Morgunblaðið - 05.04.2005, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.04.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 37 MINNINGAR Atvinnuauglýsingar Afgreiðsla/lagermaður Matvælafyrirtæki í Hafnarfirði óskar eftir að ráða vanan mann í afgreiðslu og lagerstörf. Lyftarapróf og tölvukunnátta skilyrði. Upplýsingar í síma 530 7700. Gæsluleikvöllur Mosfellsbæjar Starfsfólk óskast Starfsfólk óskasttil starfa við gæsluleikvöll- inn frá 1. maí til 31. ágúst.Um er að ræða stöðu forstöðumanns gæsluleikvallar og stöðu aðstoðarstarfsmanns. Kjör er skv. samningum Stamos og Launanefndar sveit- arfélaganna. Gæsluleikvöllurinn er fyrir börn á aldrinum 20 mánaða til 6 ára. Á gæsluleikvellinum gefst börnum tækifæri á að leika sér í öruggu og skemmtilegu um- hverfi undir eftirliti starfsfólks. Umsóknum má skila í Þjónustuver Mos- fellsbæjar, Kjarna, 1. hæð. Nánari upplýsingar gefurundirrituð í síma5256700 Leikskólafulltrúi Raðauglýsingar 569 1111 Nauðungarsala Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnar- stræti 107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Austurvegur 25, eignarhl. Hrísey (215-6246), þingl. eig. Anton Már Steinarsson, gerðarbeiðandi Kreditkort hf., föstudaginn 8. apríl 2005 kl. 10:00. Bakkasíða 9, Akureyri (214-5051), þingl. eig. Jóhann Grímur Hauks- son, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 8. apríl 2005 kl. 10:00. Brekkugata 12, íb. 01-0001, Akureyri (214-5432), þingl. eig. Guðmund- ur Stefánsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Ríkisútvarpið, föstudaginn 8. apríl 2005 kl. 10:00. Eyrarvegur 1, íb. 01-0101, Akureyri (214-6021), þingl. eig. Bryndís Jóhannesdóttir og Hörður Sigurharðarson, gerðarbeiðandi Spari- sjóður Norðlendinga, föstudaginn 8. apríl 2005 kl. 10:00. Frostagata 6b, iðnaðarhús 01-0101, Akureyri (214-6468), þingl. eig. Björn Berg Gunnarsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 8. apríl 2005 kl. 10:00. Granaskjól 1, hesthús norðurhl., Akureyri (215-2229), þingl. eig. Valgarður Óli Jónasson, gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, föstu- daginn 8. apríl 2005 kl. 10:00. Grund, Grýtubakkahreppi, (153041), þingl. eig. Guðrún F. Helgadóttir, gerðarbeiðandi Grýtubakkahreppur, föstudaginn 8. apríl 2005 kl. 10:00. Hafnarstræti 18, 01-0101, Akureyri (214-6857), þingl. eig. Guðmundur Þorgilsson, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 8. apríl 2005 kl. 10:00. Hvammshlíð 3, íb. 01-0201, Akureyri (214-7959), þingl. eig. Auður Árnadóttir, gerðarbeiðandi Lánasjóður landbúnaðarins, föstudaginn 8. apríl 2005 kl. 10:00. Karlsrauðatorg 22, Dalvíkurbyggð (215-5036), þingl. eig. Susana Turago Araojo, gerðarbeiðandi Dalvíkurbyggð, föstudaginn 8. apríl 2005 kl. 10:00. Torfufell land íb. 01-0101, Eyjafjarðarsveit (215-9765), þingl. eig. Rósa Hallgrímsdóttir og Hallgrímur Hallgrímsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Lífeyrissjóður sjómanna, föstudaginn 8. apríl 2005 kl. 10:00. Urðargil 16, Akureyri (fastanr. (224-8513), þingl. eig. Gunnar Berg Gunnarsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 8. apríl 2005 kl. 10:00. Vaðlafelli, Svalbarðsstrandarhreppi (216-0458), þingl. eig. Jóhannes Halldórsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., föstudaginn 8. apríl 2005 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 4. apríl 2005. Harpa Ævarrsdóttir, ftr. Uppboð Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins í Gránugötu 4—6, Siglufirði, mánudaginn 11. apríl 2005 kl. 13:50 á eftirfarandi eign: Hólavegur 4, fastanr. 