Morgunblaðið - 05.04.2005, Síða 29

Morgunblaðið - 05.04.2005, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 29 UMRÆÐAN Í SAMFYLKINGUNNI eign- uðumst við mörg nýtt heimili eftir að hafa verið hálfvegis heimilislaus og ráðvillt í stjórnmálum um hríð. Ég er stolt af því að hafa verið á stofn- fundi Samfylkingarinnar. Nú vill Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verða formaður Samfylking- arinnar. Ég minnist ekki þess að hafa séð eða heyrt af henni á stofnfundinum. Ég man heldur ekki eftir að hafa séð hana á fyrsta landsfundi Sam- fylkingarinnar sem markaði upphafið að þeim sterka viðsnún- ingi á gæfu flokksins sem er aðalsmerkið á formannstíma Össurar Skarphéðinssonar. Þar var hins vegar Össur með tillögur að pólitískri stefnumót- un sem lögðu grunninn að farsælum stórflokki með fjöldafylgi. Nú get ég Og ég man líka eftir því að hafa horft á Egil Helgason spyrja Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur að því í Silfrinu hvort hún væri í Samfylk- ingunni. Hún kom sér undan að láta bendla sig við Samfylkinguna og sagðist vera í Kvennalistanum! Hann var þó löngu komin sem deild í Samfylkinguna. Á þessum tíma var erfitt hjá Samfylkingunni. Vafalaust hefur það þótt pólitískt klókt að gefa sig ekki upp á hana meðan enn var ekki ljóst hvort hún myndi lifa eða deyja. Nú þegar vel gengur, og fylg- ið hefur rokið upp í 32–35% er auð- velt að stíga fram og segja einsog Ingibjörg: Nú get ég. Það þurfti sterk bein til þess að standast mótlætið sem Samfylkingin átti við að stríða um langt skeið. Þá sýndi Össur Skarphéðinsson vel úr hverju hann er gerður. Með ótrú- legri seiglu og mikilli lagni tókst honum að skapa það vinnulag og þann heimilisanda í flokknum, sem leiddi til þess að brátt heyrðu gamlir flokkadrættir sögunni til. Markviss vinnubrögð sköpuðu flokknum traust meðal almennings, enda hefur hann á að skipa úrvalsfólki um allt land. Seigla og lagni Össurar Það sem skipti sköpum að mínu mati var sá eiginleiki Össurar að gef- ast aldrei upp, æðrast ekki í stormi, og að vilja alltaf standa með sínu fólki, sinni fjölskyldu og sínu flokks- fólki. Þetta hefur aflað honum vin- áttu og trausts meðal virkra flokks- manna. Það voru kostir Össurar sem manneskju sem löðuðu mig persónu- lega til fylgis við flokkinn. Ég kynnt- ist hjartalagi hans um átta ára skeið á vettvangi Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna, en Össur hefur setið í stjórn styrkt- arsjóðs hjartveikra barna frá upphafi. Þar eins og annars staðar hafa hæfileikar hans til þess að laða fólk til samstarfs notið sín vel. Ég hugsaði með mér að flokkur sem hefði slík- um manni á að skipa sem forystumanni væri flokkur fyrir mig. Þess vegna fór ég nú á stofn- fund Samfylking- arinnar um árið. Og ég hef ekki séð eftir því. Undir forystu Össurar og í samstarfi hans við konur einsog Jó- hönnu Sigurðardóttur hefur Sam- fylkingin lagt mikla áherslu á kjör langveikra barna og foreldra þeirra. Ég, og við foreldrar í svipaðri stöðu og ég, bindum miklar vonir við flokk undir stjórn stjórnmálamanna eins- og þeirra sem ég veit af reynslu að hafa heitt og stórt hjarta. Það er dæmigert fyrir heim- ilismanninn Össur að honum tókst að skapa samstöðu innan flokksins um að búa Samfylkingunni glæsi- lega flokksmiðstöð á Hallveigarstíg 1 í Reykjavík, þar sem aðstaða er fyrir hendi til þess að efla flokks- starf og þjónustu við flokksfélög. Samfylkingin hefur þar eignast heimili sem býður upp á festu í flokksstarfi og mikla þróun- armöguleika á næstu misserum. Samfylkingin hefur verið á réttri leið undir forystu Össurar Skarp- héðinssonar og við skulum halda áfram á þeirri braut undir sömu for- ystu. Styðjum mann sem hefur sýnt í verki að hann hefur stórt og heitt hjarta. Nú getur Ingibjörg! Margrét Ragnars fjallar um formannskjör Samfylkingarinnar ’Það sem skipti sköpumað mínu mati var sá eig- inleiki Össurar að gefast aldrei upp, æðrast ekki í stormi, og að vilja alltaf standa með sínu fólki…‘ Margrét M. Ragnars Höfundur er formaður Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna. Blaðaukinn Vorboðinn 2005 fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 15. apríl og nú er tíminn til að auglýsa allt sem viðkemur garðinum: Garðáhöld | garðhönnun | hellulagnir | garðhúsgögn | gróður | gosbrunnar | trjárækt | skjólgler | sláttuvélar Auglýsendur, pantið fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 11. apríl. Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is Vorboðinn 2005 blaðauki með Morgunblaðinu MIKLIR árekstrar og átök hljóta að hafa verið á Landspítala –há- skólasjúkrahúsi þegar allmargir yf- irlæknar áræða að setja fram op- inbera kæru um stjórnunarhætti LSH. Settur forstjóri segir að stofnuninni sé vel stjórnað og neitar ógnarstjórn og að mönnum sé hótað upp- sögn þótt hið gagn- stæða sé vel þekkt. Læknar kvarta yfir skorti á faglegum for- sendum ráðninga! Forstjórinn hvetur lækna til að leita til dómstóla ef þeir ve- fengi ákvarðanir. Í flestum réttarríkjum væri það sjálfsögð leið, en læknum væri vissara að kynna sér reynslu mína af því kerfi. Árið 1976 leyfði ég mér sem starfandi sérfræðingur að sækja um stöðu yfirlæknis við núverandi LSH Fossvogi. Tveimur ár- um áður hafði ég kom- ið heim eftir tæplega 8 ára dvöl í Bandaríkj- unum þar af fimm og hálft ár við Yale- læknaháskólann, sem Bandaríkjamenn telja meðal sinna fremstu og komst þar að fyrst- ur útlendinga. Að námsdvöl lokinni bauðst mér starf sem sérfræðingur við Yale- háskólasjúkrahúsið og kennari við læknahá- skólann og vann sem slíkur síðasta eitt og hálft árið, með boð um áframhaldandi starf. Ég hafði lokið sér- fræðiprófum (fyrstur Íslendinga) og hafið vísindavinnu sem hefur skilað mörg hundruðum tilvitnana í vís- indaritum og fræðibókum, (af hóg- værð verð ég að viðurkenna að 2 sérfræðingar LSH og prófessor eru mér enn ofar!). Vandséð er hvað hefði verið hægt að gera betur innan þessa tímaramma. Við stöðuum- sóknina hafði ég einnig lokið bresk- um prófum að hluta. Þrátt fyrir þetta var ég með röð- um stöðunefndar talinn óhæfur og dæmdur úr leik, ugglaust til að ógna ekki þeim sem staðan var ætluð. Dómur stöðunefnda er varanlegur stimpill og taldi ég hann faglega kol- rangan og mjög neikvæðan m.t.t. framtíðarstarfa. Ég mótmælti dóm- nefndaráliti til stöðunefndar, stjórn- ar og eigenda spítalans, og Lækna- félagsins án nokkurs árangurs. Ég leitaði þá til dómstóla og tók mér launalaust leyfi og hvarf aftur til Yale, en var formlega rekinn frá Borgarspítalanum meðan ég var sérfræðingur og Assistant Profess- or við Yale-læknaháskólann, með boð þar um áframhaldandi starf og var að leita réttar míns fyrir íslensk- um dómstólum. Þetta hlýtur að vera með sögulegri brottrekstrum í at- vinnusögu réttarríkisins Íslands. Dómstólaleiðin var gagnlaus þrátt fyrir að bent væri á rang- færslur staðreynda í umsögn stöðu- nefndar og að röðun stæðist ekki al- þjóðlega faglega viðmiðun. Dómspekingarnir tóku engum rök- um og blessuðu yfir álit embætt- isbræðra sinna. Enginn læknir né stéttarfélagið vogaði að lyfta fingri mér stuðnings. Þegar hægt er reka einstakling á þennan hátt má vera augljóst að einstakir læknar leggja ekki í nein mót- mæli né kærur af minna tilefni. Árið 1982 fór ég í þriðja skiptið til starfa við Yale- háskólann, enn með boð um áframhaldandi starf, svo ljóst er að álit þeirrar stofnunar er ekki samhljóða hæfn- ismati íslenskra stöðu- nefnda og dómstóla. Læknar LSH geta sjálfum sér um kennt hvernig komið er. Meinið er dómnefnd- arkerfið sem er samofið Háskóla Íslands og á einn mann í stöðu- nefnd. Læknar hafa látið það viðgangast að kunningsskapur og pólitík fremur en fag- legar forsendur hafa oft ráðið niðurstöðu dómnefnda. Þeir hafa ekki hirt um að krefjast áfrýjunarleiða eins og er t.d. í hinni sænsku fyrirmynd núverandi starfsreglna, til að stuðla að áreiðanlegra verðleikamati. Hér á landi hefur þrátt fyrir mótmæli, dómstólaleiðir, leitunar til umboðsmanns Al- þingis aldrei verið hægt að hnekkja áliti dóm- nefnda hvort sem er innan heil- brigðiskerfisins eða Háskóla Ís- lands, þrátt fyrir augljósa hagræðingu eða rangfærslu stað- reynda. Dómnefndarálit eru því oft og tíðum faglega marklaus. Stjórnunar- vandi LSH Birgir Guðjónsson fjallar um stjónunarvanda Landspítala Birgir Guðjónsson ’Læknarkvarta yfir skorti á fagleg- um forsendum ráðninga! For- stjórinn hvetur lækna til að leita til dómstóla ef þeir vefengi ákvarðanir. Í flestum rétt- arríkjum væri það sjálfsögð leið, en læknum væri vissara að kynna sér reynslu mína af því kerfi. ‘ Höfundur er læknir. ❖ Opið virka daga 10-18 ❖ Laugardaga 10-16 Nýbýlavegi 12 Kópavogi s. 554 4433 Föt fyrir allar konur Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvalismáauglýsingar mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.