Morgunblaðið - 05.04.2005, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Svana Rósa-munda Guð-
mundsdóttir fæddist í
Garðshúsum á Skaga-
strönd 19. október
1937 og ólst upp í
Hafnarfirði. Hún lést
á líknardeild LSH 25.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Sigurunn Kon-
ráðsdóttir, f. 22.
ágúst 1917, d. 18. des.
1997, og Guðmundur
Guðmundsson, f. 14.
september 1916, d.
12. júlí 1978. Svana
var elst fimm systkina. Bræður
hennar eru Gunnar Ingi, Þórir
Konráð Línberg og Hafsteinn Már
Guðmundssynir en látinn er Einir
Guðmundsson elsti bróðirinn.
Fósturfaðir Svönu var Guðni
Bjarnason.
Svana eignaðist með Gísla Al-
freðssyni, f. 24. janúar 1933, dótt-
urina Aldísi Elfu, f. 24. apríl 1955,
gift Thomas Richardson, f. 28.
ágúst 1963. Frá árinu 1956 til 1961
var Svana gift Birgi Gunnarssyni,
f. 22. apríl 1927, d. 13. desember
1975, og búsett í Reykjavík. Þau
eignuðust tvo syni. Þeir eru: Gunn-
ar Hrafn, f. 21. febrúar 1957,
kvæntur Hildi Halldóru Karlsdótt-
ur, f. 31. ágúst 1959, og Guðni Páll,
f. 20. maí 1958,
kvæntur Jenný
Níelsdóttur, f. 16.
janúar 1958. Svana
var gift Richard
Dean Thompson frá
1961 til 1974 og bjó
þá í Bandaríkjunum.
Þau eignuðust fjögur
börn. Þau eru: Sonja
Elín, f. 22. maí 1962,
gift Sigþóri Valdi-
mari Elíassyni, f. 17.
apríl 1962; Richard
Eric, f. 21. júlí 1968,
Elsa María, f. 24.
mars 1970, gift Jóni
Skúlasyni, f. 28. janúar 1961; og Ír-
is Edda, f. 14. október 1972, gift
Ómari Inga Eggertssyni, f. 19.
september 1973. Afkomendur
Svönu búa á Íslandi nema Elfa í
Bandaríkjunum. Barnabörn Svönu
eru fimmtán talsins.
Svana var listfeng, málaði
myndir, sótti leiklistarskóla Ævars
Kvaran, og vann við söng og leik-
list, einnig vann hún við hjúkrun,
lögreglu og við umönnun barna og
aldraðra. Hún fluttist til Íslands
aftur árið 1979 og bjó lengst af eft-
ir það á Íslandi bæði á höfuðborg-
arsvæðinu og á Vestfjörðum.
Útför Svönu verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 11.
Ó, lít til vor Drottinn í himnanna hæð,
himneski faðir, þú sérð vora smæð,
börnin þín öll sem að biðja þig hér
blessandi réttu þeim kraftinn frá þér.
Ó, láttu okkur skína þitt lifandi ljós,
sem lífsanda græðir, hvert tré, hverja rós,
gefðu okkur visku, gefðu okkur náð,
glaðir við felum þér starf vort og ráð.
Ó, gleymdu okkur ekki í harmanna hríð
er við heyjum við margs konar freist-
ingastríð,
lýs okkur leið þá er liggur til þín,
þar lifandi auðlegð og hamingjan skín.
Nú krjúpum við Kristur við krossinn þinn,
þar kærleiki í sálirnar streymir inn
gef blindum sálunum sólarsýn
svo sjáum við blessandi náðarverk þín.
(Sigurunn Konráðsdóttir.)
Elsku ættingjar og vinir, við vottum
ykkur okkar dýpstu samúð.
Soffía Heiða, Kristín Halla,
Haddý Anna og Eva Dögg.
Elsku amma. Það var mikil til-
hlökkun á sumrin að keyra með
mömmu og pabba vestur og fá að
gista í prinsessurúminu þínu. Þú
hafðir alltaf frá mörgu að segja og
áttir svo marga spennandi hluti sem
gaman var að skoða. Og mikið var ég
hreykin að eiga ömmu sem var lista-
maður. Allar sögurnar sem þú bjóst
til, teikningarnar þínar og heilu
veggirnir á leikskólanum voru lista-
verk eftir þig. Þú söngst líka svo vel,
það var oft fjör hjá okkur þegar við
fórum í bíltúr og við tvær sungum
saman af hjartans lyst. Það er dýr-
mætt að eiga þessar minningar um
þig.
Ég veit að þú varst orðin mjög
veik og ég veit líka að nú líður þér vel
hjá Guði og öllum englunum.