213-0415, þingl. eig. Ómar Geirsson, gerðar- beiðandi Íbúðalánasjóður. Sýslumaðurinn á Siglufirði, 1. apríl 2005. Guðgeir Eyjólfsson. Tilboð/Útboð ÚTBOÐ Verkfræðistofan Línuhönnun hf., f.h. Húsfélagsins Hvammabraut 2-16, óskar eftir tilboðum í viðhald og endurbætur utanhúss á Hvammabraut 2-16 í Reykjavík. Verkið felst í hefðbundnum steypu- og gluggaviðgerðum, staðbundnum viðgerðum á þaki og þéttidúk á svölum, sem og endurmálun utanhúss. Verkinu er skipt upp í tvo áfanga, sem verða framkvæmdir sumarið 2005 og sumarið 2006. Áfangi nr. 1: Viðgerðir á bakhlið og gafli. Áfangi nr. 2: Viðgerðir á framhlið og gafli. Helstu magntölur eru: Múrviðgerðir á flötum 65 m² Viðgerðir á ryðpunktum 250 stk. Endurnýjun á þéttilistum faga 130 m Þétting milli karms og steypu 120 m Endurnýjun dúks á svölum 350 m² Endurnýjun þéttingar undir áfellum á þaki 350 m Endurmálun glugga 4500 m Endurmálun útveggja 3370 m² Endurmálun þaks 1740 m² Endurmálun flata 3350 m² Útboðsgögn verða afhent gegn 10.000,- kr. skilatryggingu á verkfræðistofunni Línuhönnun hf. Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 14. apríl 2005, kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Suðurlandsbraut 4A - 108 Reykjavík Sími: 585 1500 - Fax: 585 1501 www.lh.is - lh@lh.is 13078 Hótel Valhöll, Þingvöllum Rekstur tímabilið 2005-2010 Ríkiskaup f.h. forsætisráðuneytisins leitar hér með eftir áhugasömum og fjárhagslega traustum aðila til viðræðu um að taka að sér rekstur Hótels Valhallar á Þingvöllum tímabilið maí 2005 til loka september 2010. Rekstrarskilmálar liggja frammi í afgreiðslu Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík. Áhugasamir aðilar leggi inn nöfn ásamt upp- lýsingum um fjárhagslega og faglega getu til Ríkiskaupa, eigi síðar en mánudaginn 18. apríl nk. Áhugasömum aðilum gefst kostur á að kynna sér ástand fasteignarinnar þriðju- daginn 12. apríl nk. kl. 14-16. Félagslíf I.O.O.F. Rb. 4  154458-8½ I*  HLÍN 6005040519 VI  Hamar 6005040519 I  FJÖLNIR 6005040519 III  EDDA 6005040519 I Mín kæra vinkona. Þegar ég sit og rita þessi kveðjuorð til þín koma minningarnar um okkar samveru skýrt upp í hugann og mér finnst þú sitja hér við hlið mér og hlæja eins og við gerðum svo oft í Bústaðahverfinu. Skýrastir eru þó endurfundir okkar þegar ég kom aftur og aftur úr Vest- mannaeyjum, vertíðarbarnið sem flakkaði á milli skóla. Ef ég hefði ekki átt svona góða vini þegar ég kom til ERNA SIGURÐARDÓTTIR ✝ Erna Sigurðar-dóttir fæddist í Reykjavík 26. sept- ember 1948. Hún lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi við Hringbraut 30. mars síðastliðinn og var hún jarðsungin frá Fossvogskirkju 4. apríl. baka, sem alltaf biðu með opinn faðminn, þá hefði mín æska verið öðruvísi. Úr herberginu mínu gátum við horft heim til þín og fylgst með hvenær pabbi þinn kom úr vinnunni og systkini þín kæmu heim. Þið voruð fjöl- skylda sem allir horfðu til með aðdáun, sam- staða ykkar og dugnað- ur að halda heimili án móður var aðdáunar- verður. Okkur leyfðist kannski ýmislegt á Bústaðaveginum þegar enginn var heima