Morgunblaðið - 30.05.2005, Page 1
mánudagur 30. maí 2005 mbl.is
Verð
við allra hæfi
Engin skilyrði um önnur bankaviðskipti
Lánin eru verðtryggð og bera fasta 4,15% vexti sem eru endurskoðaðir
á fimm ára fresti. Hægt er að greiða upp án uppgreiðslugjalds þegar vextir
koma til endurskoðunar. Engin hámarksupphæð og er lánstími allt að 40 árum.
Krafa er gerð um fyrsta veðrétt íbúðarinnar. Lánshlutfall er allt að 80%
við endurfjármögnun fasteigna (engin hámarksupphæð) og 100% við
kaup fasteignar (hámarksupphæð 25 milljónir króna).
Hægt er að nota lánin til íbúðarkaupa, til að stokka upp fjármálin
eða í eitthvað allt annað.
www.frjalsi. is
H
im
in
n
o
g
h
a
f-
9
0
4
0
5
9
1
Nína Arnbjörnsdóttir
lánafulltrúi á viðskiptasviði
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn
í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
Lánstími 5 ár 25 ár 40 ár
4,15% vextir 18.485 5.361 4.273
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
Frjáls íbúðalán vextir
100
%
veð
set
nin
gar
hlu
tfa
ll
Fasteignablaðið
// Njálsgata 19
Íbúðir í miðborginni hafa mikið aðdráttarafl
fyrir marga. Þar sem Ölgerð Egils Skalla-
grímssonar stóð áður er nú risið 4 hæða
lyftuhús með 14 íbúðum. 26
// Flutningshús
Við Álagranda 4 stendur nú timburhús, sem
stóð áður á Laugavegi 86. Umfangsmikil end-
urnýjun hefur farið fram á húsinu, en í því eru
nú þrjár íbúðir. 40
// Frístundahúsalóðir
Í landi Stóra-Áss í Borgarfirði eru í boði lóðir
fyrir frístundahús. Lóðirnar eru á bilinu
4.000–7.000 ferm. og þeim fylgir heitt og
kalt vatn að lóðamörkum. 41
// Efri hæð og ris
Góðar hæðir í Vesturbænum höfða til
margra. Hjá Fasteignamarkaðnum er nú til
sölu efri hæð og ris í fallegu steinhúsi við
Grenimel 2. 46
!
"
#
$
% % % % &
&
&
&
' ( ! ) * + , ! !
!
' ( ! ) * + ! , !
"#$
!
-.
/
*
0123
45
0
6
7
1
1 6
8
23
9
:556
;
<=
% # '#$
;
<=
% # ( )* +
;
<=
% #
!!
8 /6 >
!
!
$
Þ
ekkt einbýlishús við sunn-
anverðan Laufásveg
vekja ávallt athygli, þegar
þau koma í sölu. Hjá
Eignamiðlun er nú til sölu sögu-
frægt hús á Laufásvegi 68.
„Pompidou Frakklandsforseti bjó
í húsinu 30. maí til 1. júní 1973 þeg-
ar hann kom hingað til lands til við-
ræðna við Nixon, forseta Bandaríkj-
anna, sem einnig bjó þá við
Laufásveginn, í bandaríska sendi-
ráðinu,“ segir Sverrir Kristinsson
hjá Eignamiðluninni.
„Þetta hús býr yfir mikilli sögu og
hefð þar fyrir utan,“ segir Sverrir
ennfremur. „Paul Smith verkfræð-
ingur byggði húsið, en teikningar
voru gerðar af Sigurði Guðmunds-
syni arkitekt og samþykktar á fundi
byggingarnefndar Reykjavíkur 31.
ágúst 1933 og áritaðar af Jóni Þor-
lákssyni.
Ólafur Guðmundsson trésmiður
og Einar Sveinsson múrsmiður
árita teikningarnar einnig og hafa
því væntanlega byggt húsið, sem er
augljóslega gert af góðum efnum og
vel til alls vandað, sem vænta má
þegar litið er til þeirra manna sem
að undirbúningi framkvæmda
komu.
Þegar Paul andaðist keypti Hörð-
ur Bjarnason, húsameistari ríkisins,
húsið og bjó þar þar til hann seldi
það til Alberts Guðmundssonar,
sem þá var að flytja til landsins að
loknum frækilegum knatt-
spyrnuferli í Evrópu. Núverandi
eigendur keyptu húsið af Brynhildi
Jóhannsdóttur, ekkju Alberts, árið
1997.
Húsið er byggt í dansk-þýzkum
herragarðsstíl þar sem lögð hefur
verið áherzla á að nýta suðurhlið
lóðar undir garð með því að stað-
setja húsið norðanvert nærri götu.
Vel hefur verið hugsað um að hljóð-
einangra herbergi hússins frá götu
en húsið opnast út í garðinn mót
sólu með stórum gluggum.
Aðalinngangur er frá götuhlið, en
eldhús- og kjallarainngangur er frá
innkeyrslusundi. Gengið er út í lok-
aðan garð úr stofu frá garðsvölum.
Húsið er tvær hæðir, ris og kjall-
ari auk bílskúrs, alls 415 ferm. Á 1.
hæð eru m.a. þrjár stofur, eldhús,
salerni og garðsvalir. Á 2. hæð eru
fjögur herbergi, snyrting og þvotta-
hús og suður- og austursvalir. Góð
lofthæð er á 1. og 2. hæð. Í risi er
eitt herbergi og geymslur undir súð.
Í kjallara eru geymslur, miðstöð,
þvottahús, þrjú herbergi og snyrt-
ing. Bílskúrinn er með geymslu.
„Innkoma í húsið er mjög tíguleg
vegna mikils rýmis sem stigi og hol
fá, en hlutföll í stofum eru falleg og
herbergi rúmgóð,“ segir Sverrir.
„Þannig er hjónaherbergi 22 ferm.“
Upprunaleg áferð er enn á hús-
inu, en að utan er húsið hraunað og
sennilega sýruþvegið þannig að
áferðin er steingrá og veðruð.
Á þaki eru norskar steinflísar. Að
innan er sumt upprunalegt en annað
nýlegra. Í glugga í stigagangi er 5
ferm. steindur gluggi sem Gerður
Helgadóttir gerði fyrir Hörð
Bjarnason að því er talið er skömmu
áður en hún gerði kirkjugluggana í
Skálholtskirkju.
„Kaupandi getur flutt beint inn
en ekki er ólíklegt að sá sem kaupir
vilji gera húsið upp þar sem það
býður upp á að verða í röð glæsileg-
ustu íbúðarhúsa landsins,“ sagði
Sverrir Kristinssson að lokum. Ósk-
að er eftir tilboði í húsið.
Sögufrægt hús við Laufásveg
Húsið er tvær hæðir, ris og kjallari auk bílskúrs, alls 415 ferm., og byggt í herra-
garðsstíl. Óskað er eftir tilboði, en húsið er til sölu hjá Eignamiðluninni.