Morgunblaðið - 05.04.2005, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 05.04.2005, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 33 MINNINGAR ✝ Fjóla Tryggva-dóttir fæddist á Þórshöfn á Langa- nesi 10. maí 1933. Hún lést á heimili sínu á Austurbrún 4 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Elín- borg Þorsteinsdóttir frá Djúpalæk á Langanesströnd, f. 6. jan. 1906, d. 4. apríl 1941, og Tryggvi Hallsson, verslunar- maður á Þórshöfn, f. 24. des. 1904, d. 5. sept. 1988. Stjúpmóð- ir, Hildur Salína Árnadóttir, f. 11. nóv. 1919, d. 15. des. 1985. Alsystir mars 1954, og eiga þau þrjú börn og fimm barnabörn. 4) Árni Hallur, f. 12. júlí 1951. Fyrri maður Fjólu var Pétur Pét- ursson flugstjóri, d. 1960, seinni maður hennar John Flemming Hansen, f. 8. nóv 1935, d. 9. mars 1991. Þegar móðir Fjólu lést fór hún í fóstur til Ástu Vigfúsdóttur og Þor- valds Pálssonar á Þórshöfn. 16 ára fór hún til Reykjavíkur í vist til El- ínar og Bergsveins Ólafssonar augnlæknis. Fjóla vann hin ýmsu störf og var m.a. auglýsingarstjóri hjá vikublaðinu Fálkanum. Um árabil starfaði hún hjá Flugleiðum í Reykjavík, á Kanaríeyjum og í Glasgow í Skotlandi. Einnig starfaði hún hjá ferða- skrifstofunum Lönd og leiðir og Ferðavali. Útför Fjólu fer fram frá Áskirkju í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Fjólu er Hrafnhildur, f. 31. okt. 1935, maki Þorgrímur Þorsteins- son, f. 3. jan. 1927, og eiga þau þrjú börn og átta barnabörn. Hálf- systkin, samfeðra: 1) Sigurður, f. 11. feb. 1928, d. 18. júní 1988, maki Bryndís Guðjóns- dóttir, f. 14. okt. 1934, og eiga þau sjö börn, 22 barnabörn og þrjú barnabarnabörn. 2) Kristín, f. 29. okt. 1946, maki Þorsteinn Hákonarson, f. 29. mars 1947. 3) Ævar Karl, f. 9. júlí 1948, maki Björg Leósdóttir, f. 7. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna. Margar úr gleymsku rakna. Svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta. Húmskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta, vinur þó félli frá. Góða minningu að geyma, gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höfundur ók.) Elsku systir, ég mun sakna þín. Guð geymi þig. Hrafnhildur. Það varð snöggt um Fjólu, einn daginn eins og venjulega, svo svaraði hún ekki síma, knúð var dyra. Fjóla var farin. Fjóla bjó ein eftir lát eig- inmanns síns fyrir nokkrum árum. Hún var ung þegar hún missti móður sína úr berklum og var komið til upp- eldis hjá fóstru sinni, Astríði Vigfús- dóttur og manni hennar Þorvaldi Pálssyni á Þórshöfn. Ung fór Fjóla í vist til Bergsveins Jóhannessonar augnlæknis. Síðar giftist hún Pétri Péturssyni flugmanni. Þau skildu. Fjóla kemur úr dreifbýli á Íslandi og er fljótlega komin í hóp þeirra sem voru í kringum flug og ferðamennsku. Var meðal annars í Glasgow og á Kanaríeyjum um árabil. Kunningja- og vinahópurinn var frumkvöðlar í flugi og ferðamennsku, sem á þeim árum var dálítið annar hópur en al- gengast var á landinu um þá daga. Það er þetta upphaflega alþjóðlega fólk, sem varð svo vegna hraðvaxandi samskipta við útlönd. Á þeim vett- vangi var Fjóla bæði liðtæk og vinsæl. Það var því eins og með slíkt fólk, það er að koma eða fara. Það verður svo- lítið öðruvísi en fólk sem samsamar sig þrengra umhverfi. Ég kynntist Fjólu mágkonu við stopular heim- sóknir fyrst, en síðar, þegar hún fór að vinna mest hérlendis, urðu kynnin meiri, farið saman í ferðir og heim- sóknir eins og gengur. Það þótti mér sérstakt í fari hennar, hversu nærri sömu skaphöfn hún hafði og Tryggvi heitinn faðir