Morgunblaðið - 05.04.2005, Síða 21

Morgunblaðið - 05.04.2005, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 21 UMRÆÐAN ÉG ÁTTI þess kost að slást í hóp reykvískra skólastjóra og fulltrúa Menntasviðs (áður Fræðslu- miðstöðvar) í námsferð til Stokk- hólms í mars sl. Stokkhólmi er skipt í 18 borgarhluta og var markmið far- arinnar m.a. skoða tengsl borgar- hlutaráðsins og grunn- skólanna og hvernig sérfræðiþjónustu skól- anna er háttað. Einnig fyrirkomulag kjara- samninga, skóla án að- greiningar og sjálf- stætt starfandi skóla. Skipulag og undirbún- ingur fyrir ferðina, sem var aðallega í höndum Birnu Sig- urjónsdóttur kennslu- ráðgjafa, var til fyr- irmyndar og góður andi í hópnum. Þó ekki sé ætlun mín að gera ítarlega grein fyrir öllu því sem fyrir augu bar í ferðinni langar mig í blaða- grein að stikla á stóru varðandi það sem helst vakti athygli mína. Valfrelsi Óhætt er að segja að „valfrelsi“ í víðtæk- asta skilningi sé ein- kunnarorð sænska skólakerfisins. Nem- endur og forráðamenn geta valið frjálst um skóla hvort heldur er á milli sveitarfélaga, borgarhluta innan Stokkhólms eða einkarekinna sjálfstæðra skóla (fri- skola). Frjálsu, sjálfstæðu skólarnir fá algjörlega sambærilegt fjármagn og þeir sem reknir eru af sveit- arfélögunum að frádregnu því sem fer í opinbera stjórnsýslu. For- eldrar hafa tekið valfrelsinu fagn- andi og talsvert var um flutninga á milli skóla jafnvel á miðju skólaári en nú er kominn meiri stöðugleiki. Annað sem gerðist líka var að borgarreknu skólarnir líta margir samkeppnina jákvæðum augum þannig að þeir hafa sótt í sig veðrið og jafnvel gert áætlanir um hvernig fjölga megi nemendum. Allir skól- ar, jafnt þeir sjálfstæðu sem þeir borgarreknu, reyna að markaðs- setja sína sérstöðu sem birtist m.a. í bæklingi sem Stokkhólmsborg gefur út árlega undir heitinu „Dags att välja skola, valet till förskolek- lassen/grundskolan“. Þá sáum við einnig dæmi um hvernig borg- arhlutarnir auglýsa skólana sína. Borgarhlutinn „Kista“ gefur t.d. út skóladagatal með myndum og upp- lýsingum um skólana. Lítil yfirstjórn Í hverjum borgarhluta er póli- tískt kjörið ráð sem auk skólamál- anna fer t.d. með félagsþjónustu og málefni aldraðra og fatlaðra. Ekki var annað að heyra en ánægja væri í þeim skólum sem við heimsóttum með skiptingu fjármagnsins en skólarnir í Stokkhólmi eru bæði fjárhagslega og faglega sjálfstæðari en í Reykjavík. Það er t.d. í þeirra valdi að ákveða fyrirkomulag skóla- hjúkrunar, félagsráðgjafar og starfs- og námsráðgjafar, hvort þeir ráða einstaklinga beint til þeirra starfa eða kaupa af öðrum. Þá er skólanámskrá Stokk- hólmsborgar mun minni umfangs en ít- arleg starfsáætlun fræðslumála í Reykja- vík. Laun og vinnutími Kjarasamningar kennara í Svíþjóð eru miklu dreifstýrðari en hjá okkur og þarf nú ekki mikið til. Allt frá því ég heimsótti Svía með fulltrúum KÍ og Launanefndar sveitar- félaga árið 1997 hef ég hrifist af fyrir- komulagi þeirra. Ekki er talað um kennslu- skyldu heldur vinna kennarar ásamt fleira