Morgunblaðið - 05.04.2005, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 05.04.2005, Qupperneq 27
ÁVINNINGUR þjóðfélagsins af bættum vegasamgöngum er ótví- ræður. Hann felst m.a. í sparnaði umferðarinnar af lægri aksturs- kostnaði, styttri ferðatíma, færri slysum, minni loftmengun og sparn- aði í veghaldi. Tækifærin til að ná umtalsverðum árangri að þessu leyti eru hvergi betri en þar sem vegakerfið er hvað bágbornast og vetrarþjónustan erf- iðust. Við kynnum Vestfirði til sög- unnar sem land tækifæranna að þessu leyti. Vesturleið aðeins 392 km Í nýlegri könnun meðal lesenda á vef Bæjarins besta á Ísafirði kom fram að um 80% þeirra sem þátt tóku í könnuninni kváðust myndu velja svokallaða Vesturleið frá Reykjavík til Ísafjarðar ef hún yrði stytt niður í 408 km. Unnið er að því að sú leið verði aðeins 392 km og má leiða líkur að því að þá muni 90% Vestfirðinga fara þann veg til Reykjavíkur, og einnig á milli þétt- býlisstaða innan Vestfjarða. Nánar tiltekið liggur Vesturleið um Vestfjarðaveg nr. 60 frá Hring- veginum við Dalsmynni í Norður- árdal um Bröttubrekku, vestur Dalasýslu um Svínadal yfir Gilsfjörð til Króksfjarðarness í Reykhóla- hreppi og þar með inn á Vestfirði. Vestfjarðavegur liggur áfram vest- ur sunnanverða Vestfirði um Reyk- hólahrepp endilangan; Gufudals- sveit, Klettsháls og Múlasveit og áfram vestur í Flókalund í Vatns- firði. Frá Flókalundi er haldið áfram um Dynjandisheiði til Arnarfjarðar og yfir Hrafnseyrarheiði til Þing- eyrar í Dýrafirði og norður um Gemlufallsheiði til Önundarfjarðar og þaðan í gegnum Vestfjarðagöng- in til Ísafjarðar. Fyrsti akfæri vegur frá Reykjavík til Ísafjarðar opnaðist 1959 og lá þessa leið, sem í dag er 456 km. Vestfjarðavegur er jafnframt eini þjóðvegurinn frá Reykjavík til þétt- býlisstaðanna á sunnanverðum Vestfjörðum, en af honum er beygt við Flókalaund í Vatnsfirði og ekið um Barðastrandarveg til Patreks- fjarðar og þaðan áfram um Bíldu- dalsveg til Tálknafjarðar og Bíldu- dals. Vestfjarðavegur er og eini þjóðvegurinn sem liggur milli þétt- býlisstaðanna á sunnanverðum Vestfjörðum og þéttbýlisstaðanna við Ísafjarðardjúp, Bolungarvíkur, Ísafjarðar og Súðavíkur, að ógleymdum öðrum þéttbýlisstöðum á leiðinni þ.e. Þingeyri, Flateyri og Suðureyri. Svo merkilegt sem það má virðast er hins vegar aðalþjóðbraut Ísfirð- inga til Reykjavíkur í dag ekki um Vestfjarðaveg (456 km), heldur um Djúpveg nr. 61 suður yfir Stein- grímsfjarðarheiði (frá 1988) til Hólmavíkur og suður Strandir og á Hringveginn við Brú í Hrútafirði og þaðan suður yfir Holtavörðuheiði, og er sú leið nú 495 km eða 39 km lengri en Vestfjarðavegur. Helgast það af því að um Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði liggja nær 50 ára gamlir óuppbyggðir fjallvegir, sem ekki er mögulegt að halda opnum að vetri til vegna snjóa og veðurhæðar. Stefnumótun sveitarfélaga á Vestfjörðum Samtök sveitarfélaga á Vest- fjörðum, Fjórðungssamband Vest- firðinga, hafa frá árinu 1997 haft mótaða framtíðarstefnu um vega- gerð á Vestfjörðum. Þar er lögð áhersla á að ljúka sem fyrst vega- gerð á Djúpvegi í Ísafjarðardjúpi og á Vestfjarðavegi frá Bjarkalundi vestur í Flókalund. Að því búnu er gert ráð fyrir að lagður verði vegur um Arnkötludal sunnan Hólmavíkur (Tröllatungu- vegur) og suður á Vestfjarðaveg rétt vestan við Króksfjarðarnes sem myndi þá stytta leiðina frá Ísafirði suður um 41 km, úr 495 í 454 km. Loks er gert ráð fyrir að ráðist verði í jarðgangagerð undir Dynj- andisheiði og milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, sem styttir þá leið um 39 km og leiðina milli Patreks- fjarðar og Ísafjarðar úr 178 km í 142 