Morgunblaðið - 05.04.2005, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 05.04.2005, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Síminn verður í seldur í einulagi til eins hóps kjölfestu-fjárfesta sem hver um sigmá ekki eiga meira en 45% í Símanum fram að skráningu fyr- irtækisins á Aðallista í Kauphöll Ís- lands. Kjölfestufjárfestir má ekki fara með eignaraðild, beina eða óbeina, í fyrirtækjum í samkeppni við Símann hér á landi og þá skal til- tekinn hluti keyptra hlutabréfa, ekki minna en 30% af heildarhlutafé, verða boðinn almenningi og öðrum fjárfestum til kaups fyrir árslok 2007. Stefnt er að því að sölunni verði lokið í júlí. Á blaðamannafundi í gær sagði Jón Sveinsson, formaður fram- kvæmdanefndar um einkavæðingu, að ástæðan fyrir því að sett væru þau skilyrði að enginn mætti eiga meira en 45% væri sú talið væri æskilegt að dreifð eignaraðild væri að fyrirtæki af þessari stærð en ekki á „hendi eins aðila, einnar fjölskyldu, einnar samstæðu.“ Þá væri það ljóst að vilji ríkisins stæði til þess að fé- lagið kæmist í eigu almennings, a.m.k. að hluta. Aðspurður sagði hann að fjárfestar þyrftu ekki endi- lega að mynda slíkan hóp fyrr en í öðru þrepi söluferlisins, þ.e. eftir 6. maí. Jón sagði að eftir að Síminn hefði verið skráður í Kauphöllinni gætu eigendur í raun gert það sem þeir vildu. Önnur helstu skilyrði við sölu Símans eru að Síminn verði skráður á Aðallista Kauphallarinnar samhliða sölu til almennings og ann- arra fjárfesta og að innlausnarrétti verði ekki beitt gagnvart öðrum hluthöfum í Símanum en ríkinu fram að kauphallarskráningu félagsins. Fram að þeim tíma mun sala á hlut- um í félaginu til annarra ekki eiga sér stað. Verðmat ekki gefið upp Í dag birtast auglýsingar þar sem auglýst er eftir áhugasömum að- ilum. Söluferlið er í tveimur þrepum og skal vera búið að skila inn til- boðum sem ekki eru bindandi ekki síðar en 6. maí. Í kjölfarið hefst næsta söluþrep þar sem tilteknum fjölda bjóðenda verður gefinn kostur á því að kynna sér fyrirtækið enn betur. Þeim sem hafa áhuga á að kaupa Símann er bent á að setja sig í samband við fjármálafyrirtækið Morgan Stanley sem var nefndinni til ráðgjafar. Jón sagði á fundinum að upplýsingar um gang söluferl- isins yrðu gefnar út með reglulegu millibili en ákveðnar upplýsingar verða bundnar trúnaði. Fram- kvæmdanefnd um einkavæðingu áskilur sér rétt til að hafna öllum til- boðum en það verður ráðherranefnd um einkavæðingu sem ákveður um við hvaða aðila verður samið, að fengnum tillögum einkavæðing- arnefndar. Jón sagði að markaðsaðstæður vegna sölu Símans væru hagstæðar um þessar mundir og áhugi væri bæði hjá innlendum og erlendum fjárfestum. Við söluna yrði m.a. horft til verðs, fjárhagslegs styrks, lýsingar á fjármögnun, reynslu af fyrirtækjarekstri og þjónustu í þétt- býli og dreifbýli næstu fimm árin. Enn væri þó ekki búið að ákveða hvað einstakir þættir fengju mikið vægi og það kæmi til greina að sam- ið yrði við aðila sem ekki byði hæsta verðið en væntanlega yrði munurinn að vera tiltölulega mjög lítill til að verðið réði ekki nánast úrslitum. Jón sagðist ekki geta gefið upp verðmat Símans. „Enda segir það sig sjálft að ef verið er að leita eftir tilboðum frá fjárfestum