Morgunblaðið - 30.05.2005, Síða 27
gömlu hverfi. Hjá fyrirtæki hans
starfa að jafnaði 12–15 manns fyrir
utan verktaka.
Hannað inn
í umhverfið
Njálsgata 19 er 4ra hæða stigahús
með lyftu með samtals 14 íbúðum
samkv. framansögðu. Íbúðirnar eru
mjög misjafnar að stærð eða frá
1–2ja herbergja, 3ja herbergja og
4ra herbergja. Minnsta íbúðin er
44,8 ferm. og sú stærsta er 120,2
ferm. Svalir fylgja íbúðum efri hæða
en sérnotahluti íbúðum 1. hæðar.
Bílakjallari er undir húsinu með
aðkomu frá Frakkastíg og fylgir
stæði þar flestum íbúðunum.
Geymslur eru með öllum íbúðum í
bílageymslunni. Snjóbræðsla er frá
bílageymslu að götu en einnig er
snjóbræðsla við gangstétt Njáls-
götu.
Hönnuðir hússins, arkitektarnir
Guðrún F. Sigurðardóttir og Laur-
ent Bonthonneau lærðu bæði í París.
„Þegar við byrjuðum að hanna
þennan reit, voru svo mörg hús í
kringum hann misjöfn að hæð, að
það þurfti mikið púsl að raða okkar
íbúðum og húsum inn í reitinn, svo að
það kæmi vel út skipulagslega séð,“
segja þau. „Að okkar mati hefur það
tekizt vel, en hér var port áður og við
reyndum að halda bæði í portið og
götumyndina.“
Reiturinn var hannaður i einum
hluta en tekur mið af tveimur mæli-
kvörðum. Öll húsin, sem eru við port-
ið, þurftu að taka mið af Grettisgötu,
en þar eru tveggja hæða hús með
þaki. Því var reynt að stalla húsin í
portinu frá Njálsgötu og niður að
Grettisgötunni, þannig að það mynd-
aðist eðlilegur halli.
Fjölbýlishúsið aftur á móti stend-
ur efst í reitnum og gefur mjög heild-
stæða mynd, þar sem það snýr út að
Njálsgötu 19.
„Íbúðirnar þar eru samt mjög mis-
munandi að stærð, þar sem þar var
ekki hægt að byggja eina íbúð upp
allar hæðir eins og í venjulegu fjöl-
býlishúsi,“ segja arkitektarnir
„Þetta er eins og kassi, sem látinn er
inn í hverfið og síðan skorið af hon-
um til þess að húsið falli inn í um-
hverfið í kring.
Skýringin er sú, að við Njálsgöt-
una stóðu tvö hús, gamla Ölgerðar-
húsið og síðan íbúðarhús við hliðina.
Þegar horft er á nýja fjölbýlishúsið
sést, að búið er að skipta því í tvennt
og það er gert til þess að halda sömu
hlutföllum og voru áður.“
Að sögn Benedikts Sigurðssonar
hafa framkvæmdir gengið vel. „Það
er að vísu erfiðara og tekur lengri
tíma að byggja á svona þröngu svæði
heldur en í úthverfum,“ segir hann.
„En það hafa ekki komið upp nein
óyfirstíganleg vandamál og þessar
byggingaframkvæmdir hafa farið
fram í mikilli sátt við nágrennið.
Engin grenndarvandamál komið
upp.“
Miðborgin hefur aðdráttarafl
Íbúðirnar eru til sölu hjá fast-
eignasölunni Valhöll. Verð á þeim er
að sjálfsögðu mismunandi eftir
stærð eða frá 14 millj. kr. og upp í
38,3 millj. kr. sú dýrasta. „Íbúðir við
eða nærri miðborg Reykjavíkur hafa
ávallt haft mikið aðdráttarafl fyrir
marga,“ segir Bárður Tryggvason,
sölustjóri hjá Valhöll. „Þeir sem
vinna þar þurfa miklu síður að eiga
bíl en fara fótgangandi í vinnu og á
aðra staði í miðborginni. Margir
kunna líka einfaldlega bezt við sig í
miðborginni og finnst það mikill
kostur að vera í námunda við menn-
ingarlíf miðborgarinnar að ógleymd-
um öllum veitinga- og skemmtistöð-
unum.