hennar, það var eins og tiltæki, viðmið og orðalag hefði erfst beint. Það var um margt sérstök skaphöfn, tilbúin til vinnu og þjónustu strax og alltaf, en samt haldin mjög ríku sjálfstæði. Vinna og verk var annað en persónuleg kynni. Seintek- in, en afar trygglynd þegar vinátta var komin á. Ég hefi tekið eftir því, að fólk man hana eftir því hvort um verk og vinnu var að ræða, eða vináttu. Og það er ekki eins. Það er með mikilli eftirsjá að ég kveð Fjólu mágkonu mína og vona að hún hafi aðra og betri vist. Þorsteinn Hákonarson. Elsku Fjólan mín. Ekki grunaði mig að ég væri að hitta þig í síðasta sinn 13. desember sl. þegar við mamma heimsóttum þig í Austur- brún. Þú varst svo kát og hress þótt þú gætir varla hlegið með okkur því þú varst svo eftir þig eftir aðgerðina. Ég þakka allar gjafirnar, allar af- mæliskveðjurnar og öll fallegu af- mæliskortin til mín og barnanna minna í gegnum árin. Þú gleymdir aldrei afmælisdögunum okkar. Ég man líka þegar þú heimsóttir mig til London og ég þig til Glasgow hvað var gaman hjá okkur og ég man líka hveru stolt ég var að eiga svona víðförla og skemmtilega frænku. Nú ertu farin á betri stað, elsku frænka mín. Hvíl í friði. Þín Elínborg. Dökkur skuggi á daginn fellur, dimmir yfir landsbyggðina. Köldum hljómi klukkan gellur. Kveðjustund er milli vina. Fallinn dómur æðri anda, aðstandendur setur hljóða. Kunningjarnir klökkir standa, komið er skarð í hópinn góða. Gangan með þér æviárin. Okkur líður seint úr minni. Við sem felldum tregatárin, trúum varla brottför þinni. Þína leið til ljóssins bjarta lýsir drottins verndar kraftur. Með kærleiksorð í klökku hjarta. kveðjumst núna, sjáumst aftur. (Hákon Aðalst.) Kæra mágkona, far þú í friði. Þorgrímur (Doddi). Ég vil í fáum orðum minnast góðr- ar vinkonu sem lést á heimili sínu eft- ir stutt veikindi. Við Fjóla kynntumst ungar að árum og áttum saman margar góðar stundir. Góðar minn- ingar hrannast upp þegar litið er yfir farinn veg. Ekki síst er það glaðlyndi Fjólu, hjálpsemi og velvilji í garð ann- arra sem stendur upp úr, hún átti létt með að rétta öðrum hjálparhönd meðan heilsan leyfði en hún var jafn- framt stolt og sjálfstæð kona. Ég þakka henni allar góðar stundir um leið og ég og fjölskylda mín, Guð- mundur og synir okkar, Friðrik, Pét- ur og Snorri, vottum Hrafnhildi og fjölskyldu Fjólu innilega samúð. Katrín S. Briem. Elsku besta Fjóla frænka. Nú ert þú farin frá okkur og farin svo langt. Þú yfirgafst okkur alltof snemma. Við áttum eftir að tala svo mikið saman og þú áttir eftir að koma hingað til Nor- egs og sjá nýja heimilið okkar hérna í Ósló. Ég er þakklát fyrir að hafa hitt þig í febrúar sl. þegar við vorum á Ís- landi og átt góðar stundir með þér þá. Ég leit alltaf upp til þín, þú varst svo veraldarvön frænka. Búin að ferðast svo mikið um heiminn, þekkt- ir mikið af fólki, talaðir mörg tungu- mál, vissir svo mikið og kenndir mér svo mikið. Ég hef fetað í fótspor þín að mörgu leyti og það varst án efa þú sem kveiktir í forvitni minni á landa- fræði, ferðalögum, tungumálum og ólíkum menningarheimum og núna í vor verð ég ferðamálafræðingur. Ég man eftir öllum gjöfunum sem þú sendir mér frá útlöndum þegar ég var lítil stelpa. Yfirleitt alltaf eitthvað skrýtið og sérstakt sem ég fékk, en rosalega spennandi. Að koma heim til þín var alltaf eins og að koma inn í heim ævintýranna. Allir hlutirnir sem þú hefur komið með heim frá ferða- lögum þínum um allan heim, appels- ínugulu ljósakrónurnar, myndasvefn- sokkarnir sem þú lést mig alltaf sofa í þegar