Elsku amma, hjartans þakkir fyrir
stundirnar sem við áttum saman.
Þín
Birgitta Svava.
Elsku amma Svana. Fyrsta minn-
ingin mín um þig er frá því að þú
varst að passa mig og Elfar á Kapla-
skjólsveginum. Við vorum lasin og
þú varst hjá okkur. Ég man sérstak-
lega eftir því þegar þú varst að passa
okkur og við báðum um Nesquik. Þá
gafstu okkur alltaf einni skeið meira
af kakódufti en við máttum vanalega
fá. Þannig varstu líka í einu og öllu,
gafst alltaf aukalega. Allir sem
þekktu þig munu búa að því allt sitt
líf. Fyrir það er ég þakklát.
Amma, þegar ég syng, þá er það
fyrir þig.
Blessuð sé minning þín
Kveðja.
Daðey Arnborg Sigþórsdóttir.
Elsku amma Svana, við söknum
þín mikið. Okkur þykir leitt að þú
sért dáin, þú varst alltaf svo góð við
okkur. Þú komst oft til okkar og það
var alltaf skemmtilegt. Þú komst
okkur oft skemmtilega á óvart eins
og þegar þú komst heim á afmælinu
okkar og varst með stóran rauðrönd-
óttan hatt sem þú keyptir í útlöndum
og dróst upp úr honum pakka handa
okkur öllum. Þú söngst mikið með
okkur og fyrir okkur og teiknaðir
margar fallegar myndir eða last fyrir
okkur og sagðir okkur skemmtilegar
sögur. Okkur finnst leitt að þú skyld-
ir vera svona mikið veik en það var
gott og gaman að þú skyldir geta
verið hjá okkur á jólunum. Það er
gott að þér líður ekki lengur illa og
að þú sért orðin engill hjá mömmu
þinni og pabba, hjá Guði sem passar
ykkur.
Ástarkveðjur.
Hafdís Katla og
Heiðdís Birta.
Elsku Svana. Þakka þér fyrir allt
sem þú hefur verið okkur. Minningin
um þig mun lifa í lífi okkar alla tíð.
Þín verður sársaknað af okkur öllum.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þótt svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomma tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku Svana mín, við þökkum þér
samfylgdina og allt það góða sem þú
gafst af þér. Við biðjum algóðan Guð
að styrkja börnin þín og bræður og
fjölskyldur þeirra og aðra ástvini.
Guð geymi þig.
Þínar frænkur
Sigrún Björgúlfsdóttir,
Margrét Björgúlfsdóttir.
Látin er í Reykjavík Svana Guð-
mundsdóttir, og verður hún kvödd
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, enda
var hún fædd Hafnfirðingur.
Við þekktumst ekki mikið, en samt
á ég henni mikið að þakka, þar sem
hún er móðir míns góða tengdasonar
Gunnars Hrafns og þá einnig amma
minna yndislegu dótturdætra, sem
ávallt hafa stráð gleði í kring um sig.
Um ætt og lífshlaup Svönu eru
aðrir fróðari mér en ég vil aðeins
þakka fyrir mín kynni og biðja henni
Guðsblessunar og góðrar heimkomu
í annan og betri heim.
Í Guðs friði.
Helga Ingvarsdóttir.
SVANA R.
GUÐMUNDSDÓTTIR
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HÁKON BJARNASON,
Sólheimum 27,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtu-
daginn 7. apríl kl. 15.00.
Matthildur Sigurðardóttir,
Bjarni Hákonarson,
Hörður Hákonarson, Margrét A. Frederiksen,
Sigurður Jónsson,
Hákon Helgi Bjarnason,
Helga Björt Bjarnadóttir,
Elín Björg Harðardóttir, Jón Þór Ólason,
Auður Sigurðardóttir,
Atli Sigurðsson,
Tryggvi Garðar Jónsson.
Helluhrauni 10, 220 Hfj.
Sími 565 2566
www.englasteinar.is
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Englasteinar
Fallegir steinar
á verði
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÁSTA STEINUNN GISSURARDÓTTIR
frá Litlu-Hildisey, Landeyjum,
áður til heimilis á
Tunguvegi 8,
Njarðvík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Garðvangi mið-
vikudaginn 30. mars.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 7. apríl kl. 14.00.
Steinar Bjarnason, Sólveig Kristinsdóttir,
Nicolai Gissur Bjarnason, Svanhildur Einarsdóttir,
Hjördís Margrét Bjarnadóttir, Helgi Jóhannsson,
Óskar Bjarnason, Guðbjörg Þóra Hjaltadóttir,
Skúli Bjarnason, Emilía Dröfn Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ Kristín Þórarins-dóttir fæddist 15.
september 1961. Hún
lést af slysförum 21.
febrúar síðastliðinn.
