Morgunblaðið - 24.06.2005, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
PRESTAR TIL KANADA?
Íslenskir prestar hyggja hugs-
anlega á útrás en uppi eru hug-
myndir um að Íslendingar þjóni
söfnuðum lúthersku kirkjunnar í
Kanada. Á Íslandi er venjulega bar-
ist um prestsembættin en því er öf-
ugt farið í Kanada.
Blair vill ræða breytingar
Forsætisráðherra Breta segir að
gera verði félagslegt kerfi ESB nú-
tímalegra og skilvirkara. Hann segir
enn fremur að markmið samfélags-
módelsins í álfunni eigi að vera að
auka samkeppnishæfnina, gera fólki
kleift að takast á við viðfangsefni
hnattvæðingarinnar.
Ný aðferð við riðuskimun
Með nýrri aðferð við riðuskimun
hefur riða greinst í löndum þar sem
hennar hefur ekki orðið vart áður.
Þessi aðferð hefur nú verið tekin
upp á Tilraunastöð HÍ í meinafræði
að Keldum en vonir standa til að að-
ferðin geti flýtt fyrir útrýmingu
riðu.
Uppreisnarmönnum fjölgar
Æðsti yfirmaður hers Bandaríkja-
manna í Persaflóa, John Abizaid,
sagði í gær að uppreisnin í Írak hefði
ekki dalað síðasta hálfa árið, þrátt
fyrir yfirlýsingar Dick Cheneys,
varaforseta, í síðasta mánuði um að
hún væri „á síðustu metrunum“.
Abizaid álítur að fleiri erlendir upp-
reisnarmenn komi inn í Írak nú til að
berjast.
Úlfaldaknapar komnir heim
Tuttugu og tveimur drengjum frá
Pakistan, sem starfað höfðu sem úlf-
aldaknapar í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum, var komið aftur til
heimkynna sinna í gær. Athygli
vakti að ekkert foreldri kom til að
sækja drenginn sinn.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Fréttaskýring 8 Forystugrein 30
Viðskipti 16 Viðhorf 32
Erlent 18/19 Minningar 33/45
Minn staður 20 Myndasögur 58
Höfuðborgin 21 Dagbók 48/51
Landið 21 Staður og stund 50
Akureyri 22 Leikhús 52
Austurland 22 Bíó 54/57
Daglegt líf 24/225 Ljósvakamiðlar 58
Listir 26 Veður 59
Umræðan 27/32 Staksteinar 59
* * *
STARFIÐ á smíðavöllum borg-
arinnar hefur verið í miklum blóma
frá byrjun sumars en að sögn Sig-
urðar Más Helgasonar, umsjón-
armanns smíðavalla ÍTR, taka um
fimm hundruð börn þátt í starfinu á
sumri hverju. Er nú þegar búið að
reisa yfir tvö hundruð kofa á níu
smíða kofa á smíðavöllunum fá
góðar leiðbeiningar frá starfsfólki
smíðavallanna.
„Hér eru ungmennin að smíða
sitt fyrsta hús og þegar þau hafa
lokið smíðavinnu hjá okkur eiga
þau að geta sagt foreldrum sínum
til.“
stöðum í borginni. „Þetta hefur
gengið afskaplega vel og ung-
mennin kunna svo sannarlega að
smíða fallega kofa. Þannig hefur
það verið okkar markmið að kof-
arnir séu sem best úr garði gerðir
og haldi jafnvel vatni,“ segir Sig-
urður en þau ungmenni sem vilja
Morgunblaðið/RAX
Völlur á upprennandi smiðum
LANDSBANKINN bar ekki
ábyrgð á því að maður sem er 100%
öryrki vegna höfuðkúpubrots tapaði
rúmlega 4,2 milljónum á kaupum á
hlutabréfum í deCODE, samkvæmt
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.
Maðurinn keypti hlutabréfin árið
2000 með milligöngu bankans, á
tæplega fimm milljónir en tveimur
árum síðar fékk hann aðeins rúm-
lega 700.000 krónur fyrir sömu bréf.
Maðurinn slasaðist í umferðar-
slysi árið 1996 og olli höfuðkúpu-
brotið því að hann er óvinnufær og
þjáist af minnistruflunum og þung-
lyndi. Í vottorði geðlæknis segir að
hverjum þeim sem áttu viðskipti við
hann á umræddum tíma hefði átt að
vera ljóst að hann gekk ekki heill til
skógar.