km. Samgönguráðherra upplýsti á fundi á Patreksfirði í febrúar sl. að gera mætti ráð fyrir að fram- kvæmdir hefjist við göngin milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar í kjöl- far Héðinsfjarðarganga sem má ætla að verði innan sex ára. Þótt jarðgöngin undir Dynjandisheiði séu ekki formlega komin á dagskrá samgönguáætlunar er nauðsynlegt að þau verði gerð á sama tíma til þess að full not verði af göngunum milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Í tillögum verkefnisstjórnar iðn- aðarráðherra um byggðaáætlun fyr- ir Vestfirði (Vaxtarsamningi Vest- fjarða), sem kynntar voru í febrúar 2005, leggur verkefnisstjórnin áherslu á mikilvægi allra þessara vegabóta. 165 km malarvegir Í Djúpi er nú aðeins ólokið vega- gerð yfir Mjóafjörð, um Vatnsfjörð og Reykjanes og inn með Ísafirði. Á Vestfjarðavegi er lengra í land, þar eru malarvegir ennþá 90 km sunnan Flókalundar og 75 km milli Flóka- lundar og Þingeyrar. Nýir vegir sem koma í stað þessara 165 km af malarvegum verða hins vegar mun styttri, eða aðeins 101 km, því jarð- göng milli Dýrafjarðar og Arn- arfjarðar stytta um 27 km, jarðgöng undir Dynjandisheiði um 12 km, vegur í Kjálkafirði um 3 km og þver- un þriggja fjarða, Þorskafjarðar, Djúpafjarðar og Gufufjarðar í Reykhólahreppi, um 22 km, eða samtals 64 km stytting. Þar með verður Vesturleiðin milli Ísafjarðar og Reykjavíkur aðeins 392 km, eða 103 km styttri en núver- andi 495 km leið um Djúpveg, sem er nálægt 21% stytting. Þar að auki verður Vesturleiðin að mestu á lág- lendi eða aðeins 5,2 km í yfir 300 metra hæð yfir sjávarmáli (1,0 á Klettshálsi og 4,2 á Bröttubrekku) á móti 22,9 km yfir 300 m.y.s. á Djúp- vegi (12,6 á Steingrímsfjarðarheiði og 10,3 á Holtavörðuheiði). Þegar farið verður um Arnkötludal í stað Holtavörðuheiðar verður sú leið alls 454 km, eða 62 km lengri en Vest- urleiðin, og yrðu 20 km í yfir 300 m.y.s. (12,6 á Steingrímsfjarð- arheiði, 3,2 á Arnkötludal og 4,2 á Bröttubrekku). Leið B Sveitarfélögin í Barðastrand- arsýslu, Reykhólahreppur, Tálkna- fjarðarhreppur og Vesturbyggð, hafa árum saman haft með sér sam- starf í vegamálum. Brýnustu hags- munir þeirra liggja í því að ljúka vegagerð á Vestfjarðavegi milli Bjarkalundar og Flókalundar, því sá vegur er lífæð byggðanna. Þar ber hæst þveranir Þorskafjarðar, Djúpafjarðar og Gufufjarðar, svo- nefnd leið B, sem leggur af hina við- sjárverðu hálsa Ódrjúgsháls og Hjallaháls, færir þjóðveginn niður á láglendi og styttir leið um 22,2 km. Leið B þverar Þorskafjörð milli Kinnarstaða og Þórisstaða og liggur svo út með Þorskafirði og út á Hall- steinsnes, þverar þar Djúpafjörð og fer um bláodda Gróness og yfir mynni Gufufjarðar og á land í Mela- nesi, þaðan sem leiðin liggur fyrir Skálanes og að Eyri í Kollafirði. Matsskýrsla Vegagerðarinnar vegna mats á umhverfisáhrifum er á lokastigi, og þar mun Vegagerðin gera leið B að tillögu sinni sem veg- tæknilega besta kostinn, mun betri en hlykkjóttir og brattir vegir yfir Hjallaháls og Ódrjúgsháls sam- kvæmt leiðum C og D sem einnig fara í umhverfismat. Málið hefur haft langan aðdraganda, og er von- andi senn í höfn. Leið B var fyrst kynnt til sög- unnar í skýrslu Vegagerðar ríkisins um tengingu Inn-Djúps árið 1976. Þegar sveitarfélögin þrjú í Dala- sýslu og Austur-Barðastrand- arsýslu hófu vinnu við gerð svæð- isskipulags upp úr 1990 fengu þau Snæbjörn Jónasson, fyrrverandi vegamálastjóra, til liðs við sig sem formann samvinnunefndar þeirra um gerð skipulagsins. Þeirri vinnu lauk með því að í svæðisskipulaginu, sem samþykkt var af skipulags- stjórn ríkisins í október 1995 og staðfest af umhverfisráðherra 4. janúar 1996, er