ég kom í heimsókn, dúkkan með andlitin tvö, litla lambið og svona gæti ég lengi talið. Heilt ævintýri fyr- ir litla stelpu sem ólst upp á hjara ver- aldar. Dyrnar þínar stóðu alltaf opnar fyrir mér og þú varst alltaf góð við mig, Ástrós og Snorra. Ég var heppin að hafa þig þegar ég var í Fósturskól- anum og svo fæddist Snorri minn á afmælisdaginn þinn. Við vorum alltaf duglegar að fara í „lunch“ og prófa nýja veitingastaði, taka svo einn rúnt niður Laugaveginn og um Ægisíðuna. Ég á eftir að sakna þín mikið. Alltaf mundir þú eftir öllum afmæl- isdögum og eru þau orðin mörg póst- kortin og afmæliskortin frá þér. Þau hef ég geymt vel og þau mun ég setja í fjársjóðskistuna mína ásamt ótelj- andi minningum um þig og okkar yndislegu samverustundir. Takk, elsku besta frænka, fyrir allt. Hvíl í friði. Kveðja. Anna Guðrún. Ó, faðir, gjör mig lítið ljós um lífs míns stutta skeið, til hjálpar hverjum hal og drós, sem hefur villst af leið. Ó, faðir, gjör mig styrkan staf að styðja hvern sem þarf, uns allt það pund, sem Guð mér gaf, ég gef sem bróðurarf. (Þýð. M. Joch.) Kveðja. Snorri og Ástrós. Elsku Fjóla frænka mín. Ég trúi því varla að þú sért farin, en ég veit að þér líður betur núna. Ég vil þakka þér fyrir þær fáu en góðu stundir sem við áttum saman. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Hvíl í friði, elsku frænka Sólveig. FJÓLA TRYGGVADÓTTIR Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.250 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA JÓNSDÓTTIR frá Sumarliðabæ, lést aðfaranótt fimmtudagsins 31. mars. Útförin verður gerð frá Bústaðakirkju föstu- daginn 8. apríl kl. 11.00 Erna Steinsdóttir, Þórhallur Steinsson, Sigríður Sigurðardóttir, Jónína Steinsdóttir, Stefán Eiríksson, Guðrún Steinsdóttir, Ágúst Guðmundsson, Guðjón Steinsson, Sigríður Marteinsdóttir, Guðlaug Steinsdóttir, Þorleifur M. Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær bróðir okkar, GUNNAR SÍMONARSON, sem lést á Hrafnistu í Reykjavík aðfaranótt þriðjudagsins 29. mars, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 6. apríl kl. 15. Svava Símonardóttir Guttadaro, Njáll Símonarson og fjölskyldur. Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, ERLENDUR SIGMUNDSSON fyrrum prófastur og biskupsritari, andaðist föstudaginn 1. apríl. Margrét Erlendsdóttir, Helgi Hafliðason, Álfhildur Erlendsdóttir, Eymundur Runólfsson. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVERRIR OLSEN útfararstjóri, Furugrund 48, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 3. apríl. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 11. apríl kl. 13.00. Stefanía Vallý Sverrisdóttir, Geirmundur Kristinsson, Ólöf María Olsen, Sigurður Erlendsson, Sigríður Olsen, Einar Gíslason, Sverrir Örn Olsen, Rúnar Þór Sverrisson, Margrét Ingibergsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg frænka okkar og vinkona, KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR fyrrv. matráðskona í Vatnaskógi, síðast til heimilis í Seljahlíð, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju fimmtu- daginn 7. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á sumarbúðir KFUM í Vatnaskógi eða Kristniboðssmbandið. Frændsystkini og vinir. Ástkær eiginkona mín, móðir, systir og mág- kona, DIDDA McCLINTOCK (Sigríður Árnadóttir), lést á heimili sínu í Nixa í Missouri miðviku- daginn 30. mars. Jack A. McClintock, Tom McClintock, Susan MacKelvie, Hilmar Sigurðsson, Esther Sigurðardóttir, Örn Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.