Morgunblaðið - 05.04.2005, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 7
FRÉTTIR
skiptir miklu máli að kynna börn snemma fyr-
ir norræna samstarfinu og með því að hjálpa
þeim að átta sig á því að Ísland er hluti af
stærra samfélagi, þ.e. norræna samfélaginu.
Auk þess skiptir líka miklu máli fyrir
menningarneytendur framtíðarinnar að
kynna börn fyrir menningu mjög snemma,
hvort heldur sem er leiklist, myndlist eða tón-
list.“
LEIKSKÓLABÖRNUM var í gær boðið til
sérstakrar leikbrúðuveislu í Norræna húsinu
þar sem slegið var upp nokkurs konar H.C.
Andersen-hátíð. Sýndi Leikbrúðuland þar
brúðusýningarnar Pápi veit hvað hann syng-
ur, sem byggist á samnefndu ævintýri þar
sem fylgst er með lífsglöðum en fátækum
hjónum, og Fjöðrin sem varð að fimm hæn-
um, sem byggist á sögunni Það er alveg
áreiðanlegt þar sem fjallað er um það hvernig
fiskisagan flýgur og magnast í meðförum
allra sem heyra hana. Brúðunum stjórnuðu
þær Helga Steffensen og Helga E. Jóns-
dóttir, en leikstjórn var í höndum Arnar
Árnasonar.
Verður sýningum fram haldið í dag og á
morgun og má gera ráð fyrir að samtals gef-
ist fimm til sex hundruð börnum á aldrinum
3–6 ára tækifæri á að sjá sýningarnar í Nor-
ræna húsinu.
Að sögn Hönnu Styrmisdóttur, upplýsinga-
og verkefnafulltrúa Norræna hússins, eru
leiksýningarnar hluti af verkefni á vegum
Norðurlandaráðs sem nefnist Norðurlöndin í
fókus þar sem áhersla er lögð á að vekja fólk
til vitundar og viðhalda áhuga á norrænni
menningu og samstarfi Norðurlandanna. „Það
Vakin til vitundar um norræna menningu
Morgunblaðið/Þorkell
Greinilegt var að áhorfendurnir ungu voru hugfangnir af ævintýrum danska rithöfundarins H.C. Andersens en leikskólabörnum í Reykjavík var boðið til leikbrúðuveislu í Norræna húsinu. Með-
al atriða hjá leikbrúðunum var ævintýrið Pápi veit hvað hann syngur. Leikbrúðuveislunni í Norræna húsinu verður fram haldið í dag og á morgun.