Morgunblaðið - 05.04.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.04.2005, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Munið Mastercard ferðaávísunina Tveir fyrir einn til Kanarí 11. apríl frá kr. 19.990 Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri í vor til að dveljast við frábærar aðstæður á Kanarí í 32 nætur á ótrúlegum kjörum. Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Þú nýtur þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann og getur valið um spennandi kynnisferðir. Við bjóðum þér góð íbúðahótel á meðan á dvölinni stendur. Síðustu sætin Verð kr. 19.990 Flugsæti með sköttum. Tveir fyrir einn tilboð. Netverð. Gisting frá kr. 990 m.v. 2 í íbúð á Beach Flor. Netverð á mann pr. nótt. SAMTALS er gert ráð fyrir að tæpum sextíu millj- örðum króna verði varið til vegamála á næstu fjór- um árum, 2005–2008, samkvæmt tillögu til þings- ályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun sem samgönguráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Þingsályktunartillagan tekur til allra þátta sam- göngumála, flugmálaáætlunar, siglinga- og hafna- mála, auk umferðaröryggismála. Samkvæmt þingsályktuninni verður rúmum fjórum milljörðum króna varið árlega til flugmála samkvæmt flugmálaáætlun eða um 17 milljörðum króna á fjögurra ára áætlunartímabili. Rúmum 6,2 milljörðum króna verður varið til siglingamála á tímabilinu til 2008 og nema framlög úr ríkissjóði til þessa málaflokks þar af á tímabilinu 5,3 milljörðum króna. Stofnframlög til hafnamála dragast saman um 400–500 milljónir króna árlega frá og með árinu 2007, en þá verða áhrif nýrra hafnalaga að fullu komin fram. Þá á að verja tæpum 400 milljónum króna árlega næstu fjögur árin til umferðarörygg- ismála. Mun meiri framkvæmdir 2007 og 2008 Þá kemur fram að mun meiri framkvæmdir í vegamálum verða á síðari tveimur árum tímabils- ins 2007 og 2008. Framkvæmdir í vegamálum fyrir tæpa tvo milljarða króna í ár og tvo milljarða á næsta ári hefur verið frestað og koma þau framlög til viðbótar framlögum á árunum 2007 og 2008. Þannig verða útgjöld til vegamála í ár og á næsta ári tæpir 13 milljarðar króna á hvoru ári um sig en um 17 milljarðar hvort árið 2007 og 2008. Framlögum til stofnvega í ár og á næsta ári verður skipt jafnt á milli allra kjördæma sam- kvæmt þeirri kjördæmaskiptingu sem áður gilti, enda hafði ákvörðun þar að lútandi verið tekin samkvæmt samgönguáætlun sem lögð var fram ár- ið 2002 og í reynd búið að deila fjármagni á þeim árum niður á einstök verkefni. Fyrir árin 2007 og 2008 er hins vegar miðað við nýju kjördæmin og lagt er til að fjármagni verði skipt miðað við heild- arlengd stofnvega í viðkomandi kjördæmi, umferð á þeim og lengd stofnvega með malarslitlagi í kjör- dæminu. Hvað einstakar framkvæmdir varðar kemur fram að á höfuðborgarsvæðinu er meðal annars lagt til að hafist verði handa við endurgerð gatna- móta við Nýbýlaveg árið 2008 og að lagt verði í endurbætur á Sæbraut milli Laugarnesvegar og Dalbrautar á árunum 2006 og 2007. Mislæg gatna- mót verði gerð við Arnarnesveg árin 2007 og 2008 og við Bústaðaveg árið 2008. Þá er stefnt að því að koma á samtengdri tölvustýringu á helstu gatna- mótum, en talið sé að með því móti sé hægt að auka afköst gatnanna og draga þar með úr biðtíma og loftmengun. Þriðja akreinin á Hellisheiði Einnig er að finna tillögu um að verja 300 millj- ónum króna til að bæta þriðju akreininni við á Hellisheiði og neðan við Litlu kaffistofuna á árinu 2007. Þá er lagt til að lokið verði endurbyggingu þjóðvegarins um Norðurárdal í Skagafirði á tíma- bilinu og brúargerð en fjórar einbreiðar brýr eru á veginum. Veitt verði fjármagn til verksins öll árin. Það hafi átt að vera hafið, en deilur um vegarstæði hafi seinkað málinu. Einnig er lagt til að vegur um Arnkötludal milli Króksfjarðar og Steingrímsfjarðar verði tekinn inn á vegaáætlun og við það miðað að framkvæmdir geti hafist 2008. Gert er ráð fyrir áframhaldandi vegabótum á sunnanverðu Austurlandi