starfsfólki saman í hópum þar sem kennsla og önnur störf mynda órjúfanlega heild í stað þess að mínútur og mín- útubrot séu talin sam- an. Skólastjóri ákveður laun kennara. Sérskólar og sérdeildir Blöndun í íslenskum skólum er mun meiri en í sænskum. Þar er ekki þessi ofuráhersla á skóla án aðgreiningar og menn tala kinn- roðalaust um að það verði að vera til staðar sérúrræði eins og skólar og deildir fyrir þá sem ekki geta fylgt almennri aðalnámskrá enda gefur sænska menntamálaráðu- neytið út sérstaka námskrá fyrir þá nemendur. Rétturinn til að velja Svíar líta á rétt nemenda og for- eldra til að velja skóla sem ákveðið útgangsatriði. Það fyrirkomulag minnir mjög á ,,Garðabæjarmód- elið“. Við sjálfstæðismenn í borg- arstjórn Reykjavíkur höfum ítrekað lagt fram tillögur í svipaða veru í Reykjavík en við litlar undirtektir R-listans. Mikilvægt er að börn og foreldrar hafi raunverulegt valfrelsi um skóla, hvort heldur skóla sem reknir eru af Reykjavíkurborg eða öðru sveitarfélagi sem og sjálf- stæða skóla en til þess að það geti orðið þarf að ná sáttum um það fjármagn sem fylgja á hverjum nemanda. Með auknu valfrelsi fær- um við ábyrgðina meira yfir á for- eldrana sem eru jú þeir sem þekkja börnin best og þar með styðjum við þá í uppeldishlutverkinu. Ég treysti foreldrum en af hverju ekki R- listinn? Treystum foreldr- um til að velja! Guðrún Ebba Ólafsdóttir fjallar um aukið valfrelsi foreldra Guðrún Ebba Ólafsdóttir ’Með auknuvalfrelsi færum við ábyrgðina meira yfir á for- eldrana sem eru jú þeir sem þekkja börnin best og þar með styðjum við þá í uppeldishlut- verkinu. ‘ Höfundur er borgarfulltrúi og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í menntaráði. VIÐ Íslendingar fylgjumst þessa dagana furðu lostnir með átökum innan opinberra stofnana, það er Ríkisútvarpsins og Land- spítala – háskólasjúkrahúss. Ég ætla ekki að tjá mig um málefni RÚV, en óska þó fréttamönnum þar til hamingju með að fagleg sjónarmið þeirra urðu ofan á í deilunni um frétta- stjórastöðuna. Ég stenst það hins vegar ekki að stinga niður penna um LSH, eftir lestur miðopnu Morgunblaðsins 2. apríl, um „Hið sanna um rekstur LSH“, – frá framkvæmda- stjórn LSH. Svo margar spurningar brutust fram að leita verður svara. Yfirlýsingin sam- anstendur af 9 punktum: 1. Framkvæmdastjórnin reynir að kortleggja kostnaðar- og stöðugildaskiptingu til að sýna að rekstrarkostnaður annarra deilda en klínískra sé ekki óeðlilega hátt hlutfall af útgjöldum spítalans og að meira hafi verið skorið niður í þeim hluta en klínísku starfsem- inni í nýlegum sparnaðar- aðgerðum. 