Morgunblaðið - 05.04.2005, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 15
ERLENT
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Sumarið kemur
Síðustu sætin
í maí og júní
frá kr. 38.695
Heimsferðir bjóða þér nú síðustu sætin í sólina í maí
og júníbyrjun á hreint ótrúlegu verði.
Mallorca
25. maí - 11 sæti
1. júní - 22 sæti
Frá kr. 38.895
M.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, vikuferð 25. maí,
Brasilia. Netverð.
Frá kr. 39.895
M.v. hjón með 3 börn, 2-11 ára,
vikuferð 18. eða 25. maí,
Castle Beach íbúð
m. 2 svefnherb. Netverð.
Króatía
19. maí - 18 sæti
26. maí - 13 sæti
2. júní - uppselt
Frá kr. 46.095
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
vikuferð 19. eða 26. maí,
Diamant.
Netverð.
Algarve
25. maí - 13 sæti
8. júní - 7 sæti
Frá kr. 39.995
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
vikuferð 25. maí,
Rodrimar. Netverð.
Benidorm
18. maí - 19 sæti
25. maí - laus sæti
1. júní - 14 sæti
Frá kr. 38.695
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
vikuferð 18. maí,
Vina del Mar. Netverð.
Costa del Sol
18. maí - laus sæti
25. maí - 19 sæti
1. júní - 21 sæti
Rimini
26. maí - 23 sæti
2. júní - laus sæti
9. júní - laus sæti
Frá kr. 44.395
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
vikuferð, Riviera.
Netverð.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is
BÁG heilsa Jóhannesar Páls II páfa
síðustu árin hefur valdið því að menn
hafa lengi velt því ákaft fyrir sér hver
væri líklegasti eftirmaðurinn. Vöxtur
Rómarkirkjunnar hefur á síðari ára-
tugum verið mestur í fátækum lönd-
um og býr um helmingur kaþólikka í
heiminum nú í Rómönsku Ameríku.
Hins vegar hefur umdeild stefna
Páfagarðs varðandi mál á borð við
réttindi kvenna til að gegna prests-
embættum og bann við hjónaskiln-
uðum orðið til að fjarlægja marga
Vesturlandabúa frá kirkjunni. Enn
meiri tilfinningahiti hefur samt birst í
deilum um getnaðarvarnir, fóstur-
eyðingar og réttindi samkyn-
hneigðra.
Í fótspor Péturs postula
Fyrsti páfinn var Pétur postuli á
fyrstu öld eftir Krist en síðan hafa
263 menn fetað í fótspor fiskimanns-
ins frá Galileu og gegnt embætti bisk-
ups í Róm. Margir kirkjunnar menn í
þriðja heiminum eru nú nefndir til
sögunnar enda búa þar alls tveir af
hverjum þrem kaþólikkum. Þrátt fyr-
ir það gera margir ráð fyrir að ítalsk-
ir kardínálar telji nú röðina aftur vera
komna að sér.
Íhaldssöm stefna síðasta páfa, ekki
síst varðandi kynferðismál, féll í góð-
an jarðveg meðal kristinna Afríku-
manna en þar er andúð á samkyn-
hneigð mjög rótgróin. Einn þeirra
sem margir nefna nú sem líklegan
páfa er Francis Arinze, kardínáli frá
Nígeríu en hann hefur starfað lengi í
Páfagarði og er þar öllum hnútum
kunnugur. Hann er 72 ára gamall og
voru foreldrar hans heiðnir.
Umfangsmikið trúboð er rekið í
Afríkulöndum af hálfu kirkjunnar og
hefur kristnum fjölgað þar hratt. En
kirkjan á skæðan keppinaut sem er
íslam sem einnig hefur sótt á í mörg-
um löndum sem liggja á mörkum
þjóða blökkumanna og araba. Leið-
arahöfundar dagblaða í ýmsum Afr-
íkuríkjum hafa hvatt til þess að kard-
ínálarnir velji nú Afríkumann í
embætti páfa en það hefur ekki gerst
síðan á fimmtu öld.
