Morgunblaðið - 05.04.2005, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Helga SigríðurGísladóttir fædd-
ist í Reykjavík 12.
mars 1929. Hún lést
á heimili sínu 16.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Þorbjörg
Jónsdóttir, f. 1891, d.
1977, og Gísli Helga-
son, f. 1902, d. 1958.
Eftirlifandi systir
hennar er Ragnhild-
ur, f. 1932, gift Ol-
geiri Sigurðssyni.
Helga giftist Guð-
birni Árnasyni, f.
1920, d.1961, og eignuðust þau
fjóra syni. Þeir eru: 1) Árni,
fyrrverandi maki Ólafía Andr-
ésdóttir. Dætur þeirra eru Þor-
björg og Þorgerður. 2) Gísli,
maki Soffía Þorvaldsdóttir.
Dóttir Soffíu er Vala. 3) Viðar,
maki Guðný Lárusdóttir. Börn
þeirra eru Ingi-
björg, Gísli Þór og
Guðbjörg Lára. 4)
Þorbjörn, maki
Vigdís K. Pálsdótt-
ir. Sonur þeirra er
Brynjar. Þorbjörn
átti soninn Helga
Þormar áður.
Helga hóf sam-
búð með Ólafi Ósk-
arssyni 1986 og
bjó með honum
þar til hann lést
1995.
Helga vann ýmis
störf, við ræsting-
ar og umönnun aldraðra alla
sína tíð eftir að Guðbjörn lést,
meðal annars á Borgarspítala
og hjá Félagsþjónustu Reykja-
víkur.
Útför Helgu verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Elsku tengdamamma, mig lang-
ar til að þakka þér fyrir allt. Þú
varst svona ekta tengdó, það var
hægt að hlæja og gera grín að
engu, þú hafðir svo smitandi hlát-
ur, að þeir sem voru nálægt þegar
þú byrjaðir urðu að fara frá í smá-
tíma til að jafna sig. Þú varst svo
góð við öll barnabörnin þín og
annarra að það var aðdáunarvert
að heyra þig segja frá ef þú hafðir
verið í afmæli hjá einhverju
þeirra. Þar áttu þau góða ömmu
sem kannski endilega fór ekki
mikið í heimsóknir nema eitthvað
stæði til, enda varstu slæm í fót-
unum, og veigraðir þér við að
þurfa að ganga mikið. Síðastliðið
sumar fórum við að veiða með þig,
veiðin var góð. Þegar við sögðum
þér að nú ættir þú að draga einn
stóran inn sem hafði bitið á varstu
eins og lítill krakki, stóðst með
kengbogna stöng, og við réðum
ekki við okkur. Þá sagðir þú okkur
bara að vera róleg, þetta tæki allt
sinn tíma, og viti menn; fimm
punda urriði lá í valnum, og þú
svoleiðis skellihlæjandi. Þetta
gerði það að verkum að við feng-
um lítið að draga inn sjálf, og á
hverju föstudagskvöldi hringdir
þú og spurðir hvort við ættum
ekki að fara í Fiskilækjarvatnið,
en svo hét það, í fyrramálið – við
gætum verið langt fram á kvöld,
tækjum bara grillið með okkur –
og þær voru ófáar ferðirnar sem
við fórum síðastliðið sumar.
Reyndar varstu búin að plana
næsta sumar í veiði, og hafðir orð
á því að þú þyrftir að fá þér betri
stöng.
Elsku Ranka systir hennar hef-
ur misst mikið, þær voru svo sam-
rýndar; töluðust við á hverjum
degi og fóru saman að versla fyrir
helgina í hverri viku. Mikið verður
skrítið að fara ekki lengur í heim-
sókn með hundana, sem þú hafðir
svo gaman af. Ef ég ætti að nefna
eitthvað sem þú hafðir svo sann-
arlega gaman af, þá var það að
perla. Þú skilur eftir þig ógrynni
af alls konar hlutum, t.d. bjöllur,
dúka, lampa, servíettuhringi o.fl.
Allt voru þetta gullfallegir hlutir.
Hún væri fyrir löngu búin að biðja
mig um að hætta nú að skrifa
þetta, svona var hún nú lítillát og
ekki fór mikið fyrir henni.
Elsku amma, eins og ég kallaði
hana, við Þorbörn, Brynjar og
Helgi viljum þakka þér fyrir allt
sem þú gerðir fyrir og með okkur.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Þín tengdadóttir
Vigdís.
HELGA SIGRÍÐUR
GÍSLADÓTTIR
✝ Ívar Páll Ársæls-son fæddist á
Akureyri 1. júní
1986. Hann lést í bíl-
slysi 23. mars síðast-
liðinn. Foreldrar
hans eru Ársæll Al-
freðsson sjómaður, f.
22. nóvember 1961 á
Krossi í Berufjarðar-
hreppi í S-Múlasýslu,
og Erla Geirsdóttir,
verslunarmaður, f.
10. janúar 1961 á
Akranesi. Systkini
Ívars Páls eru Fjöln-
ir Örn, f. 27. maí
1983, og Karítas Ósk, f. 7. ágúst
1992. Foreldrar Ársæls eru Al-
freð Sigurbjörnsson, bóndi á
Krossi og Þingmúla í Skriðdal,
f. 22. apríl á Vopnafirði, d. 11.
júlí 1993, og Anna Jóhannsdótt-
ir, húsfreyja, f. 30. apríl 1924 á
Vopnafirði. Foreldrar Erlu eru
Geir Valdimarsson, húsasmiður,
f. 5. júní 1927 á Akranesi, og
Lóa Guðrún Gísla-
dóttir, fiskvinnslu-
kona, f. 29. maí
1934 í Naustakoti í
Vatnsleysustrand-
arhreppi.