en það var skemmtilegur tími. Við vorum alltaf að grínast og létum engan trufla okk- ur við fíflaganginn. Við hneyksluðum marga þegar við gengum niður Laugaveginn eins og Bakkabræður með annan fótinn í rennusteininum og hinn á gangstéttinni og átum heila franskbrauðslengju á leiðinni. Eða þegar við mættum í afmæli til Hall- dóru vinkonu með heilu ljóðabálkana af frumsömdum kveðskap um ýmis- legt skondið og skemmtilegt, allavega fannst okkur þetta allt svo skemmti- legt. Svo tók alvara lífsins við og við sát- um grafalvarlegar í kennslustundum í Réttó, en samt var hvert tækifæri notað til að stríða kennurunum eða bregða á leik. Það er bannað að rifja upp margt af því sem við gerðum, en samt vorum við ágætar stelpur og stóðum okkur þokkalega í leik og starfi. Það er líka mikils vert að geta rifjað upp vinskap sem staðið hefur óslitið í fimmtíu ár. Þegar við vorum komnar með fjölskyldur og eignuð- umst börn var samt fundinn grund- völlur til að halda sambandinu og þá í gegnum okkar góða saumaklúbb sem enn er vettvangur sterkrar vináttu. Í gegnum öll þessi ár höfum við fundið okkur tilefni til að hittast. Fyrst gerð- um við handavinnu, síðan var farið að staga í sokka og gera við saumsprett- ur, nú gerum við ekkert í saumaklúbb nema það sem er skemmtilegt, förum í bíó eða í leikhús, á kaffihús eða höld- um glæsilegar veislur heima hjá hver annarri. Eitt sem var alltaf til staðar var hlátur og kátína og þar áttir þú svo sannarlega stóran þátt. Alveg fram á það síðasta í þínum veikindum varstu að grínast og léttleikinn var yf- ir þér til hinstu stundar. Það eru margar minningar sem við eigum úr árlegum sumarbústaðaferð- um, úr Hrísey, frá Þingvöllum, úr Þrastaskógi eða Stokkseyri. Við ætlum að vera duglegar að halda áfram að hittast og hlæja í saumaklúbb og þú verður að vera með okkur þar, Erna mín, þú munt fylgjast með öllu frá þeim stað sem þú hefur besta útsýni af öllum. Nú sitjið þið Hugrún saman og brallið eitthvað skemmtilegt. Við í saumaklúbbnum biðjum góð- an Guð að styrkja Jón og börnin þín og barnabörnin, sem áttu skemmti- legustu og bestu ömmu sem hugsast getur. Þín vinkona Hildur. Mér var mikið brugðið þegar ég opnaði Morgunblaðið hinn 1. apríl síð- astliðinn og sá að Erna Sigurðardótt- ir, fyrrverandi þjónustufulltrúi minn hjá Íslandsbanka, var látin. Ég hafði ekki hugmynd um veikindi hennar. Það var með smátrega að ég gekk inn í bankann á Kirkjusandi til að eignast þjónustufulltrúa sem gæti hjálpað mér með fjármálin mín. Mér fannst erfitt að hugsa það til enda að einhver ókunnugur væri að vasast í mínum fjármálum. Þetta var árið 2002. Ég var svo heppin að setjast hjá Ernu minni og strax tókst með okkur góður vinskapur og fullur trúnaður. Hún var alltaf boðin og búin að að- stoða, alveg sama hvað það var, og það er henni að þakka að fjármál mín eru í eins góðum farvegi og raun ber vitni. Eftir að hún hætti sem þjón- ustufulltrúi hjá bankanum fékk ég reyndar annan sem er ekki síðri. Það er greinilegt að Íslandsbanki ræður afbragðsfólk til starfa. Það er með miklum trega sem ég kveð vinkonu mína Ernu og þakka henni allt sem hún gerði fyrir mig. Fjölskyldu hennar votta ég mína dýpstu samúð í þeirra miklu sorg. Guð varðveiti minningu frábærrar konu. Helga Möller.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.