Morgunblaðið - 05.04.2005, Page 17

Morgunblaðið - 05.04.2005, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 17 MINNSTAÐUR ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S FL U 26 31 7 10 /2 00 4 Verðlaunaðu fólkið þitt Þegar góður hópur hefur skilað vel unnu verki er sjálfsagt að verðlauna starfsmenn og hvetja þá þannig til enn frekari dáða. Hvataferð Flugfélags Íslands er ný þjónusta fyrir fyrirtæki sem vilja gera vel við fólkið sitt, hrista nýjan hóp saman eða efla hann fyrir átökin framundan. Við gerum þér frábær ferðatilboð fyrir fólkið þitt til allra áfangastaða okkar innanlands, þar sem þess býður spennandi upplifun, ævintýri og skemmtun sem skilar sér í sterkari hóp. Kannaðu möguleikana fyrir fólkið þitt í síma 570 3075, á vefsíðunni www.flugfelag.is eða sendu fyrirspurn á hopadeild@flugfelag.is (Lágmarksfjöldi er 10 manns.) skemmtun - áreynsla - upplifun - ævintýri - áskorun - hópefli - samstaða - ánægja - verðlaun - hvatning - sigur - fyrirtæki - starfsmenn - félög - klúbbar - samtök flugfelag.is | 570 3075 Taktu flugið AKUREYRI Formannsskipti Helga Steinunn Guðmundsdóttir og Árni Jóhannsson. Árni for- maður KA ÁRNI Jóhannsson var kjörinn for- maður aðalstjórnar Knattspyrnu- félags Akureyrar, KA, á aðalfundi nýlega. Árni var varaformaður stjórnar en hann tekur við stöðu for- manns af Helgu Steinunni Guð- mundsdóttur, sem hefur verið for- maður undanfarin sjö ár. Við stöðu varaformanns tekur Hallur Stef- ánsson. Félagið skilaði í heild einnar milljóna króna hagnaði og var rekst- urinn nokkuð samkvæmt áætlun. Grassláttur | Mikill munur var á lægstu og hæstu tilboðum í grasslátt á Akureyri í nýlegu útboði. Um er að ræða grasslátt til þriggja ára annars vegar á Ytri og Syðri Brekku og hins vegar í Gilja- og Síðuhverfi. Fjögur tilboð bárust í hvort verk og átti Garðaumhirða ehf. lægsta tilboð í báðum tilvikum. Fyrirtækið bauð rúmar 12,8 milljónir króna í gras- slátt á Brekkunni, eða 47,5% af kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á 27 milljónir króna. Þá bauð Garða- umhirða rúmar 13 milljónir króna í grasslátt í Gilja- og Síðuhverfi, eða 52,9% af kostnaðaráætlun, sem var upp á 24,6 milljónir króna. Önnur til- boð í verkin voru á bilinu 78% til 97,2% af kostnaðaráætlunum. Fram- kvæmdaráð frestaði afgreiðslu máls- ins á síðasta fundi sínum.    Fjölskyldustefna | Á fundi menn- ingarmálanefndar voru lögð fram drög að endurskoðaðri fjölskyldu- og jafnréttisstefnu Akureyrarbæj- ar.Menningarfulltrúa var falið að koma á framfæri einni athugasemd sem fram kom á fundinum en að öðru leyti samþykkir nefndin drögin. Í tengslum við verkefni stefnunnar var menningarfulltrúa og amts- bókaverði falið að semja drög að spurningalista fyrir þjónustu Amts- bókasafnsins við fjölskyldur. Jafn- framt var menningarfulltrúa falið að taka saman upplýsingar um verð- lagningu menningarstofnananna í bænum með tilliti til barnafjöl- skyldna.    Lögfræði | Ragnhildur Arnljóts- dóttir flytur fyrirlestur á lögfræði- torgi í dag, 5. apríl, kl. 12 í stofu L102 á Sólborg. Hann nefnist: Höfum við gengið til góðs. Í erindinu mun hún ræða nokkra áfanga sem náðst hafa á jafnréttissviðinu hér á landi og stöðu Íslands annars vegar og annarra þjóða hins vegar á þessu sviði. BÆJARRÁÐ Dalvíkurbyggðar fjallaði um erindi frá stjórn Fé- lags foreldra og velunnara Húsa- bakkaskóla, þar sem fram kemur að félagið hefur undanfarið verið að skoða möguleika á rekstri sjálf- stæðs skóla að Húsabakka. Fram kemur í erindinu að ákveðin grunnvinna hefur farið fram og telur félagið að rekstr- argrundvöllur sé fyrir sjálfstæðan skóla að Húsabakka ef framlag frá sveitarfélaginu komi til. Áður en frekari vinna fari fram óskar félagið eftir svari frá bæj- aryfirvöldum um það hvort vilji sé til þess að leggja árlega fram fasta upphæð sem miðast við 50 til 60 barna skóla sem og húsnæði og aðstöðu að Húsabakka. Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra og skólamálafulltrúa að ræða við stjórn félags foreldra og velunnara Húsabakkaskóla um erindið og afla nánari upplýsinga fyrir næsta fund bæjarráðs. Sjálfstæður skóli á Húsabakka? Girðing á tjaldsvæði | Fram- kvæmdaráð samþykkti á síðasta fundi sínum að ganga til samninga við Girðingarþjónustuna Litluhlíð ehf. í uppsetningu á girðingu á tjald- svæðinu við Þórunnarstræti, lægst- bjóðanda í verkið. Girðingarþjón- ustan bauðst til að vinna verkið fyrir rúmar 6 milljónir króna, sem er 71% af kostnaðaráætlun. Alls bárust 7 til- boð og voru þau öll undir kostnaðar- áætlun, sem var á 8,5 milljónir króna.    Taprekstur | Stjórn Sorpeyðingar Eyjafjarðar bs. hefur afgreitt árs- reikning sinn fyrir liðið ár. Helstu tölur ársreikningsins eru þær að rekstrartekjur urðu 62,2 milljónir króna og rekstrargjöld 71,1 milljón króna. Tap ársins var 9,6 milljónir króna að teknu tilliti til fjármagns- gjalda. Í skýrslu framkvæmdastjóra um ársreikninginn kom m.a. fram að heildarmagn úrgangs sem barst á urðunarstað á árinu var 23.800 tonn, þar af voru 17.500 tonn urðuð. Papp- ír, brotamálmar o.fl. sem ekki kom þangað voru um 2.600 tonn. Alls fóru því 9.000 tonn til endurvinnslu, fyrir utan skilagjaldsskyldar umbúðir, fatnað o.fl. Þetta kemur fram á vef sorpsamlagsins.   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.