Morgunblaðið - 05.04.2005, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 43
TILKYNNING
um sölu á hlutabréfum íslenska ríkisins
í Landssíma Íslands hf.
Sala á eignarhlut ríkisins verður háð eftirfarandi skilyrðum:
a) Að enginn einn einstakur aðili, skyldir eða tengdir aðilar, eignist stærri hlut í Símanum, eða í félagi sem stofnað er til kaupa á hlut ríkisins í Símanum, en 45%,
beint eða óbeint, fram að skráningu félagsins á Aðallista í Kauphöll.
b) Að tiltekinn hluti keyptra hlutabréfa og ekki minna en 30% af heildarhlutafé félagsins verði af hálfu kaupanda boðinn almenningi og öðrum fjárfestum til kaups
fyrir árslok 2007, og sala á hlutum í félaginu til annarra eigi sér ekki stað fyrr en að lokinni slíkri sölu.
c) Að Síminn verði skráður á Aðallista Kauphallar hér á landi að uppfylltum skilyrðum Kauphallarinnar samhliða sölu til almennings og annarra fjárfesta, og inn-
lausnarrétti verði ekki beitt gagnvart núverandi hluthöfum í Símanum (1,233%) fram að skráningu félagsins á Aðallista Kauphallar.
d) Að kaupandi fari ekki með eignaraðild, beina eða óbeina, í fyrirtækjum í samkeppni við Símann hér á landi.
Athygli er vakin á því að hér er ekki um almennt útboð að ræða samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti nr. 33/2003.
Söluhlutur
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu, f.h. fjármálaráðherra, hyggst selja allan eignarhlut ríkisins í Landssíma Íslands hf. (Símanum), alls að
nafnverði 6.949.732.496 kr., í einu lagi til eins hóps kjölfestufjárfesta. Um er að ræða 98,767666% af útgefnu heildarhlutafé í félaginu.
Skil á óbindandi tilboðum.
Þeir aðilar sem áhuga hafa á að koma til álita sem kaupendur eignarhlutar íslenska ríkisins í Landssíma Íslands hf. skulu skila inn tilboðum
til Morgan Stanley fyrir kl. 16.00 föstudaginn 6. maí 2005.
Nöfn tilboðsgjafa verða kynnt opinberlega að tilboðsfresti liðnum og verða óskir um nafnleynd ekki virtar.
Aðferðafræði við sölu
Allir áhugasamir aðilar, sem hafa til þess getu, nægjanlega reynslu og fjárhagsleg-
an styrk til að ljúka kaupum, koma til greina sem kaupendur. Upplýsingar um gang
söluferlisins verða gefnar út með reglulegu millibili, en eðli máls samkvæmt verða
ákveðnar upplýsingar varðandi söluferlið bundnar trúnaði, sem og til að viðhalda
forsendum til samkeppni. Stefnt er að því að ljúka söluferlinu í júlí nk. Fram-
kvæmdanefnd um einkavæðingu áskilur sér rétt til þess að hafna öllum tilboðum.
Ráðherranefnd um einkavæðingu
tekur ákvörðun um við hvaða aðila verður samið, að fengnum tillögum fram-
kvæmdanefndar um einkavæðingu. Við mat á tilboðum verður meðal annars horft
til verðs, fjárhagslegs styrks og lýsingar á fjármögnun, reynslu af rekstri fyrirtækja,
hugmynda og framtíðarsýn varðandi rekstur Símans, starfsmenn fyrirtækisins og
þjónustu í þéttbýli og dreifbýli næstu fimm árin, og annarra viðeigandi þátta.
Kynningargögn
Áhugasamir bjóðendur geta óskað eftir kynningargögnum með því að senda
umsjónaraðila útboðsins, Morgan Stanley Ltd. í Lundúnum, skriflegt erindi
þess efnis. Nánari upplýsingar er jafnframt unnt að nálgast hjá umsjónaraðila.
Erindi til umsjónaraðila útboðsins skulu merkt:
Morgan Stanley Ltd.
European Media & Communications Group
att. Bertrand Kan
25 Cabot Square, Canary Wharf
London E14 4QA
UK.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Postulínsmálning kl. 13,
vinnustofa og jóga kl. 9, línudans kl. 11,
baðþjónusta fyrir hádegi alla daga.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handavinna
kl. 9–16.30. Leikfimi kl. 9. Boccia kl.
