Morgunblaðið - 05.04.2005, Síða 45

Morgunblaðið - 05.04.2005, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 45 MENNING ÞÝSKI píanóleikarinn Susanne Kessel heldur tónleika í Nor- ræna húsinu á miðvikudag í boði Goethe-Zentrum. Þetta eru al- þjóðlegir tónleikar með þýsku þema því á Kaliforníutónleikum sínum flytur Kessel annars veg- ar verk þýskra og austurrískra tónskálda sem flúðu ofríki nas- ista og fengu hæli í Kaliforníu og hins vegar verk tónskálda sem voru áhrifavaldar í listsköpun út- laganna. Þannig fá tónleikagestir að hlýða á „Vindhörpuna“ („Aeolian Harp“) eftir Henry Cowell við hlið tónsmíðar eftir Alexander Siloti sem er rómantísk um- samning á verki eftir Bach; verkinu „Geglarinn“ („Jongleur“) eftir Ernst Toch þar sem mjög reynir á tæknisnilli flytjandans er skipað við hlið prelúdíu eftir Sergej Rakhmanínov og „Tangós“ eftir Stravínskíj auk þess sem flutt verður hin hæðn- islega tónsmíð „Echoes from Austria“ eftir Ernst Krenek. Inn á milli gefur svo að heyra bæði þekkt og minna þekkt verk sem til urðu á árunum 1923–2003 – eftir John Cage, Charles Chapl- in, George Gershwin, óperettu- tónskáldið Eric (Erich) Zeisl og Walter Jurmann sem m.a. samdi tónlist við kvikmyndir Marx- bræðra. Á morgun verður sérstakri viðbót fléttað inn í efnisskrána sem kveðju til Íslendinga: tón- verki eftir Árna Egilsson sem búsettur er í Los Angeles. Susanne Kessel í Norræna húsinu Susanne Kessel Vika bókarinnar er fram-undan, nánar tiltekið 19.–25.apríl. Vika bókarinnar er samstarfsverkefni margra aðila á vegum Bókasambands Íslands en hitann og þungann bera Félag ís- lenskra bókaútgefanda í samstarfi við Rithöfundasamband Íslands.    Ragnheiður Tryggvadóttir,framkvæmdastjóri Rithöf- undasambands Íslands, segir að þátttaka Rithöfundasambandsins í Viku bókarinnar sé m.a. fólgin í því að aðstoða skóla, félög og stofnanir við að komast í samband við höf- unda og koma með hugmyndir að viðburðum sem efna má til í Viku bókarinnar. „Mikilvægt er að nýta tækifærið til að undirstrika nauð- syn þess að lesið sé fyrir börn og jafnframt að þau hafi greiðan að- gang að lesefni við sitt hæfi. Sér- staklega má benda á að lokahátíðir Stóru upplestrarkeppninnnar sem staðið hefur yfir í skólum landsins undanfarna mánuði fer einmitt fram um þessar mundir. Þetta metnaðarfulla framtak hefur oðið til þess að efla mjög vitund fyrir góðum upplestri, túlkun og máltil- finningu í grunnskólum. Rithöfundasamband Íslands er einn af aðstandendum keppninnar. Með aukinni upplýsingatækni og sífellt greiðari samskiptum á al- þjóðavísu er mikilvægara en nokkru sinni að þjóðin viðhaldi til- finningu sinni fyrir móðurmálinu. Sá sem ekki kann til hlítar sitt móð- urmál verður aldrei almennilega læs á aðrar tungur,“ segir Ragn- heiður. Vika bókarinnar er síðan útgef- endum hvatning til að gefa út bæk- ur á vordögum og er margs for- vitnilegs að vænta. „Bjartur býður íslenskum les- endum upp á fjölbreytt úrval góðra bóka í kiljubroti á vordögum, rétt eins og undanfarin ár, “ segir Jón Karl Helgason, útgáfustjóri Bjarts. „Vorbókaflóðið hófst í febrúar með nýjum útgáfum á metsölubókunum Englum og djöflum eftir Dan Brown og Sögunni af Pí eftir Yann Martel. Í kjölfarið sigldi ný þýðing á smásögum eftir japanska meist- arann Haruki Murakami, sem út kom í mars. Þá eru væntanlegar þrjár Bjartsbækur í viku bók- arinnar í apríl: Ögrandi og óþægi- leg ljóðabók eftir Steinar Braga, áhrifarík dæmisaga um stríð, lygi og hetjuskap eftir spænska rithöf- undinn Javier Cercas og loks þýð- ing á snilldarverkinu Steinsteypu eftir Thomas Bernhard, einn at- hyglisverðasta prósahöfund tutt- ugustu aldar. Í maí gefur Bjartur síðan út fyrsta verkið í Hnotskurn, nýrri ritröð fræðirita. Þetta er bók- in Líf af lífi: Gen, erfðir og erfða- tækni eftir dr. Guðmund Eggerts- son. Loks eru væntanlegar í júní, ágúst og október nýjar þýðingar á verkum eftir Andrej Kúrkov, J.M. Coetzee og Bernardo Carvalho,“ segir Jón Karl.    