Morgunblaðið - 05.04.2005, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 05.04.2005, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Stökktu til Benidorm 24. apríl frá kr. 39.990 Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð. Stökktu tilboð. Innifalið flug, skattar, gisting í 24 nætur og íslensk fararstjórn. Verð kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð/stúdíó. Stökktu tilboð. Innifalið flug, skattar, gisting í 24 nætur og íslensk fararstjórn. 24 nætur Tryggðu þér ferð til Benidorm á lægsta verðinu Þökkum ótrúlegar viðtökur. Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina til Benidorm í 24 nætur á hreint ótrúlegu verði. Beint flug. Þú bókar ferðina og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Á Benidorm nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann. Bókaðu strax á www.heimsferdir.is RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI hefur vísað til ríkissaksóknara máli lögreglumanns í Borgar- nesi sem grunaður er um brot á dýraverndunarlögum með meðferð sinni á fíkniefnahundi lögreglunnar í Borgarnesi. Væntanlega kemur einnig til álita hvort hann hafi framið brot í starfi. Að sögn Guðmundar Guð- jónssonar, yfirlögregluþjóns hjá ríkislögreglustjóra, kom í ljós við eftirlit ríkislögreglu- stjóra í byrjun mars að aðbún- aður hundsins var ekki sem skyldi. Guðmundur segist ekki geta tjáð sig nánar um hvern- ig búið var að hundinum en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var hundur- inn hlandbrunninn þegar hann var tekinn af lögreglumann- inum. Góður aðbúnaður á lögreglustöðinni Mánuði áður var lögreglu- maðurinn með hundinn á nám- skeiði og þá var allt í góðu lagi, að sögn Guðmundar. Að- spurður segir hann að ekki hafi verið ástæða til að grípa til frekari aðgerða og hann tekur fram að aðbúnaður fyrir hundinn á lögreglustöðinni í Borgarnesi hafi verið mjög góður. Eftir að hundurinn var tek- inn af lögreglumanninum var hann í fyrstu fluttur á dýra- spítala og segir Guðmundur að það hafi verið gert til að fá sérfræðiálit um ástand hunds- ins og til að tryggja velferð hans. Hann er nú í umsjón yf- irhundaþjálfara ríkislögreglu- stjóra. Guðmundur segir að hundurinn sé við góða heilsu og sé fær til fíkniefnaleitar. Grunur um illa meðferð á fíkniefna- hundi MARSMÁNUÐUR sem leið var, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands, hlýrri en í meðalári bæði sunnan- og norðanlands. Hins vegar var mars ekki eins sólríkur og oft áður sunnanlands á sama tíma og sólskinsstundir voru yfir meðallagi norðanlands. Þannig mældust sólskinsstundir í Reykjavík 89, en það er 22 stundum undir meðallagi, en sólskinsstundir á Akureyri mældust 109 og er það 34 stundum ofan meðallags. Að sögn Trausta Jónssonar, veður- fræðings á Veðurstofunni, fylgjast hlýindi og sólarleysi vanalega að á þessum árstíma sunnanlands. Meðalhiti í Reykjavík í mars var samkvæmt mælingum Veð- urstofunnar 3,7 gráður og er það 3,2 gráðum meira en í með- alári. Á Akureyri var meðalhit- inn 2,5 gráður og er það 3,7 gráðum meira en í meðalári. Úrkoma í Reykjavík mældist 37 mm og er það 45% af með- allagi, en á Akureyri mældist úrkoman 21 mm og er það 88% af meðallagi. Úrkoma undir meðallagi í mars UPPSETNING hljóðkerfis í skóla- stofum, þannig að börnin heyri al- mennilega í kennaranum og að rödd kennarans berist með eðlileg- um hætti er framtíðin að mati Val- dísar Jónsdóttur, heyrnar- og tal- meinafræðings. Hún segir þrjá þætti verða að spila saman í þessu tilliti. Í fyrsta lagi að börnin heyri al- mennilega, að rödd kennarans ber- ist og að skólastofan bjóði upp á þessi skilyrði. „Þarna er pottur brotinn einfaldlega vegna þess að skilyrðin sem eru fyrir hendi eru ekki þau að þau bjóði upp á að slíkt sé hægt með góðu móti,“ seg- ir Valdís og bætir því við að þá eigi hún við stærð kennslustofunn- ar og fjöldi nemenda hafi þar áhrif á. Hún bendir á að ljóst sé að röddin lúti lögmálum hljóðsins þannig að hún dofnar í fjarlægð og kafnar í hávaða. Aðstæður í kennslustofum bjóði ekki upp á annað í dag. Hún segir margar rannsóknir hafa leitt það í ljós að raddir kenn- ara séu í slæmu ásigkomulagi vegna þess að þeir þurfa að spenna þær upp svo í þeim heyr- ist. Valdís segir að töluvert sé um heyrnardeyfu meðal barna og ung- menna sem sé ekki til þess að bæta ástandið. Því sé ljóst að upp- setning hljóðkerfis, sem væri vel úr garði gert hvað hljómburð snertir, myndi ráða bót á þessu vandamáli. Dýrt að