Morgunblaðið - 05.04.2005, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 05.04.2005, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ingibjörg Adolfs-dóttir fæddist í Þýskalandi 21. júní 1928. Hún lést á heimili sínu á Aust- urbrún 4 25. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjón- in Adolf Bischoff, f. 11. maí 1900, og Dora Bischoff, f. 24. febrúar 1903. Þau eru bæði látin. Bræð- ur Ingibjargar eru: 1) Adolf Bischoff, f. 25. mars 1927, lést hann í seinni heims- styrjöldinni árið 1945. 2) Fried- rich Bischoff, f. 20. nóvember 1933, ókvæntur og barnlaus. 3) Helmut Bischoff, f. 24. apríl 1941. Hann er kvæntur Anínu Bischoff, f. 5. maí 1945, og eiga þau einn son, Steffen Bischoff, f. 24. maí 1969. Ingibjörg giftist Eiríki Karli Eiríkssyni, f. 10. mars 1906, d. 1.desember 1989. Foreldrar hans voru Eiríkur Eiríksson, f. 17. júní 1881, og Margrét Jónsdóttir, f. 13. október 1881. Þau eru bæði látin. Ingibjörg og Eiríkur Karl eignuð- ust saman einn son, Friðrik Eiríksson, f. 27. ágúst 1959. Hann er kvæntur Halldóru Sigurjónsdóttur, f. 8. febrúar 1961. Hennar foreldrar eru Sigurjón Ólafs- son, f. 25. júlí 1919, d. 9. ágúst 1970, og Bára Kjartansdóttir, f. 17. nóvember 1926. Börn Friðriks og Halldóru eru: 1) Sandra Friðriks- dóttir, f. 30. apríl 1985, unnusti hennar er Magnús Már Þorvarð- arson, f. 16. september 1984. 2) Arnar Friðriksson, f. 28. ágúst 1992. Ingibjörg starfaði sem skrif- stofumaður í Þýskalandi, en er hún flutti til Íslands vann hún ým- is störf svo sem við ræstingar og bakstur til viðbótar því að halda fjölskyldu sinni heimili. Útför Ingibjargar verður gerð frá Fella– og Hólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Elsku tengdamamma, mig langar til að kveðja þig með nokkrum orð- um, það voru mjög sterk tengsl á milli okkar og örugglega nokkuð sérstök. Við kynntumst fyrir 28 árum þegar við Friðrik sonur þinn felldum hugi saman. Á öllum þessum árum gerðir þú allt sem þú gast fyrir okkur og barna- börnin þín tvö sem voru líf þitt og yndi. Elsku tengdó, takk fyrir allt og allt. Megi Guð og Kalli afi gæta þín þar sem þú ert núna. Þín tengdadóttir Halldóra. Elsku Inga amma. Þú fórst svo fljótt að við erum enn að átta okkur á þessu. Það er erfitt að hugsa til þess að við fáum ekki að njóta meiri tíma með þér. En elsku amma, þú lifir svo sann- arlega í minningunni því við gerðum svo margt skemmtilegt saman. Þú varst okkur alltaf svo góð og vildir allt fyrir okkur gera, við gátum alltaf leitað til þín. Takk fyrir allt, elsku Inga amma, við eigum eftir að sakna þín. Guð geymi þig og varðveiti. Þín barnabörn Sandra og Arnar. INGIBJÖRG ADOLFSDÓTTIR Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Undirskrift Minningargreinahöf- undar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningar- greinar Elskuleg amma mín hefur nú lokið tilveru sinni hér í heimi. Hún var ein af þeim nítján einstaklingum sem hefðu orðið 100 ára á þessu ári. Hún náði því ekki en svo mörgu öðru í staðinn. Mest af öllu að vera einstök fyrirmynd í stöðugri forvitni um til- veruna. Sumir telja það vera neist- ann að listrænni sköpun sem birtist hjá henni í stöðugum heilabrotum um líf og tilveru fólks. Elsku amma mín, takk fyrir allt. Ég get ekki talið upp allt sem það gaf mér að ferðast samhliða þér í gegn- GUÐBJÖRG R. BERGSVEINS- DÓTTIR ✝ Guðbjörg Rann-veig Bergsveins- dóttir fæddist í Ara- tungu í Staðardal í Steingrímsfirði 10. september 1905. Hún lést á öldrunar- deild Landspítala í Fossvogi 1. febrúar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Bústaðakirkju 