Morgunblaðið - 05.04.2005, Síða 46

Morgunblaðið - 05.04.2005, Síða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.00 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINSI I I   HÆTTULEGASTA GAMANMYND ÁRSINS I   Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 14 ára. HÆTTULEGASTA GAMANMYND ÁRSINS Sýnd kl. 6 m. ísl. tali, Sýnd kl. 6 m. ensku tali  K&F X-FM ÓÖH DV WWW.BORGARBIO.IS  Ó.H.T Rás 2 FRAMHALDIÐ AF GET SHORTY FRAMHALDIÐ AF GET SHORTY   ÓÖH DV  ÓÖH DV  Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára. Í fjölskyldu þar sem enginn skilur neinn mun hún smellpassa í hópinn  Every family could use a little translation Sýnd kl. 5, 8 og 10.45. kl. 5, 8 og 10.45. F R Á L E I K S T J Ó R A AS GOOD AS IT GETS Sýnd kl. 4 og 6 m. ísl tali Sýnd kl. 4, 6 og 8 m. ensku tali Sýnd kl. 3.30 m. ísl tali  J.H.H. kvikmyndir.com  SV mbl Will Smith er Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.  S.V. MBL.  K&F X-FM Sýnd kl. 10 B.i. 16 ára. S.V. MBL. SIDEWAYS Þ.Þ. FBl  Sýnd kl. 10.20 Sýnd kl. 8 STJARNA myndarinnar Hola í hjarta mínu, Björn Almroth, og leikstjórinn Mark Vicente heimsækja Ísland á fyrstu helgi Alþjóðlegu kvikmyndahátíð- arinnar á Íslandi IIFF 2005. Báðir koma fram á Spurt & svarað-sýningum mynda sinna og gefst íslenskum áhorfendum því tækifæri til að spyrja þá spjörunum úr. Almroth er einn af fjórum að- alleikurunum í nýjustu mynd Lukasar Moodysson. Hola í hjarta mínu hefur vakið mikla athygli og líka hneykslun á kvikmyndahátíðum. Myndin fjallar um fjórar utangarðs- manneskjur, son (Almroth), pabba og tvo vini hans, sem kúldrast í lítilli blokkaríbúð við drykkju og annan ólifnað. Þeir eiga sér drauma eins og aðrir og ákveða að heimagerð klámmynd sé rétta leiðin til að slá í gegn. Björn er fæddur árið 1986 og því aðeins 19 ára að aldri og þetta er hans fyrsta kvikmyndahlutverk. Hann stundar leiklistarnám í Skar- holmen og hefur tekið þátt í nokkr- um leikritum þar. Í frítíma sínum semur hann tónlist og teiknar. Vicente er einn af þremur leik- stjórum myndarinnar What the #$*! Do We Know? „Enginn vildi búa þessa mynd til og þegar leik- stjórarnir fjármögnuðu hana sjálfir, þá vildi enginn sýna hana. Hver ætti svo sem að hafa trú á því að mynd um tilgang lífsins og skammtafræði gæti gengið? Þeir náðu þó að koma henni í sýningu í þremur borgum og smám saman byggði hún upp fylgi meðal fólks sem gat ekki hætt að tala um hana eftir að hafa séð hana. Á endanum var hún sýnd um gjörv- öll Bandaríkin og komin hátt á vin- sældarlista. Það er engin leið að skilgreina þessa mynd því hún á sér engan líka; blanda af leikinni mynd, heimildarmynd og teiknimynd með ótrúlegum tæknibrellum,“ segir í tilkynningu. Vicente, sem verður fertugur á árinu, er aðallega þekktur sem kvik- myndatökumaður en hann hefur tekið upp 13 myndir. Fyrir var búið að tilkynna að Walter Salles og Lloyd Kaufman verða einnig gestir IIFF þessa fyrstu helgi hátíðarinnar. Hátíðin verður sett á fimmtudaginn með sýningu á mynd Salles, Motorcycle Diaries. Kvikmyndir | Alþjóðlega kvikmyndahátíðin á Íslandi IIFF 2005 Bjorn Almroth mætir á Spurt & svarað-sýningu á A Hole in my Heart fös. 8. apríl kl. 22 í Háskólabíói. Mark Vicente mætir á What the #$*! do we Know? laugardaginn 9. apríl kl. 20 í Regnboganum. www.icelandfilmfestival.is Mark Vicente Björn Almroth, einn aðalleikaranna í hinni mjög svo umdeildu mynd Moodyssons Et Hål i mitt hjärta. Tveir gestir til viðbótar Hola í hjarta mínu hefur vakið mikla athygli og hneykslun á kvik- myndahátíðum. DANSKIR fjölmiðlar gagnrýna margir hverjir tónleikana sem haldnir voru í Óðinsvéum í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli H.C. And- ersens, óskabarns dönsku þjóð- arinnar. Í BT gagnrýnir Birgitte Grue til að mynda að Tina Turner skuli hafa verið valin til að syngja „hundgamlar lummur.“ Grue segir að Turner sé „kan- óna“ á sviði, „en að láta hana hrista gamla lagið „What’s Love Got to Do with It“ fram úr erminni er hrein- lega vandræðalegt. Nafnið á laginu er í bullandi mótsögn við allt talið um kærleika og skilning sem var sameiginlegt þema hjá mörgum fylgismönnum H.C. Andersens: Kærleikur hefur ALLT með H.C. Andersen að gera! What’s Tina Turner got to do with it? Nothing! Hugsið ykkur ef hún hefði í staðinn fengið alla áhorfendur til að kvaka með í „The Ugly Duckling“, gamla og yndislega laginu með Danny Kaye!“ Ulrich talaði dönsku Að öðru leyti er Grue nokkuð ánægð með tónleikana; sérstaklega þátt Lars Ulrich, trommara rokk- sveitarinnar Metallica, sem talaði dönsku á sviðinu, einn þeirra sem fram komu. „Hann lét ekki á sig fá hræðslu Dana vegna þess að stóra útlandið fylgdist með í sjónvarpinu. Þakka þér fyrir, Lars, að hrópa „Til lykke“ á góðri og gamalli dönsku.“ 35.000 gestir voru á tónleik- unum, sem haldnir voru í Parken undir yfirskriftinni „Once upon a Time“, eða Einu sinni var. Scanpix Danir voru margir hverjir óánægðir með „gömlu lummurnar“ sem Tina Turner söng á afmælishátíð H.C. Andersens. Andersen-hátíð gagnrýnd

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.