Bótakrafa hans byggðist m.a. á
því að Landsbankinn hefði brotið
lög með sölunni á hlutabréfunum,
bankanum hefði ekki verið heimilt
að selja hlutabréfin þar sem al-
mennt hlutafjárútboð hefði átt að
fara fram og auk þess hefðu bréfin
að öllum líkindum verið í eigu bank-
ans sjálfs. Þessu hafnaði dómurinn.
Krafan byggðist sömuleiðis á því
að bankinn hefði hvorki gefið upp-
lýsingar um áhættuna sem fylgdi
fjárfestingunni né hirt um að kynna
sér aðstæður eða ásigkomulag
mannsins. Bankanum hefði átt að
vera ljóst að maðurinn var óhæfur
til að taka ákvörðun um fjárfest-
ingar. Dómurinn taldi óupplýst
hvort tekið hefði verið tillit til fötl-
unar mannsins við ráðgjöf. Á hinn
bóginn hlyti honum að hafa verið
ljóst að áhætta fylgdi viðskiptunum
og að margir hefðu orðið fyrir því að
tapa fé á bréfum í fyrirtækinu. Þá
var bent á að maðurinn hafði keypt
og selt hlutabréf í deCODE með
hagnaði, áður en hann stofnaði til
viðskiptanna sem urðu til þess að
hann tapaði fé. Þá væri maðurinn
fjárráða og sjálfráða og ekkert lægi
fyrir um að óskað hefði verið eftir
breytingum á þeirri stöðu. Dómur-
inn féllst því ekki á að Landsbank-
inn hefði gerst sekur um ólögmæta
háttsemi.
Friðgeir Björnsson kvað upp
dóminn. Hróbjartur Jónatansson
hrl. flutti málið fyrir hönd mannsins
og Ólafur Helgi Árnason hdl. fyrir
hönd bankans.
Hlaut að vera ljós áhætt-
an af viðskiptunum
Landsbankinn sýknaður vegna viðskipta með deCODE-bréf
MIKIL leit var gerð að línu- og
handfærabátnum Eyjólfi Ólafssyni
GK-38 bæði í gær og fyrradag.
Áhöfn TF-LIF fann bátinn 58 sjó-
mílur vestur af Reykjanestá um kl.
13 í gær og amaði ekkert að tveimur
skipverjum sem voru um borð í bátn-
um.
Í tilkynningu um málið frá Gæsl-
unni segir að skipstjórinn hafi haft
samband við vaktstöð siglinga á mið-
vikudagsmorgun kl. hálfsex og sagst
vera á leið í svokallaðan Kant 30 sjó-
mílur vestur af Stafnesi og að hann
ætlaði að hlusta á fjarskiptarás 10.
Varðstjóri í vaktstöð siglinga benti
honum á að ólöglegt væri að fara út
fyrir drægi sjálfvirku tilkynninga-
skyldunnar en skipstjórinn sagðist
samt sem áður ætla að gera það. Þá
var skipstjórinn beðinn að hlusta á
rás 16 sem er alþjóðleg neyðarrás og
gefa upp símanúmer í NMT-farsíma
bátsins. Báturinn hvarf út af skjám
sjálfvirka tilkynningakerfisins kl.
9.20 sama morgun. Ekki náðist sam-
band við bátinn en um kvöldið barst
vaktstöð siglinga tilkynning frá Haf-
borgu GK-321 um að báturinn væri á
sama stað og hann hafði gefið upp
um morguninn, þ.e. í Kanti, 30 sjó-
mílur vestur af Stafnesi. Seinna kom
í ljós að Hafborgin var stödd í höfn í
Sandgerði þegar tilkynningin var
send og því vandséð hvaðan skip-
verjar Hafborgar gátu fengið þessa
vitneskju.
Vaktstöð siglinga hélt áfram að
reyna að ná í skipstjórann fram eftir
kvöldi án árangurs.
Óhress með tilstandið
Í gærmorgun fór stjórnstöð Land-
helgisgæslunnar í vaktstöð siglinga
að skipuleggja leit að bátnum.
Björgunarbáturinn Hannes Þ. Haf-
stein frá Sandgerði var kallaður út
og áhöfn TF-LIF, þyrlu Landhelg-
isgæslunnar. Einnig var björgunar-
báturinn Oddur V. Gíslason frá
Grindavík kallaður út.
