Morgunblaðið - 05.04.2005, Side 10

Morgunblaðið - 05.04.2005, Side 10
Systkinin Halldór og Katrín á Alþingi Ekki er algengt að systkini sitji samtímis á Alþingi. Það gerðist hins vegar í síðustu viku þegar Katrín Ásgrímsdóttir, annar varaþingmaður Fram- sóknarflokksins í norðausturkjördæmi, settist inn á þing í fjarveru Jóns Kristjánssonar, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Hún er systir Hall- dórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra og þingmanns Reykjavíkurkjör- dæmis norður. Ljósmyndari Morgunblaðsins smellti þessari mynd af þeim í anddyri þinghússins í gær. HALLDÓR Ásgrímsson forsætis- ráðherra sagði á Alþingi í gær, er hann gerði grein fyrir söluferli Sím- ans, að allar líkur væru á því að mjög margir myndu bjóða í hlut ríkisins í Símanum. Geir H. Haarde fjármálaráðherra tók í sama streng. „Það hefur komið í ljós,“ sagði fjár- málaráðherra, „að það er mikill áhugi á stórum hlut í þessu fyr- irtæki; jafnt innanlands sem erlend- is.“ Halldór skýrði frá því að ráð- herranefnd um einkavæðingu hefði tekið ákvörðun um fyrirkomulag sölu Símans á grundvelli tillagna framkvæmdanefndar um einkavæð- ingu. Ríkisstjórnin hefði samþykkt það söluferli fyrir sitt leyti. Hann sagðist vænta þess að málið fengi farsælan endi á næstu mánuðum; söluferlinu myndi vonandi ljúka í júlí. Stjórnarandstæðingar gagn- rýndu, í umræðunum um Símasöl- una, m.a. þau áform ríkisstjórnar- innar að selja grunnnetið með Símanum. Þá sögðu þeir m.a. að allt þetta mál bæri mikinn blæ af „hrossakaupum og baktjalda- makki“, svo vitnað sé orðrétt í Öss- ur Skarphéðinsson, formann Sam- fylkingarinnar. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagðist velta því fyrir sér hvort verið væri að sérhanna sölu- ferlið með það í huga að tryggja ákveðnum hópum hlut ríkisins í Símanum og Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstrihreyfingarinn- ar-græns framboðs, sagði að hér væri á ferðinni „áframhaldandi hrossakaupaforingjalýðræði í anda stjórnarflokkanna“. Nú sé lag til að selja Halldór gerði í upphafi umræð- unnar grein fyrir söluferlinu, en skýrt er frá því á öðrum stað í blaðinu í dag. Hann ítrekaði þá af- stöðu ríkisstjórnarinnar að selja bæri Símann með grunnnetinu og greindi m.a. frá því að fyrirhugað væri að ráðstafa hluta af söluand- virði fyrirtækisins til uppbyggingar á fjarskiptaþjónustu, ekki síst á landsbyggðinni. Forsætisráðherra vísaði á bug öllum vangaveltum um að söluferlið væri hannað með það í huga að tryggja einhverjum sérstökum að- ilum eignarhlut ríkisins í Símanum. „Sem betur fer er verulegur áhugi fyrir sölunni á Símanum og allar líkur eru á því að mjög margir muni bjóða í Símann,“ sagði hann. Geir H. Haarde rifjaði upp í sinni ræðu að þingið hefði heimilað sölu Símans fyrir nokkrum árum. Hann sagði að því miður hefðu áform um sölu fyrirtækisins farið út um þúfur fyrir rúmlega þremur árum, m.a. vegna þess að þá hefðu markaðs- aðstæður ekki verið hagfelldar. „Nú er hins vegar lag til þess að selja þessa miklu eign á hagstæðu verði og leysa þar með úr læðingi þá gríð- arlegu fjármuni sem almenningur í landinu á bundna í fyrirtækinu [...].“ Geir sagði að nú sæi loks fyrir endann á þessu máli. „Ég fagna því fyrir hönd míns flokks, og sem fjár- málaráðherra, hversu langt þetta mál er komið. Ég vona það innilega að það ferli, sem nú er fram undan, gangi vel og farsællega fyrir sig og að þeim markmiðum, sem við höfum sett okkur, verði náð, þegar upp er staðið. Ég hef góða vissu fyrir því, að svo muni fara.“ Össur Skarphéðinsson sagði ýms- um spurningum ósvarað í þessu máli. „Af hverju þurfa það endilega að vera þrír aðilar sem verða að minnsta kosti að kaupa Símann?“ spurði hann og svaraði um hæl: „Er svarið kannski það, að með þessu er verið að hámarka líkurnar á því að ýmis vildarfyrirtæki, sem standa í skjóli ríkisstjórnarinnar, geti kom- ist að kjötkötlunum?