Þeir eru líka til sem alizt hafa upp í
miðborginni eða í grennd við hana og
vilja búa þar áfram. Miðborgin hefur
því ávallt haft mikið aðdráttarafl
bæði fyrir ungt fólk og þá sem eldri
eru.“
„Íbúðir í miðborg Reykjavíkur
hafa ekki síður mikið aðdráttarafl
fyrir útlendinga en Íslendinga,“
heldur Bárður áfram. „Útlendingar
vilja gjarnan vera í miðborginni og
geta gengið þar um götur, enda fer
það ekki milli mála að ásókn útlend-
inga í fasteignir í miðborginni fer
vaxandi. Þeim finnst fasteignir hér á
landi ekkert dýrar, þó að okkur finn-
ist það. Þeir setja hátt verð ekki fyrir
sig og miða við það sem þeir eru van-
ir heima hjá sér, en þar er verð víða
miklu hærra en hér.“
„Ég tel að byggingaframkvæmdir
á þessum reit milli Njálsgötu og
Grettisgötu hafi tekizt mjög vel, en
húsin falla afar vel inn í umhverfið,“
segir Bárður Tryggvason að lokum.
„Þau er eins og þorp í miðborginni.“
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2005 F 27
Hamraborg 20A • 200 Kópavogur •
www.husalind.is
Sími 554 4000 • Fax 554 4018 •
Tölvup.: husalind@husalind.is
Óskum eftir öllum gerðum eigna á skrá
Sveinbjörg B. Sveinbjörnsd., löggiltur fasteignasali
og hdl., Guðbjörg G. Sveinbjörnsd., sölufulltrúi.
Falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með sérinngangi. Fallegt
útsýni. Svefnherbergin eru rúmgóð og með góðu skápaplássi. Eldhús
er með fallegri hvítri innréttingu og tengi fyrir uppþvottavél. Stofan er
björt og rúmgóð og er opin við eldhús og borðstofu. Úr stofu er út-
gengt út á stórar há-suðursvalir. Þvottahús er inn af íbúðinni með góðu
hilluplássi. Geymsla í sameign. Stutt er í alla þjónustu, verslanir og
skóla. Ásett verð 16,9 millj.
Kjartansgata - Sérhæð
Falleg sérhæð á mjög eftirsóttum
stað. Íbúðin er sértaklega björt og
mikið endurnýjuð. Nýtt rafmagn,
gluggar og endurnýjað þak. Eldhús
með góðu skápaplássi, tvöfaldar
samliggjandi stofur, parket á gólf-
um, fallegt baðherbergi og skjól-
góður garður. Ásett verð 23,1 millj.
Sæviðarsund-3ja herbergja í fjórbýli
Mjög björt 75,7 fm íbúð á 1. hæð í
fjórbýlishúsi á góðum stað við
Sundin. Frábær staðsetning nálægt
útivistarsvæðum, verslunarkjarna
og þjónustu. Ásett verð 17,4 millj.
Kleppsvegur -2ja herbergja
Mjög björt og mikið standsett 71
fm 2ja herbergja íbúð í kjallara í litlu
fjölbýlishúsi efst á Kleppsvegi. Sér
geymsla /þvottahús með hillum við
hliðina á íbúðinni. Sameiginleg
hjólageymsla. Íbúðin snýr öll út að
garði. Stutt í alla þjónustu. Ásett
verð 13,5 millj.
Miðtún-gott verð
Til sölu hæð og ris ca. 130 fm í algerlega endurgerðu húsi á grónum
stað. Ásett verð 26,9 millj.
Sumarhús – Brekkuskógur í Biskupstungum
Stór og glæsileg 92,33 fm sumar-
hús á leigulóð á góðum stað í Bisk-
upstungum. Húsin skilast fullfrá-
gengin að utan, einangruð og inn-
þétt að innan með 35 fm verönd.
Heitt og kalt vatn og rafmagn.
Tengdur heitur pottur fylgir hverju
húsi. Viðhaldsfríir gluggar. Stöðluð álklæðning á þaki, val á milli svartr-
ar/rauðrar. Kúpt vatnsklæðning að utan. Arkitekt Kristinn Ragnarsson.
