef- ur víða farið halloka í kosningum fyrir hinum róttæku og herskáu Hamas-samtökum. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Viðhorf 28 Úr verinu 12 Bréf 31 Viðskipti 13 Minningar 32/37 Erlent 14/15 Skák 38 Heima 16 Dagbók 40 Akureyri 17 Víkverji 40 Höfuðborgin 18 Velvakandi 41 Suðurnes 18 Staður og stund 41 Austurland 19 Menning 43/49 Landið 19 Bíó 46/49 Daglegt líf 20 Ljósvakamiðlar 50 Umræðan 21/31 Veður 51 Forystugrein 26 Staksteinar 51 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " #        $         %&' ( )***                          LEITIN að Ricardo Correia Dantas, 28 ára Brasilíumanni sem saknað hefur verið síðan á laugardagsmorgun, bar engan árangur í gær. Leitin hófst klukkan átta í gærmorgun og stóð fram til um klukkan 21. Á annað hundrað manns var við leit austan við Þjórsá og í fjörum í nágrenni Stokkseyrar. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var ekki gert ráð fyrir mikilli leit í dag en að áfram yrði grennslast fyrir um hann. Við leitina í gær var notast við sérþjálfaða leitarhunda og margs konar tækjabúnað björg- unarsveita. Leitarhundar hafa sannanlega kom- ist á slóð mannsins en týnt henni skýringarlaust í nágrenni Stokkseyrar. Hefur leitinni verið beint að Stokkseyri og næsta nágrenni. Lög- reglan segir fjöruna erfiða yfirferðar og sleipa með mörgum pyttum og pollum sem auðvelt er að detta ofan í enda vart stætt vegna hálku á köflum. Þekkt sé að bæði menn og skepnur hafi lent í vandræðum á þessum slóðum. Fjöldi manna úr björgunarsveitum á höf- uðborgarsvæðinu og Suðurlandi hefur tekið þátt í leitinni. Að sögn Soffíu Sigurðardóttur, formanns svæðisstjórnar björgunarsveita Ár- nessýslu, eru leitarmenn enn vongóðir um ár- angur og er leitað allra vísbendinga um Dantas. Ekkert hefur til hans spurst frá því hann lagði upp í stutta gönguferð frá Stokkseyri um tíuleytið á laugardagsmorgun. Dantas er fædd- ur 3. febrúar 1977. Hann er 170 til 172 cm á hæð, grannvaxinn, með svart hár og stutt- klipptur. Morgunblaðið/RAX Á annað hundrað manns leitaði Brasilíumannsins í nágrenni Stokkseyrar í gær. Formlegri leit hefur verið hætt. Leitin að Brasilíumanninum árangurslaus í gær BRASILÍUMAÐURINN Ricardo Correia Dantes hugðist setjast að hér á landi og fá atvinnuleyfi. Hann kom frá bágstöddu heimili í Sao Paulo í Brasilíu og var á unglings- aldri tekinn í fóstur af íslenskri konu þar ytra, Önnu Kjartansdóttur, sem vann lengi að hjálparstarfi í Brasilíu. Dantas var sextán ára þegar Anna tók hann að sér og ólst því upp með sonum hennar. Þegar fjölskyldan flutti til Íslands sigldi Dantas í kjöl- farið. Annar sona Önnu, Birgir Vilhelm Óskarsson, stundar nú nám í jarð- fræði við Háskóla Íslands og segir Dantas hafa verið á leið til kirkju á Selfossi með uppeldismóður sinni á laugardagsmorgun þegar hann hvarf. Langaði Dantas til að ganga fyrsta spölinn frá Stokkseyri í átt að Selfossi og láta Önnu taka sig upp í á leiðinni en hún lagði akandi af stað stuttu á eftir honum. „Hann setti dótið sitt í bílinn og ætlaði aðeins að ganga á undan,“ segir Birgir sem býr með bróður sínum í Reykjavík og ætlaði að hitta móður þeirra og Dantas á Selfossi umræddan laug- ardag. „Þegar mamma fór af stað fann hún Ricardo ekki á veginum og hélt að hann hefði e.t.v. ákveðið að vera áfram á Stokkseyri. Þegar úr kirkjunni kom var hann ekki kominn heim og þá héldum við að hann hefði farið í lengri göngutúr.