gert ráð fyrir leið B sem framtíðarvegstæði Vest- fjarðavegar um þetta svæði. Ekki þótti þar koma að sök að norður- strönd Þorskafjarðar og fjörur í Djúpafirði hefðu þá um nokkurt skeið verið á Náttúruminjaskrá sem aðrar náttúruminjar, og ekki heldur ný lög nr. 53/1995 um vernd Breiða- fjarðar, en eðli máls samkvæmt er í skipulaginu almennur fyrirvari um niðurstöður mats á umhverfisáhrif- um þeirra framkvæmda sem háðar eru. Í miðopnu Morgunblaðsins 23. mars sl. birtist grein eftir Gunnlaug Pétursson verkfræðing til að koma þar á framfæri boðskap um að leið B sé aldeilis ómöguleg og að skipu- lagsslys geti verið í uppsiglingu. Leið B er einn þriggja kosta sem greindir eru í matsskýslu Vega- gerðarinnar og teknir verða til mats á umhverfisáhrifum. Það er sann- færing sveitarstjórna Reykhóla- hrepps, Vesturbyggðar og Tálkna- fjarðarhrepps og annarra er lagt hafa lóð á vogarskálar þess að leið B verði fyrir valinu að hún muni fylli- lega standast umhverfismatið, enda nú þegar ráð fyrir henni gert í sam- þykktu svæðisskipulagi, auk þess sem hún er vegtæknilega langbesti kosturinn. Almannahagsmunir Samgönguráðherra, Vegagerð- inni og sveitarstjórnarmönnum ber að hafa hagsmuni byggðanna og al- mennings að leiðarljósi við ákvarð- anatöku sem þessa. Þröngir per- sónulegir hagsmunir einstaklinga eru minni hagsmunir sem ber að víkja til hliðar fyrir almannahags- munum. Hins vegar ber að sjálf- sögðu að bæta landeigendum sann- gjörnu verði þann missi lands sem þeir verða fyrir við vegagerðina. Þetta á jafnt við um tengdaforeldra Gunnlaugs Péturssonar og aðra landeigendur. Gunnlaugi yfirsást semsagt að geta þess í grein sinni að tengdafjölskylda hans ætti persónu- legra hagsmuna að gæta af vega- gerð um leið B, sem eigendur einnar þeirra þriggja eyðijarða á Hall- steinsnesi sem leið B mun liggja um. Ýmislegt í grein Gunnlaugs er verulega fært í stílinn, annað bein- línis rangt. Til dæmis eru norður- strönd Þorskafjarðar og fjörur í Djúpafirði langt í frá einu staðirnir í Reykhólahreppi sem eru á Nátt- úruminjaskrá fyrir utan Borg- arland. Má t.d. nefna friðlönd í Hrís- ey og austurhluta Flateyjar, en kannski frekar Kjálkafjörð, Kerl- ingarfjörð og Skálmarnes sem flokkast sem aðrar náttúruminjar eins og norðurströnd Þorskafjarðar m.a. vegna ríkulegs gróðurfars og (birki-)skóglendis í fjörðum. Stuttu vestar eða í Vatnsfirði í Vest- urbyggð er 20.000 hektara friðland þar sem birkiskógur er einnig verndaður og raunar aftur enn vest- ar í Geirþjófsfirði. Það er því enginn skortur á vernduðu birki á þessum slóðum. Tvær leiðir koma helst til greina út Hallsteinsnes, önnur nokkurn veginn um miðjan Teigsskóg, hin við efri brún hans þar sem símalínan var lögð um nesið fyrri hluta 20. ald- ar. Hvorug þeirra liggur með eða eftir ströndinni en óhjákvæmilega verður að fara þvert yfir fjöru til að þvera firðina. Sömu umhverfissjón- armið munu gilda um þverun fjarðanna og við nýlega þverun Kolgrafafjarðar á Snæfellsnesi þ.e. að sem næst full vatnsskipti verði í fjörðunum við sjávarföll ólíkt því sem var við þverun Gilsfjarðar. Í til- lögu að Náttúruverndaráætlun er Teigsskógur ekki nefndur á nafn með þeim 22 birkiskógum sem Skógrækt ríkisins telur mest vernd- argildi hafa á Íslandi. Um marga þessara 22 skóga liggja vegir, þ.m.t. þjóðvegir, og þar með eru þeir að- gengilegir almenningi sem getur notið þar útivistar í fallegri náttúru, og þannig gegna þeir mikilvægu hlutverki við uppbyggingu ferða- þjónustu. Allar jarðir á Hallsteinsnesi og Grónesi eru komnar í eyði fyrir margt löngu og þar er ekki föst bú- seta, sem gerir m.a. að verkum að þar er aðeins óverulegt æðarvarp, enda