Hjá JPV útgáfu varð Jóhann PállValdimarsson fyrir svörum. „Við erum að leggja lokahönd á Úti- vistarhandbókina eftir Pál Ásgeir Ásgeirsson sem áður hefur gefið út Hálendisbókina við miklar vinsæld- ir. Þá eru tvær ljóðabækur nýlega komnar út eftir tvö af okkar bestu ljóðskáldum, þá Njörð P. Njarðvík og Jónas Þorbjarnarson. Þá höfum við nýverið sent frá okkur í kilju Ekkert mál eftir Njörð P. Njarðvík og Frey Njarðarson, Heppin eftir Alice Sebold og metsölubókina Belladonnaskjalið. Önnur spennu- saga, Hveitibrauðsdagar eftir James Patterson, er væntanleg. Þá vil ég nefna stórt og merkt verk sem við erum með í vinnslu, Myndir á þili eftir Þóru Kristjánsdóttur list- fræðing. Þessi bók er gefin út í sam- vinnu við Þjóðminjasafnið og fjallar um fyrstu íslensku myndlist- armennina, hina sjálfmenntuðu kirkjulistamenn sem skreyttu kirkjur á öldum áður. Þetta verður glæsilegt tímamótaverk. Barnabækur eru einnig vænt- anlegar úr hinum vinsælu bóka- flokkum um Herramennina og Stubbana,“ segir Jóhann Páll.    Það sem liðið er af árinu 2005hefur verið blómleg útgáfa hjá Eddu – útgáfu og út hafa komið bækur sem hafa vakið umræður og verið sérlega vel tekið af les- endum,“ segir Kristján Bjarki Jón- asson útgáfustjóri. Píslarvottar nú- tímans eftir Magnús Þór Bernharðsson kom út í janúar og veitti íslenskum lesendum kær- komna innsýn í pólitíska sögu Íraks og Írans. Þú átt nóg af peningum eftir Ingólf H. Ingólfsson er nýkom- in út og hefur fyrsta prentun henn- ar þegar selst upp. Vísindabókin er mikið rit um sögu vísindanna sem hefur verið vinsæl gjafabók og sama gildir um hina heimspekilegu og sumpart ögrandi bók Hug- myndir sem breyttu heiminum eftir Felipe Fernandez-Armesto. Þriðja bókin í bókaflokki Alexanders McCall Smiths um botsvaníska einkaspæjarann Precious Ram- otswe, „Siðprýði fagurra stúlkna“, kom út nú í mars og um leið kom út í einu bindi þýðing Bjarna Jónssonar á Blikktrommu Günters Grass. Þess ber einnig að geta að fjöldi barnabóka hefur komið út að und- anförnu: Þriðja bókin í flokknum um Baudelaire-munaðarleysingjana eftir Lemony Snicket kom út í jan- úar, Atlas barnanna hefur notið mikilla vinsælda, Við förum í saf- aríferð kom út fyrir skemmstu og Hugmyndir fyrir sniðugar stelpur, föndurbók fyrir krakka, koma einn- ig út nú í mars, svo eitthvað sé nefnt. Í apríl og í maíbyrjun er síðan fjöldi bóka væntanlegur og má þar nefna kiljuútgáfur af íslensku skáldsögunum Svartur á leik eftir Stefán Mána, Bítlaávarpið eftir Ein- ar Má Guðmundsson, Sakleysingj- arnir eftir Ólaf Jóhann Ólafsson, Kleifarvatn eftir Arnald Indriðason og Skítadjobb eftir Ævar Örn Jós- efsson. Þá koma út í kilju frumútgáfur að tveimur þýddum metsölubókum All- ison Paerson Móðir í hjáverkum sem er íslensk útgáfa metsölubók- arinnar I don’t know how she does it sem fjallar á gamansaman hátt um þær margháttuðu kröfur sem gerðar eru til nútímakvenna. Eftir Melissu P. kemur út Hundr- að strokur fyrir háttinn sem er ítölsk saga sem náði metsölu í heimalandi sínu og hefur verið þýdd á flest Evrópumál.    Tvær frumsamdar ljóðabækurkoma út í vor, Upplitað myrkur eftir Gyrði Elíasson kemur út 14. apríl og eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Nökkva Elíasson kemur út ljóða- og ljósmyndabókin Eyðibýli. Verk að vinna er heiti stórrar yfirlitsbókar þar sem kennd eru öll handtök á heimilinu. Íslands- sagan í máli og myndum er stækk- aður og uppfærður Söguatlas í einu bindi sem stefnt er að að komi út í byrjun maí. Þetta mikla verk og fleiri stórvirki sem Edda hefur á prjónunum í ár verða kynnt betur á næstunni,“ segir Kristján B. og bæt- ir við sérstök áhersla sé lögð á barnabækur í viku bókarinnar í ár og því ýmsar bækur Astridar Lind- gern aftur fáanlegar s.s. Kalli á þakinu, Elsku Míó minn, Bróðir minn Ljónsharta og Lína á Katt- areyju. Vorbækur af öllu tagi ’Mikilvægt er að nýtatækifærið til að undir- strika nauðsyn þess að lesið sé fyrir börn og jafnframt að þau hafi greiðan aðgang að les- efni við sitt hæfi. ‘ AF LISTUM Hávar Sigurjónsson Morgunblaðið/ÞÖK havar@mbl.is TAÍLENSK börn skoða hér teikningar jafnaldra sinna af náttúruhamförunum miklu annan dag jóla við Bang Maung-hof í Phang Nga-héraði en þess var minnst í gær að eitt hundrað dagar eru liðnir frá því ógæfan dundi yfir. Eins og sést á myndunum sjá börnin at- burðina í margvíslegu ljósi. Reuters Hamfarateikningar skoðaðar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.