1. Hvernig er launakostnaður vegna viðskiptafræðinga og annarra sérfræðinga án klín- iskrar þekkingar, sem starfa á klínískum einingum spítalans kortlagður og hversu hátt hlut- fall af útgjöldum spítalans er hann? 2. Hvar skráist kostnaður vegna aðkeyptrar þjónustu lögfræð- inga og annarra sérfræðinga án klínískrar þekkingar, og hversu hátt hlutfall af útgjöldum spít- alans er hann? 2. Tilgreint er að framlag til LSH sem hlutfall af heildarfjárlögum hafi lækkað þótt fólki á höf- uðborgarsvæði hafi fjölgað. Ljótt er ef satt er, en … Er Landspítali – háskóla- sjúkrahús ekki sjúkrahús allra landsmanna? Ef ráðamenn LSH hafa hamrað á því við yfirvöld að hann sé að- allega spítali höfuðborgarbúa, þá væru eðlileg viðbrögð yfirvalda væntanlega að færa verkefni af LSH út á landsbyggðarsjúkra- húsin. Sum þeirra hafa jú náð betri árangri en LSH við að hafa hemil á kostnaði, til dæmis hefur Heilbrigðisstofnun Akraness náð ágætum árangri með lyfjakostn- aðinn. 3. Framkvæmdastjórnin telur stjórnkerfi LSH einfaldara og hagkvæmara en fyrir sameiningu spítalanna, – og tilgreinir að eitt stjórnunarlag hafi verið tekið út. Hvernig breyttust hlutföll milli stjórnenda með menntun á heil- brigðissviði og stjórnenda án slíkrar menntunar við það? 4. Framkvæmda- stjórnin gerir grein fyrir erfiðleikum sín- um við að kortleggja yfirvinnutíma og til- færir dæmi um mis- munandi aðferðir við skráningu yfirvinnu- tíma, hjá skrif- stofufólki annars vegar og læknum sem standa vaktir hins vegar. 1. Telur framkvæmdastjórnin eðlilegt að mikil yfirvinna sé á skrifstofufólkinu? 2. Gæti slíkt ástand að einhverju leyti skapast af lélegri skipu- lagningu? 3. 1. Telur framkvæmdastjórnin yfirvinnu skrifstofufólks jafn nauðsynlegan þátt í starfsemi spítalans og mönnun vakta? 5. Framkvæmdastjórnin tíundar flutninga á skrifstofustarfsemi, til hagræðingar. 1. Verður innan skamms búið að flytja alla skrifstofustarfsemina undir eitt þak? 2. Ef skrifstofustarfsemi er enn á víð og dreif um bæinn, eða ef hún bólgnar meira, – er þá öruggt að Eiríksstaðir séu nógu stórt hús? 6. Vitnað er í skýrslu Ríkisend- urskoðunar og Gallup kannanir til að sýna að spítalanum sé vel stjórnað og sjúklingar séu ánægðir með þjónustuna. Ein- hvers staðar hefur komið fram að stjórnunarkostnaður LSH sé nokkuð hár samanborið við til dæmis breska spítala og fjöl- miðlaumræða undanfarinna daga, kannanir Vinnueftirlits og einnig ýmis mál sem borist hafa inn á mitt borð í vinnunni gefa mér vísbendingar um að starfsfólk á LSH hafi blendnar tilfinningar varðandi stjórnunina. Getur verið að sjúklingarnir séu ánægðir með þjónustu fag- fólksins þrátt fyrir að stjórn- unina skorti nokkuð á að vera fullkomin? Sjúklingarnir komast jú sjaldn- ast í beina snertingu við stjórn- endurna. 7. Fram kemur að afköst hafi aukist. Það er væntanlega eink- um fagfólkinu að þakka. Fróðlegt verður að sjá næstu skýrslu Rík- isendurskoðunar. Í ljósi umræðu undanfarinna daga: Hvernig ætlar yfirstjórn- in að halda í þetta hæfa fagfólk og laða að meira af hæfu fag- fólki? 8. Tilgreint er að margvíslegar nýjungar hafi verið teknar upp á LSH. Slíkt er alsiða á nútíma sjúkrahúsum. Endurtekin spurning, – sjá undir nr. 7. 9. Nefnt er að verkferlar hafi verið bættir og stefna mótuð í helstu málaflokkum, svo sem lyfja- og innkaupamálum. 1. Ber að skilja þetta svo að spít- alinn hafi áður verið stefnulaus í lyfja- og innkaupamálum? 