Morgunblaðið - 05.04.2005, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 05.04.2005, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. NÝR efnisþáttur, Hljómsveit Fólksins, hefur göngu sína í Fólki í fréttum í Morgun- blaðinu í dag. Hljómsveit Fólksins er val- in á tveggja vikna fresti, en tilgangurinn er að kynna og styðja við grasrótina í ís- lenskri tónlist. Sífellt verður auðveldara að taka upp tónlist og fjölgar þeim mjög sem það stunda. Um leið er ákveðin hætta á að hæfileikaríkir tónlistar- menn týnist í fjöldanum, en með Hljómsveit Fólksins er reynt að stuðla gegn því. Hljómsveit Fólksins er í sam- starfi við Rás 2 og Rokk.is, en Isidor varð fyrst fyrir val- inu./47 Hljómsveit Fólksins valin í fyrsta sinn RÉTT tæp þrjátíu prósent Reykvík- inga vilja sjá framtíðaraðsetur Há- skólans í Reykjavík á svæðinu milli Nauthólsvíkur og Öskjuhlíðar, en Reykjavík hefur boðið háskólanum þetta svæði til afnota. Rúm sjötíu prósent Reykvíkinga vilja frekar sjá útivistar- og afþreyingarsvæði á blettinum. Þetta kemur fram í síma- könnun sem IMG Gallup vann í marsmánuði. Könnun IMG Gallup náði til um 1.300 einstaklinga í Reykjavík, ná- grannasveitarfélögum Reykjavíkur og öðrum sveitarfélögum. Spurt var: „Reykjavíkurborg hefur boðið Há- skólanum í Reykjavík framtíðarað- setur á svæðinu milli Nauthólsvíkur og Öskjuhlíðar. Hvort viltu að skól- inn fái að byggja á þessu landsvæði eða að svæðið verði þróað áfram sem útivistar- og afþreyingarsvæði fyrir borgarbúa?“ Í öðrum sveitarfélögum vildi um fjórðungur aðspurðra að Háskólinn í Reykjavík fengi að byggja undir Öskjuhlíð. Fleiri karlar vildu fá HR undir Öskjuhlíðina en konur. Þriðj- ungur karla sagðist hlynntur bygg- ingu háskólans, en einungis fimmt- ungur kvenna. Þá vildu 38% fólks á aldrinum 16–24 ára sjá háskólann við Öskjuhlíðina en var fylgið mun minna í öðrum aldurshópum. Lítill munur var á afstöðu fólks eftir menntun, en um 35% svarenda þar sem fjölskyldutekjur voru 550 þúsund krónur eða hærri vildu sjá háskólann rísa undir Öskjuhlíð. Rúm 70% Reykvíkinga vilja ekki HR í Öskjuhlíð ALLT starfsfólk skráningar- og tæknideildar Umferðarstofu var fjarverandi í gær og verður fjarver- andi í dag vegna sérstakra starfs- daga. Starfsdagar eru notaðir í skoðun á verklagsreglum ökutækja- skráninga í þeim tilgangi að gera reglurnar skýrari og þjónustuna markvissari. Á meðan hinir föstu starfsmenn eru í burtu verður starfsemin í höndum afleysingafólks sem mun að sögn starfsfólks Umferðarstofu gera sitt besta til að veita góða þjónustu. Þó er viðbúið að erfitt verði að veita fulla þjónustu. Þá verður lokað á milli kl. 12 og 13 í dag. Starfsdagar á Umferð- arstofu LJÓSMYNDARI Morgunblaðsins vissi ekki hvaðan á hann stóð veðrið þegar hann stakk við stafni í Háskólabíói í gær til að mynda rússneska fiðlu- og víóluleikarann Maxim Vengerov á æfingu. Á sviðinu var engan fiðluleikara að finna, aðeins par að dansa tangó. Við nánari eftirgrennslan kom hins vegar í ljós að þarna var téður Vengerov á ferð. Það sem gerir tónleika hans með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands á fimmtudag og laugardag sérstaka er að í einum kafla víólukonsertsins, sem hann flytur, mun Vengerov leggja hljóðfærið frá sér og stíga ástríðufullan tangó við dansfélaga sinn sem kemur með honum eingöngu til þess að stunda fótafimina. Teknir verða frá nokkrir fermetrar á sviðinu sérstaklega til þessa. Maxim Vengerov er óumdeilanlega ein skærasta stjarna hins klassíska tónlistarheims um þessar mundir og segir Sváfnir Sigurðarson, kynningarstjóri Sinfóníunnar, að þessir tónleikar séu einn athyglisverðasti viðburður ársins hjá hljómsveitinni. Þótt Vengerov sé stoltur eigandi frægr- ar Stradivariusarfiðlu hefur hann mikið yndi af því að spila á önnur hljóðfæri og að þessu sinni mun hann handleika djúpraddaðri systur fiðlunnar, víóluna, sem hann hefur náð frábærum tökum á síðan hann hóf að leika á hana fyrir aðeins tveimur árum. „Með víólunni get ég sagt hluti sem ég get ekki sagt með fiðlunni,“ segir Vengerov. „Tónsviðið er auðvitað dýpra og neðsti strengurinn er í miklu uppá- haldi hjá mér. Að spila á fiðlu er eins og að keyra sportbíl en að leika á víólu er eins og að vera undir stýri á kraft- miklum trukki.