14. febrúar. um hluta lífs míns. Eins og ég sagði við þig á banabeðinum, það er svo margt. Þér líkaði vel við lífsspekinga og fólk sem leitaði svara við spurningum um til- veruna. Nú hefur þú fengið svarið við spurn- ingunni stóru, nú veistu. Þú hefur lagt af stað í ferðina stóru, ég fylgdi eins langt og ég gat. Það voru svo marg- ir komnir hinum megin frá til að taka á móti þér. Það gladdi mig að heyra þig telja upp nöfnin á þeim sem þú sást og biðu þín. Þó varstu ekki á því að flýta þér yfirum. Lífið og það að lifa lífinu var svo stór þáttur af þér. Það var ekki uppgjöf, það var ekki annað en líf og þátttaka til enda- loka. Takk fyrir allan þann tíma sem þú stóðst við hlið mér með stuðning, alltaf varstu þar, þó lönd væru á milli. Þú kunnir að meta léttleika hvers- dagsleikans og hverfulleika tilver- unnar. Það er svo margt að undrast í tilverunni og þú hættir aldrei að undrast sköpunarverkið, það er kúnst sem sumir gleyma. Þú hafðir þennan eiginleika sem gaf þér óend- anleg viðfangsefni. Ég á eftir að sakna þín mikið, svona er eigingirnin. Ég hef notið samvista við þig lengi en aldrei feng- ið nóg, samt vissi ég að tíminn var að styttast og nú rann tíminn upp. Tímabili er lokið hér og önnur að hefjast. Ég hlakka til. Skilaðu kveðju, þið voruð besta fólkið sem ég gat haft sem afa og ömmu. Ég mun minnast ykkar beggja með hlýju það sem eftir er míns tíma. Blessi þig og afa minn. Ykkar Svanur. ✝ Hannes Alfons-son fæddist á Garðsstöðum í Ögur- hreppi í N-Ísafjarðar- sýslu 10. ágúst 1927. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 26. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Alfons Hannesson, f. í Stykkishólmi 3. ágúst 1900, d. 13. maí 1977, og Hansína Kristín Hansdóttir úr Ögur- hreppi, f. 5. nóvem- ber 1901, d. 16. sept- ember 1970. Hannes var elstur sjö systkina, en hin eru Benedikt Hans, búsettur í Reykjavík, Jóhann Þórir, búsettur í Kópavogi, Garðar, bú- settur í Kópavogi, Gunnhildur Soffía, búsett í Reykjavík, Ásta Sig- ríður, búsett í Reykjavík, og Aðal- heiður Kristín, búsett á Ferjunesi í Villingaholtshreppi í Flóa. Hannes kvæntist 26. nóv. 1955 eftirlifandi konu sinni Jóhönnu Halldóru Kristjánsdóttur, f. 26. maí 1931, frá Efri Múla í Saurbæ í Dala- sýslu, og hefðu þau átt gullbrúð- b) Torfi Friðrik, f. 10.2. 1994, þau eru búsett á Skagaströnd. 4) Jó- hanna Benný, leikskólakennari, f. 10.9. 1967, gift Elfari Eiðssyni, þeirra synir eru: a) Sævar, f. 29.3. 1991; b) Daði Snær, f. 16.8. 1992; c) Eiður Smári, f. 4.6. 1996; d) Birkir, f: 19.11. 1997. Þau eru búsett á Ak- ureyri. Hannes tók gagnfræðapróf frá Héraðsskólanum á Laugarvatni 1947 og fiskimannapróf frá sjó- mannaskólanum í Reykjavík 1952. Þegar börnin fóru að koma þótti Hannesi ófært að vera mikið frá fjölskyldu sinni og hóf blikksmíða- nám utan skóla 1958–’62 frá Iðn- skólanum í Reykjavík. Verklegt iðnnám stundaði hann í Blikksmiðj- unni Vogi í Kópavogi og vann síðan þar til 1973. Hannes hefur ávallt sinnt fé- lagsstörfum. Hann sat m.a. í stjórn Félags blikksmiða í nokkur ár, þar af formaður í átta ár og var honum veitt gullmerki félagsins fyrir störf í þágu þess. Íþrótta- og æskulýðs- málin áttu einnig hug hans og var hann m.a. í stjórn knattspyrnu- deildar UMF Breiðabliks í Kópa- vogi. 2. júní 1993 var hann í þakk- lætisskyni sæmdur nafnbótinni „Silfurbliki“. Síðustu árin starfaði hann aðallega með eldri borgurum. Útför Hannesar verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. kaup í haust. Foreldr- ar Halldóru voru Kristján Ó. Jóhanns- son bóndi og kona hans Valgerður Hann- esdóttir, þau eru bæði látin. Hannes og Hall- dóra eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Alf- ons Hannesson, húsa- málari, f. 16.9. 