Móðir hennar er
Gerður Kristdórs-
dóttir, f. 2. jan. 1940,
og faðir hennar er
Þórarinn Ólafsson, f.
27.10. 1937. Alsystk-
ini hennar eru: 1)
Þyri Ólöf Þórarins-
dóttir, f. 8. nóvember
1959. Sonur hennar
er Gunnar Viðar
Gunnarsson, f. 11.
nóvember 1986. 2) Viðar Þórarins-
on, f. 25. júlí 1966. Dóttir hans er
Árný Sara, f. 7. júlí
1996.
Kristín ólst upp
hjá móður sinni á Ak-
ureyri til 17 ára ald-
urs Þá fluttist hún til
Noregs og kynntist
þar manni sem hún
giftist, Charles
Drake, og fluttust
þau til Los Angeles.
Hún stundaði nám
og lærði kvikmynda-
og leikhúsförðun.
Með náminu vann
hún þjónustu- og
veitingastörf.
Útför Kristínar var gerð frá
Garðakirkju 16. mars.
Svo leggur þú á höfin blá og breið
á burt frá mér og óskalöndum þínum,
og stjarna hver, sem lýsir þína leið,
er lítill gneisti, er hrökk af strengjum mínum.
Þú skilur eftir minningar hjá mér
um marga gleðistund frá liðnum árum,
og alltaf mun ég fagna og þjást með þér
og þú skalt vera mín – í söng og tárum.
Eitt orð, eitt ljóð, eitt kvein frá kvaldri sál
er kveðja mín. Ég veit þú fyrirgefur.
En seinna gef ég minningunum mál,
á meðan allt á himni og jörðu sefur.
Þá flýg ég yfir djúpin draumablá,
í dimmum skógum sál mín spor þín rekur.
Þú gafst mér alla gleði, sem ég á.
Þú gafst mér sorg, sem enginn frá mér tekur.
Svo kveð ég þig. En er þú minnist mín,
þá mundu, að ég þakka liðna daga.
Við framtíð mína fléttast örlög þín.
Að fótum þínum krýpur öll mín saga.
Og leggðu svo á höfin blá og breið. –
Þó blási kalt, og dagar verði að árum,
þá veit ég að þú villtist rétta leið
og verður mín – í bæn, í söng og tárum.
(Davíð Stef.)
Ég elska þig að eilífu.
Þín mamma.
Gerður Kristdórsdóttir.
KRISTÍN
ÞÓRARINSDÓTTIR
SIGURSTEINN G.
MELSTEÐ
✝ Sigursteinn G.Melsteð fæddist í
Reykjavík 22. ágúst
1938. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans 18. febrúar
síðastliðinn og var
jarðsunginn frá Hey-
dalakirkju 5. mars.
öllum vandamálum
sem komu upp, og hann
tók á með rósemi og yf-
irvegun. Ætíð traustur
og öruggur, kemur upp
í hugann, og mikill hag-
leiksmaður. Alltaf var
stutt í brosið hjá Sig-
ursteini og lundin ætíð
létt. Tónlistaráhugi
Sigursteins var eftir-
tektarverður og er það
mín upplifun að hann
hefði gjarnan viljað
sinna þessu áhugamáli
meira en hann gerði.
Minnisstæð er sú
ánægja sem tónlistin veitti honum.
Harmonikan var alltaf með í ferða-
Minn kæri frændi
Sigursteinn G. Melsteð
er fallinn frá, langt fyr-
ir aldur fram. Ég minn-
ist Sigursteins sem
trausts manns sem var
okkur góð fyrirmynd,
hvert sem litið er. Hann var mikill
útivistarmaður sem hafði lausnir á
lögum hans, svo auðvelt væri að
grípa til hennar þegar þurfa þætti.
Hann gat spilað á harmonikuna
langt fram á nætur án þess að taka
sér nokkra hvíld. Slík var ánægja
hans af því að spila á hljóðfærið.
Þrátt fyrir að veikindi hans hafi ver-
ið komin á alvarlegt stig mætti hann
á fjölskylduhátíð á Þingvöllum sl.
sumar og tók þátt í henni eins og
kraftar hans leyfðu og auðvitað var
nikkan þanin undir fjöldasöng.
Ég er þakklátur fyrir þær stundir
sem ég hef átt með Sigursteini og
minnist þeirra með hlýjum hug.
Hönnu, Hrafni, Helgu, Ómari og
fjölskyldum þeirra færi ég og fjöl-
skylda mín innilegustu samúðar-
kveðjur.
Símon H. Ívarsson.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu
og hlýhug við andlát og útför föður okkar,
HÖGNA SIGURÐSSONAR
frá Sólheimakoti.
Börnin.