Morgunblaðið - 05.04.2005, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 49
02.04. 2005
15
9 8 6 6 7
2 6 9 4 3
16 21 33 38
5
30.03. 2005
6 17 32 33 43 44
14 37 16
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4539-8618-0017-6940
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
POPPGOÐIÐ Neil Diamond vinnur
nú að nýrri stúdíóplötu ásamt upp-
tökustjóranum annálaða Rick Rub-
in, að því er heimildir Billboard
herma. Platan, sem enn hefur ekki
hlotið nafn, verður sú fyrsta með
nýju frumsömdu efni sem Diamond
sendir frá sér síðan 2001. Þá kom út
platan Three Chord Opera sem fór
beint í 15. sæti Billboard-vinsælda-
listans.
Rubin hjálpaði Johnny Cash
heitnum til að blómstra á seinni
hluta ferils síns en Cash nefndi ein-
mitt eina af plötum sínum eftir lagi
Diamonds, „Solitary Man“ sem
Rubin stýrði upptökum á.
Sjálfur hefur Diamond meira en
nóg að gera við tónleikahald, en
hann er nýkominn úr tónleika-
ferðalagi til Ástralíu og Nýja-
Sjálands.
Neil Diamond er í hópi söluhæstu
dægurlagasöngvara allra tíma.
Neil Diamond
snýr aftur
STELPURNAR í Nylon voru að senda frá sér mynddisk og af því tilefni
árituðu þær hann í Hagkaupum í Smáralind um helgina. Þær hafa reyndar
fleiru að fagna því um þessar mundir er söngflokkurinn eins árs.
Á mynddisknum er fjölbreytilegt efni. Á honum er að finna öll myndbönd
stúlknanna, útgáfutónleika þeirra, samansafn af því besta úr þáttum þeirra
á Skjá einum og viðtal Jóns Ársæls við þær í Sjálfstæðu fólki. Þarna eru líka
karókí-útgáfur af vinsælustu lögunum þeirra og ýmislegt aukaefni.
Tónlist | Mynddiskur með Nylon kominn út
Margir vildu fá áritun
Morgunblaðið/Eggert
Ragnheiður Traustadóttir, Ásta Kristín Einarsdóttir og Margrét Hera
Hauksdóttir voru á meðal þeirra sem fengu áritun.
Nylon áritaði nýja mynddiskinn í Hagkaupum í Smáralind um helgina.
HÚSVÍSKA gleðisveitin Greifarnir er
besta hljómsveitin sem sigrað hefur á
Músíktilraunum. Það er niðurstaða
óformlegrar könnunar sem staðið hef-
ur yfir á Fólkinu á mbl.is síðustu vik-
urnar.
Þar var lögð fram spurningin hver
eftirfarandi tíu sigursveita Músíktil-
rauna sé „best“: Dúkkulísurnar, Greif-
arnir, Infosoria [Sororicide], Kolrassa
krókríðandi, Maus, Botnleðja, Mínus,
110 Rottweilerhundar, Búdrýgindi,
Mammút.
Af þeim 5654 sem tóku þátt í könn-
uninni töldu 833 þeirra, eða 14,7%,
Greifana vera „bestu sigursveit Mús-
íktilrauna“. Greifarnir eru enda trú-
lega sú sigursveit sem náð hefur
mestri hylli meðal almennings en
sveitin sló rækilega í gegn í kjölfar
sigursins árið 1986, varð aðal ballsveit
landsins á árunum á eftir og gerði
ódauðleg lög á borð við „Útihátíð“ og
„Frystikistulagið“.
„Næstbesta“ sigursveit Músíktil-
raunanna skv. könnuninni reyndist
vera rokksveitin Maus úr Árbænum
sem sigraði 1994. Fékk hún 722 at-
kvæði eða 12,8%. Mjög mjótt var á
mununum milli Maus og Botnleðju sem
sigraði í Músíktilraunum ári síðar en
Botnleðja fékk 12,6%. Í fjórða sæti
lenti Mínus með 11,9% og Dúkkulís-
urnar í því fimmta með 9,6% en sú
austfirska poppsveit var önnur sveitin
til að sigra Músíktilraunir 1983.
Greifunum tókst að gera sér heilmikinn mat úr sigrinum í Músíktilraunum
og hefur verið meðal vinsælustu gleðisveita landsins allt síðan þá.
Greifarnir „besta sigur-
sveit Músíktilrauna“
1. Greifarnir 14,7%
2. Maus 12,8%
3. Botnleðja 12,6%
4. Mínus 11,9%
5. Dúkkulísur 9,6%
6. 110 Rottweilerhundar 8,2%
7. Kolrassa krókríðandi 8,1%
8. Mammút 7,9%
9. Infosuria [Sororicide] 7,1%
10. Búdrýgindi 7,0%
*Skv. könnun á Fólkinu á mbl.is (www.mbl.is/folkid)
Bestu sigursveitir músíktilrauna*
KRINGLAN
AKUREYRI KEFLAVÍK
Sandra Bullock mætt
aftur vopnuð og glæsileg
í frábæru framhaldi sem er drekkhlaðin
af spennu og gríni!
Óskarsverðlaunahafinn, Geoffrey Rush er frábær sem Peter Sellers
myndin fjallar um feril og stormasamt einkalíf eins besta gamanleikara heims.
THE PACIFIER KL. 4 - 6 - 8 - 10
THE PACIFIER Lúxus VIP KL. 4 - 6 - 8 - 10
LIFE AND DEATH
OF PETER SELLERS KL. 5.40 - 8 - 10.20
MRS. CONGENIAL. 2 KL. 3.30 - 5.40 - 8 -10.20
RING TWO KL. 5.40 - 8 - 10.20 B.I. 16
LIFE AQUATIC KL. 5.40 - 8
CONSTANTINE KL. 10.20 B.I. 16. ÁRA
BANGSÍMON OG FRÍLLINN M/ÍSL.TALI. KL. 4
ÁLFABAKKI
THE PACIFIER KL. 6 - 8 - 10
MRS. CONGENIAL. 2 KL. 6 - 8.15 - 10.30
RING TWO KL. 10.30 B.I. 16
COACH CARTER KL. 5.30 - 8
THE PACIFIER KL 8 - 10
MRS. CONGENIAL.2 KL. 8
RING TWO KL. 10 B.I. 16
THE PACIFIER KL. 8 - 10
MISS CONGENIAL 2 KL. 8 - 10
Globe verðlaun
ta
ynd ársins.
y Rush
ti leikari.