1955, kvæntur Bonitu Louise Hannesson, þau búa í Kanada, þeirra börn eru: a) Norma Linna, f. 2.4. 1987; b) Hannes Godfrey, f. 12.1. 1990, áður átti Alfons soninn Ólaf Þór, f. 22.1. 1976. 2) Valgerður Hannes- dóttir, leikskólastjóri á Akureyri, f. 18.8. 1956, gift Haraldi Helgasyni, þeirra börn eru: a) Theódór Sölvi, f. 17.10. 1989; b) Hulda, f. 10.3. 1993, áður átti Valgerður dótturina Hall- dóru, f. 4.4. 1986, en hún eignaðist litla dóttur, Emelíu Valey, 28. febr- úar sl. 3) Svandís Hannesdóttir, grunnskólaleiðbeinandi og nemi, f. 11.3. 1960, gift Elíasi Birni Árna- syni. Fósturbörn þeirra eru: a) Sól- rún Ágústa Ingibjörg, f. 9.8. 1992; Elsku afi minn, þú varst mér svo góður og mér þótti svo vænt um þig og ég sakna þín mjög. Þegar ég var yngri og bjó styttra frá þér en núna fengum við krakkarnir oft að koma með þér í sund. Þú leyfðir okkur allt- af að vera með þér ef við vildum. Þú hrósaðir mér alltaf fyrir það sem ég var að gera, t.d. við tónlistarnámið sem ég er í. Oft var fjör í sumarbústaðnum þínum þegar öll fjölskyldan var þar saman komin. Það verður skrítið að koma í Hamraborgina eða sumarbú- staðinn þegar þú ert ekki þar, en ég á góðar minningar um þig til að ylja mér við. Ég þakka þér fyrir góðar stundir. Hulda Haraldsdóttir. Á lífsleiðinni hittir maður menn sem gaman er að hafa átt samleið með, Hannes Alfonsson var slíkur maður. Í fjölda ára var hann virkur í félagsstarfi Ungmennafélagsins Breiðabliks þar sem hann vann öt- ullega í fjölmörgum deildum félags- ins. Hannes á því þátt í því öfluga uppeldis- og íþróttastarfi sem skilað hefur svo góðum árangri fyrir sam- félagið í Kópavogi. Í þessu starfi studdi kona hans Halldóra hann með ráðum og dáð. Síðustu árin var Hannes virkur þátttakandi í fimleikaflokki eldri borgara í Breiðabliki og hópi félaga sem mætti hvern laugardag til þess að taka þátt í getraunum. Starfsemi Breiðabliks hefur notið góðs af get- raunastarfi flokksins auk þess sem félagar hafa verið boðnir og búnir að aðstoða félagið við ýmis aðkallandi störf og var Hannes þar engin und- antekning. Þrátt fyrir heilsuleysi síð- ustu árin hefur hann sýnt fádæma dugnað og verið hrókur alls fagnaðar í starfi fimleika- og getraunahópsins. Nú fyrir páska kvaddi hann okkur fé- lagana hress í anda eins og endranær. Um páskana fengu þau Halldóra son sinn og afastrák frá Kanada og ákvað fjölskyldan að sameinast fyrir norðan þar sem dætur þeirra búa. Hannes andaðist í faðmi fjölskyldu sinnar laugardaginn fyrir páska. Við félagar Hannesar kveðjum hann með þakklæti fyrir samstarfið og sendum konu hans, börnum og fjölskyldu inni- legar samúðarkveðjur. Félagar í fimleika- og getraunahóp eldri Blika. Félagi okkar, Hannes Alfonsson, er fallinn frá. Hann var einn af okkar eldri og reyndari félagsmálamönnum og tók lengi þátt í félagsstarfinu. Það er sjónarsviptir að Hannesi því hann var skemmtilegur karakter og hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og mál- efnum. Hann var einkum virkur innan knattspyrnudeildar og var meðal ann- ars einn af upphafsmönnum get- raunastarfsins. Þá var ekki tölvu- tæknin til að létta mönnum starfið heldur var þetta hrein handavinna. Það voru ófáar vinnustundirnar sem fóru hjá Hannesi í að dreifa getrauna- miðum, ná í útfyllta seðla og koma þeim til skila. En eins og allt sem Hannes gerði, gerði hann þetta vel og gaf getraunastarfið knattspyrnu- deildinni góðar tekjur. Síðar tók Hannes sæti í stjórn