Blaðið New Vision í Kenýa lýsti
stuðningi við Arinze og taldi víst að
íhaldssöm sjónarmið hans myndu
eiga góðan hljómgrunn í kardín-
álaráðinu sem er nær algerlega skip-
að mönnum sem Jóhannes Páll II
valdi. „Nær 65% allra kaþólikka búa í
Afríku, Asíu eða Rómönsku Am-
eríku,“ sagði blaðið. „Þessa lýð-
fræðilega breytingu ættu menn ekki
að hunsa þegar næsti páfi verður kos-
inn.“
Jóhannes Páll II naut mikilla vin-
sælda í Afríku vegna þess hve mikið
hann sinnti álfunni og sakir áherslu
hans á að bæta hlutskipti fátækra. En
í Biskuparáði kirkjunnar í löndum
sunnanverðrar Afríku eru menn ekki
allt of vongóðir um að Afríkumaður
taki við. Telja sumir Afríkumenn að
evrópsku kardínálarnir muni standa
saman til að hindra að Afríkumaður
komi til greina.
„Kardínálarnir í Róm eru ánægðir
með að geysimikill fjöldi Afríku-
manna gerist kristinn en þeim finnst
ekki að við séum enn reiðubúnir til að
gegna háum embættum ... þeir óttast
að heiðni geti læðst inn [í kirkjuna]
um bakdyrnar,“ sagði talsmaður
ráðsins, Buti Tlhagale.
Talsmaður kirkjunnar í Nígeríu,
Felix Ajakaye, sagði hins vegar rangt
að útiloka fyrirfram möguleikann á
að næsti páfi yrði ekki ítalskur. Benti
hann á að Pólverjinn Karol Wojtyla,
síðar Jóhannes Páll II, hefði ekki ver-
ið talinn líklegur páfi áður en hann
náði kjöri 1978 en þá höfðu Ítalir
gegnt embættinu í samfleytt 455 ár.
Auk Arinze eru einkum nefndir til
sögunnar Ítalirnir Dionigi Tettam-
anzi, erkibiskup í Mílanó, en hann er
71 árs. Er hann einkum þekktur fyrir
ritstörf sín á sviði siðferðismála. An-
gelo Scola er 63 ára, hann er erkibisk-
up í Feneyjum og er talinn hófsamur í
skoðunum. Tarcisio Bertone er sjö-
tugur, erkibiskup í Genúa og var ný-
lega í fréttum fyrir að gagnrýna
harkalega skáldsöguna Da Vinci-
lykilinn fyrir að rangtúlka og afneita
kennisetningum kirkjunnar. Angelo
Sodano er 77 ára, hann hefur verið
einn valdamesti embættismaður
Páfagarðs síðustu 15 árin og er vara-
formaður kardínálaráðsins sem velur
páfa. Giovanni Battista Re er 71 árs,
hann er formaður biskuparáðsins,
starfaði náið með Jóhannesi Páli páfa
og er þriðji æðsti embættismaður
Páfagarðs.
Mikil áhrif í Rómönsku Ameríku
En ýmsir áhrifamiklir menn utan
Ítalíu og Afríku eru einnig nefndir
sem hugsanleg páfaefni og er Þjóð-
verjinn Joseph Ratzinger þeirra
þekktastur. Hann er yfirmaður kard-
ínálaráðsins og því æðsti yfirmaður
kirkjunnar þar til nýr páfi tekur við.
Ratzinger er 77 ára gamall og þykir
afar íhaldssamur. Belginn Godfried
Danneels, Austurríkismaðurinn
Christoph Schönborn og Portúgalinn
Jose da Cruz Policarpo eru einnig
taldir koma til greina.
En meiri líkur eru samt á því að
þekktir kardínálar frá Rómönsku
Ameríku telji að þeirra tími sé kom-
inn. Meðal þeirra eru Claudio Hum-
mes frá Brasilíu, Dario Castrillon
Hoyos frá Kólumbíu, Oscar Andres
Rodriquez Maradiaga frá Honduras
og Nicolas de Jesus Lopez Rodriguez
frá Dómíníku.
