Morgunblaðið - 05.04.2005, Page 23

Morgunblaðið - 05.04.2005, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 23 UMRÆÐAN Pétur Steinn Guðmundsson: „Þær hömlur sem settar eru á bílaleigur eru ekki í neinu sam- ræmi við áður gefnar yfirlýs- ingar framkvæmdavaldsins, um að skapa betra umhverfi fyrir bílaleigurnar.“ Guðmundur Hafsteinsson: „Langbesti kosturinn í stöð- unni er að láta TR ganga inn í LHÍ og þar verði höfuðstaður framhalds- og háskólanáms í tónlist í landinu.“ Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég er ein af þeim sem heyrðu ekki bankið þegar vágesturinn kom í heimsókn.“ Vilhjálmur Eyþórsson: „For- ystumennirnir eru undantekn- ingarlítið menntamenn og af góðu fólki komnir eins og allir þeir, sem gerast fjöldamorð- ingjar af hugsjón. Afleiðingar þessarar auglýsingar gætu því komið á óvart.“ Jakob Björnsson: „Mann- kynið þarf fremur á leiðsögn að halda í þeirri list að þola góða daga en á helvítisprédikunum á valdi óttans eins og á galdra- brennuöldinni.“ Jakob Björnsson: „Það á að fella niður með öllu aðkomu forsetans að löggjafarstarfi.“ Ólafur F. Magnússon: „Ljóst er að án þeirrar hörðu rimmu og víðtæku umræðu í þjóð- félaginu sem varð kringum undirskriftasöfnun Umhverf- isvina hefði Eyjabökkum verið sökkt.“ Ásthildur Lóa Þórsdóttir: „Viljum við að áherslan sé á „gömlu og góðu“ kennsluað- ferðirnar? Eða viljum við að námið reyni á og þjálfi sjálf- stæð vinnubrögð og sjálfstæða hugsun?“ Bergþór Gunnlaugsson: „Ég hvet alla sjómenn og útgerð- armenn til að lesa sjó- mannalögin, vinnulöggjöfina og kjarasamningana.“ Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar FLEST íslensk fyrirtæki eru smáfyrirtæki með litla veltu. Árið 2003 höfðu t.d. 74% íslenskra fyr- irtækja 2–9 starfsmenn á launaskrá. Smáfyrirtæki hafa sjaldan ráð á því að sérhæfa sig eða ráða sérfræðinga til starfa. Nýleg bresk könnun bend- ir til að víða sé pottur brotinn í minni fyrirtækjum varðandi miðlun þekk- ingar. Megnið af þeirri þekkingu sem þróaðist í fyrirtækjunum var til- viljunarkennd og hún spratt fram af handahófi við dagleg störf. Aðeins litlum hluta af hinni tilviljanakenndu þekkingu var hins vegar miðlað, munnlega eða skriflega, til annarra einstaklinga eða stjórnenda. Flestir stjórnendur virtust einblína á skyndigróða og það hafði þau áhrif að ný þekking glataðist yfirleitt út úr fyrirtækjunum. Þessar nið- urstöður benda til þess að í mörgum tilvikum sé ekki litið á þekkingu og miðlun hennar sem hluta af sam- keppnishæfni minni fyrirtækja. Hér er komin ein skýring á því að allt að 80% nýrra fyrirtækja hætta rekstri á fyrstu árum rekstrar. Könnun sem framkvæmd var við Háskólann á Akureyri síðastliðið sumar bendir til að íslensk smáfyrirtæki búi á marg- an hátt við svipaðan vanda og hin bresku í þessu tilliti. Þekkingarstjórnun Þekkingarstjórnun hefur verið að ryðja sér til rúms á liðnum árum og á upptök sín meðal stórra al- þjóðlegra fyrirtækja. Hún felst í því að nýta upplýsingatækni, skipulag