þá gefa menn ekki upp verðmat fyrirtækisins fyrirfram,“ sagði hann. Annað ætti við ef verið væri að selja fyrirtækið almenningi, þá yrði að gefa upp verðmatið og gengi hvers hlutar. Aðspurður sagði hann að ekki hefði verið lagt sjálf- stætt mat á hvort hærra verð fengist fyrir Símann með því að einfaldlega selja það hæstbjóðanda, án skilyrð- anna um takmörkun á eignarhaldi. Greiður aðgangur að grunnneti Á hinn bóginn væri ljóst að hærra verð myndi fást með því að selja Símann í einu lagi til hóps fjárfesta. „Helstu rökin fyrir þessu eru fyrst og fremst þau að með þessari aðferð er talið að hærra verð fáist fyrir hlut ríkisins heldur en að gera það með öðrum hætti. Í öðru lagi er tryggt með kvöð og síðar í samningum að fyrirtækið verði skráð á Aðallista í Kauphöll fyrir árslok 2007. Í þriðja og síðasta lagi er talin töluverð áhætta í því að skipta sölunni upp og draga seinni áfangann því enginn getur sagt til um það hvernig mark- aðsaðstæður í þessu sambandi munu þróast,“ sagði Jón. Að Síminn sé seldur í einu merkir að grunnetið fylgir m kaupunum en stjórnarandst fleiri aðilar, m.a. Og Vodafon talsvert deilt á þau áform. Jó að við einkavæðingu símafyr annars staðar væru engin dæ aðskilnað grunnnetsins við s irtækjanna. Þá væri kveðið í samningnum um Evrópska hagssvæðið að samkeppni g rekstri grunnneta. Að auki v lagaumhverfið traust og lög tryggðu að allir hefðu greiða gang að því og eftirlitskerfið væri traust. Nefndin hefði e ástæðu til að setja viðbótark þessu sambandi vegna sölu Jón sagði að undirbúning fyrir söluna hefði verið mjög fangsmikill og ítarlegur. Me ars hefði verðmat fyrirtækis ið tekið til endurskoðunar og sérfróðir aðilar fengnir til að álit sitt. Ráðgjafar- og fjárm irtækið Morgan Stanley í Lu únum er og verður framkvæ nefndinni til ráðgjafar við undirbúning sölunnar. Spur hvort tillögur nefndarinnar samræmi við ráðgjöf fyrirtæ sagði Jón að það hefði lagt fr ýmsar tillögur og hugmyndi hlutverk nefndarinnar hefði leggja mat á þær og taka síð ákvörðun, að sjálfsögðu í sam þá ráðherra sem nefndarme fulltrúar fyrir. Hann sagði a skýrsla framkvæmdanefnda hefði verið afhent ráðherran á föstudag, nefndin hefði tek fyrir í gærmorgun og samþy óbreytta. Stefnt er að því að ljúka sölu Símans í júlí Enginn einn eignis stærri hlut en 45% Að minnsta kosti 30% af heildarhlutafé verði seld almenningi og öðrum fjárfestum fyrir árslok 2007 EINKAVÆÐING SÍMANS Framkvæmdanefnd um einka-væðingu kynnti í gær fyrir-komulag á einkavæðingu Landssíma Íslands hf., sem nefndin hyggst ljúka snemmsumars. Eins og fram kom í fréttum Morgunblaðsins á laugardag, verður Síminn seldur í einu lagi, að grunnnetinu meðtöldu, og ákveðið er að enginn einn aðili, skyldir eða tengdir aðilar, eignist stærri hlut í fyrirtækinu en 45%, en það þýðir að fjárfestar í fyrirtækinu þurfa að vera a.m.k. þrír. Þá er ráð fyrir því gert að Síminn verði skráð- ur á Aðallista Kauphallar Íslands og ekki minna en 30% heildarhlutafjár boðin til sölu fyrir árslok 2007. Það fyrirkomulag, sem nú hefur verið ákveðið, stuðlar að því að einn aðili verði ekki allsráðandi í Síman- um, sem er jákvætt út af fyrir sig. Hins vegar eru 45% harla stór hlutur í fyrirtæki – yfirtökuskylda myndast