Morgunblaðið - 05.04.2005, Síða 14

Morgunblaðið - 05.04.2005, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Í ljósi æ erfiðari stöðu þýskra efnahagsmála, síaukins atvinnuleysis og stöðnunar, efnir Þýsk íslenska verslunarráðið í samvinnu við Verslunarráð Íslands, til fundar með Hans Olaf Henkel, einum skeleggasta talsmanni þýsks atvinnulífs hin síðari ár. • Hvaða leiðir eru til úrbóta? • Hvernig má örva nýsköpun? • Eru róttækar þjóðfélagsbreytingar óumflýjanlegar? • Þvælist ,,arfleið” Þriðja ríkisins enn fyrir umbótum? Hans Olaf Henkel er fyrrverandi forstjóri IBM í Þýskalandi, og æðsti maður IBM í Evrópu um árabil. Hann var mjög áberandi sem formaður Samtaka iðnaðarins í Þýskalandi (BDI) 1995 – 2000, en er nú forseti Leibniz samtakanna, samtaka 84 rannsóknarstofnana með 12.500 starfsmenn og 1 milljarð evra í veltu árlega. Henkel hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar á ferli sínum og skrifað fjórar mjög þekktar bækur um nýsköpun og efnahagsmál svo fátt eitt sé talið. Fundurinn fer fram á ensku og er öllum opinn. Fundargjald er kr. 2500 (léttur morgunverður innifalinn). Fyrirfram skráning er æskileg og fer fram hjá Þýsk-íslenska verslunarráðinu í síma 510 7100 eða á info@ahk.is Hans Olaf Henkel fyrrv. forstjóri IBM í Þýskalandi og fv. stjórnarformaður Samtaka Iðnaðarins (BDI) Morgunverðafundur Nordica Hótel föstudaginn 8. apríl 2005 kl:8.15 – 9.30 Þýsk-íslenska verslunarráðið Repräsentanz der deutschen Wirtschaft in Island- Fulltrúi þýsks viðskiptalífs á Íslandi Margir Pólverjar vonast til þess að hjarta Jóhannesar Páls II verði komið fyrir í Wavel-dómkirkjunni í Kraká þar sem pólskir dýrlingar og konungar voru grafnir. Þegar Nav- arro-Valls var spurður hvort kardín- álarnir hefðu útilokað þennan mögu- leika svaraði hann því ekki beint og BÚIST er við að um tvær milljónir manna safnist saman í Róm á föstu- daginn kemur þegar útför Jóhann- esar Páls II páfa fer fram í Péturs- kirkjunni. Gert er ráð fyrir því að um 200 erlendir leiðtogar verði viðstadd- ir útförina og að hundruð milljóna manna úti um allan heim fylgist með henni í beinni útsendingu í sjónvarpi. Kardínálar rómversk-kaþólsku kirkjunnar komu saman í gærmorg- un í fyrsta skipti eftir andlát páfa til að ákveða hvenær útförin ætti að fara fram. Þeir frestuðu ákvörðun um hvenær kjör næsta páfa ætti að hefjast og ráðgera annan fund í dag. Talsmaður Páfagarðs, Joaquin Navarro-Valls, sagði að útförin ætti að fara fram klukkan tíu á föstudags- morgun að staðartíma, klukkan átta að íslenskum. Messuna syngur Jo- seph Ratzinger, yfirmaður kardínálaráðsins og einn af hugsan- legum arftökum páfa. Fyrir útförina á lík páfa að liggja á viðhafnarbörum í Péturskirkjunni og gefst þá almenningi kostur á að votta minningu hans virðingu sína. Búist er við að hundruð þúsunda manna fari í kirkjuna til að kveðja páfa. Mikill öryggisviðbúnaður Á meðal þeirra sem ætla að vera við útförina eru George W. Bush Bandaríkjaforseti, Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, Jacques Chirac Frakklandsforseti, Kofi Ann- an, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Aleksander Kwasniewski, forseti Póllands, og Lech Walesa, fyrrverandi leiðtogi pólsku verka- lýðssamtakanna Samstöðu. Bush verður fyrsti bandaríski for- setinn sem fer til Rómar í því skyni að vera viðstaddur útför páfa. Tony Blair hafði ætlað að boða til þingkosninga í gær en ákvað að fresta því vegna andláts páfa. Karl Bretaprins og heitkona hans, Cam- illa Parker Bowles, hugðust ganga í hjónaband á föstudaginn kemur en ákváðu að fresta brúðkaupinu um einn dag vegna útfararinnar. Mikill öryggisviðbúnaður