Morgunblaðið - 30.05.2005, Síða 40

Morgunblaðið - 30.05.2005, Síða 40
40 F MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Sími 545 0800 www. gardatorg.is - Vantar 3ja - 4ra herb. í Garðbæ - Vantar raðhús í Garðabæ - Vantar stórt einbýli í Garðabæ - Í raun vantar allar gerðir eigna í Garðabæ og á Álftanesi. Nú eru margir kaupendur en allt of fáir seljendur þannig að nú er rétti tíminn til að selja. Höfum fjölmarga kaupendur á skrá sem bíða eftir réttu eigninni. SUMARIÐ ER RÉTTI TÍMINN TIL AÐ SELJA FASTEIGNIR STEKKJARFLÖT - GBÆ Mjög gott samtals 204 fm einbýlishús á einni hæð á einum besta stað á Flötunum. Íbúðin er 156 fm og tvöfaldur bílskúr 54 fm. Sérlega vel skipulagt hús. Örstutt er í alla þjónustu svo sem verslun, skóla og íþróttir. ESKIHOLT - GBÆ Glæsilegt og mjög gott samtals 320 fm hús á frábærum útsýnisstað í Garðabænum. 5 svefnherbergi, sólskáli, tvöfaldur bílskúr og falleg lóð. Falleg eign í toppstandi. ASPARHOLT - ÁLFTANES Glæsilegt 180 fm raðhús með bílskúr á besta stað á Álftanesinu. 3-4 svefnherbergi. Vandaðar innréttingar og tæki. Húsið skilast fullbúið án gólfefna í júlí 2005. Örstutt í skóla og ýmsa aðra þjónustu. Verð 32,8 millj. ASPARHOLT - ÁLFTANES Glæsilegt 181 fm endaraðhús með bílskúr á besta stað á Álftanesinu. 3-4 svefnherbergi. Vandaðar innréttingar og tæki. Húsið skilast fullbúið án gólfefna í ágúst 2005. Örstutt í skóla og ýmsa aðra þjónustu. Verð 33,6 millj. BORGARÁS - GBÆ Mjög góð 104,5 fm efri sérhæð í eldri hluta Ásahverfis. 4 svefnherb. Nýlega mikið lagfærð íbúð á frábærum útsýnisstað. Húsið einnig nokkuð lagfært. Sumarbústaðir HVAMMUR - SKORRADAL Nú fer hver að verða síðastur - fjórar lóðir eftir. Þeir sem vilja það besta verða að skoða þetta. Sjá myndir á : www.gardatorg.is Hringdu strax og við sendum þér skipulagsgögn, við svörum alltaf símanum (545-0800). SKORRADALUR-DAGVERÐARNES Mjög góður um 70 fm bústaður á steyptum sökkli á góðum útsýisstað. Mjög gott og vandað hús. Tilbúið til innréttinga. 7800 fm lóð. Verð 9,9 millj. Verslunarhúsnæði GARÐATORG - GBÆ Nýkomið í sölu 117 fm verslunarhúsnæði í miðbæ Garðabæjar. Snyrtilegt og gott húsnæði. Ný timburverönd út á yfirbyggða göngugötu. Verð 17,9 millj. FLESJAKÓR - KÓP. Glæsilegt 197,4 fm (26,2 fm bílskúr) parhús á tveimur hæðum á frábærum stað í nýja Kórahverfinu í Kópavogi. Húsið er í byggingu og afhendist fullbúið að utan og rúmlega fokhelt í haust. Verð 30,9 millj. ÞINGVAÐ - NORÐLINGAHOLT Glæsilegt einbýli á einni hæð á besta stað í holtinu, neðan við götuna og opið svæði sunnan við og áin Bugða. Afhendist fullbúið að utan (steinað) en fokhelt að innan í febrúar 2006. IÐNBÚÐ - GBÆ - LAUST Til leigu gott 150 fm innkeyrslubil í góðu og vel staðsettu húsi miðsvæðis í Garðabæ. Góð og þægileg aðkoma. Leiga 120 þús/mán. GARÐATORG - GBÆ Mjög gott 103 fm verslunar- eða þjónustu bil í miðbæ Garðbæjar. Skiptist í fimm herbergi, baðherbergi með sturtu. Tveir inngangar. Verð 11,9 millj IÐNBÚÐ - GBÆ Til sölu mjög gott 118 fm húsnæði á jarðhæð á góðum stað. Einnig rekstur sólbaðsstofu sem rekin er í húsnæðinu. Verð kr. 14.9 millj TINDASEL - RVK. 391,5 fermetra verslunarhúsnæði. Mjög gott hús sem er sérbyggt undir verslunarrekstur. Mjög góð aðkoma og næg bílastæði. Í dag rekur Bónus verslun í húsinu. Verð 48 millj. STANGARHYLUR - RVK. 659,5 fm iðnaðar-/atvinnuhúsnæði