Ívar Páll ólst
upp í Hrísey til
átta ára aldurs. Þá
flutti hann með
foreldrum sínum
að Hlíðarlandi á
Árskógsströnd.
Hann gekk í skóla í
Árskógi en kláraði
grunnskólanámið á
Dalvík. Að loknu
grunnskólanámi fór hann einn
vetur í framhaldsnám til Húsa-
víkur. Síðastliðið ár vann hann
við fiskverkun hjá Samherja á
Dalvík en hugði á frekara nám
við Verkmenntaskólann á Ak-
ureyri í haust.
Útför Ívars Páls var gerð frá
Stærra-Árskógskirkju laugar-
daginn 2. apríl.
Ástkært barnabarn okkar Ívar
Páll Ársælsson var kallaður brott
í blóma lífsins með engum fyr-
irvara og engum kveðjum.
Við megum okkar lítils elsku
vinur en viljum trúa því að brott-
för þinni fylgi ákveðinn tilgangur.
Þú gladdir okkur með heim-
sóknum þínum, með blíðunni, fal-
lega brosinu og blikinu í augun-
um.
Þú varst hlédrægur en tókst
fullan þátt í ærslafullum leik
frændsystkinanna þegar svo bar
undir. Stórt skarð er höggvið í
barnabarnahópinn og sorg okkar
ömmu og afa er mikil en í hjörtum
okkar lifir ljúf minning um fal-
legan, elskulegan og trygglyndan
dreng.
Óðum steðjar að sá dagur,
afmælið þitt kemur senn.
Lítill drengur, ljós og fagur
lífsins skilning öðlast senn.
Vildi ég að alltaf yrðir
við áhyggjurnar laus sem nú
en allt fer hér á eina veginn:
í átt til foldar mjakast þú.
(Vilhj. Vilhj.)
Með þessum fátæklegu orðum
kveðjum við þig, elsku vinur.
Hvíldu í friði.
Amma og afi
á Sandó.
Elsku Ívar, það var okkur
frændsystkinunum mikið áfall
þegar við heyrðum fréttirnar um
að þú hefðir lent í slysi og værir
dáinn. Hvernig getur það verið að
frændi sé farinn fyrir fullt og allt?
Okkur finnst það sárt og ekki
sanngjarnt en trúum því að Guð
hafi aðrar áætlanir fyrir þig, elsku
frændi.
Margar minningar eigum við frá
æsku okkar eins og heimsóknirnar
út í Hrísey og í Hlíðarland þar
sem margt var brallað. Þegar árin
liðu urðu heimsóknirnar færri en
alltaf fengum við fréttir af þér. Á
erfiðum tímum sem þessum ætlum
við ekki að einblína á sorgina
heldur minnast góðu stundanna
okkar saman. Þú lifir í hjörtum
okkar, elsku vinur og frændi.
Elsku Erla, Addi, Fjölnir og
Karítas, megi Guð styrkja ykkur
og hjálpa í gegnum þessa erfiðu
tíma.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Frændsystkinin á Akranesi,
Belinda, Berglind, Geir V.
og Hrafnhildur H.
ÍVAR PÁLL
ÁRSÆLSSON
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Móðir mín, tengdamóðir, amma og elskuleg systir okkar,
SIGURBORG RAKEL SIGURÐARDÓTTIR,
Grænuhlíð,
Reyðarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð, Eskifirði, fimmtudaginn 24. mars.
Jarðarförin fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju fimmtudaginn 7. apríl
kl. 14.00.
Arnór Baldvinsson, Susan Pichotta,
Laila Sigurborg Arnórsdóttir,
Guðný Sigurðardóttir og fjölskylda,
Fríða Á. Sigurðardóttir og fjölskylda,
Guðrún Sigurðardóttir og fjölskylda.
RANNVEIG TÓMASDÓTTIR,
Seljahlíð,
áður til heimilis á Bergþórugötu 4,
er látin.
Tómas Tómasson.
Systir okkar,
ÓLÖF ÓLAFSDÓTTIR
frá Suður-Vík,
lést laugardaginn 2. apríl.
Kveðjuathöfn verður frá Háteigskirkju föstu-
daginn 8. apríl kl. 13.00.
Jarðsett verður frá Víkurkirkju laugardaginn
9. apríl.
Matthildur Ólafsdóttir Valfells,
Ólafur Ásgeirsson,
Sigríður Ásgeirsdóttir,
Vigfús Ásgeirsson.
Móðir okkar,
SIGRÍÐUR SVEINSDÓTTIR
frá Galtalæk,
lést á dvalarheimilinu Lundi sunnudaginn 20. mars.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir til ykkar allra er auðsýnduð okkur hlýhug og vináttu.
Guð blessi ykkur öll.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Útför föðursystur minnar,
ÞÓRU ÞORKELSDÓTTUR,
elliheimilinu Grund,
fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 6. apríl
kl. 15.00.
Þorkell Jónsson.
Totus Tuus
(Allur þinn - einkunnarorð páfa)
Með sorg í huga en jafnframt þakklæti
fyrir trúa þjónustu hans minnumst við
JÓHANNESAR PÁLS II PÁFA.
Hann leiddi kaþólsku kirkjuna frá 2. október
1978 til 2. apríl 2005 sem staðgengill Jesú
Krists á jörðu.
Við munum minnast hans í heilagri sálumessu í dómkirkju Krists
konungs í Landakoti miðvikudaginn 6. apríl nk. kl. 18.00.
Allir þeir sem vilja kveðja hinn heilaga föður eru hjartanlega velkomnir
til þeirrar athafnar.
Reykjavík, 3. apríl 2005,
Jóhannes Gijsen Reykjavíkurbiskup.