t.d. við 40% eignarhlut samkvæmt núverandi löggjöf. Markmið um dreifða eignaraðild hafa þannig ljós- lega ekki verið höfð að markmiði, heldur að sem hæst verð fáist fyrir Símann, eins og raunar segir beinlín- is í skýrslu einkavæðingarnefndar. Morgunblaðið hefur áður sagt að það sé mikilvægt markmið að eig- endur fyrirtækisins, almenningur, fái sem mest fyrir það og að þeir, sem sjá um söluna, verði ekki sakaðir um að hafa selt Símann á útsöluverði. Þetta sé hins vegar langt í frá eina markmiðið. Blaðið hefur t.d. talið æskilegt að eignaraðild verði dreifð og almenn- ingur fái tækifæri til að eignast hlut í Símanum. Sú mun verða raunin, en farin er hálfgerð fjallabaksleið að því markmiði; aftur líkast til í þágu þess að fá sem hæst verð. Síminn er í einstakri stöðu, ekki aðeins vegna stærðar sinnar og fjár- hagslegs styrks, heldur sem algjört lykilfyrirtæki í þróun upplýsinga- samfélagsins á Íslandi. Morgunblað- ið hefur sagt að það yrði mikið slys, ef einhver af viðskiptasamsteypun- um, sem gerast nú æ frekari til fjörs- ins í íslenzku þjóðlífi, næði yfirráðum í Símanum og þar með lykilstöðu í bæði fjarskipta- og fjölmiðlastarf- semi á Íslandi. Ljóst er að skilyrði einkavæðing- arnefndar, um að kaupendur Símans megi ekki eiga beint eða óbeint hlut í keppinautum hans, útiloka engan veginn að þetta geti gerzt. Það er sjálfsagt ekki hlutverk framkvæmdanefndar um einkavæð- ingu að hafa skoðun á því hvort sala Símans eykur á samþjöppun í við- skiptalífinu eður ei. Það hefði aftur á móti að sjálfsögðu verið í valdi stjórnarflokkanna, sem skipa full- trúa sína í nefndina, að búa þannig um hnútana að sala fyrirtækisins færi ekki fram fyrr en sett hefðu ver- ið lög á Alþingi, sem kæmu böndum á viðskiptasamsteypurnar, sem leynt og ljóst stefna að því að skipta at- vinnulífinu á milli sín. Stjórnarflokk- arnir virðast ekki treysta sér í þann slag. Þau atriði, sem einkavæðingar- nefnd hyggst fara eftir við ákvörðun sína um hverjum skuli selja Símann, gefa aftur á móti svigrúm til að vega og meta tilboðin, ekki eingöngu eftir því hver býður hæst, heldur jafn- framt hver er t.d. fjárhagslegur styrkur bjóðenda, reynsla af fyrir- tækjarekstri og hugmyndir og fram- tíðarsýn varðandi reksturinn. Morgunblaðið hefur áður lýst þeirri skoðun og ítrekar hana hér, að það væri að mörgu leyti æskilegast að erlendur kjölfestufjárfestir – fjar- skiptafyrirtæki eða fyrirtæki, sem sérhæfir sig í fjarskiptafjárfesting- um – eignaðist stærstan hlut í Sím- anum. Rökin fyrir því eru í fyrsta lagi að Síminn fengi þannig aðgang að tækniþekkingu, rannsóknum og þróunarvinnu, sem okkar litli mark- aður stendur tæplega undir. Í öðru lagi að þannig nýttu menn tækifærið við sölu Símans til að auka erlenda fjárfestingu og vekja athygli á Ís- landi sem fjárfestingarkosti. Og síð- ast en ekki sízt má telja að íslenzkum almenningi hugnaðist betur að er- lendur fjárfestir stýrði Símanum en að einhver hinna innlendu viðskipta- samsteypna bætti honum í eignasafn sitt. Það er raunar orðið löngu tíma- bært að öflugir erlendir fjárfestar, sem einkum horfa á arð af fjárfest- ingum sínum, myndi mótvægi við baráttu viðskiptasamsteypnanna um völd og áhrif í íslenzku samfélagi. Grunnnetið