og stjórnunaraðferðir til að virkja, skrá, miðla og nýta þekkingu til að bæta árangur fyrirtækja og stofn- ana. Minni fyrirtæki hafa í flestum tilvikum tiltölulega einföld tölvu- kerfi og hafa síður bolmagn til að fjárfesta í gagnagrunnum, ákvarð- anatökukerfum og öðrum flóknum búnaði. Þau geta hins vegar notað aðrar leiðir til að virkja þekkingu starfsfólks. Hér er brýnt að móta þekkingarmiðaða menningu innan fyrirtækja. Þar má nefna að nota tölvupóst markvisst, halda þekking- arfundi eftir að verkefnum er lokið til að læra af mistökum, efla hóp- starf þar sem þekkingu er miðlað, gera tilraunir í starfi og láta fólk segja reynslusögur. Rannsóknir benda til að aðstaða og tími til sam- veru séu mikilvæg í þessu sambandi. Þá er mikilvægt að stjórnendur sýni slíkum vinnubrögðum hvatningu og stuðning í verki. Ríkulegur ávinningur Margar rannsóknir benda til að þekkingarstjórnun skili ríkulegum árangri: Hún eflir nýsköpun í fyr- irtækjum, eykur ánægju við- skiptavina og framleiðni og gerir vinnustaði meira aðlaðandi í augum starfsfólks. Þessir þættir, auk ann- arra, geta fækkað gjaldþrotum smærri fyrirtækja, aukið atvinnu og eflt þjóðartekjur. Stjórnendur ís- lenskra fyrirtækja, stjórnvöld sem hagsmunasamtök í atvinnulífi ættu því að kynna sér vel aðferðir þekk- ingarstjórnunar. Ég vil benda þeim sem vilja kynna sér efnið frekar á heimasíðuna http://notend- ur.unak.is/not/ire/thekking- arstj.htm. Smáfyrirtæki og þekkingarstjórnun Ingi Rúnar Eðvarðsson fjallar um þekkingarstjórnun ’Margar rannsóknirbenda til að þekking- arstjórnun skili ríkuleg- um árangri.‘ Ingi Rúnar Eðvarðsson Höfundur er prófessor og áhugamaður um þekkingarstjórnun. Málningarstyrkur Stórhöfði 44 Skeifan 4 Snorrabraut 56 Bæjarlind 6 Dalshraun 13 Hafnargata 90 Austursíða 2 Austurvegur 69 Hlíðarvegur 2-4 Árlega veitir Harpa Sjöfn ehf styrki í formi málningar til aðila á sviði menningar og mannræktar. Styrkirnir hafa farið til góðgerðarfélaga, þjónustuklúbba, íþróttafélaga og til verndunar og viðhalds sögufrægra húsa og mannvirkja, svo nokkuð sé nefnt. Sem dæmi um verkefni sem hafa fengið málningarstyrk má nefna Síldarminjasafnið á Siglufirði, Vesturfarasetrið á Hofsósi, Hjálpræðisherinn í Reykjavík, skála Ferðafélags Íslands, Íslensku óperuna, Krabbameinsfélagið og ýmis önnur mannúðarfélög og allmargar kirkjur víða um land. Alls hafa 106 aðilar notið málningarstyrksins sem samtals nemur um 16.000 lítrum af málningu, magn sem dygði á ríflega 100 einbýlishús. Hefur þú verðugt verkefni fyrir Málningarstyrkinn? Umsóknir sendist til Hörpu Sjafnar, Stórhöfða 44, 110 Reykjavík, sími 567 4400, merktar „Málningarstyrkur 2005“. Þær skulu innihalda lýsingu á verkefninu og helst mynd eða teikningu af þeim mannvirkjum sem á að mála ásamt áætluðu magni af málningu sem ætla má að þurfi til verksins. Umsóknarfrestur er til 15. apríl. Styrkirnir verða afhentir í byrjun maí. www.harpasjofn.is 10 20 60

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.