Morgunblaðið - 30.05.2005, Síða 46

Morgunblaðið - 30.05.2005, Síða 46
46 F MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Opið mán.-fim. frá kl. 9-18, fös. frá kl. 9-17 Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson, Rósa Guðmundsdóttir, Benedikt G. Grímsson Löggiltur fasteignasali Pétur Þ. Sigurðsson hrl. Sími 562 4250 Borgartún 31 105 Reykjavík Fax 562 4249 www.fjarfest.is fjarfest@fjarfest.is VOGAR - VATNSLEYSUSTRÖND - NÝTT Hafin er bygging á þremur fjölbýlishúsum við Heiðargerði í Vogum. Íbúðirnar verða 2ja, 3ja og 4ra herbergja, allar með sér inngangi. Um er að ræða 3ja hæða hæða steinsteypt hús, einangrað og álklætt að utan. Íbúðirnar verða afhentar tilbún- ar án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi þar sem verða flísar. Íbúðirnar verða með vönduð- um innréttingum, sérþvottahúsi og geymslu í hverri íbúð. Öll sameign frágengin og einnig lóð. Fyrstu íbúðir til afhendingar í ágúst 2005. Bygg- ingaraðili er Trésmiðja Snorra Hjaltasonar ehf. Teikningar og nánari uppýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar og á netinu, slóðin er www.fjarfest- ing.is/tsh/heidargerdi/. Vogar á Vatnsleysuströnd er lítið og notalegt bæjarfélag, um það bil miðja vegu á milli höfuðborgarsvæðisins og Reykjanes- bæjar. Íbúum þar hefur fjölgað ört á undanförnum árum og eru þeir í dag um það bil 1000. Góður skóli, nýlegt íþróttahús og sundlaug ásamt öflugri félagsmiðstöð. Aðeins 15-20 mínútur tekur að aka til Hafnarfjarðar. 2ja - 3ja herbergja íbúðir Hverfisgata – 2ja herb. Mjög falleg 2ja herbergja risíbúð, 55,8 fm (gólf- flötur um 65 fm), á 3. hæð í nýlegu yfirförnu fjölbýlishúsi í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin er öll nýlega standsett og er því í mjög góðu ástandi. Flísalagt anddyri með góðum fata- skáp, baðherbergi flísalagt, en merbauparket á öðrum gólfum íbúðarinnar. Glæsileg eld- húsinnrétting úr kirsuberjavið. Mikil lofthæð er í stofu Klapparstígur – 2ja herb. Góð 2ja herbergja íbúð, 64,8 fm, á 2. hæð í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi í miðbæ Reykja- víkur. Íbúðin skiptist í forstofu með dúk á gólfi og góðum skáp. Eldhús með nýlegri hvítri innréttingu og steinflísum á gólfi. Bað- herbergi með sturtuklefa, flísum á gólfi og innréttingu. Svefnherbergi með skáp og dúk á gólfi. Þvotta- og þurrkherbergi ásamt sér- geymslu í kjallara. Húsið sjálft og sameignin er í góðu ástandi. Íbúðin er laus strax. Sólheimar – 2ja herb. Til sölu mjög góð 2ja herbergja íbúð, 71,8 fm, á jarðhæð með sérinngangi á þessum góða stað í austurbæ Reykjavíkur. Íbúðin er mikið endurnýjuð. Fallegt eldhús með nýlegri inn- réttingu og vönduðum tækjum, eldavél með gasi. Stór stofa með parketi á gólfum. Bað- herbergi flísalagt, með sturtu og innréttingu. Góður ræktaður garður. Snyrtileg sameign, búið að klæða tvær hliðar hússins að utan með steni. 4ra herbergja íbúðir Lundarbrekka – 4ra herb. Til sölu góð og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á 4. hæð með sérinngangi af svöl- um. Íbúðin er talsvert endurnýjuð, m.a. er nýtt gler. Flísalagður gangur og stofa, úr stofu er útgangur á suðursvalir. Í baðherbergi er flísalagt gólf og veggir og upphengt sal- erni. Þvottaherbergi er í íbúðinni. Stór sér- geymsla er á jarðhæð, auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Húsið verður mál- að að utan í sumar. Einstaklingsíbúðir Austurberg – einstaklings- íbúð Til sölu góð og vel skipulögð ein- staklingsíbúð, 43,2 fm. Íbúðin, sem er á 1. hæð, hefur nýlega verið standsett, nýlegar innréttingar, skápar og gólfefni. Inn í íbúðinni er rúmgóð geymsla sem nýtt er í dag sem barnaherbergi. Úr stofu er gengt út á suðvest- urverönd. Sameiginlegt þvottaherbergi er með annarri íbúð. Stutt er í alla þjónustu, skóla, sund og verslanir. Sérhæð Barmahlíð – 5 herb. sérhæð Til sölu góð sérhæð á rólegum stað í mikið endurnýjuðu húsi. Um er að ræða 102,9 fm íbúð. Þrjú svefnherbergi með góðu skápa- plássi, tvær samliggjandi stofur með tepp- um. Flísalagt baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Eldhús með góðri upprunalegri innréttingu og parketi á gólfi. Nýuppgerðar, flísalagðar suðursvalir. Búið er að endurnýja rafmagn og heita- og kaldavatnslagnir. Hús- ið hefur verið steinað að utan upp á nýtt og lagaður þakkantur. Sérbílastæði er á baklóð og möguleiki á að byggja þar bílskúr. Funafold – 4ra herb. sér- hæð Til sölu góð og vel skipulögð 120 fm neðri hæð með sérinngangi, auk 26,5 fm bílskúrs sem er innréttaður sem íbúð. Góðar innréttingar, innbyggð uppþvottavél og