verður selt með Sím- anum. Í skýrslu framkvæmdanefnd- ar um einkavæðingu eru sett fram margvísleg rök gegn því að skilja grunnnetið frá við sölu Símans. Með- al annars bendir nefndin á að mikil óvissa fylgi því að skilja grunnnetið frá fyrirtækinu, kostnaður verði mik- ill og engin trygging sé fyrir því að samkeppnisstaða verði jöfnuð með því móti, umfram það sem fjarskipta- og samkeppnislög tryggja þegar. Eins og Morgunblaðið sagði frá á laugardag hafa stjórnarflokkarnir ákveðið að fara fremur þá leið, sem blaðið hefur verið meðmælt, að láta hluta af söluandvirði Símans renna í sérstakan sjóð, sem síðan fjármagni fjárfestingar í fjarskiptaþjónustu á landsbyggðinni á grundvelli útboða. Það er einfaldasta og skilvirkasta leiðin til að tryggja íbúum þeirra svæða, sem fjarskiptafyrirtækin telja gefa litla hagnaðarvon, aðgang að góðum tengingum við umheiminn. Enn fremur verður horft til áforma bjóðenda í Símann um þjón- ustu við landsbyggðina við mat á til- boðum. Einkavæðingarnefnd telur að hvað aðgang keppinauta Símans að grunn- neti fyrirtækisins varðar, dugi nú- verandi löggjöf. Hún bendir hins vegar á það, sem liggur í augum uppi, að til þess að sú löggjöf virki eins og hún á að gera, verður að efla eftirlits- stofnanir. „Tekið er undir það sjón- armið að gæta verði þess að eftirlits- stofnanir séu færar um að bregðast við kvörtunum á skilvirkan hátt þannig að niðurstaða liggi fyrir sem allra fyrst, enda eru breytingar í fjarskiptatækni örar og þróun fjar- skiptaþjónustu hröð,“ segir nefndin í skýrslu sinni. Einkavæðing Símans getur komið miklu góðu til leiðar, ef rétt er á haldið. En hún getur líka orðið til þess, að æ erfiðara verði að vinda of- an af þróuninni í átt til æ meiri sam- þjöppunar auðs og áhrifa í íslenzku samfélagi. Það er að sjálfsögðu enn ekki of seint að koma í veg fyrir það. Í SKÝRSLU framkvæmdanefndar um einkavæðingu segir að sala á eftirstandandi hlut ríkisins í einu lagi til eins kjölfestufjárfestis eða hóps kjölfestufjárfesta sé til þess fallin að ná fram þeirri niðurstöðu sem sé hagfelldust fyrir ríkissjóð. Þá sé sölutilhögunin í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar og helstu viðmið nefnd- arinnar. Markmiðin séu eftirfar- andi:  Að sem hæst verð fáist fyrir eignarhlut ríkisins og staða rík- issjóðs þannig enn frekar styrkt.  Að fyrirtækið verði áfram rekið sem sjálfstætt íslenskt félag skráð hérlendis.  Að fyrirtækið verði áfra ugt þjónustufyrirtæki sem að aukinni samkeppni og s virkni á fjarskiptamarkaði  Að fyrirtækið haldi upp bærilegri þjónustu á fjar- skiptasviði í þéttbýli og dr og það veitir í dag, m.a. me legu viðhaldi og endurnýju mannvirkja.  Að efla innlendan hlutab markað með skráningu fyr isins á Aðallista í Kauphöll landi fyrir árslok 2007 og a ingi og öðrum fjárfestum v ný gefinn kostur á að eigna minna en 30% hlut í félagin árslok árið 2007. Niðurstaðan verði sem hagstæðust fyrir ríkissjóð  Meira á mbl.is/itar Morgunblaðið/Árni To Fjórir sitja í framkvæmdanefnd um einkavæðingu, þeir Sævar Þór Sigurgeirsson, Jón Sveinsson sem er maður, Illugi Gunnarsson og Baldur Guðlaugsson. Niðurstaða nefndarinnar um sölu Símans var kynnt runarp@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.