hefur tófa og minkur nær óheftan aðgang að því. Nesin eru bæði ókunn og óaðgengileg almenn- ingi, en með vegagerð um leið B opnast nýr heimur og til verður hringvegur um Gufudalssveit sem getur haft mikla þýðingu fyrir upp- byggingu ferðaþjónustu þar, m.a. með skipulagningu frístundabyggð- ar. Leið B er því líkleg til að auka verðmæti jarða sem hún liggur um og eru í nálægð hennar. Hjallaháls – Klettsháls Þeir sem þurfa að ferðast um Hjallaháls að vetrarlagi vita að veg- urinn er mjög viðsjárverður, með mörgum erfiðum og kröppum beygjum sem flestar eru ekki aðeins í miklum langshalla heldur einnig hliðarhalla. Margir bílar, bæði fólks- bílar og vöruflutningabílar, hafa far- ið út af veginum undanfarin ár, flestir að austanverðu, og í heild sinni er vegurinn mjög ófullkominn miðað við þær kröfur sem gerðar eru til þjóðvega í dag. Hjallaháls er því og verður mikill farartálmi, auk þess sem hann er kominn á þann aldur að hann er að fullu afskrif- aður. Um Klettsháls var opnaður nýr uppbyggður vegur fyrir tæpum tveimur árum. Klettsháls var áður fyrr mesti farartálminn á þessari leið en það verður liðin tíð næsta vetur þegar þar verða í fyrsta sinn staðsett snjómoksturstæki sam- bærileg við þau sem eru t.d. á Stein- grímsfjarðarheiði. Þá verður auð- velt að þjónusta umferð á Klettshálsi en hann er aðeins 1,0 km í yfir 300 metra hæð yfir sjávarmáli en Steingrímsfjarðarheiði 12,6 km, en báðir fjallvegirnir eru á sama veðursvæði. Niðurstaða Ágætar líkur eru á því að Vest- urleiðin, aðeins 392 km löng láglend- isleið eins og að framan er lýst, verði orðin að veruleika innan 10–12 ára. Þá munu 90% Vestfirðinga og góðir gestir þeirra aka Vesturleiðina heiman og heim, og arðsemi vega- gerðarinnar sem sparar 103 km akstur verður umtalsverð til lengri tíma litið, þar með talið leiðar B í Reykhólasveit. Ekki dugar að tjalda til einnar nætur í vegagerð, heldur horfa fram á veginn og hafa langtímahagsmuni að leiðarljósi. Miklir langtímahags- munir allra Íslendinga felast í því að Vesturleið verði að veruleika sem allra fyrst og þeim hagsmunum skal halda á lofti. Eftir Einar Örn Thorlacius, Guðmund Guðlaugsson, Má Erlingsson og Þórólf Halldórsson ’Það er sannfæring sveitar-stjórna Reykhólahrepps, Vest- urbyggðar og Tálknafjarðar- hrepps og annarra er lagt hafa lóð á vogarskálar þess að leið B verði fyrir valinu að hún muni fyllilega standast umhverfis- matið, enda nú þegar ráð fyrir henni gert í samþykktu svæðisskipulagi, auk þess sem hún er vegtæknilega langbesti kosturinn.‘ Einar Örn Thorlacius er sveitar- stjóri Reykhólahrepps, Guðmundur Guðlaugsson er bæjarstjóri Vesturbyggðar, Már Erlingsson er sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps og Þórólfur Halldórsson sýslumaður á Patreksfirði.                                    @ 66)" 'I '" !56 '" +,30        ! "# $        %&  '( )" * $ +,- '( . # & " /* $  /0&"#  $ '&1  /'&1  2                  Már Erlingsson Þórólfur Halldórsson Guðmundur Guðlaugsson 103 km stytting veg- arins til Ísafjarðar Einar Örn Thorlacius – Leið B um Vestfjarðaveg nr. 60 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 27 u lagi með í taðan og ne, hafa ón sagði rirtækja æmi um sölu fyr- á um það a efna- gæti ríkt í væri gin an að- ð með því ekki talið kröfur í Símans. gurinn g um- eðal ann- sins ver- g margir ð gefa málafyr- und- æmda- rður væru í ækisins fram ir en að i verið að ðan mráði við enn væru að arinnar nefndinni kið hana ykkt st am öfl- m stuðli skil- i. pi sam- eifbýli eð eðli- un bréfa- rirtæk- l hér á almenn- verði á ast ekki nu fyrir refni orfason r for- í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.