9.30. Smíði/útskurður kl. 13–16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, hárgreiðsla, vefnaður,
leikfimi, línudans, boccía, fótaaðgerð.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og dag-
blöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin, kl. 10–11 sam-
verustund, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 14–16
félagsvist, kl. 14.30–15.30 Kaffi.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Staf-
ganga kl. 9, leiðbeinandi Halldór Hreins-
son. Skák kl. 13. Á miðvikudag ganga
Göngu–Hrólfar frá Ásgarði Glæisbæ kl.
10.
Félag kennara á eftirlaunum | Bridge í
KÍ-húsi kl. 13 og tölvustarf í Ármúla-
skóla kl. 16.20 í stofu 24.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
„Heimabrugg“. Vertíðarlok Leshóps
FEBK þriðjudag 5. apríl kl. 20. 14 eldri
borgarar lesa eigin ljóð og laust mál.
Guðmundur Magnússon leikur eigið lag
við ljóð Heiðar Gestsdóttir. Gestur verð-
ur sr. Hjálmar Jónsson, einn af þekktari
hagyrðingum landsins.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Vatnsleikfimi í Mýrinni kl. 9.10, inni–golf
á sama stað kl. 11.30. Í Kirkjuhvoli er
málun kl. 9.30, karlaleikfimi og búta-
saumur kl.13. Leshringur bókasafnsins
kl. 10.30. Opið hús í safnaðarheimili á
vegum kirkjunnar kl. 13 og kóræfing
FEBG á samastað kl. 17.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofa opinn. Kl. 10.30 létt ganga
um nágrennið. Frá hádegi spilasalur op-
inn. Á morgun kl. 10.30 gamlir leikir og
dansar. Allar uppl. á staðnum í síma
575 7720 og www.gerduberg.is.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun,
glerskurður og hárgreiðsla. Kl. 10
boccia. Kl. 11 leikfimi. Kl. 12 hádeg-
ismatur. Kl. 12.15 Bónus. Kl. 13 myndlist.
Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi frá kl. 9,
Leikfimi í Bjarkarhúsinu kl. 11:30, Saum-
ar og bridge kl. 13.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–13 kortagerð o.fl. hjá Sigrúnu,
boccia kl. 9.30–10.30, bankaþjónusta kl.
9.45, helgistund kl. 13.30 í umsjón séra
Ólafs Jóhannssonar. Böðun virka daga
fyrir hádegi. Fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll-
um opið. Betri stofa og listasmiðja 9–16.
Handverk og tréskurður. Leikfimi kl. 10.
Bókabíll 14.15–15. Bónus kl. 12.40. Hár-
greiðslustofa 568 3139. Fótaaðgerð-
arstofa 897 9801. Skráning i framsögn
og þæfingu í apríl og maí. Uppl. s.
568 3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Bingó í Fjöln-
issal kl. 14:00 miðvikudag.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 myndlist, smiði,
kl.9–16.30 opin vinnustofa, kl. 10 boccia,
kl. 13 postulínsmálning, kl. 14 leikfimi.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborg-
arsvæðinu | Bingó í kvöld kl. 19:30 í fé-
lagsheimilinu Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handavinna,
kl. 9.15–16 postulínsmálun, kl 10.15–11.45
enska, kl 11.45–12.45 hádegisverður, kl
13–16 bútasaumur, kl. 13–16 frjáls spil, kl.
13– 14.30 leshringur, kl. 14.30–15.45
kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, handmennt almenn, hárgreiðsla
kl. 9, morgunstund og fótsnyrting kl.
9.30, leikfimi kl. 10, Félagsvist kl. 14.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl. 9.
Áskirkja | Opið hús milli kl. 10 og 14 í
dag, kaffi og spjall. Bænastund kl. 12.
Boðið upp á léttan hádegisverð. Allir
velkomnir.
Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta
kl. 18.30 alla þriðjudaga.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl:11:15.
Léttur málsverður, helgistund í umsjá
Kjartans Sigurjónssonar organista.
Samvera, kaffi. 10–12 ára starf KFUM&K
kl. 17:00–18:15, á neðri hæð. Bænastund
kl. 17:30. Alfa hátíð kl. 20:00. www.
digraneskirkja.is.
Fella- og Hólakirkja | Opið hús fyrir
fullorðna á þriðjudögum kl. 13–16. Spil-
að, upplestur, kaffi, helgistund í lokin.