Milljónir kaþólikka búa í Kína og
Indlandi en ekki er þó talið sennilegt
að kardínálar frá þessum löndum
muni verða fyrir valinu að þessu
sinni. Hins ber þó að geta að snjöll-
ustu spámenn hafa oft farið flatt á því
að reyna að geta sér til um nið-
urstöður kardínálaráðsins í Róm.
Afríkumaður gæti
orðið næsti páfi
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Reuters
Kardínálarnir Francis Arinze (fremst) og Angelo Sodano tóku þátt í messu á Péturstorginu á pálmasunnudag í
mars. Francis Arinze, sem er frá Nígeríu, er sagður geta orðið fyrsti afríski páfinn í meira en 1500 ár.
’Telja sumir Afr-íkumenn að evrópsku
kardínálarnir muni
standa saman til að
hindra að Afríkumaður
komi til greina. ‘
( -" .& -.'. $.$ / "!0,&
1)230)#
,
'(
, 'P"
#0231%)1#
&$,7"
, $
2",7$76 $ (45678)#
, $
), 66$'
@$F$
91:5#1:
#*
'
80#;95)#
6
- $ @->>"
:4791);(#5<=>35:9=
($6
" &"- <$."P
Q$, 7-"P 8352)#
+$0, "
''""6
?@0%A2#5
&$"
,-P
$6 (
,.$ B<;(#5#1:
&$"./ Q
)P '7",
)%#5)#
+ $*
'' 2
)) )
Q"
'7"6$ $
'$
$' 7 "))
>
'P
C@1:A0#;
(
, '," Q$, -"P
,
7
#6;%600)(9
/, )$./ (/$"'9$,' ,B4 6"7
", E,/*",
0-66$,4 '' !
)C6!-, !
,6>
4-,
!=3,7"'7-, "' /"04 ' ", ;
4
!
, '56 E !=3, '' .50 1
Chisinau. AP | Vladímír Voronín var
endurkjörinn forseti Moldovu á þingi
landsins í gær og hét hann að halda
áfram að styrkja tengslin við vestræn
ríki. Hlaut forsetinn 75 atkvæði en
alls eru þingsætin 101.
Moldova á landamæri að Rúmeníu
og Úkraínu, það var eitt sovétlýðveld-
anna en hlaut sjálfstæði 1991. Vor-
onín er kommúnisti og var uppruna-
lega mjög hlynntur Rússum en sneri
síðar við blaðinu og leggur nú áherslu
á að ríkið gangi í Evrópusambandið.
Rússar styðja aðskilnaðarsinna í hér-
aðinu Trans-Dnéstríu þar sem flestir
íbúar eru rúss-
nesku- eða úkra-
ínskumælandi.
Aðrir Moldovar
tala mál náskylt
rúmensku.
Kommúnista-
flokkur Voroníns
hefur 56 sæti á
þingi en aukinn
meirihluta þarf til
að kjósa forseta. Voru það fulltrúar
annarra flokka með vestræn tengsl á
stefnuskránni sem tryggðu forsetan-
um endurkjör í gær.
Voronín endurkjörinn
Vladímír Voronín
Kaupmannahöfn. AP | Danska lögregl-
an hefur gefið út alþjóðlega hand-
tökuskipun á hendur 34 ára gömlum
Bandaríkjamanni, Jared Heller, sem
talinn er hafa verið viðriðinn morðið
á leigubílstjóranum Torben Vagn
Knudsen. Hlutar af líki Knudsens
fundust á sínum tíma í sorpgámi
skammt frá morðstaðnum.
Heller er giftur danskri konu en
að sögn lögreglunnar búa þau ekki
lengur saman. Hann hefur búið í
ýmsum evrópskum borgum undan-
farin ár en mun hafa snúið aftur til
Kaupmannahafnar fyrir mánuði.
Auk Hellers leitar lögreglan að 27
ára gömlum karlmanni frá Súdan er
gengur undir nafninu Jagúarinn í
undirheimum Kaupmannahafnar.
Hefur lögreglan birt myndir af þeim.
Morðrannsókn í Kaupmannahöfn
Leita tveggja manna