“ Össur sagði enn fremur að þingið hefði ekki lengur neina aðkomu að málinu. Það væri því algjör frum- krafa, í nafni lýðræðis og þeirra sem ættu sæti í þinginu, að málið yrði kynnt í fagnefndum þingsins áður en lokaákvörðunin yrði tekin. Engin samkeppni tryggð Steingrímur J. Sigfússon sagði að með sölu Símans væri ríkisstjórnin að búa til fákeppni, væntanlega tví- keppni, á fjarskiptamarkaðnum; einkafyrirtæki kæmu til með að skipta á milli sín markaði, sem lyti að verulegu leyti lögmálum nátt- úrulegrar einokunar. Engin eiginleg samkeppni yrði á slíkum markaði. Síðar í ræðu sinni gerði Steingrím- ur forsíðufrétt Morgunblaðsins um helgina að umtalsefni, en þar stóð m.a. að formenn stjórnarflokkanna hefðu handsalað samkomulag sín í milli, um það með hvaða hætti, yrði staðið að sölu Símans. Steingrímur sagði: „Hér er á ferðinni áframhald- andi hrossakaupaforingjalýðræði í anda stjórnarflokkanna. Þetta er írak-aðferðin; Halldór og Davíð [Oddsson] hafa náð samkomulagi um einhverja enn nýja klæðskera- saumaða aðferð, sem væntanlega á að tryggja það, að vel þóknanlegir aðilar, fái Símann [...].“ Halldór sagði hins vegar undir lok umræðunnar að engin ákvörðun hefði verið tekin í þessum málum með „einhverju handsali“. Hann sagði að þingmenn ættu ekki alltaf að taka lausafregnum eða kjafta- sögum úti í bæ, sem heilögum sann- leika. Að endingu má geta sjónarmiða Guðjóns A. Kristjánssonar í um- ræðunum í gær. Hann velti því m.a. fyrir sér hvernig hægt yrði að tryggja samkeppni á fjarskipta- markaðnum, þegar dreifikerfið væri í eigu eins aðila. Hann sagðist einn- ig velta því fyrir sér hvernig hægt yrði að koma í veg fyrir samráð fyr- irtækja á fjarskiptamarkaðnum. „Það er mjög hæpið að það verði tryggt á þessum markaði, eins og hann er uppsettur í þessu söluferli, sem hér er gert ráð fyrir,“ sagði hann. Halldór Ásgrímsson gerði grein fyrir söluferli Símans á Alþingi í gær „Allar líkur eru á því að mjög margir muni bjóða í Símann“ Eftir Örnu Schram arna@mbl.is Morgunblaðið/Árni Torfason 10 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR JÓHANNES Þórður Jónsson, fyrrverandi kaupfélagsstjóri frá Suðureyri við Súg- andafjörð, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 1. apríl, 89 ára að aldri. Jóhannes fæddist á Suðureyri 20. janúar 1916. Foreldrar hans voru Jón Einarsson, útgerðarmaður og síð- ar íshússtjóri á Suður- eyri, og Kristín Krist- jánsdóttir. Jóhannes brautskráðist frá Sam- vinnuskólanum árið 1940 og var kaupfélagsstjóri Kaupfélags Súg- firðinga frá 1940–1965 og var einn af stofnendum útgerðarfélagsins Hrings, en tilgangur þess var fisk- veiðar og jafnframt var aflinn verk- aður til fullnustu fyrir erlendan og innlendan markað. Var hann virkur í félagslífi staðarins og hagyrðingur góður. Jóhannes fluttist til Reykja- víkur árið 1965 með fjölskyldu sína og hóf störf sem innheimtustjóri hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga. Þar starfaði hann til ársins 1965 er hann gerðist deildarstjóri slysa- og ábyrgðadeildar Sam- ábyrgðar Íslands á fiskiskipum og starfaði þar til ársins 1986. Meðal starfa Jóhann- esar að félagsmálum má nefna þátttöku hans í starfi Oddfellowhreyf- ingarinnar. Hann var í oddfellowstúkunni Gesti á Ísafirði þar til hann flutti til Reykja- víkur og starfaði þar í oddfellowstúk- unni Þorkeli Mána. Eiginkona hans var Svava Valdi- marsdóttir, sem lést 1990. Þau eign- uðust fimm börn, þau eru: Haraldur, en hann lést í umferðarslysi í Þýska- landi tvítugur að aldri, Aðalheiður, starfsmaður á Morgunblaðinu, Þórð- ur, kennari í Kvennaskólanum, Guð- rún Kristín, starfsmaður Íslands- banka, og María Þrúður, starfsmaður IBM í Bandaríkjunum. Andlát JÓHANNES Þ. JÓNSSON Ræða um málefni minnissjúkra FRÆÐSLUFUNDUR verður haldinn á morgun á vegum Lionshreyfingarinnar um mál- efni Alzheimersjúklinga og ann- arra sem haldnir eru minnis- sýki. Þar munu sérfræðingar á heilbrigðissviði fjalla um ýmsar hliðar heilabilunar, sjúkdóma- flokks sem einkennist af því að minnið svíkur umfram það sem eðlilegt getur talist og fer að há mönnum, segir m.a. í frétt frá fundarboðendum. Guðmundur Bjarnason, sem er heilbrigðisfulltrúi fjölum- dæmis Lions-hreyfingarinnar, setur fundinn