Ásett verð kr. 12,5 millj. .
Gullengi 37 - Sérinngangur
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar.
☎ 564 1500
27 ára
EIGNABORG
FASTEIGNASALA
Stóragerði 111 fm 4ra herbergja íbúð
á 4. hæð. Sprautulökkuð innrétting í eld-
húsi, stór stofa, suðusvalir, mikið útsýni,
18 fm bílskúr.
Kópavogsbraut 144 fm einbýli á
einni hæð, góðar innréttingar, parket á
gólfum. 40,6 fm bílskúr. Húsið er teiknað
af Manfreð Vilhjálmssyni. Möguleg skipti á
íbúð t.d. í Salahverfi.
Álfhólsvegur VEKTAKAR. 146 fm
einbýlishús á tveimur hæðum sem er
mjög lélegt eða jafnvel ónýtt. Húsið stend-
ur á 979 fm lóð og væntanlega má byggja
á lóðinni hús með 4-6 íbúðum. Tilboð
óskast.
Laufbrekka Glæsilegt 191 fm einbýl-
ishús með 30 fm aukaíbúð. Vandaðar inn-
réttingar. Á jarðhæð er 195 fm iðnarhús-
næði, hæð á hurðum um 3,9 metrar.
Kársnesbraut 80 fm 3ja herbergja
íbúð með sér inngangi á efri hæð í tvíbýli.
Góð innrétting í eldhúsi, tvö svefnher-
bergi, flísalagt baðherb. Viðarklædd loft,
mikið útsýni.
Furugrund 88 fm glæsileg 3ja herb.
íbúð á 3. hæð. Sprautulökkuð innrétting í
eldhúsi, tvö svefnherbergi með skápum,
rúmgóð stofa með vestursvölum, nýlegt
plastparket.
Hamraborg 93 fm 3ja herb. íbúð á 1.
hæð. Tvö svefnherb. stofa með vestur-
svölum. Íbúðin er nýmáluð, laus strax.
Gullsmári 86,6 fm 3ja herbergja íbúð
á 7. hæð í lyftuhúsi. Viðarinnréttingar í
eldhúsi, parket og flísar á gólfum, flísalgt
baðherbergi, mikið útsýni.
Nýbýlavegur Til sölu húseignin Ný-
býlavegur 32, alls um 600 fm. Á 1. hæð er
240 fm iðnaðarhúsnæði (verslunarhús-
næði), á 2. hæð er 226 fm iðnarahúsnæði
með innkeyrsludyrum, og á 3. hæð er 135
fm íbúð, glæsilegt útsýni og stórar svalir.
Skorradalur 49 fm sumarbústaður
byggður 1998, við Skorradalsvatn í landi
Fitja. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu,
skápar í öllum herbergjum. Baðherbergi
með sturtu. Veggir panelklæddir. Raf-
magn og vatn er í húsinu. Stór verönd er
með húsinu og mikið útsýni yfir vatnið.
Laugarvatn Til sölu Tjaldmiðstöðin á
Laugarvatni, eignir og rekstur, sem eru
m.a. um 214 fm söluskáli með sætum fyr-
ir um 100 manns, vínveitingarleyfi og gott
eldhús. Nýtt, gott íbúðarhús, um 100 fm.
Stækkunarmöguleikar. Einstakt tækifæri
fyrir samhenta fjölskyldu. Allar nánari upp-
lýsingar eru veittar á skriftofu Eignaborg-
ar.
Erum með kaupanda að 3ja-
4ra herb. íbúð í Rjúpnasöl-
um eða Smáranum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Fjölbýlishúsið er á Njálsgötu 19. Það er fjórar hæðir og í því eru fjórtán íbúðir. Hönnuðir fjölbýlishússins eru arkitektarnir
Guðrún F. Sigurðardóttir og Laurent Bonthonneau hjá Tangram arkitektum ehf., en íbúðirnar verða afhentar 1. nóvember
nk. fullfrágengnar og fullbúnar og með öllum gólfefnum. Benedikt Sigurðsson húsamíðameistari byggir húsið, en íbúð-
irnar eru til sölu hjá fasteignasölunni Valhöll.
Hús Ölgerðar Egils Skallagrímsonar setti lengi mikinn svip á Njálsgötu.