og að til viðbótar verið hafist handa um nýja brú yfir Hornafjarðarfljót árið 2008, en það muni stytta hringveginn um ellefu kílómetra. Hluti af samgönguáætlun er umferðarörygg- isáætlun og er áætlað að verja 385 milljónum króna árlega næstu fjögur árin til þeirra hluta. Tæpum 700 milljónum króna verður varið til fræðslu, áróð- urs og eftirlits vegna hraðaksturs og bílbeltanotk- unar, rúmum 300 milljónum króna til að eyða svo- nefndum svartblettum í umferðinni og rúmum 200 milljónum króna vegna hættunnar samfara því að aka undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þá á að fækka slysum vegna lausagöngu dýra meðfram vegum með gerð girðinga og fara rúmlega 150 milljónir króna til þess verks næstu fjögur árin. Þá er einnig áætlað að gera sérstakt átak í for- vörnum vegna slysa sem erlendir ökumenn eiga hlut í. Þeir áttu þátt í 428 umferðaróhöppum hér á landi árið 2003, en það voru rúmlega 5% allra um- ferðarslysa. Felst verkefnið í því að fræða erlenda ferðamenn um hætturnar í íslensku vegakerfi. Er reiknað með gerð sérstaks fræðsluefnis í þeim til- gangi og verður það sýnt á bílferjum sem hingað koma og á bílaleigum og hótelum vítt og breitt um landið. Þá á einnig að bæta merkingar á vegum þar sem malbik endar. Sextíu milljarðar króna til vegamála næstu fjögur árin Framlögum til stofnvega verði skipt milli kjördæma miðað við heildarlengd þeirra, umferð um þá og lengd stofnvega með malarslitlagi í kjördæminu Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is Morgunblaðið/Kristján Sautján milljörðum króna verður varið til flugmála næstu fjögur árin samkvæmt flugmálaáætlun. RIÐA er komin upp á bænum Gils- árstekk í Breiðdal í Suður- Múlasýslu. Greiningin var staðfest rétt fyrir helgi. Þetta þýðir að skera þarf niður allt fé á bænum, alls rúmlega 100 kindur. Að sögn Sigurðar Sigurðarsonar, dýralæknis á Keldum, er stefnan að uppræta riðuveiki hér á landi. „Í heildina litið hefur gengið vel að fást við þessa veiki,“ segir Sig- urður. „Hún var orðin afar út- breidd hér á landi og hafði fundist í 24 varnarhólfum af 36 um allt land þegar aðgerðir hófust. Við vonum að hægt sé að uppræta veikina en hún hefur ekki komið í meira en tíu ár í helmingi varnarhólfanna þar sem hún var.“ Að sögn Sigurðar smitast riða frá einni kind til annarrar. Þá geturs- mitið geymst lengi í umhverfinu. „Hvernig hún geymist er ekki gott að vera viss um, en við höfum sett fram þá tilgátu að hún geymist í heymaurum, en smit hefur fundist í þeim. Þá smitast riðan með öllu sem hefur óhreinkast af snertingu við smituð dýr.“ Orsök riðu er ekki venjuleg ör- vera, hvorki veira né baktería, heldur aflagað prótín. „Þetta prótín gerir okkur erfiðara fyrir að snemmgreina og fást við veikina. Það er ekkert próf enn til sem not- hæft er á lifandi skepnur. Þess vegna er erfitt að fást við riðuna,“ segir Sigurður Riða á Gilsár- stekk í Breiðdal BALLETT er danslist sem mörg ár tekur að ná valdi yfir. Mikilvægt er að byrja snemma og æfa listina af kappi. Þessar ungu ballerínur úr Ballettskóla Guð- bjargar Björgvins sprönguðu tígulega um stóra svið Borgarleikhússins í gær á lokaæfingu fyrir sýningar sem haldnar verða í dag. Morgunblaðið/Árni Torfason Vandasöm sporin æfð HEILBRIGÐISRÁÐHERRAR Ís- lands og Kína hafa framlengt samn- ingi landanna um vistaskipti heil- brigðisstarfsmanna. Fram til þessa hafa vistaskiptin einkum átt við lækna og hjúkrunarfræðinga en nú tekur hann einnig til þeirra sem hafa með höndum stjórnsýslu og stefnumótun í heilbrigðisþjónust- unni. Jón Kristjánsson heilbrigð- isráðherra er í opinberri heimsókn í Kína og hitti hann í gær starfs- bróður sinn þar og undirrituðu þeir viðbótarsamninginn. Í frétt frá heil- brigðisráðuneytinu segir að Kínverj- ar hafi áhuga á að kynnast stjórnun í íslenskri heilbrigðisþjónustu og beinist áhugi þeirra ekki síst að grunnþjónustu heilsugæslunnar sem þeir telji til fyrirmyndar. Samið um áframhaldandi vistaskipti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.