en framsögu hafa Jón Snædal öldrunarlæknir, Hanna Lára Steinsson fé- lagsráðgjafi og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir. Ávörp flytja þær María Th. Jónsdóttir, formaður Félags áhugafólks og aðstand- enda Alzheimersjúklinga og annarra minnissjúkra, og Þór- unn Gestsdóttir, fjölumdæmis- stjóri Lionshreyfingarinnar á Íslandi. Að loknum framsöguer- indunum verður boðið uppá um- ræður og fyrirspurnir. Fundar- stjóri verður Sigríður Árnadóttir fréttamaður. Oft sjúkdómur eldra fólks Í frétt frá fundarboðendum kemur m.a. fram að ekki sé ein- ing um nafngift sjúkdómaflokks- ins heilabilun, sumir vilji fremur tala um minnissjúkdóm. „Benda má þó á hugtökin hjartabilun og nýrnabilun. Þekktasti af þessum sjúkdómum og sá algengasti er Alzheimer og það nafn oft notað sem samheiti um sjúkdóminn. Heilabilun er oftast sjúkdómur eldra fólksins en getur þó byrj- að í fólki upp úr fertugu,“ segir þar einnig. Þá segir að til sé lyfjameðferð en lyf seinki aðeins sjúkdómsferlinu í um ár og að hjá einstaka sjúklingi sjáist að- eins bati í upphafi meðferðar. Einnig kemur fram að umönnun sé erfið. Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu á morgun, mið- vikudag, og er öllum opinn. Hann hefst kl. 17. Fallið frá óskum um umræður um RÚV KOLBRÚN Halldórsdóttir, þing- maður Vinstrihreyfingarinnar –græns framboðs, féll í gær frá beiðni sinni um utandagskrárum- ræðu á Alþingi um málefni Ríkisút- varpsins. Kolbrún óskaði eftir um- ræðunni fyrir helgi vegna fréttastjóramálsins svokallaða. „Í ljósi þess sem síðar hefur gerst er ekki lengur tilefni til umræðunnar,“ segir þingmaðurinn í tilkynningu til fjölmiðla í gær. Þingmenn Samfylkingarinnar í menntamálanefnd þingsins féllu sömuleiðis í gær frá beiðni sinni um sérstakan fund í nefndinni vegna fréttastjóramálsins. „Í ljósi þess að nú hefur verið ráðinn fréttastjóri á Fréttastofu Útvarps úr hópi þeirra sem taldir voru hæfastir föllum við þingmenn Samfylkingarinnar í menntamálanefnd frá ósk okkar um sérstakan fund í nefndinni um þetta mál,“ segja þingmennirnir Mörður Árnason, Katrín Júlíusdóttir og Björgvin G. Sigurðsson, í tilkynn- ingu sinni til fjölmiðla í gær. Þjóðin greiði atkvæði um sölu Símans ÞINGMENN Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þings- ályktunar um að fram skuli fara þjóðaratkvæðagreiðsla um sölu Landssíma Íslands. Þingmennirnir vilja að kjósendur velji milli þess hvort selja eigi einkaaðilum hlut ríkisins í Símanum eða hvort hætta eigi við sölu Símans. Þingmennirnir vilja að vinnu við sölu Símans verði hætt þar til nið- urstaða atkvæðagreiðslunnar ligg- ur fyrir. Þeir leggja til að hún fari fram í síðasta lagi samhliða kosn- ingum um sameiningu sveitarfé- laga á hausti komanda. „Fjölmargar ástæður renna stoð- um undir þá hugmynd að frekari framvinda málsins verði ráðin í lýð- ræðislegri atkvæðagreiðslu sem all- ir atkvæðisbærir landsmenn geti tekið þátt í,“ segja þingmennirnir m.a. í greinargerð tillögunnar. Þingmennirnir segja einnig að fyrirhuguð sala Símans sé afar um- deild í þjóðfélaginu. Síminn seldur með grunnnetinu HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráð- herra ítrekaði á Alþingi í gær að rík- isstjórnin legðist gegn því að selja Símann án grunnnetsins. „Rík- isstjórnin hefur lagst gegn því á þeim forsendum að hvergi í Evrópu hafi grunnnet verið aðskilið við einkavæðingu fjarskiptafyrirtækja.“ Ráðherra sagði einnig að lagaum- hverfið á Evrópska efnahagssvæð- inu gerði ráð fyrir samkeppni í rekstri grunnneta í fjarskiptageir- anum. Þá sagði hann að fjarskiptalögin íslensku gæfu skýr fyrirmæli um að- gang samkeppnisaðila inn á grunn- net markaðsráðandi aðila. Að endingu sagði hann að Póst- og fjarskiptastofnun og Samkeppn- isstofnun hefðu úrræði til inngripa, ef ekki yrði farið að lögum í þessu sambandi. Forystumenn Samfylkingar og Frjálslynda flokksins vilja skilja grunnnet Símans eftir hjá ríkinu, en forystumenn Vinstri grænna vilja alls ekki selja Símann; hvorki með eða án grunnnets.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.