Morgunblaðið - 05.04.2005, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Við verðum að finna okkur eitthvert merkilegra hobbí en þetta, Snati minn.
Ekkert lát virðistvera á vinsældumgolfíþróttarinnar
ef marka má fjölda golf-
iðkenda og fjölda nýrra
golfvalla og golfbrauta
sem stöðugt bætast við
þær sem fyrir eru.
Golf eru önnur vinsæl-
asta íþrótt landsins á eftir
knattspyrnu m.t.t.
skráðra félaga og sam-
kvæmt lífsstílskönnunum
Gallup stunda yfir 30.000
Íslendingar golf að stað-
aldri; þ.e. fara 5 sinnum
eða oftar í golf á sumrin.
Skráðir klúbbfélagar aðilarfélaga
Golfsambands Íslands eru rétt
tæplega 13 þúsund. Hjá sumum
golfklúbbum, einkum á höfuð-
borgarsvæðinu, eru langir biðlist-
ar yfir þá sem óska eftir inn-
göngu.
Forsvarsmenn golfklúbba eru á
einu máli um að golfklúbbar á höf-
uðborgarsvæðinu hafi ekki haldið
í við þróunina samhliða auknum
vinsældum íþróttarinnar og bætt
við brautum, og benda á að tölu-
verður hópur fólks leggur leið
sína í nágrannasveitarfélögin til
að spila golf, jafnvel austur fyrir
fjall, þar sem mikil gróska virðist
vera í uppbyggingu golfvalla. Á
höfuðborgarsvæðinu eru þó einn-
ig ýmis áform uppi um uppbygg-
ingu og stækkanir á golfvöllum. Í
kringum 60 golfklúbbar eru í
landinu og sami fjöldi golfvalla.
Í fyrra voru klúbbarnir 57, en
þeim hefur fjölgað umtalsvert síð-
ustu ár.
300 á biðlista hjá GR
Að sögn Margeirs Vilhjálms-
sonar, framkvæmdastjóra Golf-
klúbbs Reykjavíkur, er stefnt að
því að stækka Korpúlfsstaðavöll
úr 18 holum í 27 en að auki er þar
fyrir lítill 9 holu golfvöllur. Stefnt
er að því að endanleg hönnun á
viðbót vallarins liggi fyrir undir
lok þessa mánaðar en áformað er
að taka völlinn í notkun á 75 ára
afmæli GR árið 2009. „Þetta gefur
okkur þá möguleika að þegar
mesti annatíminn er í íslensku
golfi, milli fjögur og hálfsjö, þá
gætum við verið með þrjá teiga
opna á þeim tíma, og gætum sent
út á völlinn þrefalt fleira fólk en
við gerum í dag,“ segir Margeir.
Þess má geta að um 2.300 klúbb-
félagar eru í GR og segir Margeir
stefnt að því að fjölga þeim í 3.000
þegar nýi völlurinn verður tekinn
í notkun. Um 300 manns eru á bið-
lista eftir inngöngu í GR í dag.
Hjá Golfklúbbnum Kili í Mos-
fellsbæ er vinna hafin við stækkun
vallarins úr 9 í 18 holur. Völlurinn
mun liggja að ánni Korpu og skilja
á milli golfiðkenda hjá Kili og
Golfklúbbi Reykjavíkur hinum
megin árinnar. Að sögn Steins G.
Ólafssonar, vallarstjóra hjá Kili,
er vinna hafin við nýju flatirnar og
er stefnt að því að taka 5 af 9 hol-
um í notkun haustið 2006 en að
nýr 18 holu völlur verði fullgerður
2008. Rúmlega 500 klúbbfélagar
eru í Kili og segir Haukur Haf-
steinsson, framkvæmdastjóri
klúbbsins, að stefnt sé að því að
taka inn fleiri nýja klúbbfélaga og
auka umsvifin þegar nýi völlurinn
verður tilbúinn.
Þá eru uppi hugmyndir um að
gera nýjan 18 holu golfvöll í landi
Oddfellow-reglunnar skammt frá
Heiðmörk í Garðabæ. Garðar Ey-
land, framkvæmdastjóri Golf-
klúbbsins Odds, segir vinnu við
nýjan golfvöll á frumstigi. Búið sé
að vinna hugmyndir sem séu til
kynningar og meðferðar hjá
skipulagsyfirvöldum í Garðabæ.