með skrifstofurýmum, anddyri, stigahúsi og snyrtingum á 1. og 2. hæð. Á fyrstu hæð er lager og verkstæði, mikil loftæð á fyrstu hæð að hluta. Verð 70 millj. SMIÐJUVEGUR - KÓP. 250 fermetra atvinnuhúsnæði á fyrstu hæð. Húsnæðið skiptist í vinnusal, skrifstofu, eldhús með innréttingu, snyrtingu með sturtu. Verð 26 millj. LAUGAVEGUR VIÐ HLEMM Mjög gott 377 fermetra atvinnuhúsnæði 1. hæð Góð innkeyrsluhurð. Góð fjárfesting og miklir möguleikar hér. Verð kr. 39 millj. Reykjavík - Þetta timburhús við Álagranda 4 má muna tímana tvenna, en það stóð áður við Lauga- veg 86, næsta hús við Stjörnubíó. Húsið var orðið býsna óhrjálegt, þegar Eignarhaldsfélagið Fjölhæfni ehf. í Keflavík réðst í að kaupa húsið, sem stóð þá enn á sínum gamla stað, til þess að flytja það á nýjan stað og gera það upp. Flutningar á húsinu voru ýmsum vandkvæðum bundnir en tókust samt býsna vel. Stálbitum var stung- ið undir húsið og það síðan híft í heilu lagi á dráttarbíl, sem ók með það nið- ur Barónsstíg, þaðan á Skúlagötu, eftir Sæbraut, niður Mýrargötu og þaðan vestur á Álagranda 4. Við þá götu standa nokkur gömul og upp- gerð hús, sem einnig hafa verið flutt þangað og hafa sögulegt gildi. Guðmundur Sigurjónsson hjá Fjölhæfni og Hákon Árnason önn- uðust endurnýjun hússins, en í því eru nú þrjár íbúðir, sem allar eru til sölu hjá Xhúsum. „Endurnýjun hússins var mjög umfangsmikil en hefur tekizt vel og nú er það nánast eins og nýtt hús á nýjum stað,“ segir Valdimar R. Tryggvason hjá Xhús- um. „Utanhúss er húsið með nýrri bárujárnsklæðningu á þaki og veggj- um. Gluggar og gler er nýtt en gluggar með sínu gamla útliti, einnig þakgluggar á efstu hæð. Kjallari var steyptur undir húsið ásamt stigagangi og burðargrind hússins og þak var bætt. Að innan voru útveggir, milliveggir og gólf einangruð. Íbúðin á 1. hæð er 4–5 herbergja, 127 ferm. að stærð og er ásett verð 28,9 millj. kr. Íbúðin á 2. hæð er 3–4 herbergja, 101 ferm. og ásett verð er 23,9 millj. kr. Íbúðin í risi er 3–4 her- bergja, 87 ferm. og ásett verð er 22,9 millj. kr. Inni í íbúðunum var reynt að halda í þann gamla stíl og stemmningu, sem fylgdi húsinu í upphafi. Þannig eru m. a. furuborð í gólfum. Búið er að samþykkja bílskúrsrétt fyrir íbúðir á 1. og 2. hæð. „Þetta hús á eftir að þjóna hlut- verki sínu sem íbúðarhús um langan aldur,“ segir Valdimar. „Það var örugglega vel til þess vandað í upp- hafi og það byggt af góðum efnum, sem á eflaust sinn þátt í því, hve end- urnýjun hússins hefur tekizt vel. Húsið sómir sér líka afar vel á sínum nýja stað og götumyndin við Ála- granda er nú enn fallegri en áður, eftir að húsið var flutt þangað og gert upp.“ Af Laugavegi vestur á Álagranda Álagrandi 4 er eins og nýtt hús á nýjum stað. Salir.is er upplýsingaveita fyrir þá sem eru að leita að sal til leigu fyrir mismunandi tilefni. Vantar þig sal fyrir fund í fyrirtækinu, stúdents- veislu, íþróttasýningu eða jafnvel myndlistarsýningu? Á vefnum eru myndir af veislusölum og upplýs- ingar um þá, hversu marga þeir taka í sæti o.s.frv. og þjónustuna sem í boði er. Hjá Gulu línunni er einnig hægt að fá upplýsingar um sali til leigu og síðast en ekki síst er hægt að leita á gulu síðunum í Símaskránni undir Veislu- og fundarsalir. Viðhöfn á veisluborði. Salir til leigu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.