2. Væri ekki heppilegra að lyfja- fræðingur vísaði veginn en við- skiptafræðingur, þegar stefna er mótuð í lyfjamálum spít- alans? Í lokaorðum nefnir fram- kvæmdastjórnin gott og skilvirkt stjórnskipulag, samhenta og styrka stjórnendur og afburða starfsfólk, sem nú horfi vonglatt til enn frekari sóknar. Heilbrigð- ismenntaða starfsfólkið á LSH er örugglega afburða starfsfólk, – og reyndar einnig margt af hinu starfsfólkinu, en … Veit framkvæmdastjórnin hversu hátt hlutfall starfsfólks- ins getur skrifað undir fullyrð- ingar um gott og skilvirkt stjórnskipulag, samhenta og styrka stjórnendur og vongleði um framtíðina? Ég vona að ekki sé hægt að af- greiða yfirlýsingu framkvæmda- stjórnarinnar „Hið sanna um rekstur LSH“ með „Hálfsann- leikur oftast er …“. Hálfsannleikur? Ingunn Björnsdóttir gerir at- hugasemdir við yfirlýsingar frá framkvæmdastjórn LSH ’Svo margar spurn-ingar brutust fram að leita verður svara.‘ Ingunn Björnsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Lyfjafræðingafélags Íslands. MARGAR eru nefndirnar og fé- lögin sem sinna málefnum aldraðra auk ríkisgeirans, borgarinnar og sveitarfélaga. Samt er aldrei hægt að fullnægja þörf eldri borgara varðandi þjónustuíbúðir. Mjög einföld lausn þessa máls gleymist á öllum þessum víg- stöðvum og kostar samt ekki krónu fyrir ríkið, borgina eða sveitarfélögin. Hvern- ig má það vera? Í Reykjavík einni eru hundruð ekkna og ekkla sem búa í eigin húsnæði og í flestum tilfellum allt of stóru. Litlar íbúðir í stórum blokkum með sameig- inlega þjónustu svipað og er í Eir henta vel fyrir þennan aldurshóp. Slíkar íbúðir seljast upp á stund- inni gegn staðgreiðslu og eru yf- irleitt seldar áður en byrjað er að bygga! Af hverju er samt aldrei hægt að anna þessari eftirspurn? Það er stöðugt verið að úthluta lóð- um fyrir einbýlishús, raðhús o.s.frv. fyrir unga fólk- ið og millialdurinn. Byggingarkranar blasa alls staðar við sama hvar ekið er um á höfuðborgarsvæð- inu. Hvað losna mörg einbýlishús, raðhús o.s.frv. ef byggðar eru litlar þjónustuíbúðir í blokk? Þau skipta hundruðum ef ekki þúsundum. Hvað þarf að segja þessa stað- reynd oft til að ofan- greindir aðilar geri sér grein fyrir þessu og fari að gera eitthvað í málunum? Peningarnir eru fyrir hendi eins og fyrr greinir. Hvers vegna gerir þó enginn neitt? Ég skora á borg- arstjóra og borgaryfirvöld að taka nú hendur upp úr vösum. Krafan er að fleiri íbúðir fyrir aldraða rísi án frekari tafa. Aldraðir bjóða staðgreiðslu fyrir þjónustuíbúðir svo ekki sé minnst á útrétta hönd bankanna um þessar mundir. Hvað dvelur rösklegar framkvæmdir? Sem gamall áhugamaður um bridds þá sýnist mér þetta vera borðleggjandi slemma! Vaknið nú af værum blundi. Furðulegur seinagangur í málefnum aldraðra Guðmundur Guðmundarson fjallar um málefni aldraðra ’Mjög einföld lausnþessa máls gleymist á öllum þessum víg- stöðvum og kostar samt ekki krónu fyrir ríkið, borgina eða sveit- arfélögin. ‘ Guðmundur Guðmundarson Höfundur er fyrrverandi forstjóri og eldri borgari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.