Hjá Golfklúbbnum Keili í Hafn-
arfirði stendur til að ráðast í
breytingar á æfingasvæði klúbbs-
ins innan- og utanhúss. Ólafur
Ágústsson vallarstjóri segir stefnt
að því að hefja framkvæmdir í vor
og að þeim verði lokið næsta vor.
Þá er einnig stefnt að því að
ráðast í breytingar á eldri hluta
vallarins á næstu tveimur árum.
18 holu völlur í Þorlákshöfn
Töluvert er um það sem fyrr
sagði að borgarbúar aki austur yf-
ir Hellisheiði til að iðka golf, eða í
önnur sveitarfélög. Þar hafa for-
svarsmenn ýmissa golfklúbba
unnið að uppbyggingu og stækk-
un golfvalla, t.d. hjá Golfklúbbn-
um á Öndverðarnesi í Grímsnesi.
Þar er áformað að stækka golf-
völlinn úr 9 í 18 holur á næstu
tveimur árum og hann verði
fullbúinn 2007. Örn Karlsson, for-
maður klúbbsins, segir töluverða
ásókn í klúbbinn frá Reykjavík,
auk þess sem töluverður áhugi sé
frá aðilum sem hafi hug á að festa
sér sumarhúsalóðir sem búið er að
skipuleggja í næsta nágrenni.
Golfvöllur Golfklúbbsins Kiðja-
bergi var stækkaður úr 9 í 18 hol-
ur og opnaður síðasta haust og
telja sumir að hann sé raunar einn
af betri golfvöllum landsins. Þá er
stefnt að því að opna nýjan 18 holu
golfvöll hjá Golfklúbbi Þorláks-
hafnar 1. maí nk. Friðrik Guð-
mundsson, formaður klúbbsins,
segir að eftir sé að ganga frá
merkingum og öðru slíku. Þess
má geta að fyrir röskum áratug
var ekkert nema svört auðn þar
sem völlurinn er nú en síðan þá
hefur Landgræðsla ríkisins gert
tilraunir með uppgræðslu, með
fyrrnefndum árangri.
Stór hluti félaga í Golfklúbbi
Þorlákshafnar er frá Reykjavík,
en þeir eru um 170.
Fréttaskýring | Nýir golfvellir og stærri
Golfið verður
sífellt vinsælla
Sífellt fleiri golfarar leita út fyrir
höfuðborgarsvæðið til að iðka golf
Golfið þykir góð hreyfing.
200.000 boltar voru
slegnir yfir páskana
Aðsókn í Bása, nýtt æf-
ingasvæði Golfklúbbs Reykjavík-
ur sem opið er árið um kring og
tekið var í notkun sl. sumar, hef-
ur farið fram úr björtustu von-
um. Að sögn framkvæmdastjóra
GR var 4 milljónasti boltinn seld-
ur þar á dögunum og yfir
páskana voru 200.000 boltar
slegnir á 5 dögum. „Það stoppar
ekkert kylfinga svo fremi sem
það er gott veður,“ segir Mar-
geir Vilhjálmsson.
Kristján Geir Pétursson
kristjan@mbl.is
Mývatnssveit | Þeir voru ánægðir og
afslappaðir bræðurnir Simon og
Mathew Clairbovt frá Frakklandi
þar sem þeir sleiktu sólskinið í veg-
kantinum í Bjarnarflagi. Þeir voru
að leita eftir fari að Dettifossi, en
þangað er ekki greiðfært þessa dag-
ana og lítið um ferðir. Vegslóðin
undir fönn eða krapi og ekki fyrir
aðra en staðkunnuga að komast út
eftir á sérbúnum bílum. Flestir út-
lendingar sem hingað koma vilji sjá
fossinn, en að komast þangað er
aldrei auðvelt og síst á vorin. Vega-
gerðin hefur hannað veg að fossinum
af þjóðvegi vestan Jökulsár. Hvenær
í þá vegagerð verður ráðist er þó
óvíst ennþá en þörfin er mikil.
Ferðaþjónustuaðilar í héraðinu vilja
nefna það Demantshring, leiðina
Mývatn, Dettifoss, Ásbyrgi, Tjör-
nes, Húsavík. Þeir kalla því skilj-
anlega mjög eftir úrbótum á Detti-
fossleið.
Erfitt að
komast að
Dettifossi
Morgunblaðið/Birkir Fanndal