Strákastarf, 3.–7. bekkur, kl. 16.30–
17.30.
Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli, Ví-
dalínskirkju, á þriðjudögum kl. 13 til 16.
Við spilum lomber, vist og bridge. Röbb-
um saman og njótum þess að eiga sam-
félag við aðra. Kaffi og meðlæti kl.
14:30. Helgistund í kirkjunni kl. 16:00.
Akstur fyrir þá sem vilja, uppl.sími:
895 0169. Allir velkomnir.
Grafarvogskirkja | „Opið hús fyrir eldri
borgara, kl. 13:30–16. Helgistund,
handavinna, spil og spjall. Kaffiveitingar
og alltaf eitthvað gott með kaffinu.
Kirkjukrakkar fyrir 7–9 ára í Rimaskóla
kl. 17:30–18:30, Æskulýðsfélag Graf-
arvogskirkju kl. 19:30, fyrir 8. bekk.
Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur presta
er hvern þriðjudag í Hjallakirkju kl. 9.15–
11 í umsjá sr. Sigurjóns Árna Eyjólfs-
sonar, héraðsprests. Bæna- og kyrrð-
arstundir kl. 18.
KFUM og KFUK | AD KFUM fundur
fimmtudagskvöld kl. 20 á Holtavegi 28.
Athugið breytt fundarefni „Upphaf
píetisma á Íslandi“. Guðmundur Ingi
Leifsson sér um efnið. Hugleiðingu hef-
ur sr. Ragnar Gunnarsson. Kaffi. Allir
karlmenn velkomnir.
Kópavogskirkja | Bænastund í kirkjunni
þriðjudaginn 5. apríl kl. 12:10.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58
miðvikudagskvöld kl. 20. „Ákalla Drott-
in.“ Ræðumaður er Jóhannes Ólafsson.
Nýtt frá Eþíópíu. Kaffi. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 16:00 TTT (5.–7.
bekkur) Kl. 19:45 Trúfræðsla. Tveir hóp-
ar í boði: a. Sorgarhópur. b. Íhugun og
umræður um guðspjall næsta sunnu-
dags. Kl. 20:30 Kvöldsöngur í kirkjunni.
12 sporahópar koma saman í kvöld-
söngnum og halda svo áfram sinni
vinnu á meðan aðrir setjast í kaffispjall.
BÓKAÚTGÁFAN
Salka og heilsu-
miðstöðin Maður lif-
andi hafa ákveðið að
bjóða Barböru
Berger og Tim Ray
aftur til Íslands, en
þau héldu fyr-
irlestur hér í fyrra
þar sem færri kom-
ust að en vildu. Á
miðvikudag og
fimmtudag kl.
20.00–23.00 munu
þau halda fyr-
irlestur sem ber yf-
irskriftina 4 leiðir til
hamingju. Fund-
arstaður er Maður
lifandi, Borgartúni
24.
Við viljum öll
vera hamingjusöm
en oftar en ekki er
leiðin vandrötuð.
Getur það verið
vegna þess að við vitum ekki
hvað raunveruleg hamingja felur
í sér? Á fyrirlestrinum verður
kennd einföld og markviss að-
ferð til þess að lifa hamingjuríku
lífi. Við þurfum aðeins 4 leiðir til
að ná settu marki og þær eru
fólgnar í hugleiðslu, manngæsku,
umhyggju fyrir öðrum og að ná
stjórn á huganum, segir Berger.
Útskýrt verður af hverju og
hvernig við getum notað þessar
4 leiðir til þess að verða ham-
ingjusamari og lifa lífinu eftir
okkar höfði.
„Bækur Barböru hafa heillað
Íslendinga jafnt og aðra en
grundvallarhugsunin í þeim er
sú að við séum það sem við
hugsum og að við getum þjálfað
hugann líkt og við þjálfum lík-
amann. Þess vegna sé nauðsyn-
legt að gera sér grein fyrir
hvernig við tölum við okkar innri
mann og velja úr hvaða hugsanir
gera okkur gott og hjálpa okkur
að ná settu marki. Skyndibit-
arnir eru aðgengilegar bækur
fyrir önnum kafið fólk sem ekki
hefur tíma til að lesa lang-
dregnar og fræðilegar pæl-
ingar,“ segir í kynningu frá
Sölku.
Aðgangseyrir er 3.900 kr.
Berger og Ray
með fyrirlestur
Barbara Berger rithöfundur.
DAGBÓK