Um hádegisbilið voru send út ör-
yggisskilaboð til skipa á svæðinu,
svokölluð PAN PAN-skilaboð, sem
eru undanfari neyðarkallsins
Mayday. Klukkan 13 fann svo áhöfn
TF-LIF bátinn 58 sjómílur vestur af
Reykjanestá. Báturinn var á heim-
leið. Þegar stýrimaður í áhöfn TF-
LIF náði sambandi við skipstjórann
voru skilaboðin þau að Landhelgis-
gæslan og vaktstöð siglinga ættu að
hafa áhyggjur af einhverju öðru og
var hann óhress með allt tilstandið.
Báturinn var með útrunnið haf-
færisskírteini þar sem björgunar-
bátar hans höfðu ekki verið skoðaðir
nýlega og báturinn sigldi út fyrir lög-
legt farsvið sitt. Þegar haffærisskír-
teini er ekki gilt hafa skipverjar
heldur engar tryggingar samkvæmt
upplýsingum Gæslunnar.
Mikil leit að smábáti
sem fór út fyrir svið sitt
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
HÉRAÐSDÓMUR Reykja-
víkur framlengdi í gær til 30.
júní gæsluvarðhald yfir er-
lendu pari sem grunað er um
fjárdrátt og skjalafals hér á
landi.
Fólkið var handtekið í
Kaupmannahöfn að beiðni
lögreglunnar í Reykjavík og
flutt hingað til lands þar sem
það var úrskurðað í gæslu-
varðhald vegna rannsóknar-
hagsmuna.
Fólkið er grunað um að
hafa svikið fé út úr hérlend-
um bönkum. Mun það hafa
flutt tvo jeppa sem það var
með á leigu hjá íslenskum
bílaleigum með sér til Dan-
merkur með ferjunni Nor-
rænu. Parið var handtekið
þegar ferjan kom til hafnar í
Hanstholm í Danmörku og
síðan framselt til Íslands.
Gæslu-
varðhald
framlengt
HUGMYNDIR eru uppi um miklar
breytingar á svæði Laugardals-
laugar og hefur Björn Leifsson, eig-
andi World Class, sett fram hugmynd
að 150 herbergja hóteli þar sem
gamla stúkan er nú. Þá veltir hann
fyrir sér umtalsverðum breytingum á
laugarsvæðinu sjálfu.
„Ég sé ekkert þessu til fyrirstöðu
enda eru bæði laugin og stúkan ónýt
og þarf að laga þetta allt saman,“
segir Björn, sem sér fyrir sér fern-
ingslaga 50 metra breiða laug með
1.600 fermetra ferningslaga eyju,
þar sem yrði öldulaug með renni-
brautum auk buslupotta fyrir börn.
„Þar yrðu líka pottar og gufur og sól-
baðsaðstaða. Svo sé ég líka fyrir mér
íþróttahús sem þjóni hverfinu.“
Björn segir nauðsynlegt að klára
svæðið og loka því vel og halda áfram
með þá þróun sem nú á sér stað í
Laugardalnum. „Þetta er frábær
staðsetning fyrir ferðamenn og borg-
arbúa, mjög nálægt miðbænum en
samt aðeins utan við hann,“ segir
Björn, sem kveðst ekki endilega
þurfa að gera þetta sjálfur. „Ég vil
bara að þetta sé gert. Ég hef verið að
kynna þetta fyrir fólki og hugmyndin
hefur lagst vel í það. Þessi eyja verð-
ur alveg frábær fyrir börnin.“
Björn Leifsson vill bæta og breyta
Laugardalssvæðinu til muna.
Vill hótel í stað
stúku Laugar-
dalslaugar
INGÓLFUR Haraldsson, hótelstjóri
Nordica-hótels við Suðurlands-
braut, segir að bótakrafa vegna
tjóns sem varð þegar þrír mótmæl-
endur slettu grænlituðu skyri á
ráðstefnugesti fyrir nokkru, hljóði
upp á þrjár milljónir króna.
Ingólfur segir að mesta tjónið
hafi orðið á sýningartjaldi og ýms-
um tækjabúnaði. Hann vildi ekki af-
henda afrit af kröfunni en hún
verður væntanlega lögð fram í rétti
þegar þar að kemur.
Bótakrafa hljóð-
ar upp á þrjár
milljónir