verður í Róm. Allt að 10.000 her- og lögreglu- menn verða á götum Rómar og orr- ustuþotur, þyrlur og eftirlitsvélar eiga að framfylgja flugbanni yfir borginni. Ekki grafinn í Póllandi Navarro-Valls sagði að Jóhannes Páll II yrði „nær örugglega“ jarð- aður í grafhýsinu þar sem Jóhannes XXIII lá áður en hann var fluttur á aðalhæð Péturskirkjunnar. Jóhann- es XXIII lést 1963 og kista hans var flutt árið 2000 eftir að páfi lýsti því yfir að hann væri kominn í samfélag hinna blessuðu. Fjölmiðlar höfðu verið með vanga- veltur um að Jóhannes Páll II kynni að hafa óskað eftir því að hann yrði grafinn í Póllandi en Navarro-Valls sagði að hann hefði ekki borið fram slíka ósk. sagðist aðeins veita upplýsingar um ákvarðanir sem kardínálarnir tóku í gærmorgun. Pólskir prestar sögðust enn vona að hjartað yrði flutt til Póllands en leiðtogar kaþólsku kirkjunnar þar í landi og stjórnvöld í Varsjá sögðu að Jóhannes Páll II ætti að hvíla í friði – og í heilu lagi – í höfuðkirkju kaþ- ólsku kirkjunnar. Navarro-Valls sagði ekkert um hvenær kjör næsta páfa ætti að hefj- ast. Skv. reglum kaþólsku kirkjunn- ar á að halda fyrsta kjörfundinn 15– 20 dögum eftir dauða páfa, eða í fyrsta lagi 17. þessa mánaðar. Um 200 leið- togar verða við útför páfa Talið að tvær milljónir manna komi saman í Róm á föstudag þegar páfi verður jarðsunginn í Péturskirkjunni Reuters Lík Jóhannesar Páls II páfa borið á Péturstorginu inn í Péturskirkjuna þar sem það á að hvíla á viðhafnarbörum þar til útförin fer fram. Að minnsta kosti 100.000 manns voru á torginu og í nálægri götu þegar líkið var flutt í gær. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is PÓLVERJAR reyndu í gær að ein- beita sér að gleðinni og þeim já- kvæðu breytingum, sem Jóhannes Páll II páfi færði heiminum þegar hann var á lífi, til að yfirvinna djúpa sorg yfir fráfalli hans. Á forsíðum dagblaða úti um allan heim voru birtar myndir af líki páfa sem sveipað var rauðum og hvítum klæðum á viðhafnarbörum í Páfa- garði. Dagblöð í Póllandi lögðu for- síðurnar undir myndir af páfa en ólíkt blöðum í öðrum löndum voru allar myndirnar teknar þegar páfi var á lífi. Mikil sorg ríkti enn í Wadowice, bænum þar sem Karol Wojtyla fædd- ist 18. maí 1920. Margir íbúanna áttu erfitt með að mæta til vinnu eftir að hafa misst manninn sem þeir litu á sem annan föður sinn. Aleksander Kwasniewski, forseti Póllands, sagði í viðtali við dag- blaðið Gazeta Wyborcza að Pólverj- ar hefðu misst helsta verndara sinn. „Við höfum misst skjöld,“ sagði for- setinn. „Við erum nú ein, einstöku tímabili er lokið.“ Karol Wojtyla bjó í 40 ár í Kraká og fólk á öllum aldri safnaðist saman fyrir utan erkibiskupshöllina þar sem hann dvaldi frá árinu 1963, þeg- ar hann var skipaður kardínáli, og þar til hann var kjörinn páfi 1978. Fólkið bað við höllina og skildi eftir blóm, kerti og jafnvel trefla með nafni fótboltafélagsins sem Karol Wojtyla studdi þegar hann var ung- ur. „Það er mjög mikilvægt að vera hérna. Allir koma hingað, eftir kennslutíma, í tímum og fyrir tíma,“ hafði fréttastofan AFP eftir hópi námsmanna við Kraká-háskóla. Margir skrifuðu skilaboð til páfa í bók í garði erkibiskupshallarinnar til að votta minningu hans virðingu sína. „Þú varst mér sem faðir. Líf mitt er innantómt án þín,“ skrifaði lítil stúlka. „Hjarta mitt slær enn fyrir þig.“ Einbeita sér að ævi páfa til að yfirvinna sorgina Forsíður fjögurra pólskra dagblaða í gær. Blöðin birtu myndir sem teknar voru af páfa þegar hann var á lífi. Myndir af líki páfa á viðhafnarbörum voru birtar á forsíðum dagblaða í Evrópu og Bandaríkjunum í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.