“ Að sögn Birgis átti Dantas flug heim í júní en umsókn hans um at- vinnuleyfi hefur nýlega verið lögð fram hjá íslenskum yfirvöldum. Hugðist Dantas síðan koma aftur til landsins þegar og ef hann fengi at- vinnuleyfið en tímann fram í júní átti að nota til að kynnast landi og þjóð. „Ricardo hefur alltaf haft áhuga á íþróttum með okkur bræðrum og er mjög hress náungi. Hann hugsar mikið um heilsuna, bæði líkamlega og andlega. Hann er mikill trúmaður og kynntist okkur í gegnum Sjöunda dags aðventista,“ segir Birgir en fjölskyldan tilheyrir þeim. Dantas var léttklæddur þegar hann lagði af stað frá Stokkseyri. Björgunarsveitir óttuðust ofkæl- ingu, ekki síst í ljósi slæmra dæma um erlenda menn frá suðlægum slóðum sem orðið hafa illa úti og of- kælst í lúmsku íslensku veðri. Birgir vill koma á framfæri þökk- um til björgunarsveita og allra þeirra sem stutt hafa fjölskylduna. Vildi setjast að hér og fá atvinnuleyfi AÐ minnsta kosti sex erlendir ferðamenn hafa orðið úti á Íslandi frá 1993. Ísraelinn Ido Keinan varð úti á gönguleiðinni milli Landmannalauga og Hrafntinnuskers í júlí 2004. Hann varð ofkælingu að bráð. Hann var sjötti út- lendingurinn sem verður úti samkvæmt ársskýrslum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Dæmi eru um erlenda ferðamenn sem horfið hafa hérlendis og ekki fundist þrátt fyrir umfangsmikla leit. Þannig hefur aldrei spurst til Ítalans Davides Paites, sem saknað var frá 10. ágúst 2002 í Eyjafirði. Sex orðið úti á 10 árum Brasilíumannsins Ricardo Correia Dantas er enn leitað Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is byggingar virkjana í Skagafirði til orkufreks iðnaðar ef stóriðja væri annars staðar á Norðurlandi og reyndust 54,9% jákvæð, 37,1% and- vígt en 8% höfðu ekki skoðun á mál- inu. Sagði ráðherra þessar niður- stöður verulega athyglisverðar. Að loknum framsöguerindum tjáðu fjölmargir skoðanir sínar. Sauðárkróki | Skagfirðingar eru áhugaminni um álver en aðrir Norðlendingar og nokkuð fleiri eru á móti henni en með. Þetta kemur fram í könnun sem Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra kynnti á kynningarfundi um stór- iðju á Kaffi Krók á Sauðárkróki í gærkvöld. Umræddri könnun var ætlað að kanna vilja Norðlendinga um stað- arval vegna byggingar nýs álvers á Norðurlandi. Eftir að hafa kynnt niðurstöður könnunarinnar sem tók til Norðlendinga austan Trölla- skaga upplýsti ráðherra að á Skagafjarðarsvæðinu væru já- kvæðir eða mjög jákvæðir aðeins 37,2%, andvígir eða mjög andvígir 45,7% en 17,1% tók ekki afstöðu. Þegar spurt var um hver afstaða væri til byggingar álvers annars staðar en í Skagafirði voru jákvæð- ir eða mjög jákvæðir 53,8%, and- vígir eða mjög andvígir 26,8% en 19,4% tóku ekki afstöðu. Einnig var spurt um vilja til 46% Skagfirðinga á móti stóriðju LÖGÐ hefur verið fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um að fjármálaráðherra beiti sér fyrir því að fé verði veitt til kaupa og rekst- urs á færanlegri sjúkrastöð í Pal- estínu. Fyrsti flutningsmaður til- lögunnar er Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokks. Aðrir flutningsmenn eru Guðrún Ögmundsdóttir, Samfylkingu, Jón Bjarnason, Vinstri grænum, Magn- ús Þór Hafsteinsson, Frjálslynda flokknum, og Þuríður Backman, Vinstri grænum. Þingmennirnir voru í hópi Ís- lendinga sem heimsóttu Palestínu og Ísrael í mars sl. á vegum Félags- ins Ísland-Palestína. Ekki kemur fram hvað umrædd sjúkrastöð og rekstur hennar gæti kostað. Keypt verði færanleg sjúkra- stöð í Palestínu LÖGREGLAN í Reykjavík handtók í gærmorgun tvo menn grunaða um innbrot í tölvufyrirtæki EJS á Grensásvegi þaðan sem stolið var þrem skjávörpum. Náðust menn- irnir í grenndinni skömmu eftir inn- brotið. Öryggisvörðum Securitas tókst að koma nægilega snemma á vettvang til að umkringja þjófana stutt frá innbrotsstaðnum. Biðu þeir þar eftir lögreglunni sem kom og handtók mennina. Handteknir fyrir innbrot

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.