ís- skápur fylgja. Parket og flísar eru á gólfum. Úr stofu er gengið út á góða timburverönd sem snýr í suður. Garður í góðri rækt er við húsið. Sumarhús Sumarbústaður Erum með til sölu nýjan sumarbústað, tilbúinn til afhendingar. Um er að ræða 48 fm sumarhús. Bústaður- inn afhendist fullbúinn að utan með harðvið- arhurðum og vönduðum gluggum. Gólf er frágengið og einangrað. Bústaðurinn er tilbú- inn til afhendingar og flutnings nú þegar. Sumarbústaður – Þingvalla- vatn Til sölu fallegur sumarbústaður í Mið- fellslandi við Þingvallavatn. Um er að ræða sumarbústað, 75 fm, með tæp- lega 100 fm sólverönd allt í kring um húsið. Bústaðurinn, sem er byggður 1984, er með þremur svefnherbergjum, snyrtingu, eldhúskrók og stofu, einnig er geymsla aftast á veröndinni. Rafmagn er í bústaðnum, heilsársvatn og raf- magnshitakútur. Bústaðurinn stendur á 2000 fm eignarlandi. VANTAR EIGNIR - MIKIL SALA Seljendur, hafið samband við sölumenn, sími 562 4250 SJÁLAND - GARÐABÆ - NÝTT - Strandvegur 4-10 Nýjar og vandaðar 2ja til 5 herbergja íbúðir í 3ja hæða fjölbýlishúsi. Íbúðirnar verða 71,4 fm til 159,5 fm, flestar með suður- eða vestursvölum. Þær verða afhentar tilbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi en þar verða flísar. Þá verða þær búnar vönduðum innréttingum. Stæði í bílageymslu, sem innangengt verður í úr húsinu, mun fylgja flestum íbúðum. Stutt í miðbæ Garðabæjar og í Smáralind. Afhending í september til nóvember 2005. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar, Borgartúni 31 og á www.fjarfest.is. SJÁLAND - GARÐABÆ - NÝTT - Strandvegur 21 Nýjar og glæsilegar íbúðir í 3ja hæða fjölbýlishúsi með lyftu, sem stendur sjávarmegin við Strandveginn og eru með frábæru út- sýni. Íbúðirnar verða 104,4 fm til 139,5 fm, flestar með suður- eða vestursvölum. Þær verða afhentar tilbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og í þvottahúsi, en þar verða flísar. Þá verða þær búnar vönduðum, sérsmíðuðum innréttingum frá Brúnás. Stæði í bílageymslu mun fylgja öllum íbúðunum. Öll sameignin, lóð og bílastæði verður skilað fullfrágengnu. Stutt í miðbæ Garðabæjar og í Smáralind. Afhending í janúar 2006. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar, Borgartúni 31 og www.fjarfest.is www. fjarfest.is Reykjavík - Hjá Fasteignamarkaðnum er nú til sölu glæsileg og mikið endurnýjuð 175,4 ferm. efri hæð og ris í fallegu og góðu steinhúsi við Grenimel 2. Einnig fylgir 45,5 ferm. sérstæður bílskúr á tveimur hæðum. Gengið er inn um sérinngang á 1. hæð hússins og komið í forstofu með steinteppi á gólfi. Úr forstofu er innangengt í sameign í kjallara. Fal- legur og breiður stigi er upp á efri hæð og er hann lagður steinteppi. Stigapallur er með steinteppi á gólfi. Inn af stigapalli er rúmgott fataherbergi með glugga og steinteppi á gólfi. Í forstofu, stiga og á stigapalli er fallegur panell á veggjum að hluta. Af stigapalli er gengið inn í stórt hol með lín- oleumdúk. Baðherbergi er flísalagt á gólfum og veggjum og með glugga. Þar er baðkar með sturtuaðstöðu, skápar og vaskskápur. Stofurnar eru mjög stórar, bjartar og samliggjandi með rennihurð á milli og línoleumdúkur á gólfi. Eld- húsið er mjög stórt og með miklum nýjum hvít- um sprautulökkuðum innréttingum með harð- viðarplötum. Þar eru falleg og vönduð tæki og háfur úr burstuðu stáli. Uppþvottavél er innfelld í innréttingu. Einnig er góð borðaðstaða og út- gangur út á svalir til suðausturs úr eldhúsi. Hjónaherbergi er inn af holi með góðum hvít- um sprautulökkuðum fataskápum á heilum vegg. Vinnuherbergi er korklagt og með skáp inn af. Gengið er upp í ris um viðarstiga með hand- riði en þar er stórt sjónvarpshol, korklagt og með skápum. Einnig er þar rúmgott baðher- bergi með glugga og sturtuaðstöðu og þrjú rúm- góð barnaherbergi, korklögð og svalir eru út af einu herbergi til suðausturs. Geymsluris með lítilli lofthæð er yfir íbúðinni. Í kjallara hússins er sérgeymsla, sameigin- legt þvottaherbergi og sameiginlegur kyndi- klefi. Bílskúr er með rafmagni og hita, en kjall- ari er undir bílskúr. Húsið er í góðu ásigkomulagi að utan, nýlega málað og þak hússins er í lagi. „Þetta er frábær staður í Vest- urbænum,“ segir Jón Guðmundsson hjá Fast- eignamarkaðnum. Ásett verð er 41,9 millj. kr. Grenimelur 2 Þetta er mikið endurnýjuð 175,4 ferm. efri hæð og ris í fallegu og góðu steinhúsi. Einnig fylgir 45,5 ferm. sérstæður bílskúr á tveimur hæðum. Ásett verð er 41,9 millj. kr., en íbúðin er til sölu hjá Fasteignamarkaðnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.