knattspyrnu- deildar en lengst af sat hann í stjórn Styrktarmannafélags deildarinnar og skilaði þar góðu starfi. Hannes var duglegur að mæta á aðalfundi knattspyrnudeildar og þeir voru fáir fundirnir sem hann ekki tók til máls á. Segja má að menn hafi fengið hálfgerð fráhvarfsein- kenni þegar Hannes hætti að mæta þar. En það var ekki nóg með að Hannes tæki þátt í félagsstarfi Breiðabliks heldur var hann einnig mikill áhugamaður um bridge og spilaði fyrir UMSK á nokkrum landsmótum. Þar að auki stóð Hann- es að því að stofna tennis- og bad- mintondeild innan Breiðabliks og starfaði sú deild í nokkur ár á meðan Hannes veitti henni forstöðu. Hannes tók sér frí frá Blikum í nokkurn tíma en tók upp þráðinn aft- ur fyrir nokkrum árum þegar hann fór að mæta með hinum frábæra heldrimannahópi Blika í leikfimi í Smáranum og í getraunirnar á laug- ardagsmorgnum. Þar hafði Hannes ýmislegt til málanna að leggja þó svo að heilsan og krafturinn hafi ekki verið eins mikill og áður fyrr. Fyrir hið heilladrjúga starf sem Hannes lagði á sig í þágu félagsins sæmdi að- alstjórn hann nafnbótinni Silfurbliki árið 1993. Breiðablik sendir ástvin- um Hannesar samúðarkveðjur og það er víst að hans verður saknað á Blikasvæðinu. Aðalstjórn Breiðabliks. HANNES ALFONSSON Í dag kveðjum við Svanhvíti Jónsdóttur eða Svönu í Gróf. Ég sá hana fyrst fyrir um aldarfjórðungi þegar ég tengdist fjölskyldu hennar. Það var gott að koma til hennar enda var þar gest- kvæmt, margir sem komu við og fengu kaffi og meðlæti. Hún var ættrækin og fylgdist vel með sínu fólki. Eins og hjá svo mörgum af henn- ar kynslóð var lífsbaráttan stundum SVANHVÍT JÓNÍNA JÓNSDÓTTIR ✝ Svanhvít JónínaJónsdóttir fædd- ist í Hafnarfirði 29. október 1915. Hún lést á Sólvangi í Hafnarfirði á föstu- daginn langa, 25. mars síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fríkirkj- unni í Hafnarfirði 4. apríl. erfið en hún hafði létta lund og var yfirleitt já- kvæð og glaðleg. Hún var ekki fyrir að kvarta og kveina og krafðist ekki mikils, var hógvær og jafnvel hlédræg en naut sín vel innan um stórfjöl- skylduna og tók þátt í söng og gleði sem þar ríkti jafnan þegar hún kom saman. Þó man ég að þegar rætt var um kjör verkafólks eða þeirra sem minna máttu sín gat kerla hvesst sig. Svana var orðin fullorðin þegar hún kynntist manni sínum Bjarna Oddssyni sem lést fyrir 13 árum. Þótt hún eignaðist ekki börn má segja að hún hafi átt fjölda barna- barna því í augum margra systk- inabarna hennar og þeirra barna einnig var hún sem amma. Þessu ömmuhlutverki skilaði Svana ein- staklega vel, fylgdi eiginlega alveg forskriftinni. Börnin hændust að henni og treystu henni. Hún var ró- leg og hlý en gat verið glettin og hressileg og tekið þátt í ærslum þeirra og leikjum. Hún huggaði og gaf klapp á koll og laumaði mola í munn eftir því sem við átti. Margir eru Svönu þakklátir fyrir þessar stundir. Eftir að Bjarni lést bjó Svana í sambýli við fjölskyldu bróðurdóttur sinnar og nöfnu. Ég held að allir hafi notið góðs af þeirri sambúð. Aðdáunarvert var hve vel þau Svana yngri og fjölskylda hugsuðu um frænku sína, tóku hana með í ferðalög og útilegur meðan heilsan leyfði. Heilsu Svönu hrakaði síðustu ár- in enda aldurinn orðinn hár. Ég trúi því að hún hafi verið sátt við að fá hvíldina, hún hafi jafnvel verið henni kærkomin. Sú hugsun er okk- ur huggun sem kveðjum hana nú. Við fjölskyldan hér á Króknum þökkum Svönu samfylgdina og fyrir allt sem hún hefur fyrir okkur gert og vottum aðstandendum samúð okkar. Örn Ragnarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.