“ Hljómsveitarstjóri á tónleikunum er höf- undur víólukonsertsins Benjamín Júsopov. Morgunblaðið/Golli Vengerov dansar tangó Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Maxim Vengerov sýndi líka glæsileg tilþrif á dansgólfinu á æfingu í gær. EKKERT lát virðist á áhuga lands- manna á golfíþróttinni ef marka má uppbyggingu og áform um stækk- anir á golfvöllum á höfuðborg- arsvæðinu og austan Hellisheiðar. Yfir 30 þúsund manns iðka golf á Íslandi. Stefnt er að því m.a. að opna nýj- an 18 holu golfvöll hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar 1. maí nk. og áform- að að stækka golfvöll Golfklúbbsins á Öndverðarnesi í Grímsnesi úr 9 í 18 holur á næstu tveimur árum. Stutt er einnig síðan völlur Golf- klúbbsins Kiðjabergi var stækkaður úr 9 í 18 holur. Að sögn Friðriks Guðmunds- sonar, formanns Golfklúbbs Þor- lákshafnar, kemur stór hluti klúbb- félaga frá Reykjavíkursvæðinu, og sömu sögu hafa fleiri formenn klúbba á Suðurlandi að segja. Hinrik Hilmarsson hjá Golf- sambandi Íslands bendir á að golf- klúbbar á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki haldið í við auknar vinsældir golfsins og bætt við brautum. Þrátt fyrir það eru ýmis áform uppi um uppbyggingu golfvalla á höfuðborg- arsvæðinu. Golfklúbbur Reykjavík- ur stefnir að stækkun Korpúlfs- staðavallar úr 18 holum í 27 fyrir árið 2009 og Golfklúbburinn Kjölur í Mosfellsbæ vinnur að stækkun vallar úr 9 í 18 holur fyrir 2008. Þá eru hugmyndir uppi um nýjan 18 holu golfvöll í landi Oddfellow- reglunnar í Garðabæ og eru þær til skoðunar hjá skipulagsyfirvöldum. Margeir Vilhjálmsson, fram- kvæmdastjóri Golfklúbbs Reykja- víkur, segir vinsældir golfsins gríð- armiklar og til marks um það hafi aðsókn í Bása, æfingaaðstöðu fé- lagsins sem opnuð var í fyrra, farið fram úr björtustu vonum. Á dög- unum var 4 milljónasti boltinn seld- ur og yfir páskana voru 200.000 boltar slegnir á fimm dögum. „Mað- ur sér vorhuginn í mönnum, það eru margir sem sjá þetta sem val- kost í golfinu.“ Rúmlega tíundi hver Íslendingur iðkar golf Nýir vellir í sigtinu  Golfið verður/8 SAMTALS verður varið um 85 milljörðum króna til samgöngumála á næstu fjórum árum, 2005–2008, samkvæmt tillögu til þingsályktun- ar um fjögurra ára samgönguáætl- un sem samgönguráðherra leggur fram á Alþingi í dag. Þingsályktunartillagan tekur til allra þátta samgöngumála. Verður um sextíu milljörðum króna varið til vegamála á þessum fjórum ár- um, um 17 milljörðum króna til flugmála, rúmum sex milljörðum króna til hafnamála og hálfum öðr- um milljarði króna til umferðarör- yggismála. Þá kemur fram að mun meiri framkvæmdir í vegamálum verða á síðari tveimur árum tímabilsins, ár- unum 2007 og 2008. Framkvæmd- um í vegamálum fyrir tæpa tvo milljarða króna í ár og tvo milljarða á næsta ári hefur verið frestað og koma þau framlög til viðbótar fram- lögum á árunum 2007 og 2008. Þannig verða útgjöld til vegamála í ár og á næsta ári tæpir 13 millj- arðar króna á hvoru ári um sig en um 17 milljarðar hvort árið 2007 og 2008. Framlögum til stofnvega í ár og á næsta ári verður skipt jafnt á milli allra kjördæma samkvæmt þeirri kjördæmaskiptingu sem áður gilti. Fyrir árin 2007 og 2008 er hins vegar miðað við nýju kjör- dæmin og lagt er til að fjármagni verði skipt miðað við heildarlengd stofnvega í viðkomandi kjördæmi, umferð á þeim og lengd stofnvega með malarslitlagi í kjördæminu. Í umferðaröryggismálum er með- al annars ráðgert sérstakt átak meðal erlendra ferðamanna sem hingað koma en þeir áttu þátt í rúmlega 5% af umferðarslysum á árinu 2003. 85 milljarðar til samgöngumála Morgunblaðið/RAX Árin 2007 og 2008 er lagt til að fjármagni verði skipt miðað við heild- arlengd stofnvega í viðkomandi kjördæmi, umferð og malarslitlag. Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is  60 milljarðar/4 UNGUR maður framdi rán á pitsu- stað Dominós við Skúlagötu í Reykjavík upp úr klukkan 23 í gær- kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Reykjavík ógnaði hann af- greiðslumanni með sprautunál sem hann reiddi á loft og hótaði að stinga hann með. Maðurinn hvarf á braut eftir að hafa haft eitthvert fé upp úr krafsinu. Seint í gærkvöldi var enn leitað að ræningjanum. Ógnaði með sprautunál ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.