missa kennara úr starfi Aðspurð segir hún kostnaðinn við uppsetningu slíks kerfis vera mun minni en þann kostnað sem hlýst af því að kennarar geti ekki mætt til vinnu vegna raddleysis. „Það er dýrt að missa kennara úr starfi,“ segir Valdís og bætir því við að um 20% kennara fara í veik- indaleyfi vegna þessa miðað við 4% í viðmiðunarhóp. „Andvaraleysið er svo mikið hjá okkur vegna þess að við heyrum svo vel í okkur sjálfum,“ segir Val- dís og bætir því við að fólk hugsi lítið um það hvort að aðrir heyri jafnvel í þeim og það gerir sjálft, þar liggi vandamálið. Annað vandamál að mati Valdísar er skortur á fræðslu um röddina sem atvinnutæki. Að auki hafi samspil- ið þarna á milli ekki verið skoðað mikið í samhengi. Hún segist ekki hafa séð neina byggingareglugerð, hvorki hér á landi eða erlendis, sem snúi að þeirri starfsemi sem eigi sér stað í kennslustofum. Hún segir viðmiðin vera of há og bendir á að aðstæður í kennslu- stofum séu afar sérstakar og tillit verði að taka til þess. Hljóðkerfi í skóla- stofum framtíðin Í RÁÐI er að reisa menningarhús á Hólum í Hjaltadal en hlutverk þess yrði að hýsa margs konar list- og menningarviðburði, ráðstefnur og veitingarekstur. Í húsinu yrði einnig viðbótarkennslurými fyrir Hóla- skóla, Háskólann að Hólum. Að verkefninu stendur Guðbrands- stofnun en markmið hennar er m.a. að efla fræðistörf á sviði guðfræði, fornleifafræði, siðfræði, prentlistar og kirkjulistar. „Hugmyndin er að atvinnuveg- irnir – fyrirtækin í landinu – fjár- magni húsið að stórum hluta en fulltrúar ríkisvaldsins hafa einnig lýst jákvæðri afstöðu til mótfram- lags. Við sjáum þetta því fyrir okkur sem eins konar þjóðargjöf í tilefni af 900 ára afmæli biskupsstóls á Hólum á næsta ári,“ segir sr. Jón A. Bald- vinsson, vígslubiskup og formaður Guðbrandsstofnunar, í samtali við Morgunblaðið. Undirbúningur er vel á veg kominn. Gert er ráð fyrir að húsið verði skammt frá skólahúsinu þar sem nú eru fjós og hlaða sem komin eru til ára sinna og ætlunin er að rífa. Segir Jón drauminn að geta byrjað undirbúningsframkvæmdir í lok ársins. Gera má ráð fyrir að kostnaður við bygginguna verði mik- ill enda um stórt hús að ræða. Verið er að kanna nánar hvernig háttað yrði hönnun og tilhögun fram- kvæmdanna. Menningarhúsið yrði fjölnota hús fyrir söfn, sýningar, veitingarekstur, ráðstefnuhald og með aðstöðu fyrir fræðimenn. Áframhaldandi uppbygging „Hér yrði fyrst og fremst lög áhersla á sýningar á þeim fræðasvið- um sem tengjast Guðbrandsstofnun, til dæmis með föstum sýningum úr fornleifafræði, um Hólaprentið og sögu prentlistarinnar, hér yrðu sýndir og varðveittir kirkjulegir munir sem tengjast staðnum og hér yrði aðstaða fyrir sögusafn íslenska hestsins. Húsið myndi einnig þjóna betur því mikla tónleikahaldi sem þegar er á staðnum,“ segir Jón og telur tilkomu menningarhússins vera í beinu framhaldi af þeirri upp- byggingu sem staðið hefur yfir á Hólum síðustu árin og verða muni áfram. „Þarna fengist aðstaða til að sinna fjölbreyttum þáttum menning- ar og lista, það nýtist skólanum sem kennsluhús sem orðið er brýnt að auka við og veitingastaðurinn myndi taka yfir mötuneyti skólans auk þess sem hann sinnti ferðamönnum, sem hingað koma í vaxandi mæli en þeir voru kringum 20 þúsund á síðasta ári.“ Þá segir Jón unnið að und- irbúningnum í góðu samkomulagi við þjóðkirkjuna. „Ég tel sjálfsagt að þjóðkirkjan muni styðja málið eftir því sem henni er unnt.“ Verður lyftistöng Rekstur hússins er ekki áhyggju- efni Hólamanna enda ætlunin að margvísleg starfsemi þess og nýting muni gefa af sér nægar tekjur. Telur vígslubiskup engan vafa leika á því að menningarhúsið yrði staðnum mikil lyftistöng. „Hólar eru sögu- staður en við lifum ekki á sögunni heldur verðum að hugsa til fram- tíðar og þess vegna heldur áfram sú mikla uppbygging sem hófst árið 1980 með endurreisn skólans, sem er nú orðinn að vísindastofnun, og þeim miklu endurbótum sem gerðar voru á dómkirkjunni á níunda ára- tugnum og nú síðast með byggingu Auðunarstofu 2002,“ segir formaður Guðbrandsstofnunar að lokum. Bjartsýnir á rekstur menning- arhúss á Hólum í Hjaltadal Morgunblaðið/Kristinn Í Menningarhúsi yrði m.a. aðstaða fyrir sýningarhald á sviði fornleifafræði, guðfræði og fleiri fræða sem tengjast Hólum sérstaklega. Séra Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum, er formaður Guðbrandsstofnunar. Eftir Jóhannes Tómasson joto@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.